Samþykkt um uppsetningu auglýsingaskilta á Hornafirði
1. gr.
Gildissvið.
Samþykkt þessi gildir um uppsetningu skilta þar sem fram koma einhver neðantalinna atriða:
a) Heiti, starfsemi og afgreiðslutími stofnana og fyrirtækja.
b) Vara eða þjónusta sem boðin er af fyrirtækjum, einstaklingum eða stofnunum.
c) Auglýsingar um ýmis atriði svo sem varðandi einstaka viðburði, sölu húseigna, skipulag svæða og breytingar eða viðgerð á mannvirkjum.
Auglýsingar á fjölfölduðum veggspjöldum má einungis festa á skiltastanda eða þar til gerða auglýsingafleti sem leyfi er fyrir. Sá sem hagsmuni hefur af auglýsingu er ábyrgur fyrir því að taka hana niður og má burtu ummerki eftir hana.
2. gr.
Almenn atriði.
Öll skilti skulu sett upp innan lóðar nema staðsetning utan lóðar sé sérstaklega heimiluð af bæjarráði.
Gæta skal þess sérstaklega við gerð og uppsetningu skilta að vegfarendum stafi ekki hætta af þeim og að þau valdi ekki tjóni á öðrum eignum. Þannig skulu skilti sem standa við og yfir akbraut, akfæra stíga eða bílastæði vera a.m.k. í 4,20 m hæð yfir umferð og skilti sem standa við og yfir göngustíga og gangbrautir vera í a.m.k. 2,60 m hæð yfir umferð.
Við hönnun skilta skal taka mið af stærðarhlutföllum, formi og litum, sem hæfa umhverfinu. Skilti mega vera sjálflýsandi eða lýst upp með ljóskösturunum en leyfi fyrir ljósa- eða flettiskiltum með breytilegum skilaboðum verða einungis veitt að teknu tilliti til umferðaröryggis og hagsmuna nágranna.
Ekki eru leyfð fleiri en eitt sjálfstætt skilti í þéttbýli á þeim hluta lóðar sem snýr að götu nema lóðin sé lengri en 200 m í stefnu samsíða götu.
3. gr.
Auglýsingaskilti utan þéttbýlis.
Óheimilt er að setja upp auglýsingar meðfram vegum eða annars staðar utan þéttbýlis. Þó er heimilt, að setja upp látlausar auglýsingar um atvinnurekstur eða þjónustu eða vörur á þeim stað þar sem slík starfsemi eða framleiðsla fer fram, sbr. nánar 43. gr. laga nr. 44/1999 um náttúruvernd. Umhverfisráðherra úrskurðar um vafaatriði varðandi skilti utan þéttbýlis.
4. gr.
Leyfisskylda.
Leyfi byggingarfulltrúa þarf fyrir uppsetningu skilta sem eru stærri en 1.0 m². Þó þarf að sækja um leyfi fyrir smærri skiltum ef þau eru mjög áberandi eða um er að ræða ljósa- eða flettiskilti. Byggingarfulltrúi leitar álits Skipulagsstofnunar og Náttúruverndar ríkisins sé um að ræða skilti utan þéttbýlis, sbr. 3. gr.
5. gr.
Umsóknir um leyfi.
Umsóknir um leyfi fyrir uppsetningu skilta skulu vera skriflegar og berast byggingarfulltrúa ásamt nauðsynlegum gögnum, þ.m.t. afstöðu- og útlitsmyndir og greinargerð um frágang og festingar. Byggingarfulltrúi veitir leiðbeiningar um það hvaða gögn teljast nauðsynleg hverju sinni.
Fjarlægja skal skilti sem sett hefur verið upp án leyfis eða í bága við skilmála leyfis.
6. gr.
Gildistaka.
Ofangreind samþykkt bæjarstjórnar Hornafjarðar staðfestist hér með samkvæmt 37. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Samþykkt í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 13. október 1998
Samþykkt í bæjarstjórn Hornafjarðar 3. desember 1998
Staðfest af umhverfisráðuneytinu 1. júlí 1999


