Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 173

Fundur haldinn    í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 03. nóvember 2011, kl. 16.15 í Ráðhúsi.

 

Mætt voru: Reynir Arnarson, Ásgerður K. Gylfadóttir, Kristján S. Guðnason, Ásgrímur Ingólfsson, Guðrún Ása Jóhannsdóttir, Björn Ingi Jónsson og Árni Rúnar Þorvaldsson.

Einnig: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri, Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs og Ásta H. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs.

Ásgerður bauð fundarmenn velkomna.  

1.      Fundargerðir bæjarráðs (útsending)

  • Fundargerð bæjarráðs 561. fundur

Forseti bar fundargerðina upp til samþykktar.  Samþykkt samhljóða.

  • Fundargerð bæjarráðs 562. fundur

Árni Rúnar ræddi liði 6 og 7.  Las hann upp eftirfarandi bókun:
Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar ítrekar bókun sína undir 6. lið fundargerðar bæjarráðs frá 17. október 2011. Ótækt er að bæjarstjórn Hornafjarðar samþykki framkvæmdir við húsnæði Grunnskóla Hornafjarðar á næsta fjárhagsári án þess að fyrir liggi hversu margir árgangar verða staðsettir í húsnæðinu þar sem framkvæmdirnar eru fyrirhugaðar. Einnig harmar bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar að meirihluti bæjarstjórnar Hornafjarðar hefur engan áhuga á að nýta þetta tækifæri til að leita hagræðingar í rekstri grunnskólans.

Ásgerður ræddi lið 6.  og las upp eftirfarandi bókun meirihlutans er varðar samráð um framkvæmdir við Heppuskóla.
Meirihluti bæjarstjórnar leggur áherslu á að við undirbúnings vinnu við endurbætur í Heppuskóla var haft viðamikið samráð.  skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd fór með málið en þar eiga fulltrúar allra framboða sæti auk þess eiga foreldrar, stjórnendur og kennarar  áheyrnarfulltrúa.  Málið hefur auk þess verið rætt í skólasamfélaginu, í skólaráði þar sem bæði nemendur og foreldrar eiga fulltrúa. Foreldrum gafst tækifæri á að koma með ábendingar og tillögur í byrjun ferlisins sl. haust og hafa áheyrnarfulltrúar  þeirra í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd komið að vinnunni með okkur. Ástæðan fyrir þeirri ákvörðun byggist á markmiði meirihlutans í bæjarstjórn að dreifa valdi og hafa samráð um þau verkefni sem ráðist er í.

 

Ásgerður las upp bókun meirihlutans um bekkjadeildir innan skólans.
Meirihluti bæjarstjórnar leggur áherslu á að við undirbúnings vinnu við endurbætur í Heppuskóla var haft viðamikið samráð.  skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd fór með málið en þar eiga fulltrúar allra framboða sæti auk þess eiga foreldrar, stjórnendur og kennarar  áheyrnarfulltrúa.  Málið hefur auk þess verið rætt í skólasamfélaginu, í skólaráði þar sem bæði nemendur og foreldrar eiga fulltrúa. Foreldrum gafst tækifæri á að koma með ábendingar og tillögur í byrjun ferlisins sl. haust og hafa áheyrnarfulltrúar  þeirra í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd komið að vinnunni með okkur. Ástæðan fyrir þeirri ákvörðun byggist á markmiði meirihlutans í bæjarstjórn að dreifa valdi og hafa samráð um þau verkefni sem ráðist er í.

 

Ásgerður las upp eftirfarandi bókun meirihlutans um endurbætur á Heppuskóla

Meirihluti bæjarstjórnar lagði frá upphafi kjörtímabilsins mikla áherslu á gagngerar endurbætur í Heppuskóla.  Þessu til marks var á fyrstu fundum skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar strax hafist handa við undirbúning framkvæmdanna og meðal annars farið í skoðunarferð um húsið.  Það ætti öllum að vera ljóst að framkvæmdir innan hús í Heppuskóla eru löngu tímabærar.  Þær framkvæmdir munu þjóna tilgangi sínum til lengri framtíðar því Heppuskóli mun vera annað af tveimur húsum sem mynda kjarnann í starfi barna á aldrinum 6-16 ára í sveitarfélaginu.

 

Árni ræddi skólamál og las upp eftirfarandi bókun.

Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar harmar þá staðreyndafölsun sem fram kemur í bókun meirihluta bæjarstjórnar um 7. bekk. Ljóst er að nú þegar er nægjanlegt pláss í Hafnarskóla fyrir 7. bekk ef vilji væri til staðar af hálfu meirihlutans til að skoða málið. Af einhverjum ástæðum er sá vilji ekki fyrir hendi.

Forseti bar fundargerðina upp til samþykktar.  Samþykkt samhljóða.

 

·         Fundargerð bæjarráðs 563. fundur

Forseti bar fundargerðina upp til samþykktar.  Samþykkt samhljóða.

·         Fundargerð bæjarráðs 564. Fundur

Hjalti ræddi málefni hreindýra og landeigenda.  Lagði hann til eftirfarandi bókun.

Bæjarstjórn Hornafjarðar leggur áherslu á að málefni hreindýra verði bæði nálgast út frá velferð þeirra og hagsmunum bænda.  Mikill ágangur hefur verið á ræktað land og álag á girðingar því mikið.  Ljóst er að hlutaðeigandi stofnanir verði að vinna með bændum að úrlausn þessara mála, til að koma í veg fyrir tjón bænda og tryggja um leið velferð dýranna.  Þá harmar bæjarstjórn Hornafjarðar þá yfirborðskenndu og einhliða umfjöllun sem málið hefur fengið.

Hjalti ræddi einnig um HSSA
Árni Rúnar ræddi málefni hreindýra og landeigenda og sagðist styðja bókunina.  Árni Rúnar ræddi einnig málefni HSSA út frá þjónustusamningi. 

Reynir ræddi málefni HSSA. 

Hjalti ræddi málefni HSSA.

Árni Rúnar ræddi málefni HSSA.

Reynir ræddi málefni HSSA.

Árni Rúnar ræddi málefni HSSA.

Hjalti ræddi málefni HSSA.

Árni Rúnar ræddi málefni HSSA.

Forseti bar bókun bæjarstjóra upp til atkvæðis.  Samþykkt samhljóða

Forseti bar fundargerðina upp til samþykktar.  Samþykkt samhljóða.

·         Fundargerð bæjarstjórnar, 172. fundur áður samþykkt.

Til kynningar.

 

2.  Fjárhagsáætlun 2012 – fyrri umræða (útsending)
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði, gerði hann grein fyrir fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 og 10 ára áætlun.  Björn Ingi ræddi fjárhagsáætlun 2012 og las upp eftirfarandi bókun.

Nýjar reglur um fjármál sveitarfélaga voru settar til að  gera fjárhagsáætlanir sveitarfélaganna markvissari. Það verður að teljast til bóta að breyta hugsun og framkvæmd í fjármálum Sveitarfélagsins Hornafjarðar þar sem áætlanir hafa ekki verið nógu nákvæmar undanfarin ár. Með nýjum fjármálareglum er ekki gert ráð fyrir endurskoðun fjárhagsáætlunar.

Þrátt fyrir að fjárhagsáætlun síðasta árs hafi tekið mið af þessum nýju reglum var nauðsynlegt að endurskoða fjárhagsáætlun ársins 2011 og bæta við gjaldaliði málaflokka sem nam 72,7 milljónum króna, á móti kom hækkun tekna uppá 59 milljónir króna sem lagaði heildar niðurstöðu aðalsjóði svo nettórekstaraaukning varð einungis um 23 milljónir.

Í þeim drögum sem hér eru til umræðu er lagt til að farið verði í framkvæmdir uppá 334 milljónir. Þetta er 60 til 70 milljónum króna hærri upphæð en flest undanfarin ár og teljum við að hér sé verið að spenna bogann of hátt, því til að standa undir þessum framkvæmdum þarf að taka ný lán að upphæð 220 milljónir króna. Þrátt fyrir góð lánakjör þá hefur það sýnt sig að á þessum óvissutímum getur verið varasamt að auka við skuldir.

Nauðsynlegt er endurskoða stærsta málaflokk sveitarfélagsins, fræðslumál, því vart getur talist eðlilegt að hann taki ekki mið af þeirri íbúaþróun sem hér hefur verið. Fækkun barna í samfélaginu okkar er því miður staðreynd og ekkert sem styður að sú þróun breytist á næstunni. Við eigum að reyna eftir bestu getu að sníða okkur stakk eftir vexti.

 

Árni Rúnar ræddi fjárhagsáætlun 2012 og las upp eftirfarandi bókun.

Milli umræðna í bæjarstjórn Hornafjarðar um fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 leggur bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar áherslu á að skoðað verði hvort sveitarfélagið sé að spenna bogann of hátt í framkvæmdaáætlun. Það er mikilvægt í ljósi þeirra óvissutíma sem við lifum á. Einnig er mikilvægt að sérstaklega verði skoðað hvernig hagræða megi í fræðslumálum sveitarfélagsins. Það er stærsti útgjaldaliður sveitarfélagsins og því mikilvægt að bæjarstjórn haldi vöku sinni í þeim málaflokki og leiti allra leiða til hagræðingar. Í þeim efnum ber fyrst að kanna hvort mögulegt er að hagræða í stjórnunarkostnaði leik - og grunnskóla án þess að það komi niður á þjónustu við nemendur

Reynir ræddi fjárhagsáætlun 2012, lagði hann til að fjárhagsáætluninni verði vísað til frekari vinnslu og síðari umræðu bæjarstjórnar.

Hjalti ræddi fjárhagsáætlun 2012.

Árni Rúnar ræddi fjárhagsáætlun 2012.

Björn Ingi ræddi fjárhagsáætlun 2012.

Forseti bæjarstjórnar leggur til að fjárhagsáætlun 2012 verði vísað til seinni umræðu, bæjarstjórn samþykkti samhljóða.

 

3. Grenndarkynning vegna lóðarinnar Hagatún 16 (útsending)

Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði og las upp eftirfarandi bókun:


Umhverfis- og skipulagsnefnd fjallaði um afstaðna grenndarkynningu,  breytingar á deiliskipulagi Hagatúni 16, þann 7. September. Tillagan er unnin af Erling Grosen Pedersen arkitekt. Grenndarkynningin var kynnt þann 20. júní og var umsagnarfrestur fjórar vikur, á þeim tíma bárust engar athugasendir. Tillaga var til umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsnefnd 7. september 2011, og var vísað í lögformlegan feril. Grenndarkynningin var samþykkt í Umhverfis- og skipulagsnefnd þann 5 október 2011.  Lagt er til að grenndarkynningin verði samþykkt og Sveitarstjórn lýsi því yfir í samræmi við Skipulagsreglugerð að hún bæti það tjón sem einstaka aðilar kunni að verða fyrir við þessa breytingu.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða

 

4.  Deiliskipulag í Stafafellsfjöllum – fyrri umræða (útsending)
Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði og las upp eftirfarandi bókun:
Umhverfis- og skipulagsnefnd fjallaði um umsókn Gísla Gíslasonar Landslagsarkitekt á fundi sýnum þann 5. október,  breytingu á deiliskipulagi frístundasvæðis,  Stafafellsfjöllum fyrirhönd landeiganda Brekku og Stafafells.  Áður en að málið var tekið fyrir,  höfðu Eldvarnareftirliti Austur- skaftafellssýslu, Heilbrigðiseftirliti Austurlands og  yfirmaður umhverfis- og skipulags farið yfir skipulag svæðisins og gert athugasendir við nokkur atriði er varða fráveitur, aðkomu slökkviliðs og við almenn atriði.  Að loknum breytingum til samræmis við athugasendir tók umhverfis- og skipulagsnefnd málið til umfjöllunar og afgreiðslu. Umsókn var samþykkt í Umhverfis- og skipulagsnefnd þann 5 október 2011. Lagt er til að breyting á deiliskipulaginu fari formlegt ferli

Bæjarstjórn vísar málinu til seinni umræðu

 

5. Fyrirspurnir bæjarráðs.

Engar  

Fundi slitið kl. 18.30


Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica