Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 164

164. fundur

 

Fundur haldinn    í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 13. janúar 2011, kl. 16.00 í Nýheimum.

Mætt voru: Reynir Arnarson, Ásgerður K. Gylfadóttir, Kristján S. Guðnason, Ásgrímur Ingólfsson, Björn Ingi Jónsson, Guðrún Ása Jóhannsdóttir og Árni Rúnar Þorvaldsson.

Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Haukur Ingi Einarsson, Stefán Ólafsson og Ásta H. Guðmundsdóttir.

1.      200811043 – Fundargerðir (útsending)

Fundargerð bæjarráðs 526. fundur

Kristján Guðnason ræddi um Hafnarvík og Heppu.  Lagði fram eftirfarandi tillögu:

1.   Umhverfis- og skipulagsnefnd verði falið að ljúka við deiliskipulag við Hafnarvík og Heppu.  í skipulaginu verði mótuð stefna um endurbyggingu húsa eða uppbyggingu nýrra húsa á þeim byggingarreitum sem skilgreindir verða í skipulaginu. 

2.   Umhverfis- og skipulagsnefnd verði falið að móta áætlun um umhverfi á svæðinu með aðgengi allra að leiðarljósi. 

3.   Bæjarráð ljúki við að endurskoða reglur og gjaldskrá um útleigu húsnæðis í eigu sveitarfélagsins.  Þar verði m.a. tekið á nýtingu Graðalofts og Miklagarðs þar til húsið verða tekin til endurbóta eða ný byggð í staðinn.

4.   Bæjarráð verði falið að selja Pakkhúsið en að öðrum kosti leigja það til langs tíma. 

5.   Bæjarráð verði falið að ráðist í að vinna verk-, tíma og kostnaðaráætlun vegna flutning Gömlubúðar á sinn gamla stað niður við höfn þannig að hægt sé að taka afstöðu til málsins við gerð fjárhagsáætlunar 2012 og næstu ára.

Árni Rúnar Þorvaldsson ræddi um form og fyrirkomulag uppborinna tillagna fyrir bæjarstjórnarfundi.  Fjallaði hann einnig um framlagða tillögu.

Hjalti ræddi um framlagðar tillögur um framtíðaruppbyggingu Hafnarvík og Heppu og íbúafund sem haldin var á milli jóla og nýárs um málefni svæðisins.  Fjallaði hann einnig um mögulegt rekstrar- og eignarfyrirkomulag Pakkhússins.

Björn Ingi Jónsson ræddi um framlagðar tillögur.  Fjallaði hann sérstaklega um fjórða punkt tillögunnar um sölu eða leigu Pakkhússins.

Reynir ræddi um framlagðar tillögur.  Fjallaði hann um uppbyggingu lykilmannvirkja á svæðinu og  taldi að Mikligarður gegni þar lykilhlutverki.

Hjalti fjallaði um Pakkhúsið og benti á þá styrkleika sem húsið geti þjónað í samfélaginu.  Ræddi hann einnig um færslu á Gömlubúð á svæðið og undirbúning þeirrar framkvæmdar.

Árni Rúnar ræddi um fyrirkomulag uppbyggingar á svæðinu. 

Ásgerður bar tillögurnar upp til atkvæðagreiðslu með eftirfarandi breytingu á fjórða lið tillagnanna, Bæjarráði verði falið að selja Pakkhúsið en að öðrum kosti leigja það til langs tíma eða að mótuð verði stefna um nýtingu húsnæðisins.

Tillagan samþykkt samhljóða

Fundargerð samþykkt samhljóða

 

Fundargerð bæjarráðs 527. fundur

Ásgerður ræddi um Heilbrigðisstofnun Suðausturlands, sjúkraflutninga og slökkvilið.  Þakkaði hún öllum þeim sem lögðu hönd á plóg við að standa vörð um rekstur HSSA.

Ásgrímur ræddi um áskorun kvenfélagsins Óskar um vegstyttingu yfir Hornafjarðarfljót.  Fjallaði hann um mikilvægi þess að halda áfram að vinna málinu stuðning.

Árni Rúnar gerði einfalda athugasemd um fundarstjórnun.  Fjallaði hann einnig um vegstyttingu yfir Hornafjarðarfljót og spurðist fyrir um afgreiðslu erindis kvenfélagsins Óskar.  Árni Rúnar velti því upp í ljósi stöðu mála um vegstyttingu yfir Hornafjarðarfljót hvort Bæjarstjórn Hornafjarðar þurfi að endurskoða afstöðu sína um veglínu vegstyttingar yfir Hornafjarðarfljót.  Ræddi hann einnig um fyrirspurn sína um framlög til HSSA á fjárlögum.

Reynir ræddi um málefni vegstyttingar yfir Hornafjarðarfljót.

Björn Ingi ræddi um málefni vegstyttingar yfir Hornafjarðarfljót.

Hjalti ræddi um fjárframlög til HSSA á fjárlögum 2011 og þeirri vinnu og umræðu sem fór fram eftir fyrstu umræðu fjárlaga fyrir árið 2011.  Fjallaði hann einnig um málefni vegstyttingar yfir Hornafjarðarfljót.

Árni Rúnar ræddi um málefni HSSA og fyrirkomulag afgreiðslu og vinnu við fjárlagagerð ríkisins.  Fjallaði hann einnig um fyrirkomulag aðgerðarhóps og afrakstur þeirra í málefnum milli ríkis og sveitarfélaga.

Árni Rúnar lagði fram eftirfarandi tillögu.

  „Í ljósi þess að engin áform eru uppi um uppbyggingu knattspyrnuhúss á þessu kjörtímabili felur bæjarstjórn Hornafjarðar bæjarráði og bæjarstjóra að óska eftir viðræðum við Skinney – Þinganes um annars konar nýtingu þeirra fjármuna sem fyrirtækið veitti sveitarfélaginu að gjöf í tilefni af 60 ára afmæli fyrirtækisins árið 2006. Ef til viðræðna kemur, skal kannað hvort áhugi sé til staðar til að nýta fjármunina í þágu íþrótta – og æskulýðsstarfs með öðrum hætti en með aðkomu Skinneyjar – Þinganess að öðrum byggingum á vegum sveitarfélagsins.“

Ásgerður las upp nöfn aðgerðarhóps og gerði grein fyrir því hvernig í hann var skipað.

Árni Rúnar fjallaði aftur um aðgerðarhópinn.

Hjalti gerði grein fyrir skipan í aðgerðarhópinn.

Reynir ræddi um fjárframlög til HSSA og því starfi sem fór fram eftir fyrstu umræðu fjárlagagerðar.  Reynir fjallaði um uppbyggingu knattspyrnuhús og benti á að sveitarfélagið væri ekki búið að útiloka uppbyggingu knattspyrnuhús í framtíðinni.  Reynir studdi tillögu Árna og lagði til að hún yrði samþykkt.

Hjalti fór yfir málefni tillögu Árna og gerði grein fyrir forsögu málsins.

Árni Rúnar, Reynir og Björn Ingi fjölluðu um forsögu málsins.

Ásgerður bar tillögu Árna upp til samþykktar og var hún samþykkt samhljóða.

Fundargerð samþykkt samhljóða.

 

Fundargerð bæjarráðs 528. fundur
Árni Rúnar ræddi um málefni Kornræktarfélags Austur-Skaftafellssýslu og gerði grein fyrir bókun sinni undir fjórða lið fundargerðarinnar. Fjallaði hann einnig almennt um styrki.

Hjalti ræddi um málefni Kornræktarfélags Austur-Skaftafellssýslu og mikilvægi þess að stuðla að fjölbreyttri atvinnu uppbyggingu í sveitarfélaginu, að verkefni Kornræktarfélagsins standa 25 bændur og er unnin í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands.


Björn Ingi ræddi um málefni Kornræktarfélags Austur-Skaftafellssýslu.  Fjallaði hann einnig um húsaleigusamning vegna Hafnarbrautar 30 og benti á að nauðsynlegt er að kanna hagkvæmni á kaupum á húsinu eða leigu.

Ásgrímur ræddi um málefni Kornræktarfélags Austur-Skaftafellssýslu.  Fjallaði hann einnig um mikilvægi þess að áfram verði stuðlað að refaveiðum í sveitarfélaginu.
Hjalti fjallaði um húsaleigusamning vegna Hafnarbrautar 30.

Fundargerð samþykkt.


Fundargerð 163. Fundar Bæjarstjórnar Hornafjarðar áður samþykkt

Til kynningar

2.      201007005 – Fjárhagsáætlun 2011 – seinni umræða (útsending)

Hjalti gerði grein fyrir breytingum á milli umræðna sem ekki eru veigamiklar.  Niðurstaðan er sú A-B hluti skila samtals 134,5 m.kr. afgangi,veltufé frá rekstri verða 252,5 m.kr. og handbært fé í árslok 172,4 m.kr.  A-hluti sveitarsjóðs skilar 90 m.kr. afgangi, veltufé frá rekstri verður 168 m.kr. og handbært fé 142,2 m.kr.

Árni Rúnar Þorvaldsson las upp bókun samfylkingarinnar vegna fjárhagsáætlunar ársins 2011

„Fjárhagsáætlun er eitt mikilvægasta stjórntæki hverrar bæjarstjórnar. Hún er stefnuyfirlýsing þeirra sem fara með völdin hverju sinni og leggur línurnar um áherslur í rekstri og framkvæmdum sveitarfélagsins.
Kjósendur í sveitarfélaginu Hornafirði fólu Framsóknarflokknum stjórnun sveitarfélagsins með mjög skýrum hætti í síðustu bæjarstjórnarkosningum. Að mati bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar er mikilvægt að sú ákvörðun kjósenda sé virt. Það er að mati undirritaðs ein af birtingarmyndum lýðræðisins. Af þeim sökum situr bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar hjá við atkvæðagreiðsluna.

Að öðru leyti vísar undirritaður til bókunar sinnar við fyrri umræðu í bæjarstjórn um fjárhagsáætlun þann 16. desember sl. Einnig vísar undirritaður til bókunar sinnar í bæjarráði um framkvæmdir við eldhús á leiksskólanum Lönguhólum þann 28. júní 2010 sem áréttuð var á fundi bæjarráðs þann 21. desember sl.. “

Björn Ingi Jónsson las upp bókun sjálfstæðismanna við samþykkt fjárhagsáætlunar ársins 2011:

„Fjárhagsáætlun er stærsta stýritól hverar sveitarstjórnar og hana ber að nýta sem slíka. Nú á tímum minnkandi tekna er nauðsynlegt horfa á rekstrarkostnað sveitarfélagsins. Það er skoðun  okkar Sjálfstæðismanna að þar hefði mátt taka betur til hendinni. Rúmlega 40 milljóna tekjumissi er aðeins mætt með um 750 þúsund króna niðurskurði í rekstri sveitarfélagsins.

Einnig teljum við að þeim fjármunum sem varið er til viðhalds eigna sveitarfélagsins séu of litlir en einungis er veitt í það um 10 milljónum króna á sama tíma og við tókum nýlega í notkun nýja sundlaug og nýjan gervigrasvöll þó ætla megi að ekki falli strax viðhald á þær eignir.

Í þessari fjárhagsáætlun er einnig gert ráð fyrir endurnýjun á eldhúsi Leikskólans Lönguhóla sem vafalaust er full þörf á það er ósk okkar að ekki verði farið í þessar endurnýjun fyrr en sú úttekt sem samþykkt var að fara í og ætti að vera klár á vordögum 2011.
Sveitarfélagið þarf að sníða sér stakk eftir vexti.“

 Reynir Arnarsson ræddi um þá vinnu sem fram fór í aðdraganda og gerð fjárhagsáætlunar 2011, mælti Reynir með því að bæjarstjórn styðji við fjárhagsáætlunina.

Hjalti gerði grein fyrir fjármálareglum sveitarfélaga og lykiltölum í fjárhagsáætlun 2011.

Fjárhagsáætlun 2011 borin upp og samþykktar með fjórum atkvæðum, þrír sitja hjá.

3.      201012045 – 3ja ára áætlun 2012-2014 – seinni umræða  (útsending)

Hjalti gerði grein fyrir breytingum á milli umræðna sem ekki eru veigamiklar.  Bæði sveitarsjóður og samstæða skila jákvæðri niðurstöðu öll árs tímabilsins.

      Árni Rúnar gerði grein fyrir atkvæði sínu og vísar í bókun sína hér að ofan um síðari umræðu fjárhagsáætlun 2011.

Þriggja ára áætlun borin upp til atkvæða og samþykkt með fjórum atkvæðum, þrír sitja hjá.

4.      200804057 – Endurskoðun á samþykktum Atvinnu- og rannsóknarsjóðs (útsending)

Kristján Guðnason gerði grein fyrir helstu breytingum er varða samþykktir atvinnu- og rannsóknasjóð. Þakkaði hann samvinnuna sem átt hefur sér stað við samþykkt reglnanna.

Björn Ingi tók til máls og lagði áherslu á að aukinn meirihluti þyrfti að vera til staðar við samþykkt styrkja.

Reynir fjallaði um sama mál og ágreining um það. Gerði hann grein fyrir sínu sjónarmiði. Sagði hann eðlilegt að einfaldur meirihluti réði.

Árni Rúnar ræddi um helstu breytingar sem gerðar eru á samþykktum Atvinnu- og rannsóknarsjóðs.   Fjallaði hann einnig um lögboðin og ólögboðin verkefni sveitarfélaga.

Hjalti fjallaði almennt um vægi afgreiðslu mála.

Björn Ingi gerð grein fyrir sjónarmiðum sínum um aukinn meirihluta.  Fjallaði hann einnig um að það vanti inn í samþykktina hversu oft og hvenær eigi að veita styrk úr sjóðnum.

Hjalti gerði það að tillögu sinni að úthlutun úr sjóðnum verði einu sinni á ári og verði fært inn í samþykktirnar.

Árni Rúnar ræddi um fjölda úthlutana úr sjóðnum.  Fjallaði hann einnig um almennt vægi afgreiðslu mála. 

Reynir lagði til að breytingarnar á samþykktunum verði samþykktar með áorðnum breytingum um fjölda úthlutana úr sjóðnum.

Árni fjallaði um samþykktirnar og fyrirkomulag afgreiðslu þeirra.

Ásgerður bar upp tillögu um að breytingarnar á samþykktunum verði samþykktar með áorðnum breytingum um fjölda úthlutana úr sjóðnum

Samþykktirnar bornar undir atkvæði. Samþykkt með 4 atkvæðum, 3 sitja hjá.

5.      201101024 – Tillaga að ályktun um auðlindir (útsending)

Í upphafi fjallaði Árni um fundarsköp. 

Árni Rúnar fylgdi tillögunni úr hlaði og lagði fram eftirfarandi:

„Bæjarstjórn Hornafjarðar fagnar yfirlýsingum Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, um síðastliðin áramót um það markmið stjórnvalda að leiða til lykta ágreining um auðlindamál á nýhöfnu ári. Sjávarútvegur er undirstaða byggðar á Hornafirði og samfélagið hefur ekki farið varhluta af þeirri óvissu sem deilur um framtíð fiskiveiðistjórnunarkerfisins hafa skapað. Brýnt er fyrir alla aðila að aflétta þeirri óvissu og stuðla að varanlegri sátt um fiskveiðistjórnunarkerfið.“

Ásgrímur fjallaði um tillögu Árna og áherslur forsætisráðherra.  Ásgrímur styður ekki framlagða tillögu.

Reynir ræddi um fiskveiðistjórnunarkerfið og lagði fram eftirfarandi bókun:

„Sjávarútvegur er ein af höfuðatvinnugreinum þjóðarinnar og grundvöllur byggðar víða um land.  Til að sætta sjónarmið sem uppi hafa verið um nýtingu auðlindarinnar setti núverandi ríkisstjórn á laggirnar starfshóp til þess að endurskoða lög um fiskveiðistjórnun í júlí 2009 sem skilaði niðurstöðu í september 2010.  Í hópnum sátu fulltrúar allra framboða auk fulltrúa útgerðamanna, sjómanna og launþega og skilaði mikill meirihluti hópsins sameiginlegu áliti sem draga má saman í eftirfarandi texta í skýrslu nefndarinnar:

 „Meirihluti starfshópsins telur að með tilliti til settra markmiða og kröfu um jafnræði og meðalhóf sé rétt að endurskoða fiskveiðistjórnunarkerfið með sjálfstæðri löggjöf sem taki hliðsjón af auðlindastefnu almennt er byggist á hugmyndum um samningaleið. Meirihluti starfshópsins telur rétt að gerðir verði samningar um nýtingu aflaheimilda og þannig gengið formlega frá því að auðlindinni sé ráðstafað af ríkinu gegn gjaldi og að eignarréttur ríkisins sé skýr. Samningarnir skulu m.a. fela í sér ákvæði um réttindi og skyldur samningsaðila, kröfur til þeirra sem fá slíka samninga, tímalengd og framlengingu samninga, gjaldtöku, aðilaskipti, ráðstöfun aflahlutdeilda sem ekki eru nýttar, meðferð sjávarafla o.fl.“

Ef sú sátt sem forsætisráðherra boðaði í nýársávarpi sínu byggir á þessu áliti meirihluta starfshópsins ber að fagna því.  Með því væri verið að stíga mikilvægt skref til þess að leiða til lykta áralangar deilur um þessa af höfuðatvinnugreinunum þjóðarinnar í samvinnu allra framboða á Alþingi auk hagsmunasamtaka í sjávarútvegi.“

Hjalti fjallaði um fiskveiðistjórnunarkerfið og þá stöðu sem málið er í dag, gerði hann grein fyrir störfum starfshóps um endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins.

Björn Ingi fjallaði um fiskveiðistjórnunarkerfið og mikilvægi þess að sátt náist um málið þannig að sú niðurstaða kippi ekki fótunum undan þeim starfsgreinum sem byggja á greininni.

Árni fagnaði þeirri umræðu sem fram fer um sjávarútvegsmál í bæjarstjórn.  Fjallaði hann um bókun meirihlutans.

Reynir gerði betur grein fyrir bókun meirihlutans.

Hjalti gerði grein fyrir túlkun sinni á skýrslu starfshópsins.

Björn Ingi gerði grein fyrir sjónarmiðum sínum um bókun meirihlutans um að sjáverútvegurinn sé ein af höfuðatvinnugreinum þjóðarinnar.

Árni Rúnar fjallaði um framlagða tillögu Samfylkingarinnar.

Reynir gerði breytingartillögu á bókun meirihlutans er snýr að skilgreiningu á að sjáverútvegsmál séu ein af höfuðatvinnugreinum þjóðarinnar.

Árni gerði grein fyrir atkvæði sínu um framlagða tillögu Reynis.

Ásgerður bar tillögu Árna Rúnars upp til atkvæðagreiðslu, einn greiddi atkvæði með tillögunni, fjórir greiddu atkvæði gegn tillögunni, tveir sátu hjá.

Ásgerður bar upp tillögu Reynis upp til atkvæðagreiðslu, sex greiddu atkvæða með tillögunni, einn sat hjá.

6.      200901107 – Fyrirspurnir – bæjarstjórn

 

Fundi slitið kl. 19:40

 


Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica