Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 186

Fundur 186

186. fundur bæjarstjórnar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 1. nóvember 2012 og hófst hann kl. 16:00.

 

Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir Forseti
Reynir Arnarson 1. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Björn Ingi Jónsson 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Valdemar Einarsson 1. varamaður
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri sviðs
Haukur Ingi Einarsson (HIE)
 
Fundargerð ritaði:  Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.

 

Dagskrá:

1. Fundargerðir   (upptaka)

bæjarráð Hornafjarðar - 605
Björn Ingi ræddi um innleiðingu á 2ja eða 3ja tunnu kerfi og spurði um kostnað við innleiðingu á þeim breytingum.  Þá tók hann undir þakkarorð bæjarráðs í garð Guðrúnar Júlíu Jónsdóttur fráfarandi framkvæmdastjóra HSSA.
Ásgrímur sagði að innleiðingin myndi örugglega hafa kostnað í för með sér en unnið er að útfærslu hvernig beri að innleiða kerfi sem leiðir til meiri endurvinnslu.  Sagði Ásgrímur að miklir hagsmunir væru í því fólgnir að lengja líftíma urðunarsvæðisins því mikill kostnaður fylgdi því að útbúa nýtt svæði
Fundargerð samþykt.
   
bæjarráð Hornafjarðar - 606
Björn Ingi gerði vinnu við deiliskipulag við Jökulsárlón að umtalsefni og athugasemdir Vegagerðarinnar við þá tillögu.
Hjalti gerði grein fyrir fundi með Vegagerðinni um málið og fyrirhuguðum fundi um miðjan nóvember.  Þar vonaðist hann að málin myndu skýrast mikið.
Reynir ræddi um hugmyndir um nýtt uppdælingarsvæði fyrir höfnina.  Sagði að áhugi væri að hætta uppdælingu á land eða til að búa til nýtt land.  Hugmyndir eru að dæla efni út fyrir Stapaklett.  Einnig að kostir verði skoðaðir að dæla efni yfir á Austur- eða Suðurfjörur.  Spurði hann um stöðu málsins.
Hjalti upplýsti að fundað hafi verið með Umhverfisstofnun um málið og nú sé verið að hanna lagnaleið.
Árni Rúnar sagði bagalegt að athugasemdir Vegagerðarinnar væru ekki fram komnar fyrr í deiliskipulagsvinnu við Jökulsárlón. Sagði að allir aðilar sem þar koma að málum ætti að hafa haft tækifæri til að koma athugasemdum sínum fyrr á framfæri.  Spurði hann hvort hugmyndir um breytingar á farvegi Jökulsár, vegi eða brú setji vinnu sveitarfélagsins í uppnám og málið þurfi að vinna að nýju frá grunni.
Reynir tók undir þau orð sem fallið hafa um deiliskipulag við Jökulsárlón.  Sagðist ekki hafa heyrt um þann valkost um færslu á farvegi Jökulsár lítið austar en nú er. Þá ræddi hann um dælingu úr höfninni.
Hjalti sagði að ekki væri enn ljóst hvernig málum lyktaði með deiliskipulag við Jökulsárlón.  Það kæmi betur í ljós eftir fund með Vegagerðinni.
Árni Rúnar þakkaði svör um deiliskipulagið.  Lagði áherslu á að Jökulsárlón væri afar mikilvægt svæði fyrir ferðaþjónustu á landinu öllu og þörf væri rík fyrir endurnýjun og uppbyggingu mannvirkja.
Björn Ingi ræddi um hugmyndir um útfall Jökulsárlóns.  Færsla á því myndi breyta miklu er varðar aðdráttarafl svæðisins því núverandi útfall myndi ráða því að jakarnir safnast þar fyrir.
Hjalti tók undir orð Björns Inga að hugsanlega þyrfti að endurskoða deiliskipulagið að hluta til eða heild.
Fundargerð samþykkt.
   
bæjarráð Hornafjarðar - 607
Kristján ræddi um breytingar í menningarmálum á undanförnum misserum, t.d. með tilkomu listasasafns, færslu Gömlubúðar og breytingar á safnamálum.  Greindi hann frá rekstri Jöklasýningar á undanförnum árum og fækkun gesta í Gömlubúð á síðustu árum.  Sagðist fagna áhuga einstaklinga á samstarfi og nefndi hugsanlegt samstarf Huldusteins um Jöklasýningu í því sambandi.
Björn Ingi taldi rétt að safnamál hefðu verið sérliður á dagskrá í ljósi þess að hann teldi Kristjáns Guðnason hafa haft framsögu um safnamál.
Árni Rúnar gerði umræðu um forvarnarstefnu sveitarfélagsins að umtalsefni.  Tók undir skoðanir sem koma fram í skóla, íþrótta- og tómstundanefd og bæjarráði um mikilvægi þess að endurskoða forvarnarstefnu sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt.
   
bæjarráð Hornafjarðar - 608
Fundargerð samþykkt.
   
bæjarstjórn Hornafjarðar - 185
Fundargerð áður samþykkt.
   
2. Viðauki við fjárhagsáætlun 2012   (upptaka)

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði, gerði hann grein fyrir viðauka við fjárhagsáætlun 2012 sem samþykktur var á bæjarráðsfundi nr. 605, þann 8. október sl.  Samkvæmt viðaukanum aukast tekjur A hluta um 82 m.kr árið 2012 og gjöld A hluta um 42,8 m.kr.  Lagði hann til að viðaukinn yrði samþykktur.
Árni Rúnar spurði um skiptingu tekjuauka milli útsvars og jöfnunarsjóðs.
Hjalti sagðist ekki hafa nákvæm svör en skipting væri nokkurn veginn þannig að helmingur væri af útsvari og helmingur af jöfnunarsjóði.
Viðauki samþykktur með fjórum atkvæðum.  Þrír sátu hjá.
   
3.  Álagningareglur 2013    (upptaka)

Hjalti las upp eftirfarandi álagningareglur fyrir árið 2013 og lagði til að þær verði samþykktar:

Útsvar     14,48%
Fasteignagjöld:

Fasteignaskattur á íbúðahúsnæði 0,50% af fasteignamati
Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði     1,62% af fasteignamati
Lóðaleiga                                              1% af fasteignamati
Holræsagjöld                                        0,30% af fasteignamati
Vatnsgjöld                                             0,18% af fasteignamati
Samþykkt með fjórum atkvæðum, þrír sitja hjá.
   
4.  Fjárhagsáætlun 2013 - fyrsta umræða    (upptaka)

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði, gerði hann grein fyrir fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 og  áranna 2014 - 2016. 
Helstu niðurstöður áætlunarinnar fyrir A og B hluta árin 2013 - 2016 eru eftirfarandi:

                                                         2013            2014            2015              2016
Rekstrarniðurstaða (m.kr.)            190.521        219.769        221.427         220.421
Skuldir í hlutfalli af tekjum                72,1%         68,5%           64,4%          62,7%
Framkvæmdir (m.kr.)                    400.000         250.000       250.000         250.000
Framlegð (EBIDTAR) %                  14,9%         16,89%         17,32%        17,61%
Handbært fé frá rekstri (m.kr.)       305.632        344.394        349.365        352.340
Handbært fé í árslok (m.kr.)          134.747        115.202         95.938          126.597
Afborganir langtímalána (m.kr.)     (92.765)      (113.939)       (118.629)     (121.681)
Ný lántaka A-B hluta (m.kr.)           200.000                                                  50.000
Langtímalán við lánastofnanir        717.882        631.703         537.455       481.349
Langtímalán á hvern íbúa              340.112        299.860         255.840       229.634
Skatttekjur hvern íbúa                    683.466        683.466         683.466       683.466

Björn Ingi fagnaði góðri stöðu bæjarsjóðs en lýsti yfir áhyggjum af hárri upphæð í framkvæmdir. Lagði hann fram eftirfarandi bókun Sjálfstæðismanna:
 
Þrátt fyrir að staða sveitarfélagsins sé góð teljum við að þurfi að gæta meira aðhalds í framkvæmdum en kemur fram í fyrstu drögum fjárhagáætlunar. Fjármál sveitarfélagsins eru á ábyrgð okkar sveitarstjórnarmanna okkur ber að tryggja góða afkomu þegar til lengri tíma er litið. Að greiða niður skuldi og framkvæma fyrir eigið fé ætti að vera markmið allra sveitarstjórnarmanna. Á yfirstandandi fjárhagsári eru afborganir að langtímalánum rúmar 100 milljónir.
Í þeim drögum sem hér eru til umræðu er lagt til að farið verði í framkvæmdir uppá 400 milljónir. Þetta er 118,5 milljónum króna meira en á yfirstandandi ári til að þetta sé framkvæmanlegt er gert ráð fyrir 200 milljóna lántöku. Ef framkvæmdir í sveitarfélaginu myndu fylgja verðlagsviðmiði ættum við að vera að tala um framkvæmdir fyrir um 300 milljónir króna.
Það er nauðsynlegt að halda upp framkvæmdum í sveitarfélaginu og að forgangsraða framkvæmdum. Það er einnig forvitnilegt að skoða þriggja ára áætlun í henni sést að þar er aðeins gert ráð fyrir 250 milljóna framkvæmdum árin 2014 til 2016 sem við teljum jafn óraunhæft og 400 milljóna framkvæmdir á næsta ári.
 
Árni Rúnar þakkaði fyrir kynningu á fjárhagsáætlun.  Sagðist áskilja sér rétt til að koma með athugasemdir og breytingatillögur á fjárhagsáætlun á síðari stigum vinnunnar.
Reynir gerði góða fjárhagsstöðu að umtalsefni.  Gerði orð Björns Inga um framkvæmdastig að umtalsefni og taldi mikilvægt að nýta stöðu sveitarsjóðs til að halda uppi atvinnustigi á svæðinu, sérstaklega þegar aðrir opinberir aðilar hafa haldið að sér höndum.  Reynir lagði fram eftirfarandi bókun:
 
Framlögð fjárhagsáætlun lýsir sterkri stöðu sveitarsjóðs.  Yfirlit yfir þróun langtímalána og reksturs sýna að á undanförnum árum hefur bæjarstjórn Hornafjarðar búið vel í haginn.  Auk þess hefur bæjarstjórn siglt í gegnum einar mestu efnahagsþrengingar þjóðarinnar án mikilla vandræða. Með sterka fjárhagsstöðu, ekki síst í samanburði við önnur sveitarfélög, er hægt að horfa fram á bjarta tíma hvað varðar getu sveitarfélagsins til athafna.
Hjalti ræddi um fjárhagsáætlun áranna 2012-2016.
 
Björn Ingi mótmælti þeim orðum Reynis að tillaga Sjálfstæðismanna væri eingöngu að borga niður skuldir.  Lagði hann áherslu á að það væri hans stefna að sveitarfélagið myndi standa undir öflugu framkvæmdastigi.   Sagði mikilvægt að framkvæmdastig væri eins jafnt og mögulegt er milli ára, ekki 400 m.kr. eitt árið og síðan 250 m.kr. næstu ár á eftir.
Reynir útskýrði orð sín um tillögu Sjálfstæðismanna.
Forseti bar upp tillögu um að vísa fjárhagsáætlun til síðari umræðu.  Samþykkt samhljóða.
 
   
5. Kosningar í nefndir    (upptaka)

Forseti lagði til eftirfarandi breytingar:
Í skólanefnd verði Einar Sigurjónsson varamaður B lista í stað Ottós Marvins Gunnarssonar, Gunnhildur Imsland varamaður B lista í stað Elínborgar Baldursdóttur og Torfi Friðfinnsson verði aðalmaður S lista í stað Matthildar Ásmundardóttur og Anna María Ríkharðsdóttur varamaður S lista hans.
Samþykkt samhljóða.
   
6. Tilkynning um að Ernir ehf. hætti flugi til smærri staða    (upptaka)

Forseti gerði grein fyrir tilurð umræðunnar sem var tilkynning forstjóra Flugfélagsins Ernis að hætta flugi til smærri staða. 
Reynir gerði grein fyrir að búið sé að leysa málið til áramóta en ekki til langstíma.
Forseti las upp eftirfarandi bókun um málið:
 
Bæjarstjórn Hornafjarðar leggur þunga áherslu á að stjórnvöld tryggi að almenningssamgöngur í lofti verði til staðar fyrir íbúa, stofnanir og fyrirtæki á Hornafirði. Flugið er sérstaklega mikilvægt fyrir eldra fólk og þá sem þurfa að sækja heilbrigðisþjónustu á höfuðborgarsvæðið.     Rofni sá hlekkur er hætta á að forsendur fyrir búsetu þeirra á Hornafirði séu brostnar.    Reglulegt flug til og frá staðnum er öryggismál.

Flugið er í raun hluti af þjóðvegakerfi landsins fyrir íbúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar enda um langa veg að fara til að sækja þjónustu sem ekki er til staðar á Höfn. Eitt af markmiðum samgönguáætlunar er jákvæð byggðaþróun.  Flug á milli Hafnar og Reykjavíkur er einn af lykilþáttum í að halda uppi þróttmiklu samfélagi og öflugu atvinnulífi því annars einangrast hvor tveggja.

Ennfremur gegnir flugið miklu og vaxandi hlutverki í uppbyggingu heilsársferðaþjónustu á Suðausturlandi.
Árni Rúnar sagði það grafalvarlegt mál ef flug leggst af til Hornafjarðar og berjast verður fyrir því að slíkt gerist ekki.  Sagði það dugi ekki til að leysa málin til skamms tíma. Íbúar á Hornafirði þurfi að geta reitt sig á tryggar og öruggar flugsamgöngur.  Ánægjulegt væri að málið væri leyst til skamms tíma og nýta verði tímann framundan til að finna langtímalausn.
Bókun samþykkt samhljóða.
 
   
7. Fyrirspurnir - bæjarstjórn

Engar.

Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl. 18:15


Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica