Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 176
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, miðvikudaginn 09. febrúar 2012, kl. 16.15 í Ráðhúsi.
Mætt voru: Ásgerður K. Gylfadóttir, Kristján S. Guðnason, Arna Harðardóttir, Gunnhildur Imsland, Valdemar Einarsson, Björn Ingi Jónsson og Árni Rúnar Þorvaldsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri, Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Ásgerður bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir bæjarráðs (upptaka)
- Fundargerð bæjarráðs 575. fundur
Ásgerður bar fundargerðina upp til samþykktar.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
- Fundargerð bæjarráðs 576. fundur
Hjalti Þór gerði grein fyrir samskiptum sveitarfélagins við Velferðarráðuneytið um málefni HSSA. Björn Ingi fjallaði um kynningarfund sem haldin var í Hrollaugsstöðum um gönguleiðir í Sveitarfélaginu Hornafirði .
Fundargerð samþykkt samhljóða.
- Fundargerð bæjarstjórnar, 175. fundur áður samþykkt.
Til kynningar.
2. Grenndarkynning Álaleira 13 og 15 (upptaka)
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði og las upp eftirfarandi bókun:
Fram hefur farið grenndarkynning er varðar sameiningu tveggja parhúsalóða við Álaleiru 13 og 15 í eina raðhúsalóð. Grenndarkynningin var samþykkt með samþykki allra þeirra er fengu hana og málið varðaði. Kynning hefur fengið lögformlegt ferli hjá Umhverfis- og skipulagsnefnd og bæjarráði. Lagt er til að grenndarkynningin verði samþykkt með þeim fyrirvara að endanlegum gögnum um byggingu á raðhúsi verði skilað inn og Sveitarstjórn lýsi því yfir í samræmi við Skipulagsreglugerð að hún bæti það tjón sem einstaka aðilar kunni að verða fyrir við þessa breytingu. Byggingarfulltrúa falið að ljúka málinu í samræmi við bókun.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða
3. Grenndarkynning Fákaleira 10 A (upptaka)
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði og las upp eftirfarandi bókun:
Fram hefur farið grenndarkynning er varðar færslu á bílskúrsrétt innan lóðar Fákaleiru 10A. Grenndarkynningin var samþykkt með samþykki allra þeirra er fengu hana og málið varðaði. Kynning hefur fengið lögformlegt ferli hjá Umhverfis- og skipulagsnefnd og bæjarráði. Lagt er til að grenndarkynningin verði samþykkt og Sveitarstjórn lýsi því yfir í samræmi við Skipulagsreglugerð að hún bæti það tjón sem einstaka aðilar kunni að verða fyrir við þessa breytingu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.
4. Deiliskipulag þjónustusvæði í Skaftafelli – Fyrri umræða (upptaka)
Hjalti gerði grein fyrir deiliskipulaginu. Lagði hann til að það fari í sitt lögformlega ferli.
Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu.
5. Álagningarreglur sveitarfélagsins fyrir 2012 (upptaka)
Hjalti gerði grein fyrir álagningareglum fyrir sveitarfélagið Hornafjörð fyrir árið 2012, sem eru eftirfarandi
Útsvar 14,48%, hámark er 14,48%
Fasteignaskattur á íbúðahúsnæði 0,50% af fasteignamati, hámark er 0,625%
Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði 1,32% af fasteignamati, hámark er 1,65%
Lóðaleiga 1% af fasteignamati
Holræsagjöld 0,30% af fasteignamati
Vatnsgjöld 0,18% af fasteignamati
Sorphreinsigjald kr./einingu 11.500.-
Sorpurðunargjald kr./einingu 14.000.-
Sorpurðunargjald ½ 5.000.-
Sorpurðunargjald fyrirtækja 11.000.-
Ásgerður bar upp tillöguna um að ofangreindar álagningareglur verði samþykktar. Samþykkt með sex atkvæðum einn sat hjá.
6. Fyrirspurnir bæjarstjórnar.
Engar
Fundi slitið kl. 16.30


