Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 166
Fundur 166
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 3. mars 2011, kl. 16.00 í Nýheimum.
Mætt voru: Reynir Arnarson, Ásgerður K. Gylfadóttir, Kristján S. Guðnason, Arna Ósk Harðardóttir, Guðrún Ása Jóhannsdóttir, Björn Ingi Jónsson og Árni Rúnar Þorvaldsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Haukur Ingi Einarsson.
1. Fundargerðir (upptaka)
· Fundargerð bæjarráðs 532. Fundur
Björn Ingi fjallaði um samþykkt um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar, ræddi hann um mikilvægi þess að gera grein fyrir reglunum á heimasíðu sveitarfélagsins.
Árni tók undir orð Björn Inga um að opinbera reglur um kjör fulltrúa sveitarfélagsins. Árni fjallaði um vinnu við endurskoðun aðalskipulagsins, ræddi hann um aðdraganda þeirrar vinnu og íbúaþing sem fram fór í lok febrúar. Spurði hann hvernig vinnunni við endurskoðunina verði haldið áfram. Árni fjallaði einnig um verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs, spurðist hann fyrir um hvort óánægjuraddir hafi verið uppi meðal einhverra hópa með verndaráætlunina fyrir Suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Óskað hann einnig eftir upplýsingum um stöðu mála er snýr auglýsingu um hálfa stöðu fjármálastjóra fyrir Vatnajökulsþjóðgarðs.
Hjalti tók undir orð Björns Inga og upplýsti að hann hafi óskað eftir að reglurnar birtust á netinu. Gerði hann grein fyrir inntaki þeirra. Hjalti tók undir orð Árna um að íbúaþingið hafi verið vel heppnað, ræddi hann um þá vinnu sem fram hefur farið í tengslum við endurskoðun aðalskipulags. Hjalti gerði grein fyrir úrvinnslu íbúaþingsins og í hvernig verði unnið með þau gögn sem þingið mótaði, einnig gerði hann fyrir tímaáætlun úrvinnslunnar og hvernig hún mótar áherslur endurskoðunar aðalskipulagsins. Hjalti fjallaði um verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs og gerði grein fyrir helstu ágreiningsmálum hennar. Gerði hann grein fyrir því að helstu deilurnar beinist ekki að Suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Hjalti fór yfir hvernig nú væri verið að móta innri stefnu Vatnajökulsþjóðgarðs þar sem starfsmannamál eru fyrirferðamikil, gerði hann grein fyrir sinni afstöðu málsins um að fjármálastjórn og framkvæmdastjórn skuli vera á Suðusvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.
Árni þakkaði fyrir skýr svör um innra starf Vatnajökulsþjóðgarðs. Ræddi hann um stöðu fjármálastjóra og mikilvægi þess að fá stjórnun á Suðursvæðið.
Hjalti fjallaði um rekstur á Suðursvæðis.
Fundargerð samþykkt samhljóða
· Fundargerð bæjarráðs 533. fundur
Hjalti fjallaði um málefni biðlista leikskóla, gerði hann grein fyrir vinnu sem farið hefur fram á meðal starfsmanns og skólanefndar. Hjalti fjallaði einnig um ákvörðun bæjarráðs um að loka sorpbrennslustöðinni Brennu Flosa í Öræfum. Hjalti ræddi um þá framför sem orðið hefur í umræðu um orkumál á köldum svæðum.
Björn Ingi ræddi um hóp sem fjallar um uppbyggingu list- og verkgreina á Hornafirði. Björn Ingi ræddi einnig afsal bæjarráðs á hluta af styrk frá Mennta og menningarmálaráði vegna uppbyggingu þjónustuhúsnæðis fyrir Menningarmiðstöð þar sem forsendur styrkumsóknar eru breyttar. Björn Ingi fjallaði um málefni framkvæmda í Óslandi, taldi hann mikilvægt að vanda betur til verka við undirbúning framkvæmda.
Reynir fjallaði um framkvæmdir í Óslandi, taldi hann einnig mikilvægt að vanda betur til verka við undirbúning framkvæmda, gerði hann grein fyrir að samskipti við Skipulagsstofnun um úrlausn á málinu væru góð. Reynir fjallaði um þá ákvörðun um lokun sorpbrennslustöðinni Brennu Flosa, gerði hann grein fyrir að niðurstöðum mælinga er að vænta á næstu dögum. Reynir vakti máls á uppbyggingu atvinnustarfsemi í landi Horns, gerði hann grein fyrir hugmyndum af nýtingu á víkingaþorpi og samstarf um bryggju á Austurfjörum. Reynir fór yfir aðdraganda styrkjamála er varðar uppbyggingu þjónustuhúsnæðis fyrir Menningarmiðstöð. Sagði hann að óskynsamlegt væri að segja MATÍS upp húsnæðinu.
Árni ræddi sorpmál í Öræfum, taldi hann bæjarráð hafi tekið rétta ákvörðun með að loka sorpbrennslustöðinni þar sem stöðin skili frá sér mengandi efnum. Árni fjallaði um biðlista í leikskólum, ræddi hann um lausnir í þeim málum og fyrri viðmið um barngildi. Árni taldi mikilvægt að áður en ráðist verði í kaup á færanlegu húsnæði að lokið verði við vinnu er varðar úttekt á leikskólamálum. Árni ræddi um list- og verkgreinar, spurðist hann fyrir um hvort stæði til að byggja list- og verkgreinahús. Árni fjallaði um grjótvörn í Óslandi, taldi hann mikilvægt að vanda betur til verka við undirbúning framkvæmda.
Hjalti gerði grein fyrir stöðu mála um uppbyggingu list- og verkgreina og þá fundi sem haldnir hafa verið á vegum hópsins sem fjallar um málið. Hjalti ræddi framkvæmdir í Óslandi, gerði hann grein fyrir aðdraganda málsins og aðstæðum á svæðinu. Hjalti fjallaði um leikskólamál, gerði hann grein fyrir mismunandi áherslum í úttekt á leikskólum, annarsvegar er verið að ræða um skipulag og hinsvegar um húsnæði sem leikskólarnir eru í.
Björn Ingi ræddi um styr og, uppbyggingu á þjónustuhúsi fyrir Menningarmiðstöð. Björn Ingi fjallaði um lausn á biðlistum á leikskólum, taldi hann óskynsamlegt að byggja bráðabirgða húsnæði úr gámum. Björn Ingi ræddi lokun Brennu Flosa.
Hjalti tók undir orð Björns Inga um að mikilvægt er að eiga samráð við starfsmenn og stofnanir í ákvörðunartökum á vettvangi opinberar stjórnsýslu. Hjalti gerði grein fyrir styrk til þjónustuhússins.
Reynir fjallaði um framkvæmdir í Óslandi, benti hann á fyrri sjóvarnir í Óslandi. Reynir ræddi um leikskólamál, benti hann á mikilvægi þess að lista upp og skoða úrræði sem miða að því að minnka biðlista í leikskólum.
Árni fjallaði um framkvæmdir í Óslandi.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
· Fundargerð bæjarráðs 534. Fundur
Arna fjallaði um auglýsingu er varðar umsóknir til að halda Unglingalandsmót UMFÍ 2013, lagði hún til að USÚ sæki um að fá að halda mótið 2013 og til vara að halda mótið 2014. Einnig hvatti hún til þess að sækja um meistaramót 50+ og sagði að bæjarstjórn gæti teflt fram sigurstranglegum fulltrúa í því móti.
Árni ræddi um ráðgjafastarf HSSA, spurði hann um ástæðum fyrir því af hverju læknir ákvað að hætta störfum hjá HSSA. Árni spurði hvaða leiðir er færar í að ráða inn yfirlækni hjá HSSA. Árni ræddi um staðsetningu 7. bekkjar, lagði hann til að bæjarstjórn vísi málinu aftur til umfjöllunar skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar og las upp eftirfarandi tillögu:
Bæjarstjórn felur skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd að móta stefnu til framtíðar um staðsetningu 7. bekkjar við Grunnskóla Hornafjarðar. Í þessu felst að ef aðstæður skapast í Hafnarskóla til að taka að nýju við 7. bekk grunnskólans þá liggi fyrir afstaða skólanefndar og bæjarstjórnar um það í hvaða húsnæði 7. bekkur skuli vera staðsettur. Það er síðan verkefni skólastjórnenda í samstarfi við starfsfólk og foreldra að vinna úr stefnumótun bæjarstjórnar á hverjum tíma.
Ásgerður fjallaði um staðsetningu 7. bekkjar og las upp eftirfarandi bókun.
7. bekkur er í Grunnskóla Hornajarðar en hvorki í Hafnarskóla né Heppuskóla. Farsælast er að skólastjórnendur marki stefnu og/eða meti í hvoru húsinu 7. bekk sé kennt hverju sinni. Mikilvægt er að skólastjórnendur taki ákvörðun um þessi mál í samráði við foreldraráð skólans og starfsfólk. Skólanefnd mun hafa eftirlit með þessari framkvæmd og gera viðeigandi ráðstafanir ef upp koma vandamál.
Björn Ingi fjallaði um úthlutun styrkja. Björn Ingi ræddi staðsetningu 7. bekkjar taldi að miðstigið ætti að vera saman í skólagöngunni.
Hjalti ræddi læknamál á HSSA, gerði hann grein fyrir ráðgjöf sem Capacent framkvæmdi á sínum tíma. Hjalti gerði grein fyrir því hversvegna læknir væri að segja upp störfum og þeirri vinnu sem nú er í gangi er snúa að lausn á læknamálum.
Björn Ingi ræddi um stjórnfyrirkomulag Grunnskóla Hornafjarðar. Spurði hann um hvort starfmenn hefðu haft tök á að skoða þessi mál.
Árni ræddi staðsetningu 7. bekkjar, fór hann yfir aðdraganda ákvörðunar að flytja bekkinn milli húsa á sínum tíma. Árni þakkaði bæjarstjóra yfir skýr svör um læknamál HSSA. Vakti hann máls á þeirri ástæðu þess að læknirinn ákvað að segja upp störfum. Árni fór yfir fyrirspurnir sýnar um ráðgjafavinnu fyrir HSSA. Árni ræddi um áskorun 17 bæjarstjóra í sjávarútvegsmálum og las upp þær fyrirspurnir sem hann bar upp á 534. fundi bæjarráðs.
Hjalti ræddi um framtíðar stefnumótun fyrir HSSA og greindi frá umsóknum í ráðgjafastörf tengt þessari stefnumótun. Hjalti gerði grein fyrir svörum sínum er varðaði fyrirspurn Árna á 534. fundi bæjarráðs.
Árni þakkaði bæjarstjóra fyrir svörin og fjallaði um sjávarútvegsmál. Árni spurðist fyrir um afstöðu bæjarstjóra um framtíðarstaðsetningu 7. bekkjar.
Hjalti gerði grein fyrir sínum sjónarmiðum um fiskveiðistjórnunarkerfið og hversvegna hann styðjið samningaleiðina. Hjalti fór yfir aðdraganda að sameiningu grunnskólanna, taldi hann mikilvægt að víðtækt samráð nefnda, skólastjórnenda, starfsmanna og foreldra verði haft þegar staðsetning bekkjadeilda er ákveðin.
Reynir fjallaði um staðsetningu bekkjadeilda, taldi hann mikilvægt að skólasamfélagið verði að taka ákvarðanir um skipan bekkjadeilda hverju sinni. Reynir fjallaði um sjáverútvegsmál, benti hann á að sex af sjö bæjarfulltrúum hafi sameinast um bókun á fundi bæjarstjórnar í janúar sl. Spurðist hann fyrir um hver afstaða Árna Rúnars væri í sjáverútvegsmálum.
Árni veitti stutt andsvar.
Ásgerður bar tillögu Árna Rúnars upp til atkvæða, þrír voru sammála fjórir voru á móti.
Árni fjallaði um atkvæðagreiðsluna.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
· Fundargerð bæjarráðs 535. fundur
Björn Ingi ræddi fundargerð Hafnarstjórnar, fjallaði hann um styrkumsókn til Björgunarfélags Hornafjarðar, fór hann yfir forsögu málsins. Fjallaði hann einnig um reglur um húsnæðismál. Björn Ingi ræddi styrkveitingar atvinnu- og menningarmálanefndar, benti hann á reglur um styrkveitingar úr sjóðnum. Ræddi hann einnig um ritun nefndarfunda, benti hann á mikilvægi þess að bókanir endurspegli sem best umræður funda nefnda.
Reynir ræddi fundargerð Hafnarstjórnar, fjallaði hann um hlutdeild í björgunarlaunum vegna björgunar Axels.
Hjalti ræddi björgunarlaun vegna björgunar á skipinu Axel, gerði hann grein fyrir hlutdeild Ingibjargar í málinu. Hjalti fjallaði um störf nefnda og fundarritun þeirra, gerði hann einnig grein fyrir reglum um fundarritun.
Árni fjallaði um styrkveitingar úr atvinnu- og rannsóknarsjóð og þær reglur sem sjóðurinn býr við. Sagði hann að mikilvægt væri að ræða um úthlutun úr sjóðnum og ræða þurfi fyrirkomulag afgreiðslu úr sjóðnum. Taldi hann rétt í ljósi þess að reynsla er kominn á sjóðinn að fá yfirlit yfir þau verkefni sem hlotið hafa styrk, hvernig þeim hefur þeim vegnað og meta í framhaldinu hvort breyta eigi um áherslum er varðar styrki úr sjóðnum. Árni ræddi um nefndarstörf og ritun fundargerðar.
Hjalti ræddi fundarstörf nefnda. Fjallaði hann einnig um verkefninu Evrópa ungafólksins og skólavogina.
Björn Ingi ræddi fundarstörf nefnda, benti hann á að mikilvægi þess að upplýsa nefndarfólk um reglur og hlutverk nefndarinnar. Björn Ingi fjallaði um málefni björgunarfélagsins.
Reynir ræddi gjaldsskrá hafnarinnar.
Fundargerð samþykkt samhljóða
· Fundargerð 165. Fundar Bæjarstjórnar Hornafjarðar áður samþykkt
Til kynningar
2. Reglur um afslátt af fasteignaskatti hjá Sveitarfélaginu Hornafirði. (upptaka)
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði, gerði hann grein fyrir helstu breytingum á reglunum. Lagði hann til að reglurnar um niðurfellingu fasteignaskatts verði samþykktar. Gerði hann einnig grein fyrir fyrirhuguðum breytingum á Innkaupareglum sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
3. Úttekt á starfsemi Grunnskóla Hornafjarðar (Upptaka)
Ásgerður fylgdi málinu úr hlaði og gerði grein fyrir úttekt á starfsemi Grunnskóla Hornafjarðar, benti Ásgerður á að skýrslan sé unnin af beiðni bæjarráðs.
Björn Ingi fagnaði skýrslunni, taldi hann að næstu skref séu mikilvæg og að þau eigi að stíga í þá átt að bæta skólastarfið.
Árni fjallaði fjallaði um skýrsluna, taldi hann skýrsluna mikilvægt gagn til að vinna með til að bæta skólastarfið.
Ásgerður þakkaði fyrir góðar umræður, gerði hún grein fyrir því að skýrslan er orðin opinber á heimasíðu sveitarfélagsins og þeirri vinnu sem framundan er með úrvinnslu skýrslunnar. Unnin verður umbótaskýrsla sem lögð verður fram til ráðuneytisins. Öll úrvinnsla skýrslunnar verður gerð opinber þegar niðurstöður liggja fyrir svo íbúar geti fylgst með þeim umbótum sem gerðar verða á skóalstarfi Grunnskóla Hornafjarðar.
Hjalti þakkaði fyrir góðar umræður um skýrsluna. Gerði hann einnig grein fyrir þeirri vinnu sem framundan er varðar úrlausn skýrslunnar.
Árni fjallaði um umbótaáætlunina. Velti hann því upp hvort sú áætlun komi til umræðu í skólanefnd og bæjarráði áður en hún verður gerð opinber.
Hjalti greindi frá því að bæjarráð verði að skila skýrslunni frá sér til ráðuneytisins.
4. Samþykkt um búfjárhald í Sveitarfélaginu Hornafirði (upptaka)
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Lagði hann til að samþykktin fengi formlega meðferð og væri vísað til annarrar umræðu í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða
5. Kosning í nefndir (upptaka)
Tillaga um breytingu í kjörstjórnum:
Sveinn Rúnar Ragnarsson sem aðalmaður í stað Þorleifs Hjaltasonar í kjörstjórn í Nesjum.
Maríanna Jónsdóttir sem varamaður í stað Gunnhildar Ingimarsdóttir í kjörstjórn í Suðursveit.
Samþykkt samhljóða.
6. Fyrirspurnir – bæjarstjórn
Þær hafa engar borist.
Fundi slitið kl. 20.00


