Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 171

171. fundur bæjarstjórnar Hornafjarðar haldinní Nýheimum,1. september 2011 og hófst hann kl. 16:00.

 

 

Fundinn sátu:

Ásgerður Kristín Gylfadóttir Forseti

Reynir Arnarson 1. varaforseti

Björn Ingi Jónsson 2. varaforseti

Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður

Guðrún Ása Jóhannsdóttir aðalmaður

Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður

Arna Ósk Harðardóttir 1. varamaður

Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri

Stefán Ólafsson starfsmaður fræðslu- og félagssviðs

 

Fundargerð ritaði:  Stefán Ólafsson, framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs.

 

 

 

Dagskrá:

 

1. 1108001F - bæjarráð Hornafjarðar - 554 (útsending)

Björn Ingi tók til máls og lýsti yfir ánægju með að vera komin í Svavarssafn. Hann ræddi skýrslu KPMG vegna "minna frumvarpsins" og um leið hvort aukning í úthlutun fyrir næsta kvótaár mildaði það högg sem frumvarpið leiddi af sér. Einnig velti hann því upp hvort okkar rödd væri nógu áberandi í umræðunni um fiskveiðimál.
Árni lýsti yfir ánægju með það umhverfi sem fundurinn væri nú haldinn í. Hann ræddi einnig áhrif "minna frumvarpsins" og minnti á að það væri orðið að lögum. Hann ræddi umsögn bæjarráðs um stærra frumvarpið og spurðist fyrir um hvenær endanleg skýrsla KPMG um það frumvarp yrði tilbúin. Hún gæti verið mikilvæg fyrir málflutning sveitarfélagsins í þessu máli.
Reynir tók undir orð um fundarstaðinn. Hann ræddi sjávarútvegsmálin. Hann ræddi kvótaaukninguna fyrir næsta kvótaár og áhrif hennar. Hann vildi ekki nota orðin "mildandi áhrif" í umræðu um þetta mál, hér hefði einfaldlega komið fleiri tonn ef ný lög hefðu ekki tekið gildi.
Hjalti fór yfir málið og ræddi með hvaða hætti við getum notað vinnu KPMG í málflutningi okkar í umræðu um fiskveiðistjórnunina og áhrif nýrra laga og frumvarps um þetta mikilvæga mál. Hann sagði slæmt að skýrsla frá KPMG lægi ekki enn fyrir. Hann sagði strandveiðar skila okkur litlu og mjög lítið af þeim afla færi hér til vinnslu.
Árni ræddi hvernig við getum komið okkar rödd að í umræðu um fiskveiðistjórnuni, lagði áherslu á að rödd okkar heyrðist. Hann lagði áherslu á mikilvægi umræddrar skýrslu. Lagði áherslu á að við þurfum að vanda okkar málflutning en hann þurfi að heyrast.
Fundargerð samþykkt.
 

2. 1108002F - bæjarráð Hornafjarðar - 555

Fundargerð samþykkt.
 

3. 1108005F - bæjarráð Hornafjarðar - 556

Hjalti gerði grein fyrir fundi starfsmanna með forsvarsmönnum USÚ vegna unglingalandsmóts 2013. Greindi frá hugmyndum um nýjar greinar og að fatlaðir unglingar geti einnig tekið þátt í mótinu, það verði aðgengilegt fyrir alla.
Árni fagnaði væntanlegu unglingalandsmóti 2013 og hugmyndum þeim sem fram komu í máli Hjalta. Hann ræddi leikskólatímann frá 16 - 17, sbr. fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar. Lagði áherslu á að sambærileg þjónusta þyrfti að vera í boði í báðum leikskólunum, þ.e. af opið væri á þessum tíma þyrftu báðir skólarnir að vera opnir. Mönnun á þessum tíma mætti þar ekki ráð för.
Ásgerður fór yfir tímann 16 - 17 og gerði grein fyrir af hverju ekki væri opið á þessum tíma í öðrum leikskólanum. Þá greindi hún frá könnum vegna þessa máls. Sagði Ásgerður það vera stefnu að hafa sömu þjónustu í báðum skólunum og gerði jafnframt grein fyrir erfiðleikum á að manna þennan tíma skóladagsins.
Árni þakkaði fyrir þessa umræðu og svör formanns skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar. Einnig ræddi hann hvort foreldrar þess skóla sem hefði lokað eftir 16 gætu keypt tíma af hinum skólanum. Einnig velti hann því upp hvort þessa staða væri uppi ef skólarnir væru undir einni og sömu stjórn.
Ásgerður fór yfir hvernig mál leystust sl. vor, þ.e. hjá foreldrum sem áttu börn í þeim sem lokaði eftir 16.15, það hafi foreldrar getað leyst.
Fundargerð samþykkt.
 

4. 1108007F - bæjarráð Hornafjarðar - 557

Fundargerð samþykkt.
 

5. 1107004F - bæjarstjórn Hornafjarðar - 170

Fundargerð áður samþykkt.
 

6. 200805074 - Hafnarvík Heppa deiliskipulag - fyrri umræða (útsending)

Bæjarstjóri fylgdi deiliskipulaginu úr hlaði. Svæðið afmarkast af bryggjunni fyrir framan Miklagarð, Graðaloftið, Pakkhúsið og Hafnarvogina á Höfn, opið svæði neðan Bogaslóðar, upp með Hafnarbrautinni þar sem lóðir n.r. 6, 4, og 2 eru hluti af deiliskipulagssvæðinu, athafnasvæðið í átt að sláturhúsinu, þ.e Kartöfluhúsið og lóð þess, Gíslaverkstæðið og rústirnar. Hafnarvík - Heppa er mikilvægt svæði vegna sögu byggðarlagsins, varðveislu bygginga og staðsetningar við höfnina. Innan skipulagssvæðisins er gamla hafnarsvæðið á Höfn og kjarni elstu byggðar sem hófst þar árið 1897. Innan svæðisins standa enn nokkur elstu húsanna, í misgóðu ástandi, sum er hægt að lagfæra, önnur að endurbyggja. Innan svæðisins er ennfremur landrými til að skilgreina nýjar byggingarlóðir, á eina þeirra er gert ráð fyrir að Gamlabúð verði flutt, á öðrum er gert ráð fyrir að reistar verði endurgerðir horfinna húsa, og enn öðrum nýbyggingar skv. skilmálum. Í dag er svæðið og húsnæði þar nýtt undir ýmsa starfsemi svo sem veitingarekstur, safna- og listastarfsemi, léttan iðnað, geymslurými, athafnasvæði fyrir sjávarútveg og íbúðir. Deiliskipulagssvæðið er eitt af kjarnasvæðum í þeim sveig sem afmarkar miðhluta Hafnar - milli tveggja gatnamóta Hafnarbrautar og Víkurbrautar - og er þungamiðja verslunar og þjónustu auk annarrar atvinnustarfsemi. Um hús sem byggð eru fyrir 1918 gilda Lög um húsafriðun nr. 104 / 2001.
Um deiliskipulagssvæðið og athafnir á því gilda Þjóðminjalög nr. 107 / 2001. Mannvistarminjar kunna að vera duldar í jörðu á deiliskipulagssvæðinu. Við framkvæmdir skal fara að fyrirmælum í Þjóðminjalögum.
Bæjarstjóri lagði til að skipulagið yrði vísað til síðari umræðu.
Reynir sagði málið hafa fengið mikla umfjöllun í viðkomandi nefnd. Þá ræddi hann kort sem breyta þyrfti áður en deiliskipulagið færi í kynningu. Þá benti hann á að ekki lægi fyrir endanleg ákvörðun um að Gamla búð verði flutt á næsta ári, ákvörðun um það biði fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012.
Samþykkt samhljóma að vísa málinu til umfjöllunar á næsta fundi bæjarstjórnar.
 

7. 200901107 - Fyrirspurnir - bæjarstjórn

Engar.
 

 




Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl. 17:00

 


Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica