Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 185
185. fundur bæjarstjórnar Hornafjarðar
Haldinn í ráðhúsi, 4. október 2012 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir Forseti
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
Valdemar Einarsson aðalmaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir 1. varamaður
Arna Ósk Harðardóttir 1. varamaður
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
1. Fundagerðir (upptaka)
| bæjarráð Hornafjarðar - 603 | ||
|
Árni Rúnar lýsti yfir vanhæfi sínu til að fjalla um fundargerð bæjarráðs nr. 603. Vék af fundi að því loknu. Valdemar spurði um hvenær von væri á fyrstu drögum að nýju skipuriti ráðhúss. Hjalti upplýsti að hann stefndi að því að koma með tillögur í október. Valdemar fagnaði því framtaki að fara í samstarf við einstalinga og fyrirtæki í safnamálum. Fundargerð samþykkt. |
||
| bæjarráð Hornafjarðar - 604 | ||
|
Lovísa Rósa ræddi um málefni stjórnar HSSA. Sagði að nú stefndi í allt að 30 m.kr. halla á árinu ef ekki fástleiðréttingar á þjónustusamningi. Spurði um viðbrögð við innheimtubréfi vegna þjónustusamnings. Valdemar sagðist harma bréf Vegagerðarinnar vegna Jökulsárlóns. Jafnframt sagðist hann vera mótfallinn sameiningu Vegagerðarinnar og Siglingastofnunar í eina stofnun. Árni Rúnar lýsti yfir ánægju með 17 m.kr. fjárveitingu til stofnunar Náttúrustofu Suðausturlands. Greindi hann frá samningi við Skaftárhrepp um málið. Hjalti upplýsti um samskipti við aðstoðarmann velferðarráðherra vegna málefna HSSA, Vegagerðina vegna deiliskipulags við Jökulsárlón og þakkaði Árna að vekja máls á fjárveitingu til Náttúrustof Suðausturlands. Fundargerð samþykkt. |
||
| bæjarstjórn Hornafjarðar - 184 | ||
| Til kynningar. | ||
| 2. | Endurskoðun á aðalskipulagi (upptaka) | |
|
Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði. Í máli hans kom fram að framlögð matslýsing er lítillega breytt frá fyrri samþykkt bæjarstjórnar fyrr í haust. Skipulagsstofnun gerði smávægilegar athugasemdir sem búið er að taka tillit til. Framlögð matslýsing var samþykkt í Umhverfis- og skipulagsnefnd þann 3. október 2012. Gerði er tillaga um að bæjarstjórn samþykki framlagða matslýsingu áður en hún verði auglýst. Forseti bar tillögu upp til atkvæða. Samþykkt samhljóða. |
||
| 3. | Umsókn um breytingu á aðalskipulagi f. sumarhúsasvæði í Stafafellsfjöllum í samræmi við deiliskipulagsbreytingar f. svæðið frá 1999 (upptaka) | |
|
Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði. Kom fram að sveitarfélaginu hafi barist ósk frá landeigendum jarðanna Brekku og Stafafells í Lóni um að gerðar verði breytingar á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Breytingin felur í sér stækkun á frístundasvæði. Eftir breytingu munu Víður einnig verða flokkaðar sem frístundasvæði og jafnframt verði sú breyting að í greinargerð verði gert ráð fyrir 78 lóðum í stað 61 í gildandi skipulagi. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur þegar samþykkt framkomna umsókn á fundi sínum þann 3. október 2012. Gerð er tillaga um að bæjarstjórn samþykki ósk landeigenda. Forseti bar tillögu upp til atkvæða. Samþykkt samhljóða. |
||
| 200901107 - Fyrirspurnir - bæjarstjórn | ||
| Engar. | ||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:35


