Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 187

187. fundur

187. fundur bæjarstjórnar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 6. desember 2012 og hófst hann kl. 16:00.

Fundinn sátu:

  • Ásgerður Kristín Gylfadóttir Forseti
  • Reynir Arnarson 1. varaforseti
  • Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
  • Björn Ingi Jónsson 2. varaforseti
  • Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
  • Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
  • Valdemar Einarsson 1. varamaður
  • Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
  • Ásta Halldóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri sviðs
  • Bryndís Bjarnarson stafsmaður stjórnsýslusviðs
  • Haukur Ingi Einarsson (HIE)

Fundargerð ritaði:  Bryndís Bjarnarson, Upplýsinga og gæðastjóri.

Dagskrá:

 

1. Fundargerðir   (upptaka)

1. 1211001F - bæjarráð Hornafjarðar - 609  

Fundargerð samþykkt.
 

1211003F - bæjarráð Hornafjarðar - 610

Fundargerð samþykkt.
 

1211006F - bæjarráð Hornafjarðar - 611

Valdemar Einarsson kom fram með fyrirspurn um veitur og frárensli og fjárhagsáætlun fyrir veitur hann spurði hvers vegna þessi liður hefði ekki verið tekin undir hafnarstjórn .

Hjalti útskýrði að eðlilegt væri að fjárhagsáætlun veitnanna ætti að fara undir hafnarstjórn og sagði að það yrði tryggt að nefndir fengu að fjalla um sína fjárhagsáætlun í framtíðinni.

Fundargerð samþykkt.

 

1211011F - bæjarráð Hornafjarðar - 612

Valdemar Einarsson kom fram með fyrirspurnum hvort það verði ráðinn verði starfsmaður SASS/AÞS þegar stofnunin er komin með útibú á Hornafirði. Reynir Arnarson upplýsti að það sé búið að auglýsa starfið.

Björn Ingi Jónsson lýsti yfir að hann fagni því að það sé búið að auglýsa eftir starfsmannni SASS/AÞS og það sé mikilvægt að taka umræðu um framtíð Atvinnu-og rannsókarsjóðs Hornarfjarðar.  Það sé þó ljóst að þessi sjóður geti gefið meiri möguleika og einstaklingar fá frekar tækifæri að fá úr þeim sjóði.

Reynir fagnar umræðu um málið og segir að umræðan þurfi að fara fram í bæjarráði en bendir á að það verði úthlutað úr sjóðnum snemma á næstar ári og því sé góður tími til að taka ákvörðun um sjóðinn.

Árni fagnar því að þátttaka Hornafjarðar í svæðisbundnu samstarfi SASS/AÞS leiði til að starfsmaður þess muni koma til Hornafjarðar.

Einnig benti hann á að það sé nauðsynlegt að fara yfir framtíðarhlutverk Atvinnu-og rannskóknarsjóðsins.

Fundargerð samþykkt.

 

1211017F - bæjarráð Hornafjarðar - 613

Fundargerð samþykkt.
 

1210002F - bæjarstjórn Hornafjarðar - 186

Fundargerð lögð fram til kynningar.
 

2 Fjárhagsáætlun 2013    (upptaka)

Hjalti gerði grein fyrir fjárhagsáætlun, síðari umræðu fyrir árið 2013 og áranna 2014 - 2016.

Helstu breytingar milli umræðna eru að rekstrarrammi fræðslumála hækkar um 979 þ.kr. og rekstrarrammi menningarmála um 2.624 þ.kr. Samtals hækka rekstrarrammar A-hluta um 4,1 m.kr. Í B- hluta hækkar rekstrarrammi Hornafjarðarhafnar um 4,1 m.kr.  Samtals í A og B hluta hækka rekstrarrammar um 8,2 m.kr.  Rekstrarniðurstaða verður því 8,2 m.kr. lakari og handbæra fé lækkar sem því nemur.
Helstu niðurstöður áætlunarinnar fyrir A og B hluta árin 2013 - 2016 eru eftirfarandi:


2013 2014 2015 2016
Rekstrarniðurstaða (m.kr.) 182.321 211.569 213.227 212.221
Skuldir í hlutfalli af tekjum 72,1% 68,5% 64,4% 62,7%
Framkvæmdir (m.kr.) 400.000 250.000 250.000 250.000
Framlegð (EBIDTAR) % 14,9% 16,89% 17,32% 17,61%
Handbært fé frá rekstri (m.kr.) 297.432 336.194 341.165 344.140
Handbært fé í árslok (m.kr.) 126.547 98.802 71.338 93.797
Afborganir langtímalána (m.kr.) (92.765) (113.939) (118.629) (121.681)
Ný lántaka A-B hluta (m.kr.) 200.000

50.000
Langtímalán við lánastofnanir 717.882 631.703 537.455 481.349
Langtímalán á hvern íbúa 340.112 299.860 255.840 229.634
Skatttekjur hvern íbúa 683.466 683.466 683.466 683.466

 

 

Björn Ingi lagði fram bókun fyrir hönd bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

Bókun við afgreiðslu á fjárhagsáætlun fyrir árið 2013

Í bókun okkar sjálfstæðismanna við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun töldum við afar nauðsynlegt að sveitarfélagið héldi uppi ákveðnum framkvæmdum á hverju ári en taldi jafnframt að 400 milljónir væri mjög miklar framkvæmdir séstaklega í ljósi þess að í 10 ára áætlun er ekki gert ráð fyrir nema 250 milljónum króna á hvert í framkvæmdir árin 2014 til 2025.

Það verður einnig að teljast mjög ámælisvert að seinni umræða fer fram í bæjarstjórn þar sem gert er ráð fyrir framkvæmdum upp á  400 milljónir króna án þess að nokkur gögn liggi fyrir um hvernig þessi upphæð skiptist niður á einstök verkefni. Því er ekki ljóst í hvaða verkefni á að fara og hver forgangsröðunin er.  Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar er sjálfsögð krafa að meirihlutinn leggi fram lista yfir þær framkvæmdir sem áætlaðar eru, gróft kostnaðarmat einstakra liða og hver er forgangsröðunin á næsta ári.

Hjalti greindi frá að fjárhagsáætlun hafi verið vel kynnt í bæjarfélaginu en alltaf sé hægt að gera betur. Björn Ingi ræddi um svör bæjarstjóra.

Hjalti svaraði Birni Inga.

 Fjárhagsáætlun 2013-2016 samþykkt með fjórum atkvæðum.

Árni kom fram með fyrirspurn, hvort bæjarstjórn hafi verið að samþykkja þriggja ára áætlun eða fjárhagsáætlun 2013.

Hjalti greindi frá að í öllum gögnum hafi verið þriggja ára áætlun og hún verið samþykkt.




3. Atvinnu- og rannsóknarsjóður - reglur    (upptaka)

Hjalti greindi frá breytingum í reglum sjóðsins og hvaða áhrif hann hefur haft á samfélagið.

Framlagðar reglur Atvinnu-og rannsóknarsjóðs bornar upp til aktvæða.

Samþykkt.

 

4. Stefnumótun HSSA    (upptaka)

Hjalti fylgdi stefnumótun HSSA úr hlaði.  Gerði grein fyrir ferli málsins.  Sagði að bæjarráð hafi óskað eftir lögfræðiáliti á útfærslu skipurits eins og það er sett fram í skjalinu.  Sagði að fyrst væri gerð grein fyrir hlutverki og stöðu stofnunarinnar, sett væri fram skýr framtíðarsýn, kjörorð og síðan stefna og markmið fyrir stofnunina.

Árni Rúnar fagnaði því að það væri búið að vinna stefnumótun fyrir HSSA og þakkaði starfsmönnum sem hafa unnið að þessari stefnu og vonar að það séu möguleikar á að leysa úr samningamálum við ríkið um stofnunina.

Framlögð stefna borin upp til atkvæða.

Samþykkt.

 

 

5. Stefna í íþrótta-, æskulýðs-og tómstundamálum.   (upptaka)

Árni Rúnar vék af fundi undir þessum lið.

Ásgerður Gylfadóttir fylgdi málinu úr hlaði.  Gerði grein fyrir vinnu skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar og starfsmanna á því sviði og þáttöku íbúa í umsóknarferlinu.  Stefnunni er skipt upp í fjóra meginkafla, fyrst íþróttastarf barna og unglinga, þá keppnis- og afreksíþróttir, í þriðja lagi almenningsíþróttir og að lokum æskulýðs- og tómstundastarf.

Hjalti kom upp undir þessum lið og greindi frá að fyrri stefna um skóla,-íþrótta- og tómstundamál hafi aðalega fjallað um mannvirki sem falla undir þennan málaflokk og benti á að ný stefna taki á innri þáttum málaflokksins og benti jafnframt á að það sé enn verið að byggja upp aðstöðu.

Stefnumótun lögð fram og samþykkt.

 

6. Deiliskipulag þjónustusvæðis í Skaftafelli   (upptaka)

Ásgrímur fór yfir málið og lagði til að svör Umhverfis- og skipulagsnefndar við athugsemdum sem bárust við deilskipulagi þjónustusvæðis Skaftafelli yrðu svör bæjarstjórnar.

Björn Ingi benti á að það þyrfti að gera svör nefndarinnar opinber.

Hjalti benti á að það væri nóg að vísa til svaranna í fundargerð nefndarinnar.

Deiliskipulagið borið upp til atkvæða.

Samþykkt.

 

7. Náttúrustofa Suðausturlands   (upptaka)

Hjalti gerði grein fyrir skipulagsskrá Nátúrustofu Suðausturlands Ses.  Þá gerði hann grein fyrir aðdraganda stofnunarinnar, samnings við ráðuneytið og Skaftárhrepp.  Jafnframt upplýsti hann að auglýst hafi verið eftir forstöðumanni og stofan taki til starfa strax á nýju ári.

Reynir fagnaði því að Náttúrustofa er að verða að veruleika á Hornafirði og greindi frá því að málið hefur átt langan aðdraganda eða 10 ár. Árni tók undir orð Reynis og fagnaði stofnun Náttúrustofu.

Stofnskrá borin upp til atkvæða.

Samþykkt.

 

8. Samningur við Hólabrekku ehf.   (upptaka)

Reynir kynnti málið og greindi frátilurð samningsins. Samningurinn gildir til ársloka 2013 með möguleika á endurnýjun að samningstíma loknum. Samningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar við sambýlið Hólabrekku vegna þjónustu við fatlað fólk lagður fram.

 

9. Göngubrú yfir Hólmsá    (upptaka)

Ásgrímur kynnti málið og bað fundarmenn að samþykkja framkvæmdaleyfið.

Samþykkt.

 

10. 200901107 - Fyrirspurnir - bæjarstjórn

 

 

Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl. 17:15


Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica