Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 158

158. fundur

 

Fundur haldinn    í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 2. september 2010, kl. 16.00 í Nýheimum.

Mætt voru: Reynir Arnarson, Ásgerður K. Gylfadóttir, Arna Ósk Harðardóttir, Kristján S. Guðnason, Valdemar Einarsson, Guðrún Ása Jóhannsdóttir og Árni Rúnar Þorvaldsson.

Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs.


Fundur settur (video)


1.      Fundargerðir

·        Bæjarráð Hornafjarðar, 509. fundur, 16. ágúst  2010.


Árni Rúnar fjallaði um 10. lið, innsend erindi, ræddi hann um vinnu við endurskoðun gildandi laga- og reglugerðarákvæða um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.


Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.

·        Bæjarráð Hornafjarðar, 510. fundur, 23. ágúst  2010.


Árni Rúnar ræddi um fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundarnefndar.

Árni Rúnar lagði fram eftirfarandi bókun undir fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar:


Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar fagnar þeim viðsnúningi sem orðið hefur á afstöðu meirihluta skóla-, íþrótta – og tómstundanefndar varðandi stöðu félagsmiðstöðvar í stjórnskipan sveitarfélagsins. Viðsnúningurinn felur í sér að niðurstaðan samrýmist betur áliti starfshóps bæjarstjórnar, sem fjallaði um félagslíf nemenda á grunnskólaaldri á síðasta kjörtímabili.


Árni Rúnar fjallaði um  13. lið annars fundar umhverfis- og skipulagsnefndar, ræddi hann um endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

 

Ásgerður fjallaði um fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundarnefndar, ræddi hún um félagsmiðstöð og félagslíf nemenda á grunnskólaaldri.

 

Hjalti Þór fjallaði um fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundarnefndar, ræddi hann málefni félagsmiðstöðvar.  Hjalti fjallaði einnig um fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar, ræddi hann endurskoðun aðalskipulags.


Árni Rúnar fjallaði um annan lið bæjarráðs, ræddi hann könnun á kostnaði við kaup á skólavörum.

 

Hjalti Þór fjallaði um 3. lið fundargerðar bæjarráðs, ræddi hann um fyrirkomulag fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2011.

 

Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.

 

·        Bæjarráð Hornafjarðar, 511. fundur, 30. ágúst 2010.


Árni Rúnar Þorvaldsson lagði fram eftirfarandi tillögu undir fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar:

Bæjarstjórn tekur undir bókun atvinnu – og menningarmálanefndar um áherslur Sveitarfélagsins Hornafjarðar við gerð nýrra menningarsamninga á vettvangi landshlutasamtaka sveitarfélaga við mennta – og menningarmálaráðuneytið.

Ásgerður bar tillöguna upp til samþykktar og var hún samþykkt samhljóða.


Árni Rúnar fjallaði um fundargerð félagsmálaráðs, ræddi hann stefnu sveitarfélagsins í húsnæðismálum.  Árni fjallaði einnig um önnur mál, ræddi hann skipun fulltrúa í nefnd SASS í landshlutanum um sameiningarmál sveitarfélaga.

Árni Rúnar Þorvaldsson lagði fram eftirfarandi bókun undir liðnum önnur mál:


 Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar gerir ekki athugasemd við það að meirihluti Framsóknarmanna skipi fulltrúa meirihlutans í nefnd Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, sem ætlað er að leggja mat á sameiningarkosti sveitarfélaga í landshlutanum, í staðinn fyrir fulltrúa minnihlutans. Það er bæði eðlilegt og lýðræðislegt. En á grundvelli þess að hér er um að ræða ákvörðun, sem byggir á flokkspólitískum forsendum, kom það nokkuð á óvart að Framsóknarflokkurinn skyldi beita ópólitískum bæjarstjóra til þess að ná fram flokkspólitískum markmiðum Framsóknarflokksins í bæjarstjórn Hornafjarðar. Vegna þekkingar á störfum og starfsháttum Framsóknarmanna í bæjarstjórn Hornafjarðar frá síðasta kjörtímabili bindur bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar vonir við að þessi ákvörðun sé ekki til marks um verkfælni Framsóknarmanna á nýju kjörtímabili. 
 

 

Reynir Arnarson fjallaði um fundarsköp bæjarstjórnar og bæjarráðs, ræddi hann um önnur mál og fyrirkomulag þeirra almennt.  Reynir fjallaði einnig um bókun Samfylkingarinnar um skipan fulltrúa í nefnd SASS um sameiningarmál sveitarfélaga.

Valdemar Einarsson fjallaði um húsnæðismál í sveitarfélaginu.  Valdemar fjallaði einnig um reglur um notkun á Pakkhúsinu, ræddi hann um stefnu sveitarfélagsins í húsnæðismálum undanfarin ár.

Hjalti Þór fjallaði um húsnæðismál í sveitarfélaginu, ræddi hann um sölu íbúða sveitarfélagsins  undanfarin misseri.  Hjalti fjallaði einnig um skipan í nefnd SASS um sameiningarmál sveitarfélaga, ræddi hann um fyrirkomulag skipunarinnar í nefndina.  Hjalti fjallaði einnig um flutning heilsugæslu yfir til sveitarfélaga.

Reynir Arnarson fjallaði um húsnæðismál í sveitarfélaginu, ræddi hann um stefnu sveitarfélagsins í húsnæðismálum undanfarin ár.

Árni Rúnar fjallaði um húsnæðismál, fagnaði hann umræðunni um þau mál.  Árni ræddi einnig um skipan í nefnd SASS um sameiningarmál sveitarfélaga.   Árni fjallaði um fundarsköp, ræddi hann um liðinn önnur mál.

Hjalti Þór fjallaði um fundarsköp, ræddi hann um liðinn önnur mál.

Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Bæjarstjórn Hornafjarðar 157. fundur, 12. ágúst 2010, áður samþykkt. 

 

2.           Erindisbréf nefnda


Hjalti Þór fylgdi málinu úr hlaði.  Gerði hann grein fyrir breytingum og sameininga nefnda.

Erindisbréf skóla-, íþrótta og tómstundanefndar borin upp til atkvæða.

Samþykkt samhljóða

 

Erindisbréf stjórnar HSSA borin upp til atkvæða

Samþykkt samhljóða

 

Erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar borin upp til atkvæða.

Samþykkt samhljóða

 

Erindisbréf atvinnu- og menningarmálanefndar borin upp til atkvæða.

Samþykkt samhljóða

 

Erindisbréf félagsmálaráðs borin upp til atkvæða.

Samþykkt samhljóða

 

3.      Fyrirspurnir

 

Árni Rúnar gerði grein fyrir fyrirspurn sinni.

 

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar um endurskoðun á skipulagi leikskólamála, fjöldi nemenda sem hefja nám við Grunnskóla Hornafjarðar, skipting þeirra á milli leikskóla, aldursdreifing á leikskólum sveitarfélagsins, fjöldi starfa við grunn – og leikskóla, þróun í fjölda stjórnunarstaða við sömu skóla o.fl.

 

Í verkefnalista þeim sem lagður var fram á 1. fundi skóla -, íþrótta – og tómstundanefndar þann 23.júní sl. kemur m.a. fram:

Í leikskólamálum verður farið í vinnu í samráði við starfsfólk og foreldra að greina

rekstrarumhverfi skólanna, viðhorf foreldra og starfsfólks til skipulagsins og

ákvarðanir teknar á grundvelli þeirrar skoðunar.

Liggur fyrir ákvörðun hjá meirihluta bæjarstjórnar um hvenær farið verður af stað með þessa vinnu í leikskólamálum, sem talað er um í fundargerð skólanefndar, hvernig að henni verður staðið og hvenær niðurstöður hennar eigi að liggja fyrir svo hægt verði að taka þær ákvarðanir sem skólanefnd telur nauðsynlegar?

Í ljósi þeirrar vinnu sem framundan er hjá bæjarstjórn í þessum málaflokki leggur undirritaður því fram eftirfarandi fyrirspurnir um starfsemi um leik – og grunnskóla í í sveitarfélaginu?

1. Hve margir nemendur hefja nám í 1. bekk Grunnskóla Hornafjarðar í haust og í hve mörgum bekkjardeildum?

2. Hve margir þeirra nemenda, sem nú hefja grunnskólagöngu sína í Grunnskóla Hornafjarðar, voru á leikskóla og hve margir voru utan leikskóla á síðasta skólaári?

3. Hvernig skiptust þeir nemendur, sem voru á leikskóla á síðasta skólaári og eru að hefja grunnskólagöngu á þessu skólaári, á milli þeirra tveggja leikskóla sem starfræktir eru í sveitarfélaginu?

4. Hver er heildarfjöldi leikskólanemenda í sveitarfélaginu í upphafi skólaársins 2010 - 2011?

5. Hversu margir nemendur eru á hvorum leikskóla og hvernig er aldursdreifingu á þeim háttað, þ.e. hver er fjöldi nemenda í hverjum árgangi á hvorum leikskóla?

6. Hversu margir nýir nemendur voru teknir inn í leikskólana fyrir þetta skólaár og hvernig skiptast þeir á milli leikskólanna?

7. Hver hefur þróunin í nemendafjölda verið sl. tíu ár á grunn – og leikskólastigi í

sveitarfélaginu?

8. Hver hefur þróunin í fjölda starfsmanna við þessar sömu stofnanir verið á sl. tíu árum?

9. Hefur stjórnunarstöðum, innan grunnskólans annars vegar og leikskólanna hins vegar, fjölgað eða fækkað á áðurnefndu tíu ára tímabili?

10. Liggja fyrir spár um nemendafjölda grunn – og leikskólanemenda á Hornfirði til næstu ára?

 

 

Svör:

 

Ásgerður Gylfadóttir tók til máls

 

Liggur fyrir ákvörðun hjá meirihluta bæjarstjórnar um hvenær farið verður af stað með þessa vinnu í leikskólamálum, sem talað er um í fundargerð skólanefndar, hvernig að henni verður staðið og hvenær niðurstöður hennar eigi að liggja fyrir svo hægt verði að taka -+þær ákvarðanir sem skólanefnd telur nauðsynlegar?

 

Engin ákvörðun liggur fyrir um hvenær hafist verður  handa með umrædda vinnu.

 

Í ljósi þeirrar vinnu sem framundan er hjá bæjarstjórn í þessum málaflokki leggur undirritaður því fram eftirfarandi fyrirspurnir um starfsemi um leik – og grunnskóla í í sveitarfélaginu?

 

Hjalti Þór þakkaði fyrirspurnar og fór yfir svör við þeim.

 

1. Hve margir nemendur hefja nám í 1. bekk Grunnskóla Hornafjarðar í haust og í hve mörgum

bekkjardeildum?

20 nemendur í einni bekkjardeild

 

2. Hve margir þeirra nemenda, sem nú hefja grunnskólagöngu sína í Grunnskóla Hornafjarðar,

voru á leikskóla og hve margir voru utan leikskóla á síðasta skólaári?

Allir nemendur 1. bekkjar voru í leikskóla.

 

3. Hvernig skiptust þeir nemendur, sem voru á leikskóla á síðasta skólaári og eru að hefja

grunnskólagöngu á þessu skólaári, á milli þeirra tveggja leikskóla sem starfræktir eru í

sveitarfélaginu?

15 nemendanna voru á Lönguhólum og 5 í Krakkakoti. Eitt barn til viðbótar var í þessum árgangi í Krakkakoti en er nú flutt af staðnum.

 

4. Hver er heildarfjöldi leikskólanemenda í sveitarfélaginu í upphafi skólaársins 2010 - 2011?

104 börn, m.v. september.

 

5. Hversu margir nemendur eru á hvorum leikskóla og hvernig er aldursdreifingu á þeim

háttað, þ.e. hver er fjöldi nemenda í hverjum árgangi á hvorum leikskóla?

 

                        Árg. 2005       Árg. 2006       Árg. 2007       Árg. 2008       Árg. 2009       Samt.

Krakkakot                  9                      20                    12                    6                      0          47

Lönguhólar                 10                    17                    11                    12                    7          57

 

Einn framangreindra nemenda í Krakkakoti og tveir á Lönguhólum koma inn í september.

 

6. Hversu margir nýir nemendur voru teknir inn í leikskólana fyrir þetta skólaár og hvernig

skiptast þeir á milli leikskólanna?

16 nýir nemendur eru á Lönguhólum og 3 í Krakkakoti.

 

7. Hver hefur þróunin í nemendafjölda verið sl. tíu ár á grunn – og leikskólastigi í

sveitarfélaginu?

Fjöldi nemenda í grunnskólum
2001 - 2002 423  
2002 - 2003 425  
2003 - 2004 434  
2004 - 2005 405  
2005 - 2006 388  
2006 - 2007 385  
2007 - 2008 340  
2008 - 2009 334  
2009 - 2010 319  
2010 - 2011 307  
           
                     
Fjöldi leikskólanemenda í Krakkakoti, Lönguhólum og Óla priki
2001 - 2002 157    
2002 - 2003 146    
2003 - 2004 128    
2004 - 2005 126    
2005 - 2006 124    
2006 - 2007 105    
2007 - 2008 108    
2008 - 2009 101    
2009 - 2010 99    
2010 - 2011 104    
                   
                     

 

Í fyrirspurn bæjarfulltrúa kom ekki fram ósk um fjölda kennslustunda í grunnskólum né vistunartíma á leikskólum en þær upplýsingar eru birtar hér en starfsmenn hafa hvoru tveggja til viðmiðunar þegar rýnt er í rekstur skólanna.

 

Fjöldi kennslustunda í grunnskólum
2002 - 2003 1125    
2003 - 2004 1126    
2004 - 2005 1137    
2005 - 2006 1112    
2006 - 2007 1059    
2007 - 2008 972    
2008 - 2009 970    
2009 - 2010 970    
2010 - 2011 933    
                   
                     
Hlutfall dvalartíma eftir fjölda klst. í leikskóla
  2003 2007 2010
4 klst. 51,3 41,5 19,6
5 klst. 6,6 6,3 3,75
6 klst. 11,8 10,8 18,7
7 klst. 3,3 5,4 9,35
8 klst. 14,5 25,2 38,3
9 klst. 12,5 10,8 10,3
  100 100 100
                   

 

Þá er rétt að geta þess að síðari hluta þessa tíma fóru börn frá eins árs aldri að koma í leikskóla. Yngri börn kalla á tvöfalt fleiri starfsmenn en þau elstu.                                                                          

 

8. Hver hefur þróunin í fjölda starfsmanna við þessar sömu stofnanir verið á sl. tíu árum?

 

Stöðugildi í grunnskólum 2003 - 2010   Stöðugildi í leikskólum 2003 - 2010
  2003 58,4     2003 29,3
  2004 62,5     2004 26,4
  2005 63,5     2005 23,5
  2006 61,0     2006 23,8
  2007 58,4     2007 21,8
  2008 61,3     2008 24,4
  2009 59,8     2009 25,6
  2010 59,9     2010 25,0
             

 

 

 

9. Hefur stjórnunarstöðum, innan grunnskólans annars vegar og leikskólanna hins vegar,

fjölgað eða fækkað á áðurnefndu tíu ára tímabili?

 

Skólastjórar og aðstoðarskólastjórar við grunnskóla sveitarfélagsins:

Árið 2001                               Árið 2006                               Árið 2010

Grunnskólinn í Hofgarði (1)  Grunnskólinn í Hofgarði (1)   Grunnskólinn í Hofgarði(1)

Hrollaugsstaðaskóli (1)          Hrollaugsstaðaskóli (1)      Grunnskóli Hornafjarðar (2)

Mýraskóli (1)                         Nesjaskóli (2)                   Samtals 3

Nesjaskóli (2)                        Hafnarskóli (2)

Hafnarskóli (2)                       Heppuskóli (2)           

Heppuskóli (2)                       Samtals 8

Samtals 9

 

Skólastjórar og aðstoðarskólastjórar við leikskóla sveitarfélagsins:

Árið 2004                               Árið 2010

Óli prik (1)                             Krakkakot (2)

Krakkakot (2)                        Lönguhólar (2)

Lönguhólar  (2)                      Samtals 4

Samtals 5

           

10 – 15% af starfstíma aðstoðarleikskólastjóra fer í stjórnun.

 

10. Liggja fyrir spár um nemendafjölda grunn – og leikskólanemenda á Hornfirði til næstu ára?

 

Nemendaspá fyrir Grunnskóla Hornafjarðar, gert í ágúst 2010    
Byggt á upplýsingum úr þjóðskrá og nemendaskýrslum skólanna.    
               
  2010 - 2011 2011 - 2012 2012 - 2013 2013 - 2014 2014 - 2015 2015 - 2016
1. bekkur 20 19 37 23 18 18
2. bekkur 22 20 19 37 23 18
3. bekkur 29 22 20 19 37 23
4. bekkur 24 29 22 20 19 37
5. bekkur 35 24 29 22 20 19
6. bekkur. 31 35 24 29 22 20
7. bekkur 29 31 35 24 29 22
8. bekkur 36 31 34 38 24 29
9. bekkur 26 36 31 34 38 24
10. bekkur 43 26 36 31 34 38
             
Samtals 295 273 287 277 264 248
               
Hér er gert ráð fyrir að nemendur úr Öræfum hefji nám í G.H. í 8. bekk.    

 


 

Nemendaspá fyrir leikskóla, gert í ágúst 2010    
Árgangar 2005 - 2009            
Samkv. þjóðskrá 2010            
Árgangur 2005 2006 2007 2008 2009 Samtals
Fjöldi alls 17 37 21 17 18 110
Þar af á svæði GH 17 37 21 17 18  
Þar af Öræfi 0 0 0 0 0 0
             
Fjöldi nemenda í leikskólum í september 2010        
  Árgangur Árgangur Árgangur Árgangur Árgangur Samtals
  2005 2006 2007 2008 2009  
Krakkakot 9 20 12 6 0 47
             
Lönguhólar 10 17 11 12 7 57
             
Samtals í leikskólum á Höfn 19 37 23 18 7 104

 

Vakin skal athygli á því að tölum úr þjóðskrá og fjölda barna í leikskólum ber ekki alveg saman. Stafar af því að þjóðskráin er sjaldan uppfærð.

 

Árni Rúnar þakkaði fyrir góð og ítarleg svör.

 

 

Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl.

 


Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica