Reglur um fjárhagsaðstoð í Sveitarfélaginu Hornafirði
I. kafli
Almenn atriði
1. gr.
Inntak fjárhagsaðstoðar
Skylt er að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar, sbr. IV. og VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, með síðari breytingum.
Heimilt er að veita einstaklingum og fjölskyldum aðstoð vegna sérstakra aðstæðna, m.a. vegna heimilisstofnunar, náms eða óvæntra áfalla, sbr. IV. kafla reglna þessara.
Gefa skal sérstakan gaum að fjárhagslegum og félagslegum aðstæðum barnafjölskyldna og meta sérstaklega þarfir barna vegna þátttöku þeirra í þroskavænlegu félagsstarfi.
Jafnan skal kanna til þrautar rétt umsækjanda til annarra greiðslna, þar með talið frá almannatryggingum, atvinnuleysistryggingum, lífeyrissjóðum og sjúkrasjóðum stéttarfélaga, svo og skal kanna rétt til aðstoðar samkvæmt lögum um námsstyrki.
Fjárhagsaðstoð skal veitt í eðlilegum tengslum við önnur úrræði félagsmálanefndar, svo sem ráðgjöf og leiðbeiningar, í samræmi við V. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
2. gr.
Lækkun grunnfjárhæðar
Félagsmálaráði eða starfsmönnum þess er heimilt að greiða lægri fjárhæð til framfærslu en tilgreind er í III. kafla reglna vegna eftirfarandi sérstakra aðstæðna:
a) Umsækjandi hefur hafnað atvinnu eða sagt starfi sínu lausu án viðhlítandi skýringa.
b) Umsækjandi framvísar ekki skráningarskírteini eða dagpeningavottorði frá Vinnumálastofnun án viðhlítandi skýringa.
Heimilt er að skerða aðstoð um helming í ofangreindum tilvikum þann mánuð sem sótt er um og næsta mánuð á eftir.
3. gr.
Réttur fylgir lögheimili
Einstaklingar og fjölskyldur sem eiga lögheimili í Sveitarfélaginu Hornafirði geta eingöngu sótt um fjárhagsaðstoð til Fræðslu- og félagssviðs Hornafjarðar skv. reglum þessum.
4. gr.
Form fjárhagsaðstoðar
Fjárhagsaðstoð skal að jafnaði veitt sem styrkur og er starfsmönnum félagsmálaráðs Hornafjarðar óheimilt að veita lán nema með samþykki ráðsins.
5. gr.
Tímabil samþykkis hverju sinni
Fjárhagsaðstoð skal að öðru jöfnu vera greidd einn mánuð í senn og skulu ákvarðanir um aðstoð að jafnaði ekki ná yfir lengra tímabil en þrjá mánuði. Þegar ljóst er að aðstæður umsækjenda muni ekki breytast á næstu sex mánuðum er heimilt að samþykkja aðstoð í lengri tíma. Aðstæður þeirra sem fengið hafa fjárhagsaðstoð lengur en sex mánuði skulu kannaðar sérstaklega af starfsmönnum Fræðslu- og félagssviðs.
Í undantekningartilvikum er heimilt að veita fjárhagsaðstoð vikulega vegna sérstakra aðstæðna.
6. gr.
Fjárhagsaðstoð aftur í tímann
Fjárhagsaðstoð er aldrei skylt að veita lengra aftur í tímann en fjóra mánuði frá því að umsókn er lögð fram, sbr. 3. mgr. 21. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Rökstuddar ástæður verða að réttlæta slíka aðstoð og verður skilyrðum fjárhagsaðstoðar að vera fullnægt allt það tímabil sem sótt er um.
II. kafli
Umsókn um fjárhagsaðstoð
7. gr.
Umsókn og fylgigögn
Umsókn um fjárhagsaðstoð skal leggja fram hjá starfsmönnum Fræðslu- og félagssviðs Hornafjarðar. Umsókn skal undirrituð á sérstök umsóknareyðublöð, þar sem fram komi upplýsingar um umsækjanda, þar með talið lögheimili, fjölskyldugerð, nafn maka og barna á framfæri og nákvæmar upplýsingar um tekjur og eignir. Umsókn skal fylgja staðfest skattframtal vegna síðastliðins árs, yfirlit yfir allar tekjur og aðrar greiðslur til umsækjanda og maka hans þann mánuð sem umsókn er lögð fram og mánuðinn á undan, þar með taldar greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins, lífeyrissjóðum, Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkrasjóðum stéttarfélaga eða öðrum aðilum, barnabætur, mæðra- og feðralaun og meðlög.
Þegar umsækjandi er atvinnulaus skal hann framvísa skráningarskírteini frá Vinnumálastofnun er staðfestir atvinnuleysi hans. Njóti umsækjandi réttar til atvinnuleysisbóta skal hann framvísa dagpeningavottorði. Hafi umsækjandi ekki fengið atvinnuleysisbætur vegna veikinda skal hann framvísa læknisvottorði.
8. gr.
Upplýsingar um tekjur og fjárhag umsækjanda
Félagsmálaráð getur, ef þörf krefur, aflað frekari upplýsinga um tekjur og eignir umsækjanda, m.a. hjá skattayfirvöldum, atvinnurekendum, Tryggingastofnun ríkisins, lífeyrissjóðum og Atvinnuleysistryggingasjóði. Skal það gert í samráði við umsækjanda. Neiti umsækjandi að veita upplýsingar um fjárhag sinn eða maka stöðvast afgreiðsla umsóknar hans.
Skylt er að veita félagsmálanefnd eða starfsmönnum hennar upplýsingar úr skattframtölum þeirra sem leita fjárhagsaðstoðar. Sama gildir um upplýsingar úr skattframtölum lögskylds framfæranda, enda hafi umsækjandi veitt félagsmálaráði og/eða starfsmönnum þess umboð til að afla þessara upplýsinga, sbr. 24. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
III. kafli
Réttur til fjárhagsaðstoðar
Mat á fjárþörf og útreikningur fjárhagsaðstoðar
9. gr.
Mat á fjárþörf
Við ákvörðun á fjárhagsaðstoð er grunnfjárhæð, sbr. 10. gr., lögð til grundvallar og frá henni dregnar heildartekjur, sbr. 11. gr.
10. gr.
Grunnfjárhæð
Fjárhagsaðstoð til einstaklings 18 ára og eldri miðast að lágmarki við 125.540,- kr. á mánuði, hér eftir nefnd grunnfjárhæð. Grunnfjárhæð breytist í janúar ár hvert samkvæmt samþykkt félagsmálaráðs hverju sinni en hafa skal hliðsjón af þróun neysluvísitölu milli ára.
Grunnfjárhæðin hækkar miðað við fjölskyldustærð eftir því sem hér segir:
Einstaklingur grunnfjárhæð x 1 125.540,- kr.
Tveggja manna fjölskylda “ x 1,6 200.864,- kr.
Þriggja manna fjölskylda “ x 1,8 225.972,- kr.
Fjögurra manna fjölskylda “ x 2,0 251.080,- kr.
Fimm manna fjölskylda “ x 2,2 276.188,- kr.
og svo framvegis þannig að aukning vegna hvers fjölskyldumeðlims nemur 0,2.
11. gr.
Tekjur umsækjanda
Allar tekjur umsækjanda og maka ef við á, í þeim mánuði sem sótt er um og mánuðinum á undan, eru taldar með við mat á fjárþörf. Með tekjum er hér átt við allar tekjur og greiðslur til umsækjanda og maka, þ.e. atvinnutekjur, allar greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins nema greiðslur með börnum, greiðslur úr lífeyrissjóðum og sjúkrasjóðum stéttarfélaga, atvinnuleysisbætur, fæðingarorlofsgreiðslur, meðlög, barnabætur, mæðra-/feðralaun, leigutekjur o.s.frv. og koma til frádráttar. Miða skal við heildartekjur áður en tekjuskattur hefur verið dreginn frá.
Húsaleigu- og vaxtabætur eru ekki taldar til tekna. Gert er ráð fyrir að húsnæðiskostnaði verði fyrst og fremst mætt með greiðslum vaxta- og húsaleigubóta, en einnig er gert ráð fyrir honum í grunnfjárhæð.
12. gr.
Greiðslur meðlags
Þegar tekjur umsækjanda eru við eða lægri en grunnfjárhæðin skal taka tillit til meðlagsgreiðslna með barni eða börnum sem umsækjandi hefur greitt með reglulega fram að þeim tíma að hann fær fjárhagsaðstoð. Hækkar fjárhagsaðstoðin sem nemur einu meðlagi eins og það er á hverjum tíma með hverju barni en að hámarki um tvö meðlög.
Umsækjandi skal sýna fram á að hann hafi staðið í skilum með meðlag a.m.k. undanfarna þrjá mánuði. Átt er við meðlagsgreiðslur hverju sinni, en ekki uppsafnaðar meðlagsskuldir.
Sérákvæði
13. gr.
Atvinnurekendur, sjálfstætt starfandi einstaklingar og fólk í hlutastörfum
Atvinnurekendur og sjálfstætt starfandi einstaklingar, sem hafa lægri tekjur en sem nemur grunnfjárhæð, eiga rétt á fjárhagsaðstoð að því tilskildu að þeir hafi stöðvað atvinnurekstur og leitað réttar síns til atvinnuleysisbóta í samræmi við ákvæði laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, sbr. og 4. mgr. 1. gr. reglna þessara.
Sé umsækjandi sjálfstætt starfandi eða launþegi í hlutastarfi með tekjur undir grunnfjárhæð skal gerð krafa um að viðkomandi skrái sig hjá Vinnumálastofnun og leiti að fullu starfi.
14. gr.
Mat á tekjum bænda
Stundi umsækjandi búrekstur skal mat á tekjum byggt á skattframtali síðasta árs vegna umsókna, sem berast fyrir 1. júlí, en með umsóknum sem berast síðar skal einnig fylgja rekstrar- og efnahagsyfirlit uppfært til 30. júní sl. Þá liggi einnig fyrir greiðslumark búsins, breytingar á bústofni, yfirlit yfir eignir og skuldir aðrar en þær er tengjast viðkomandi rekstri, auk tekna utan bús undanfarna tvo mánuði. Fjárþörf skal miða við grunnfjárþörf, sbr. 10. gr.
15. gr.
Námsmenn
Einstaklingar sem stunda nám sem er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna geta að öðru jöfnu ekki sótt um fjárhagsaðstoð. Sama á við um maka eða sambýlismann námsmanns, enda sé gert ráð fyrir framfærslu maka við útreikning námslána.
IV. kafli
Heimildir vegna sérstakra aðstæðna
16. gr.
Aðstoð til tekjulágra foreldra vegna barna á þeirra framfæri
Heimilt er að veita foreldrum, sem hafa haft tekjur undanfarna fjóra mánuði sem eru við eða lægri en grunnfjárhæðin, sérstaka fjárhagsaðstoð. Um er að ræða aðstoð til að greiða fyrir daggæslu barns í heimahúsum, leikskóla, skólamáltíðir, lengdan skóladag, sumardvöl og/eða þátttöku barns í þroskandi félags- og tómstundastarfi. Viðmiðunarmörk aðstoðar með hverju barni eru 10% af grunnfjárhæð á mánuði.
Heimilt er að veita tekjulágum foreldrum fjárstyrk vegna náms 16 og 17 ára barna þeirra. Hér er átt við foreldra sem hafa haft tekjur á eða undir grunnfjárhæð undanfarna 12 mánuði eða lengur. Skal styrkurinn miða að því að greiða áætlaðan bókakostnað, skólagjöld og ferðakostnað til og frá skóla.
17. gr.
Sameiginlegt heimilishald
Búi umsækjandi í foreldrahúsum eða hjá öðrum ættingjum og njóti þar með hagræðis af því, nemur upphæð fjárhagsaðstoðar til umsækjanda kr. 75.324, sem er mismunur fullrar fjárhagsaðstoðar og fjárhagsaðstoðar til hjóna/sambýlisfólks.
Njóti umsækjandi sannanlega ekki hagræðis af búsetu hjá foreldrum eða ættingjum er heimilt að greiða fulla grunnfjárhæð.
18. gr.
Styrkur vegna húsbúnaðar
Fjárhagsaðstoð til kaupa á húsbúnaði er heimil í eftirfarandi tilvikum:
a) til einstaklings, sem hefur lægri tekjur en sem nema grunnfjárhæð, er eignalaus og er að stofna heimili eftir a.m.k. tveggja ára dvöl á stofnun,
b) til ungs fólks á aldrinum 18–24 ára, sem er eignalaust, með tekjur við eða undir grunnfjárhæð, hefur átt í miklum félagslegum erfiðleikum og er að stofna heimili í fyrsta sinn,
c) til ungra foreldra á aldrinum 18–24 ára, sem eru eignalausir, hafa átt í miklum félagslegum erfiðleikum og eru að stofna heimili í fyrsta sinn.
Viðmiðunarmörk aðstoðar eru grunnfjárhæð nema þegar einstaklingur er að flytjast á sambýli, þá eru mörkin hálf grunnfjárhæð.
Húsbúnaðarstyrkir greiðast einu sinni.
19. gr.
Greiðsla sérfræðiaðstoðar
I. Heimilt er að veita fjárhagsaðstoð til greiðslu nauðsynlegra tannlækninga til einstaklinga sem hafa tekjur við eða undir grunnfjárhæð og fullnægja a.m.k. einu eftirfarandi skilyrða:
a) hafa átt við langvarandi atvinnuleysi að stríða eða verið tekjulausir undanfarna sex mánuði eða lengur,
b) eru lífeyrisþegar,
c) hafa notið fjárhagsaðstoðar til framfærslu til lengri tíma.
d) Viðmiðunarmörk aðstoðar eru hálf grunnfjárhæð á ári.
Kostnaðaráætlun tannlæknis skal fylgja með umsókn.
II. Heimilt er að veita einstaklingum í eftirtöldum aðstæðum fjárhagsaðstoð til greiðslu viðtala hjá félagsráðgjöfum, geðlæknum og sálfræðingum, sem liður í umfangsmeiri aðstoð:
a) einstaklingum á aldrinum 18–24 ára, sem alist hafa upp við mikla og langvarandi félagslega erfiðleika,
b) einstaklingum sem hafa átt við mikla félagslega erfiðleika að stríða,
c) einstaklingum eða fjölskyldum sem hafa orðið fyrir alvarlegum áföllum, svo sem skyndilegum ástvinamissi eða alvarlegu ofbeldi.
Viðmiðunarmörk aðstoðar eru hálf grunnfjárhæð á ári.
20. gr.
Útfararstyrkir
Heimilt er að veita aðstoð til greiðslu útfararkostnaðar þegar staðreynt hefur verið að dánarbúið getur ekki staðið undir útför hins látna. Viðmiðunarmörk eru 160.000 kr.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn um útfararstyrk: Staðfest ljósrit af skattframtali hins látna, launaseðlar og greiðsluyfirlit frá tryggingum og lífeyrissjóðum, staðfesting frá stéttarfélagi um rétt til útfararstyrks, tilkynning sýslumanns um skiptalok á grundvelli eignayfirlýsingar, sbr. 25. gr. laga um skipti á dánarbúum o.fl., nr. 20/1991, eða einkaskiptaleyfi útgefið af sýslumanni til erfingja skv. 31. gr., sbr. 28. gr. laga um skipti á dánarbúum o.fl.
Heimilt er að veita eftirlifandi maka lán eða styrk vegna útfararkostnaðar þegar dánarbúið getur ekki greitt fyrir útför hins látna og eignir eftirlifandi maka eru ekki aðrar en íbúðarhúsnæði sem umsækjandi býr í.
Heimilt er að veita tekjulágu foreldri eða foreldrum fjárhagsaðstoð vegna útfararkostnaðar barns.
Samþykkt aðstoð greiðist gegn framvísun reiknings frá útfararstofu og annarra gagna um kostnað vegna útfarar.
21. gr.
Öryggishnappur
Heimilt er að veita lífeyrisþegum fjárhagsaðstoð vegna öryggishnapps. Skilyrði er að umsækjendur hafi einungis tekjur frá Tryggingastofnun ríkisins eða tekjur nái ekki grunnfjárhæð og þeir þurfi samkvæmt læknisvottorði öryggishnapp til að geta búið heima.
Styrkurinn nemi að hámarki hlut umsækjanda í stofnkostnaði sem Tryggingastofnun ríkisins greiðir ekki.
22. gr.
Áfallaaðstoð
Heimilt er að veita tekjulágum einstaklingum eða fjölskyldum fjárhagsaðstoð í eftirfarandi tilvikum:
a) vegna skyndilegs missis búslóðar eða annars eignamissis sem orðið hefur vegna bruna, skriðufalla, snjóflóða eða annarra hamfara. Aðstoðin kemur einungis til álita þegar tjónþoli hefur ekki haft heimilistryggingu eða aðra tryggingu sem bætir tjónið,
b) þegar rýma þarf íbúð af heilbrigðisástæðum er heimilt að veita aðstoð til kaupa á búslóð.
Viðmiðunarmörk aðstoðar eru 100.000 kr.
23. gr.
Styrkur eða lán til fyrirframgreiðslu húsaleigu
Heimilt er að veita þeim sem hafa haft tekjur við eða undir grunnfjárhæð í mánuðinum sem sótt er um og í mánuðinum á undan lán eða styrk til fyrirframgreiðslu húsaleigu. Þinglýstur húsaleigusamningur skal liggja fyrir eða önnur staðfesting um að samningur eigi við rök að styðjast. Miða skal við að leigufjárhæð sé í samræmi við leigu á almennum markaði. Hámark láns er 300.000 kr.
24. gr.
Aðstoð vegna sérstakra fjárhagserfiðleika
Heimilt er að veita einstaklingum, hjónum eða sambúðarfólki lán eða styrk vegna sérstakra fjárhagserfiðleika, að uppfylltum eftirtöldum skilyrðum:
a) staðfest sé að umsækjandi hafi ekki aðgang að lánafyrirgreiðslu banka, sparisjóða eða annarra lánastofnana,
b) fyrir liggi yfirlit starfsmanns félagsþjónustunnar eða Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna um fjárhagsstöðu umsækjanda,
c) fyrir liggi á hvern hátt lán eða styrkur muni breyta skuldastöðu umsækjanda til hins betra.
Styrkur kemur einungis til álita hafi umsækjandi haft tekjur á eða undir grunnfjárhæð undanfarandi sex mánuði eða lengur.
Lán skal ekki veitt ef ljóst er umsækjandi muni ekki geta staðið undir afborgunum af því.
Heimilt er að veita fjárhagsaðstoð vegna greiðsluerfiðleika og til kaupa á nauðsynjum, svo sem gleraugum, fatnaði, heyrnartækjum og öðrum hjálpartækjum sem Tryggingastofnun ríkisins tekur ekki þátt í að greiða.
25. gr.
Um fjárhagsaðstoð sem veitt er í formi láns
Skilyrði fyrir fjárhagsaðstoð í formi láns er að umsækjandi notfæri sér greiðsluþjónustu banka eða sparisjóða, enda liggi fyrir mat á endurgreiðslugetu umsækjanda.
Ef veita á fjárhagsaðstoð sem lán og fyrir liggur að umsækjandi er þegar með eldra lán hjá félagsþjónustunni skal gera eldra lánið upp eða sameina það nýrri lánveitingu áður en nýtt lán er veitt.
V. kafli
Málsmeðferð
sbr. ákvæði stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og ákvæði XV. og XVI. kafla
laga um félagsþjónustu sveitarfélaga
26. gr.
Könnun á aðstæðum
Kanna skal aðstæður umsækjanda svo fljótt sem unnt er eftir að umsókn um fjárhagsaðstoð hefur borist. Sama á við ef félagsmálaráði berast upplýsingar um nauðsyn á aðstoð með öðrum hætti.
Félagsmálaráð skal taka ákvörðun í máli svo fljótt sem unnt er og sjá jafnframt til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin.
27. gr.
Samvinna við umsækjanda
Öflun gagna og upplýsinga skal unnin í samvinnu við umsækjanda. Við meðferð umsóknar og ákvarðanatöku skal leitast við að hafa samvinnu og samráð við umsækjanda eftir því sem unnt er, að öðrum kosti talsmann hans ef við á.
28. gr.
Varðveisla gagna, trúnaður og aðgangur að gögnum
Málsgögn er varða persónulega hagi einstaklinga skulu varðveitt með tryggilegum hætti. Hafi starfsmenn og fulltrúar í félagsmálaráði kynnst einkahögum umsækjanda eða annarra í starfi sínu er þeim óheimilt að fjalla um þau mál við óviðkomandi nema að fengnu samþykki viðkomandi.
Umsækjandi á rétt á að kynna sér upplýsingar úr skráðum gögnum sem varða mál hans að svo miklu leyti sem það stangast ekki á við trúnað gagnvart öðrum.
29. gr.
Leiðbeiningar til umsækjanda
Við afgreiðslu umsóknar skal starfsmaður bjóða umsækjanda félagslega og fjárhagslega ráðgjöf og veita upplýsingar og leiðbeiningar um réttindi sem hann kann að eiga annars staðar. Berist skriflegt erindi sem ekki snertir starfssvið félagsþjónustunnar, skal starfsmaður í samráði við umsækjanda framsenda erindið á réttan stað svo fljótt sem auðið er.
30. gr.
Niðurstaða og rökstuðningur synjunar
Kynna skal niðurstöðu umsóknar svo fljótt sem unnt er. Sé umsókn hafnað í heild eða að hluta skal umsækjandi fá skriflegt svar þar sem ákvörðun er rökstudd með skýrum hætti með vísan til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og reglna sveitarfélagsins um fjárhagsaðstoð eftir því sem við á.
31. gr.
Rangar eða villandi upplýsingar.
Fjárhagsaðstoð veitt á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga af hendi þess sem aðstoðina fær er endurkræf og getur félagsþjónustan endurkrafið viðkomandi um fjárhæðina samkvæmt almennum reglum kröfuréttar. Ef sannreynt er við vinnslu máls að upplýsingar sem umsækjandi hefur veitt eru rangar eða villandi stöðvast afgreiðsla umsóknarinnar.
32. gr.
Heimildir til ákvarðana samkvæmt reglum þessum
Starfmenn Fræðslu- og félagssviðs taka ákvarðanir samkvæmt reglum þessum í umboði félagsmálaráðs.
33. gr.
Kynning á ákvörðun um fjárhagsaðstoð
Þar sem starfsmenn félagsmálaráðs hafa umboð til að taka ákvörðun um fjárhagsaðstoð skulu þeir kynna umsækjanda niðurstöðu tryggilega og kynna honum um leið rétt hans til að fara fram á að félagsmálaráð fjalli um umsóknina. Umsækjandi hefur að öðru jöfnu fjögurra vikna frest til að vísa máli sínu til félagsmálaráðs frá því honum barst vitneskja um ákvörðun. Félagsmálaráð skal fjalla um umsókn og taka ákvörðun svo fljótt sem unnt er.
Ákvörðun félagsmálaráðs skal kynnt umsækjanda tryggilega og um leið skal honum kynntur réttur hans til málskots til úrskurðarnefndar félagsþjónustu.
34. gr.
Málskot til úrskurðarnefndar félagsþjónustu
Umsækjandi getur skotið ákvörðun félagsmálaráðs til úrskurðarnefndar félagsþjónustu. Skal það gert innan fjögurra vikna frá því umsækjanda barst vitneskja um ákvörðun félagsmálaráðs.
------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Reglur þessar voru samþykktar í félagsmálaráði Hornafjarðar 9.febrúar 2010 og staðfestar af sveitarstjórn Hornafjarðar 4. mars 2010 í samræmi við 21. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.


