Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 172
172. fundur
172. fundur bæjarstjórnar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 6. október 2011 og hófst hann kl. 16:00.Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir Forseti
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Björn Ingi Jónsson 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Guðrún Ása Jóhannsdóttir aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir varamaður
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
| 1. | Fundargerðir (útsending) |
|
| Bæjarráð Hornafjarðar - 558 Hjalti ræddi um samning við Matís og hugmynd um ráðstefnu um málefni Jökulsárlóns. Ásgrímur benti á þann árangur sem náðst hefur í fráveitumálum. Björn Ingi ræddi um Matís og Jökulsárlón. Þá sagði hann sína skoðun að við uppbyggingu Hafnarvík og Heppu ætti Pakkhúsið að vera í höndum sveitarfélagsins. Þá þakkaði hann starfsmanni hafnarinnar fyrir ötult starf í að kynna höfnina sem komuhöfn fyrir skemmtiferðarskip. Árni Rúnar ræddi um vinnufund skólanefndar um skólabyggingar og mikilvægi að allir starfsmenn skólans fái að koma að undirbúningi að breytingum. Sagði líka mikilvægt að horfa til þróunar nemendafjölda áður en ráðist verði í breytingar. Þá ræddi Árni Rúnar um Hafnarvík og Heppu og velti því upp hvort rétt væri að endurskoða stefnu um eignarhald á Pakkhúsi sem mótuð var fyrr á árinu um sölu á húsinu. Ásgrímur sagði að enn sem komið væri hefði meirihluti bæjarstjórnar ekki séð ástæðu til að endurskoða stefnu sína um Pakkhúsið. Björn Ingi ræddi um Pakkhúsið og þá stefnu sem hefði verið upp um sölu þess. Sagði það sína skoðun að það ætti að vera í eigu sveitarfélagsins. Hjalti ræddi um Pakkhúsið og sagði það sína skoðun að því væri best komið í höndum duglegra og framtaksamra einstaklinga. Árni þakkaði fyrir umræðuna um Pakkhúsið og sagðist ekki hafa skipt um skoðun um sölu á húsinu. Rifjaði upp að stór hluti af ákvörðuninni hafi falist í að nýta söluandvirði hússins til að flytja Gömlubúð. Fundargerð samþykkt samhljóða. |
||
| 2. | ||
| Bæjarráð Hornafjarðar - 559 Arna Ósk fagnaði skipan starfshóps um viðburði. Sagði mikilvægt að hlúa vel að slíku starfi þar sem ekki væri mögulegt fyrir okkur að sækja menningarlíf til annarra staða. Notaði hún tækifærið og óskaði Hornfirska skemmtifélaginu til hamingju með 10 ára afmælið. Hjalti ræddi um heilbrigðis- og öldrunarmál. Árni tók undir orð Örnu Óskar um starfshóp um viðburði. Þá ræddi Árni einnig um heilbrigðis- og öldrunarmál, fagnaði vinnu stjórnar HSSA í stefnumótuninni og taldi það skapa betri samningsstöðu í málinu. Ræddi Árni um fjárlög ársins 2012 og hvort ræða þurfi aftur þá hugmynd sem komst á dagskrá sÍðasta haust um stuðning sveitarfélagsins við rekstur HSSA. Hjalti svaraði fyrirspurn Árna og sagði að hann teldi að ekki væri þörf á að setja umrædda hugmynd á dagskrá aftur, niðurskurðurinn væri talsvert minni. Árni þakkaði fyrir svörin. Benti á að þrátt fyrir að nafn hans kæmi ekki fyrir í fundargerðinni að þá hafi hann setið fundinn. Fundargerð samþykkt samhljóða. |
||
| 3. | ||
| Bæjarráð Hornafjarðar - 560 Kristján ræddi framkomna skýrslu KPMG um áhrif breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu á Hornafjörð. Árni Rúnar ræddi einnig um skýrslu KPMG. Hjalti fjallaði um skýrslu KPMG. Árni þakkaði fyrir umræðuna og sagði mikilvægt að halda áfram að nota skýrsluna sem grundvöll fyrir frekari umræðu um sjávarútveg og samfélagsþróun. Þá ítrekaði Árni skoðun sína frá bæjarráðsfundi að hafa verði í huga samkeppnissjónarmiðum við útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins. Einnig benti Árni á fyrirspurn sína um þróun nemenda í grunnskólum sveitarfélagsins í samhengi við þróun fjölda starfsmanna og mikilvægi þess að vera meðvituð um að þessi útgjaldaliður taki mest til sín í rekstri sveitarfélagsins. Fundargerð samþykkt samhljóða. |
||
| 4. | ||
| Bæjarstjórn Hornafjarðar - 171 - fundargerð áður samþykkt. Fundargerð áður samþykkt. |
||
| 5. | Nýtt kirkjugarðsstæði (útsending) |
|
| Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði. Sagði að skipulagsstofnun hafi gert athugasemd við framsetningu skipulagstillögunar í bréfi dagsettu 22.09.11. Athugasemdin snýr að því að texti og uppdráttur fari ekki saman og eru til þess fallin að valda misskilningi þar sem bílastæði eru sýnd á uppdrætti utan við afmarkaðan deiliskipulagsreit en þeirra er hinsvegar gerð skil í textaskilmálum. Á kynningartíma var haldinn einn kynningarfundur þar sem fram kom m.a að bílastæðamál við kirkjuna væri brýnt úrlausnarefni. Enginn fundarmanna mælti því í mót en tóku undir þau sjónarmið. Í ljósi þessa, er lagt til að afmörkun skipulagsreitsins verði færður utan um bílastæði og akstursleið næst leikskóla en bílastæði innan lóðar kirkjunnar verði felld út. Þannig verði komið til móts við athugasemdir Skipulagsstofnunar án þess að gera breytingar á megin markmiðum skipulagsins. Bæjarstjóri lagði til að skipulagið verði sent til afgreiðslu Skipulagsstofnunar með ofangreindum breytingum. Samþykkt samhljóða. |
||
| 6. | Fjárhagsáætlun 2012 (útsending) |
|
| Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Sagði að í forsendum fjárhagsáætlunum væri gert ráð fyrir óbreyttum álagningarreglum, gert yrði ráð fyrir að útsvar hækki um 3%, fasteignaskattstofn hækki um 8% en jöfnunarsjóðsframlög lækki um 10%. Laun og launatengd gjöld er gert ráð fyrir að breytist í samræmi við gildandi kjarasamninga. Nokkur verkefni væru í vinnslu sem gætu haft áhrif á rekstur bæði til lækkunar og hækkunar. Fjárhagsliðir í römmum sem bundir eru vísitölu hækka en önnur útgjöld verði föst að krónutölu. Stofnbúnaðarrammi verði 15 m.kr. og hækki um 10 m.kr. Þetta er gert til að ráðast í átak við endurnýjun á stofnbúnaði í leik-, grunn- og tónskólum. Ekki hefur enn verið lögð fram tillaga um framkvæmdir og viðhald en gerð verður sú breyting að ekki verður lengur gerð sérstök áætlun um viðhald og önnur um framkvæmdir heldur þetta tvennt unnið saman sem fjárfestingaráætlun fyrir eignarsjóð. Sagði Hjalti að 10 ára áætlun sem byggir á ofangreindum forsendum verði lögð fram á næsta fundi bæjarráðs ásamt 4ja ára áætlun. Að endingu sagði Hjalti mikilvægt að bæjarráð ræði þau markmið og viðmið sem það vilji setja sér í rekstri sveitarfélagsins. Björn Ingi tók undir orð um mikilvægi þess að ræða forsendur fjárhagsáætlunar. Fór yfir verðlagsþróun og sagði að það væri ekki sjálfsagt að hækka alla útgjaldaliði samkvæmt vísitölu. Benti á að málaflokkar væru með upp í 90% af sínum liðum bundna vísitölu og að ekki ætti að gefa sér að hækka alla þessa liði. Árni Rúnar tók til máls og tók undir orð Hjalta og Björns Inga. Sagði mikilvægt að ræða forsendur fjárhagsáætlunar í bæjarstjórn. Sagði að í framlögðu skjali um forsendur hafi komið fram að óvissa er mikil og verðlag að hækka. Lagði Árni fram tvær tillögur: Bæjarstjórn er sammála um að í fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 verði gert ráð fyrir kostnaði vegna úttektar á áhrifum aðildar Íslands að Evrópusambandinu og upptöku Evru á Sveitarfélagið Hornafjörð. Bæjarstjórn samþykkir að við gerð fjárhagsáætlunar 2012 verði sérstaklega horft til þess hvernig megi stuðla að eflingu æskulýðs - og tómstundastarfs í sveitarfélaginu. Sérstaklega verði horft til að leita leiða til að auka þátttöku barna og unglinga í skipulögðu æskulýðs - og tómstundastarfi. Til að ná þessu markmiði er bæjarstjórn sammála um að skoða möguleika þess að hækka tómstundastyrk til barna og unglinga á aldrinum 6 - 18 ára úr 10.000 kr. á ári í 20.000 kr. Ásgrímur sagði fyrri tillöguna góða en þá síðari ekki. Ræddi síðari tillöguna. Hjalti fjallaði um síðari tillöguna. Árni ræddi síðari tillögu sína og mikilvægi þess að bæjarstjórn Hornafjarðar taki frumkvæði og hvað það raunverulega þýðir að ganga til liðs við ESB. Árni ræddi um ESB og áhrif á Hornafjörð. Hjalti ræddi um ESB og áhrif á Hornafjörð. Forseti bar fyrri tillöguna upp til atkvæða. Samþykkt samhljóða. Forseti lagði til að síðari tillögunni verði vísað til fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2012. Samþykkt með þrír atkvæðum, fjórir sátu hjá. Árni ræddi um fundarstjórn og spurði hvort ekki væri réttur skilningur sinn að hann hafi verið að sitja hjá við afgreiðslu frávísunartillögu. Forseti sagði svo vera. |
||
| 7. | Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2011 (útsending) |
|
| Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Sagði að launabreytingar hafi verið miklar en hækkun á útsvarstekjum hafi mætt þeim kostnaði að nær öllu leyti. Frá upprunalegri áætlun lækkar rekstrarniðurstaða í samanlögðum reikningsskilum um 8,6 m.kr. en handbært fé eykst um 11.9 m.kr. frá upprunalegri áætlun. Björn Ingi fagnaði því að ný sveitarstjórnarlög gerðu ráð fyrir að endurskoðun á fjárhagsáætlun heyrði sögunni til. Ræddi um miklar launabreytingar. Hjalti ræddi um launabreytingar. Björni Ingi ræddi um launabreytingar. Árni Rúnar tók undir orð um kosti þess að breyta verklagi við endurskoðun á fjárhagsáætlun. Þá ræddi Árni launabreytingar og ítrekaði skoðun sína að ekki hafi verið tímabært að breyta stjórnfyrirkomulagi á Grunnskóla Hornafjarðar. Spurði hann bæjarstjóra hvort hann teldi að frávik á launaáætlun væru meiri á þessu ári en venjulega. Hjalti þakkaði fyrirspurninni en sagðist ekki hafa skýr svör við henni en sjálfsagt að leita svara við henni Árni Rúnar þakkaði fyrir svörin og sagði undirstrika að hér yrði að gera greinarmun á ákvörðunum bæjarráðs og annarra þátta sem erfitt væri að hafa stjórn á. |
||
| 8. | Fyrirspurnir - bæjarstjórn | |


