Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 163

163. fundur

 

Fundur haldinn    í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 16. desember 2010, kl. 16.00 í Nýheimum.

Mætt voru: Reynir Arnarson, Ásgerður K. Gylfadóttir, Kristján S. Guðnason, Ásgrímur Ingólfsson, Björn Ingi Jónsson, Guðrún Ása Jóhannsdóttir og Árni Rúnar Þorvaldsson.

Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Haukur Ingi Einarsson, Stefán Ólafsson og Ásta H. Guðmundsdóttir.

1.      200811043 – Fundargerðir (upptaka)

·         201012044 - Fundargerð bæjarráðs 524. fundur

Björn Ingi ræddi 9. lið fundargerðarinnar um uppbyggingu Hafnarvík – Heppu svæðisins, spurði hann um hvort stefna sveitarfélagsins væri breytt um uppbyggingu svæðisisn.

Hjalti gerði grein fyrir rekstrarumhverfi Vatnajökulsþjóðgarðs.  Hjalti fjallaði um mismunandi möguleika á notkun húsbygginga á Hafnarvík – Heppu svæðinu, kostnað við uppbyggingu svæðisins og hvernig fjármögnun framkvæmda geti verið háttað.  Hjalti gerði einnig grein fyrir um hugmynd að útboði á Pakkhúsi.

Reynir gerði grein fyrir stefnu meirihlutans um framtíð Hafnarvík - Heppu svæðisins.

Árni Rúnar fjallaði um Hafnarvík – Heppu, ræddi hann um mikilvægi þess að jafnræðis verði gætt við nýtingu húsnæðis á svæðinu.

 Fundargerð samþykkt.

·         201012045 - Fundargerð bæjarráðs 525. fundur

Björn Ingi gerði að umtalsefni 7. lið fundargerðarinnar um jarðhitaleit á köldum svæðum og mikilvægi þess að hagsmunum allra aðila á köldum svæða verð gætt, lagði hann til að bæjarstjórn taki undir bókun bæjarráðs.

Hjalti tók undir með Björn Inga og gerði grein fyrir breytingu á milli umræðna  fjárlagafrumvarps ríkisins og að búið væri að samþykkja aukna fjárveitingu sem varið verður  til samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum.

Bæjarstjórn mótmælir fyrirhuguðum niðurskurði til jarðhitaleitar, stofnkostnaðar hitaveitu og niðurgreiðslum til almennings á köldum svæðum.  Bæjarráð leggur jafnframt áherslu á að stjórnvöld stuðli að því að kostnaður við húshitun á köldum svæðum verði sambærilegur við  það sem gerist annar staðar á landinu.

Fundargerð samþykkt

·         201012046 - Fundargerð bæjarstjórnar 162. fundur

Til kynningar

 2.      201007005 – Fjárhagsáætlun 2011 (upptaka1)    (upptaka2)    (upptaka3)

Hjalti fylgdi áætluninni úr hlaði. Í máli hans kom fram að lykiltölur úr áætluninni yrðu eins og eftirfarandi töflur sýna ( tölur í m.kr. )

                                               A                    Höfnin                        Veitur              Íbúðir              A-B

Rekstrarniðurstaða               89.061             43.422             3.502               22.350           133

Skuldir í hlutfalli af tekjum     70,6%                                                                                  82%

Framkvæmdir                      150                  20                    40                    0                   210

Handbært fé frá rekstri         166.364           55.269             3.502               9.260               251

Handbært fé í árslok            148.616           30.194             0                      0                    179

Afborganir langtímal.            104.634           7.165               0                      0                    121

Ný lántaka A-B hluta            0                      0                     0                    0                     0

 

Þá gerði Hjalti grein fyrir helstu verkefnum ársins, s.s. eins og íbúaþingi, orkumálum, mótun atvinnustefnu, úttekt á fræðslu- og uppeldismálum í sveitarfélaginu, samningum við ríkið um gerð  nýs þjónustusamnings um rekstur HSSA og samtarfi við einstaklinga um uppbyggingu við Hafnarvík og Heppu.

Björn Ingi  las  upp bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins vegna fyrri umræðu um fjárhagsáætlun 2011.

Sú staðreynd að við skulum vera að fara í gegnum fyrstu umræðu að fjárhagsáætlun núna um miðjan desember verður að teljast afar óheppilegt. Oft áður hafa verið víðsjárverðir tímar og erfitt að sjá fyrir um þróun mála nægir þar að nefna verðbólgudrauga fortíðar. Engu að síður hafa menn gert fjárhagsáætlanir og lagt þær fyrir og afgreitt  seinni umræðu á desember fundi sveitarstjórnar.

Miðað við þá fjárhagsáætlun sem hér er til umfjöllunar er ljós að tekjur sveitarfélagsins eru að dragast saman um 48 milljónir miðað við áætlaða útkomu ársins 2010 . Þetta er heldur minni samdráttur en þegar við ræddum þessi mál síðast á vettvangi sveitarstjórnar en þá virtist þessi tala stefna í rúmlega 90 milljónir. En 48 milljónir eru umtalsverðir peningar um það verður ekki deilt. Þegar ég skoða síðan gjöld sveitarfélagsins kemur í ljós að munurinn á þeim í þessari fjárhagsáætlun og í áætlaðir útkomi ársins 2010 er einungis 571 þúsund krónur þarna er ég að tala um gjöld fyrir fjármagnsliði. 571 þúsund krónur hagræðing í rekstri til að mæta 48 milljóna tekjutapi.  Ef hagræðingin sem fellst í breytingum á Grunnskóla Hornafjarðar væri ekki að koma til hefðu gjöld sveitarfélagsins verið að hækka um 15 til 20 milljónir á milli ára en það er það sem talið hefur verið að þessi breyting á skólahaldi í sveitarfélaginu hafi skilað. Við teljum þetta ekki vera eðlilega niðurstöðu. Þegar tekjur sveitarfélagsins dragast saman verða útgjöldin einnig að gera það.

Við áskilum okkur rétt til að koma með tillögur og athugasemdir á milli umræða

Bæjarstjórnarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins

Björn Ingi Jónsson

Guðrún Ása Jóhannsdóttir

  

Árni Rúnar las upp bókun bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar vegna fyrri umræðu um fjárhagsáætlun 2011.

Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar fagnar því að tekið hafi verið mið af fyrirhuguðum fjármálareglum sveitarfélaga við gerð fjárhagsáætlunar 2011.  Það mun styrkja fjárhagsáætlunargerð sveitarfélagsins til framtíðar litið og er til þess fallið að verja núverandi sterka stöðu bæjarsjóðs. Sú sterka staða er  tilkomin vegna ábyrgrar fjármálastefnu á síðasta kjörtímabili undir forystu Samfylkingarinnar.

Um leið og ýmsu í vinnubrögðum bæjarstjórnar við þessa fjárhagsáætlunargerð er fagnað, t.d. að taka mið af fjármálareglum og áherslunni á gott samstarf bæjarstjórnar, þá hlýtur það að vera markmið bæjarstjórnar Hornafjarðar að ljúka fjárhagsáætlunargerðinni fyrir lok árs en svo er ekki raunin að þessu sinni.

Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar áskilur sér allan rétt til að leggja fram breytingartillögur við síðari umræðu fjárhagsáætlunar í janúar.

Árni Rúnar Þorvaldsson

 

Reynir fjallaði um tímasetningu fyrri og síðari umræðu fjárhagsáætlunar árið 2011.  Þakkaði hann einnig öllum þeim aðilum sem komið hafa að vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011.

Árni fjallaði um fjárhagsáætlun 2011.

Hjalti þakkaði öllum þeim sem komið hafa að vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011, gerði hann grein fyrir að vel ígrunduð vinna hafi farið fram í aðdraganda fjárhagsáætlunar næsta árs og hvernig sú vinna nýtist í fjárhagsáætlunargerð næstu þrjú árin.

Forseti bar upp tillögu um að vísa fjárhagsáætlun til síðari umræðu í bæjarstjórn.  Samþykkt samhljóða.

 3.      201012047 – Fjárhagsáætlun HSSA 2011 (upptaka)

Hjalti fylgdi áætluninni úr hlaði. Í máli hans kom fram að lykiltölur úr áætluninni yrðu eins og eftirfarandi töflur sýna:

Framlög                                     388.600

Aðrar tekjur                                  21.630

Frestað til 2012                              7.100

Laun og launatengd gjöld             321.005

Annar kostnaður                         107.566

Rekstrarniðurstaða                       11.241

Árni spurði hvort niðurskurður á HSSA væri sá minnsti sem verður á landsbyggðinni.

Hjalti taldi að niðurskurðarkrafa sem gerð er til HSSA sé með því lægsta sem gerð er til heilbrigðisstofnanna á landinu.

Björn Ingi fjallaði um mismunandi upplýsingar í fjárlögum um niðurskurð hjá HSSA.

Árni fjallaði aftur um mismunandi þjónustustig heilbrigðisstofnunna milli landsvæða.

Forseti bar upp fjárhagsáætlun HSSA til atkvæða. Samþykkt samhljóma.

 4.      201012043 – 3ja ára áætlun 2012-2014 (upptaka)

Hjalti fylgdi áætluninni úr hlaði. Í máli hans kom fram að lykiltölur úr áætluninni yrðu eins og eftirfarandi töflur sýna fyrir A og B hluta ( tölur í m.kr ):

Ár                                                                  2012                2013                2014

Rekstrarniðurstaða                                         135                  134                  131

Skuldir í hlutfalli af tekjum                                78%                 73%                 69%

Framkvæmdir                                                 190                  190                  190

Handbært fé frá rekstri                                     256                  259                  260

Handbært fé í árslok                                        143                  163                  179

Afborganir langtímal.                                        102                  98                    104

Ný lántaka A-B hluta                                                               50                    50

Forseti bar upp tillögu að vísa 3ja ára áætlun til síðari umræðu í bæjarstjórn.  Samþykkt samhljóma.

 5.      201009078 – Tilboð í utanhúsbreytingar í ráðhúsi (upptaka)

Lagt fram ákvörðun bæjarráðs um töku tilboðs í endurbætur á ráðhúsi.  Fram kom að kostnaður var áætlaður 12.449.850.- en tilboð í verkið var upp á 11.667.059. Kostnaður dreifist á milli áranna 2010 og 2011.

Björn Ingi fjallaði um eðli afgreiðslu mála bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Reynir fjallaði einnig um lagfæringar á Ráðhúsinu.

Árni tók undir orð Björns Inga, spurði hann um hvort bæjarráð bæri ábyrgð á afgreiðslu málsins.

Hjalti gerði grein fyrir afgreiðslu málsins.

Árni fjallaði aftur um málið.

Björn Ingi spurðist fyrir um hvort málið væri flokkað sem viðhald eða sem framkvæmd

Hjalti gerði grein fyrir að málið falli undir framkvæmdir ársins 2011

Forseti bar upp ákvörðun bæjarráðs til atkvæða. 

Samþykkt samhljóða.


6.   200901107 - Fyrirspurnir – bæjarstjórn

Engar borist.

 

Fundi slitið kl. 17:40

 


Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica