Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 161

161. fundur

 

Fundur haldinn    í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 4. nóvember 2010, kl. 16.00 í Nýheimum.

Mætt voru: Reynir Arnarson, Ásgerður K. Gylfadóttir, Kristján S. Guðnason, Ásgrímur Ingólfsson, Björn Ingi Jónsson, Guðrún Ása Jóhannsdóttir og Árni Rúnar Þorvaldsson.

Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson og Ásta H. Guðmundsdóttir..

1.      Fundargerðir (upptaka)

·         Bæjarráð Hornafjarðar, 517. fundur, 11.október 2010.

Björn Ingi ræddi 3. og 4. lið fundargerðarinnar. Sagðist fagna þeim árangri sem náðst hefur í jarðhitaleit. Þetta væri ánægjuleg frétt með háan orkukostnað á okkar svæði í huga. Virkjun heita vatnsins gæti lækkað orkukostnað verulega og hvatti hann til aðgerða á þessu sviði.

Hjalti tók undir orð Björns Inga um orkumál og sagði hér um mjög brýnt hagsmunamál að ræða. Gerði hann og grein fyrir áætlunum RARIK í Hoffelli. Hjalti ræddi tekjuskerðingu HSSA eins og hún er boðuð í fjárlögum 2011. Hann ræddi fundi með ráðamönnum landsins vegna þessa máls og baráttunni fyrir að fá þetta leiðrétt.

Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.

·         Bæjarráð Hornafjarðar, 518. fundur, 28. október 2010.

Árni Rúnar ræddi 8. lið fundargerðar bæjarráðs, endurskoðun skipulags leikskólamála. Ræddi hann tímamörk sem hann vildi hafa á þessari endurskoðun með tilliti til næsta skólaárs. Ekki mætti bíða með þessa vinnu og vera þannig með óvissu hangandi yfir okkur.

Hjalti þakkaði Árna fyrir að vekja máls á leikskólamálunum. Sagði hann ekki hafa verið rætt um tímasetningar endurskoðunarinnar en lagði áherslu á að hefja þessa vinnu snemma næsta árs.

Björn Ingi lagði áherslu á vandaða vinnu við umrædda endurskoðun en lagði áherslu á að niðurstaða lægi fyrir það tímanlega að hægt verði að vinna eftir henni á næsta skólaári.

Reynir sagði miðað við fyrirliggjandi upplýsingar væri vinnan í reynd hafin. Hann sagði ekkert í hans huga kalla á breytingar á leikskólamálum. Sagðist ekki átta sig á miklum áhuga minnihlutans á þessu máli.

Árni þakkaði þessa umræðu um leikskólamálin og harmaði málflutning oddvita framsóknarmanna um málið. Sagði eðlilegt að kallað væri eftir því hvernig til hafi tekist með þá breytingu sem gerð var á leikskólunum fyrir fjórum árum.

Reynir taldi málið í góðum farvegi og vinnu við hana muni ljúka. Vegna orða Árna um grunnskólann sagði hann það mál ekki vera sambærilegt við leikskólamálin.

Árni sagði það rétt vera að aðstæður leik- og grunnskóla ekki vera sambærilegar en það væri jafnmikilvægt að fara yfir þennan málaflokk. 

Hjalti sagði eitt líkt með þessum skólastigum að með breytingunni sem gerð var hafi leikskólarnir verið gerðir heildstæðir. Hjalti sagði þó ekkert óhugsandi að vera með heildstæðan leikskóla í tveimur húsum.

Björn Ingi ítrekaði þá skoðun að horfa þurfi á málið í stærra samhengi með þær breytingar í huga sem orðið hafa á okkar samfélagi.

Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.

·         Bæjarráð Hornafjarðar, 519. fundur, 1. nóvember 2010.

Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.

·         Bæjarstjórn Hornafjarðar, 159. fundur 11. október 2010 áður samþykkt.

2.      Sjávarútvegsmál (upptaka)

Hjalti ræddi niðurstöður sáttanefndar um sjávarútvegsmál og minnisblað hans um það mál. Benti hann m.a. á niðurstöður meirihluta sáttanefndarinnar um að fara svo nefnda auðlindaleið sem hann var sammála um að verði farin í þessu mikilvæga máli. Mikilvægt væri að taka á auðlindum okkar Íslendinga með sambærilegum hætti.

Ásgrímur sagði það vera honum bæði ljúft og skylt að fjalla um sjávarútveginn, svo tengdur sem hann væri honum. Sagði hann það vera skyldu okkar að snúa bökum saman og verjast í þessu máli sem og heilbrigðismálum og landbúnaði. Ásgrímur sagði vinstri flokkana hafa orðið þess valdandi að margir hafi hætt í þessari atvinnugrein vegna áforma þeirra um að gjörbreyta kerfinu. Ásgrímur sagði langstærstan hluta afla Hornfirðinga vera unninn í heimabyggðinni. Hugmyndir um þjóðaratkvæðagreiðslu um kvótakerfið eins og Samfylkingin boðar var Ásgrími ekki að skapi enda vandséð um hvað ætti að greiða atkvæði sagði hann.

Árni Rúnar sagði þennan lið vera á dagskrá að hans frumkvæði, svo því væri haldið til haga. Þakkaði hann Hjalta fyrir hans yfirferð um málið. Árni lagði áherslu á mikilvægi greinarinnar fyrir okkar byggðarlag. Sagði hann bæjarfulltrúa og bæjarstjórn hafa miklar skyldur til að fylgjast vel með þeim breytingum og hættum sem kunna að steðja að atvinnugreininni. Þá ræddi hann fyrirspurn sína í bæjarráði um afskriftir Skinneyjar – Þinganess. Hann þakkaði starfsmönnum fyrir þeirra vinnu við að afla svara við fyrirspurninni sem og þeim sem veittu svörin. Árni lagði áherslu á að fara þurfi varlega í allar breytingar á greininni.

Björn Ingi sagði afar mikilvægt að allar ákvarðanir um sjávarútveg, ferðaþjónustu og landbúnað kollvarpi ekki þessum greinum svo mikilvægar sem þær eru.

Hjalti benti á upplýsingar í skýrslu sáttanefndar um að 40 – 50 % sjávarútvegsfyrirtækja gætu staðið af sér breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu sem kollvörpuðu rekstrargrundvelli fyrirtækjanna.

Reynir þakkaði umræðuna um sjávarútvegsmál. Hann ræddi skuldastöðu sjávarútvegsfyrirtækjanna. Þá benti hann á fyrri umræður um þennan málaflokk í bæjarráði og bæjarstjórn þar sem m.a. var varað við fyrningaleiðinni. Hann sagðist telja rétt að bæjarstjórn ítreki fyrri ályktanir með eftirfarandi bókun sem hann bar upp:

Atvinnulíf Íslendinga gengur í gegnum mikla erfiðleika nú um stundir. Rekstrarumhverfi fyrirtækja í landinu er háð mikilli óvissu og þar er sjávarútvegurinn sannarlega engin undantekning.

 Á Hornafirði er sjávarútvegur grundvöllur byggðar og styrkur útgerðarinnar felst í fjölbreytileika veiða og vinnslu. Óhætt er að fullyrða að á Höfn eru bein störf í sjávarútvegi fleiri en 250 í plássi sem telur ríflega 1600 íbúa.  Auk þess eru fjölmörg afleidd störf tengd sjávarútveginum, s.s. í flutningastarfsemi, iðnaði og þjónustu.  Öllum má því vera ljóst að ef hriktir í stoðum sjávarútvegarins, þá hefur það róttæk áhrif á alla samfélagsgerð á Höfn

 Sjávarútvegur og útflutningur á fiski hefur lengi verið undirstöðuatvinnugrein Íslendinga og þjóðin byggt afkomu sína á gjaldeyristekjum vegna viðskipta með sjávarafurðir. Mörg byggðalög á landsbyggðinni byggja afkomu sína á sjávarútvegi í dag. Vegna mikilvægis sjávarútvegs fyrir einstakar byggðir og þjóðarbúið í heild sinni er mikilvægt að unnið verði að varanlegri sátt um fiskveiðistjórnunarkerfið. Ekki er ásættanlegt að þessi grundvallaratvinnugrein þjóðarinnar sé í uppnámi fyrir hverjar kosningar. Að slíkri sátt verða allir hagsmunaðilar að koma með stjórnvöldum. 

Breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfi á Íslandi hljóta að byggjast á því að skapa festu í sjávarbyggðum þannig að þau fjölmörgu störf sem sjávarútvegurinn veitir séu sem best tryggð til langframa.

Árni sagðist munu styðja þessa bókun. Hann þakkaði ágæta umræðu, að mestu leyti eins og hann sagði. Hann sagði menn eiga að varast það að þó ekki séu sammála að öllu leyti séu þeir um leið andstæðingar á umræddu máli. Þá sagðist hann ekki standa einn á berangri með sínar skoðanir í sjávarútvegsmálum. Árni sagði að það þurfi að vera alveg ljóst að eignarhald þjóðarinnar á þessari auðlind sem öðrum þurfi að vera tryggt.

Hjalti sagði þjóðina alla vera í erfiðu árferði, orðið hafi forsendubrestur í lánamálum fyrirtækja og almennings. Bankarnir hafi sett upp almennar leikreglur þar að lútandi en deilt um hvort nóg hafi verið að gert. Hann sagði fleiri fyrirtæki en þau sem eru í sjávarútvegi þurfi að fá endurskipulagningu á sínum lánum.

Ásgrímur sagði að hann hafi ekki verið að segja að Árni vilji leggja landbúnað eða annað í rúst. Hann sagði flokkshollustuna, í þessu tilfelli við Samfylkinguna, vera það sem hann hafi lagt áherslu á sínu máli.

Árni þakkaði Ásgrími fyrir það að vera ekki vondur maður að hans mati. Hann sagði bæði greinar sínar og ræður bera þess vitni að hann sýndi ekki af sér flokkshollustu í þessu máli. Sagðist þó vera sanntrúaður jafnaðarmaður. Árni benti einnig á framsalið sem geti verið mörgum byggðarlögum hættulegt eins og dæmin sanni.

Forseti bar ofangreinda tillögu að bókun sjávarútvegsmál upp til atkvæða og var hún samþykkt samhljóða.

 

3.      Forsendur fjárhagsáætlunar 2011 (upptaka)

Bæjarstjóri gerði grein fyrir undirbúningi að fjárhagsáætlun 2011 og fór yfir minnisblað dags. 29. október 2011. Hann benti á að fjárlög (ríkisins) ársins væru óhagstæð fyrir ýmsar stofnanir, þó einkum HSSA. Þá sagði hann Jöfnunarsjóð sveitarfélaga hafa rýrnað stórkostlega á undanförnum árum og minnki enn. Miðað við svartsýnustu spár yrði rekstrarafgangur sveitarsjóðs mjög lítill árið 2011. Til langs tíma litið þurfi sveitarfélagið að skila 100 milljónum í rekstrarafgang.

Björn Ingi ræddi álagningu sorpgjalda og hugmynda að hækkun á þeim. Vildi sjá það rökstutt. Þá sagði hann fasteignaskattinn ekki vera fullnýttan. Vildi frekar nýta þann skatt betur en að fara í miklar gjaldskrárhækkanir. Hann sagði okkur vera að missa tekjur og því þurfum við að horfa á reksturinn. Við eigum að ná 10% framlagi út úr rekstrinum, sagði Björn Ingi. Þá sagðist hann hafa saknað þess að ekki voru fleiri bæjarfulltrúar á vinnufundi bæjarstjórnar sl. laugardag.

Reynir sagði sorpgjöld eiga að standa undir kostnaði. Þá sagði hann að það mætti velta fyrir sér hvers vegna fasteignaskatturinn væri ekki fullnýttur. Reynir sagðist ekki vilja fara í “drastískar” breytingar á innheimtu gjalda.

Hjalti sagði 10% framlegð eigi að vera markmið og um leið að skuldir hækki ekki. Forsendur fjárhagsáætlunar verði áfram til umræðu og frekari vinnu.

Björn Ingi ræddi gjaldskrárhækkanir og hvernig þær legðust á barnafjölskyldur. Hækkun fasteignaskatts dreifðist á fleiri.

Árni ræddi drög að forsendum fjárhagsáætlunar og lækkandi skatttekjur sveitarfélagsins. Sagði nauðsynlegt að velta við hverri krónu og fara í gegnum reksturinn. Þá ræddi hann hugmyndir um að sveitarfélagið leggi HSSA til fjármagn  þó tímabundið sé. Sagði hann að slíkar ákvarðanir þurfi að ígrunda vandlega áður en teknar verða.

Reynir tók undir orð Árna um að ekki liggi endanlega fyrir hver niðurskurður til HSSA verði. Þó sé nokkuð víst að það verði ekki jafn harkalegt og upphaflega var boðað. Reynir sagði það markmið að rekstur sveitarfélagsins skili sem mestum afgangi.

Björn Ingi sagði 90 milljónir hverfa í burtu en hvar ætla menn að fá peningana spurði hann.

Árni sagði það rétt vera hjá Birni Inga að með minnkandi tekjum þurfi að velta fyrir sér öllum hugsanlegum leiðum til að bæta stöðu sveitarsjóðs.

Reynir sagði vera tvær leiðir, niðurskurð eða að ganga á peningalegar eignir ef ekki eigi að hækka gjaldskrár eða skatta. Þó væri ekki lagt til að skerða þjónustu.

Björn Ingi sagði ekki eigi að nota sjóðina í rekstur heldur í framkvæmdir.

Reynir sagði að við verðum að hafa í huga það umhverfi sem við búum við í dag.

 

4.      Endurskoðun á aðalskipulagi

Ásgrímur Ingólfsson gerði grein fyrir vinnuferli við endurskoðun aðalskipulags. Sagði m.a. að hugmyndir væru uppi íbúafund um aðalskipulag á fyrri hluta næsta árs. Hann verði í samvinnu við Háskólasetrið.

Árni þakkaði að þessi mál væru komin til umræðu í bæjarstjórn.

Hjalti ræddi vinnuferli við endurskoðun á aðalskipulagi og tímasetningar einstakra liða við vinnuna.

Árni sagði hann og bæjarstjóra skilja þetta með sama hætti, tímasetningar gætu breyst,

Vinnuferli um endurskoðun aðalskipulags borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.

 

5.      Breyting á deiliskipulagi miðbæjarsvæðis – reitur A (upptaka)

Bæjarstjóri fór yfir tillögu að breytingu á deiliskipulag á miðbæjarsvæði.

Með þessari breytingu er fellt úr gildi deiliskipulag á hluta af reit A á miðbæjarsvæði Hafnar í Hornafirði, sem samþykkt var af skipulagsstjóra ríkisins 05.10.1988.  Með breytingunni er núverandi ástand staðfest að hluta, og veittar heimildir til aukins byggingarmagns innan reitsins.  

Markmið með deiliskipulaginu er að móta ramma um byggð sem styrkir götumynd Hafnarbrautar og heildarbrag miðsvæðis á Höfn – og fyllir í hálfkláraðar götumyndir, og verður aðlaðandi umhverfi.  Skipulaginu er ætlað að stuðla að uppbyggingu atvinnu- og þjónustuhúsnæðis í miðbæ Hafnar.  Áhersla er lögð á nýbyggingar, og viðbyggingar og breytingar á eldri húsum lagi sig að staðháttum og byggðinni sem fyrir er.  Einnig að framkvæmdir geti farið fram í áföngum eftir þörfum lóðarhafa, og smám saman fyllt í þá heildarmynd sem skipulagið stefnir að.

Samþykkt samhljóða að vísa breytingu á deiliskipulagi  til síðari umræðu í bæjarstjórn.

 

6.      Kosningar – kjörstjórnir (upptaka)

Hjalti gerði grein fyrir tillögum að kjörstjórnum í sveitarfélaginu og hvers vegna þetta væri til ákvörðunar hér í dag.

 

Kjörstjórn í Lóni

Aðalmaður                                                           Varamaður

Magnús Jónasson                                                  Olga Friðjónsdóttir

Svafa Herdís Jónsdóttir                                         Guðfinna Benediktsdóttir

Sigurður Ólafsson                                                 Áslaug Eiríksdóttir

 

Kjörstjórn á Höfn

Aðalmaður                                                           Varamaður

Ástríður Sveinbjörnsdóttir                                    Zophonías Torfason

Þorbjörg Helgadóttir                                             Reynir Gunnarsson

Hrefna Lúðvíksdóttir                                            Anna María Ríkharðsdóttir

 

Kjörstjórn í Nesjum

Aðalmaður                                                          Varamaður

Halldór Tjörvi Einarsson                                     Ásmundur Gíslason

Þorleifur Hjaltason                                               Ásdís Marteinsdóttir

Kristín Einarsdóttir                                               Halldór Einarsson

 

Kjörstjórn á Mýrum

Aðalmaður                                                         Varamaður

Ari Hannesson                                                     Sigurður Guðjónsson

Ingunn Ingvarsdóttir                                            Helga Lucia Bergsdóttir

Elvar Sigurjónsson                                               Kristín Egilsdóttir

 

Kjörstjórn í Suðursveit

Aðalmaður                                                         Varamaður

Steinþór Torfason                                                Eiríkur Sigurðsson

Laufey Helgadóttir                                               Gunnhildur Ingimarsdóttir

Valgerður Leifsdóttir                                           Björn Sigfússon

 

Kjörstjórn í Öræfum

Aðalmaður                                                         Varamaður

Pálína Þorsteinsdóttir                                          Halldóra Oddsdóttir

Guðjón Ingimundarson                                       Hólmfríður Guðlaugsdóttir

Sigurgeir Jónsson                                                Unnur Bjarnadóttir


Yfir-kjörstjórn    

Jón Stefán Friðriksson, formaður                       Friðrik Jónas Friðriksson

Anna Halldórsdóttir, varaformaður                    Hermann Stefánsson

Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir                     Hjördís Skírnisdóttir

 

Tillagan borin upp til atkvæða og samþykkt samhljóða.

 

 

7.      Fyrirspurnir

Engar borist.

 

 

 

Fundi slitið kl. 19:00

 


Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica