Bæjarstjórn

Fundargerð Bæjarstjórnar 69

69. fundur

Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, föstudaginn 19. desember 2003, kl. 16:00 í Ekru.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Björn E. Traustason, Einar Karlsson, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, Ólafur Sigurðsson og Kristín Gestsdóttir. Einnig Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Stefán Ólafsson.

Gengið var til dagskrár.

1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar 232. fundur fimmtudaginn 4. desember 2003
• Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 9. fundur 1. desember 2003.
• Félagsmálaráð Hornafjarðar 101. fundur 25. nóvember 2003.
• Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 50. fundur 1. desember 2003 (ath. fyrri umræða um fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar 2004 verður í bæjarstjórn 4. desember)
• Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 55. fundur 2. desember 2003.
• Menningarmálanefnd Hornafjarðar 51. fundur 26. nóvember 2003.
• HAUST 43. fundur 26. nóvember 2003 til kynningar.
• Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum 7. ársfundur 6. nóvember 2003 til kynningar.
• Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum 21. stjórnarfundur 25. september og 22. fundur 5. nóvember, 23. fundur 19. nóvember 2003 til kynningar.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 233. fundur fimmtudaginn 11. desember 2003
• Almannavarnanefnd Hornafjarðar 25. fundur 3. desember 2003.
• Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 54. fundur 20.október 2003.
• Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 55. fundur 4. desember 2003.
• Umhverfisnefnd Hornafjarðar 40. fundur 10. desember 2003.
• Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 708. fundur 16. nóvember 2003 til kynningar.

Kistín ræddi forvarnarstarf sem Haukur Þorvaldsson hefur unnið með unglingum í 8. bekk Heppuskóla. Hún sagði vel hafa til tekist og ástæðu til að styðja við svona gott framtak.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarstjórn Hornafjarðar 68. fundur fimmtudaginn 4. desember 2003, áður samþykkt.


 

2. Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar og stofnana 2004 – seinni umræða
Bæjarstjóri fór yfir þær breytingar sem orðið hafa milli umræðna. Niðurstaðan er sú sama en aukið er rekstrarframlag vegna íþróttavallar á Höfn um 750 þkr. og lækkar óráðstafað um sömu upphæð og er nú 3.250 þkr. Stofnbúnaður deilda að upphæð 3 mkr. hefur verið færður á málaflokka en einni milljón er óráðstafað. Áætlaður halli næsta árs hefur þegar verið fjármagnaður með langtímalántöku frá Lánasjóði sveitarfélaga.
Bæjarstjóri fór yfir niðurstöðutölur málaflokka og bar þær saman við endurskoðaða áætlun þessa árs. Bæjarstjóri lagði til að fjárhagsáætlun ársins 2004 sem hér er lögð fram til síðari umræðu verði samþykkt.
Kristín sagði aðstæður sveitarfélaga mjög erfiðar við að rækja sína samfélagsþjónustu. Sífellt væri á þau hallað og sem dæmi um það nefndi hún húsaleigubætur þar sem ríkið greiddi upphaflega 57% endurgreiðslu v. bótanna en það hlutfall hefur nú lækkað í 40% og hlutur sveitarfélaga að sama skapi aukist. Kristín gagnrýndi að vinna við fjárhagsáætlanagerðina hefði hafist seint og forstöðumönnum ætlaður allt of skammur tími til vinnunnar.
Halldóra þakkaði öllum starfsmönnum sveitarfélagsins sem komið hafa að gerð fjárhagsáætlunarinnar.
Halldóra lagði fram eftirfarandi bókun meirihluta bæjarstjórnar við seinni umræðu um fjárhagsáætlun fyrir 2004

Fjárhagsáætlun sú sem hér er til afgreiðslu ber þess einkenni að eftir mikið framkvæmdatímabil á undanförnum árum er lítið svigrúm til framkvæmda. Jafnframt er tekið tillit til vísbendinga um að útsvarstekjur hækki ekki milli ára eins og þróast hefur undanfarin ár.

Þrátt fyrir þröngan kost er gert ráð fyrir framkvæmdum fyrir 51.0 m.kr. Áætlað er að hefja framkvæmdir við fyrsta stóra áfangann í fráveitumálum. Til þess verkefnis verður varið 37.5 m.kr. en heildarkostnaður við að koma fráveitumálum í gott horf er áætlaður um 200 milljónir króna. Í þessum fyrsta áfanga á að sameina allar útrásir á vesturströnd bæjarstæðisins í eina, suður af Leiðarhöfða. Með þessum áfanga næst að létta á því svæði sem viðkvæmast hefur verið gagnvart mengun vegna fráveitunnar.

Það er ljóst að bæjarstjórn ásamt embættismönnum og forstöðumönnum sveitarfélagsins þurfa að vinna að sem bestri nýtingu fjármuna í öllum rekstri svo skapa megi svigrúm til að niðurgreiða lán og þar með minnka fjármagnskostnað og auka framkvæmdir.

Bæjarstjórn felur starfsmönnum sveitarfélgsins að leita allra leiða til að hagræða í rekstri án þess að það komi niður á þjónusta við íbúana. Meðal annars felur bæjarstjórn bæjarráði að skoða alla möguleika á sölu eigna og gera tillögu um það á næsta ári. Jafnframt ítrekar bæjarstjórn að forstöðumönnum er ekki heimilt að stofna til nýrra stöðugilda án heimildar bæjarráðs og óskar eftir að þegar starfsfólk hættir sé vandlega kannað hvort ekki sé hægt að leysa störf þeirra án ráðningar nýrra starfsmanna þar sem því verður við komið.

Halldóra lagði til að fjárhagsáætlunin 2004 verði samþykkt.

Bæjarstjóri ræddi störf forstöðumanna og þær breytingar sem orðið hafa á aðstæðum þeirra á undanförnum árum þar sem áherslan er í síauknu mæli á stjórnun.
Hann ræddi um visst ósamræmi sem er í umræðunni um tekjuskiptingu milli ríkisins og sveitarfélaga þar sem að á sama tíma og rætt er um fjárskort þá nýta mörg stærstu sveitarfélög sér ekki álagningu hámarksútsvars.

Forseti bar fjárhagsáætlun 2004 upp til atkvæða.
Bæjarstjórn samþykkir áætlunina með 6 atkvæðum, einn sat hjá.

 

3. Fjárhagsáætlun Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands fyrri umræða
Bæjarstjóri fylgdi áætluninni úr hlaði:

Helsu niðurstöður eru:
Fjárhagsáætlun Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands gerir ráð fyrir 298,9 mkr. í tekjur sem sundurliðast þannig: hjúkrunarsvið 207,4 mkr. og heilsugæslusvið 91,5 mkr. Áætluð heildargjöld eru 317,2 mkr. sem sundurliðast þannig: hjúkrunarsvið 210,5 mkr. og heilsugæslusvið 106,7 mkr. Niðurstaðan er því halli um 18,2 milljónir sem sundurliðast þannig: hjúkrunarsvið 3,1 mkr. og heilsugæslusvið 15,2 mkr. Launaáætlun gerir ráð fyrir um 237,4 mkr. sem er 74,84% af heildarrekstri. Ekki er gert ráð fyrir því í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins að það mæti þessum halla sem fyrst og fremst stafar af auknum launakostnaði. Sveitarfélagið hefur nú þegar óskað eftir leiðréttingu vegna þessara breyttu forsendna, bæði vegna ársins í ár og á næsta ári eins og fram kemur í ályktun hér á eftir.
Halldóra ræddi erfiða stöðu stofnunarinnar en sagðist trúa því að samningar muni nást við ríkið um leiðréttingu á framlögum. Hún sagði stofnunina góða og vel rekna og síst ofmannaða.
Kristín sagði Heilbrigðisstofnunina ekki fá nægilegt fjármagn til að standa undir rekstri en tók undir orð Halldóru um gæði þeirrar þjónustu sem þar er veitt.

Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi tillögu að bókun :
Þann 21. febrúar sl. var undirritaður þjónustusamningur milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar annars vegar og heilbrigðisráðuneytisins og fjármálaráðuneytisins hins vegar um heilbrigðis- og öldrunarmál í Austur-Skaftafellssýslu. Samningurinn er til fimm ára og var gerður í framhaldi af reynslusamningi og þjónustusamningi sem voru í gildi frá 1996 - 2002

Í samningnum er gengið út frá ákveðnum forsendum varðandi þjónustu og rekstur HSSA og sveitarfélagsins. Ljóst er að ýmsar rekstrarlegar forsendur hafa breyst, m.a.:
• minni tekjur dvalarheimilis vegna þess að tekist hefur að uppfylla þau markmið samningsins að auka heimaþjónustu og gera eldri borgurum þar með kleift að dvelja lengur í eigin húsnæði
• mikill launkostnaður umfram verðlagsforsendur og annarra óviðráðanlegra aðstæðna
Ofantalin atriði hefur stjórn stofnunarinnar ekki getað haft áhrif á né brugðist við á neinn hátt. Úttektir og samanburður á rekstri öldrunar- og heilbrigðisstofnana sýna að HSSA er vel rekin stofnun og stjórn hennar hefur við erfiðar aðstæður sýnt fulla ábyrgð og haldið að sér höndum varðandi aukin útgjöld sem fyrr eða síðar munu bitna á stofnuninni.

Bæjarstjórn Hornfjarðar telur að náist ekki samningar um leiðréttingar, í samræmi við það sem sambærilegar stofnanir hafa fengið þá sé grundvöllur samningsins brostinn.

Allir aðilar hafa verið sammála um góðan árangur af reynslu- og þjónustusamningunum. Með tilliti til þess telur bæjarstjórn mikilvægt að aðilar nái að leysa málin á farsælan hátt. Bæjarstjórn felur bæjarráði, stjórn HSSA og starfsfólki að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að leysa vandann í samvinnu við heilbrigðisyfirvöld og fjárveitingavaldið.

Forseti bar tillögu bæjarstjóra að bókun upp til atkvæða.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með öllum 7 greiddum atkvæðum.
Forseti vísaði fjárhagsáætlun HSSA til síðari umræðu.

4. Kosningar – breyting á skipan fulltrúa í bæjarstjórn
Forseti bar upp tillögu þess efnis að Kristínu Gestsdóttur verði veitt leyfi frá störfum sem aðalmaður í bæjarstjórn 1. janúar – 1. júlí 2004. Í hennar stað kemur Eyjólfur Guðmundsson og Þorbjörg Arnórsdóttir verður hans varamaður.
Bæjarstjórn samþykkti tillöguna með öllum greiddum atkvæðum

5. Fyrirspurnir
Bæjarstjóri kvaddi sér hljóðs undir þessum lið og greindi frá því að ungu fólki sé boðið í Nýheima laugardaginn 27. desember nk. kl. 17 – 19. Kynning verður á stofnunum í Nýheimum og spjallað um daginn og veginn. Í lokin þakkaði bæjarstjóri íbúum sveitarfélagsins samstarfið á árinu og óskaði öllum gleðilegrar hátíðar.


Fundi slitið kl. 17:30


Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica