Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 151

Fundur haldinn      í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 4. febrúar 2010 kl. 16:00 í Nýheimum.

Mætt voru:    Reynir Arnarson, forseti bæjarstjórnar, Árni Rúnar Þorvaldsson, Gunnar Sigurjónsson, Elín Magnúsdóttir, Guðrún Ingimundardóttir,  Björk Pálsdóttir og Björn Ingi Jónsson.  Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta Halldóra Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.

Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.

1.      Fundargerðir

·        Bæjarráð Hornafjarðar 487. fundur , 22. desember 2009.

Guðrún Ingimundardóttir tekur undir með Umhverfisnefnd varðandi utanvegaakstur.  Björk Pálsdóttir óskar eftir upplýsingar um stöðu í atvinnumálum hvort sveitarfélagið styrkti námskeið og verkefni  fyrir atvinnulausa  einnig ræddi hún um utanvegaakstur.  Hjalti Þór upplýsti að það væru 30 manns á atvinnuleysisskrá, sama og var á sama tíma og í fyrra.  Upplýsti að 10 einstaklingar hafi fengið vinnu eftir að vinnsla á loðnu hafi hafist.  Einnig sagði hann að á þessum fundi atvinnumálanefnda hafi farið vinna í að greina þá sem væru atvinnulausir og hvaða lausnir henta, hann tók undir varðandi utanvegaakstur.  Björn I. Jónsson ræddi um leikvöll á Holti á Mýrum og spurði hann hvort þetta mál væri komið í eitthvað ferli.  Hjalti tók undir orð Björns Inga að mikilvægt væri að bregðast óskum íbúa.

Fundargerð samþykkt.

·        Bæjarráð Hornafjarðar 488. fundur , 11. janúar 2010.

Björk Pálsdóttir tók til máls um málefni Háskólasetursins á Hornafirði og spurði um stöðu þess, taldi hún mikilvægt að sveitarfélagið hefði frumkvæði til eflingar setursins og viðræðum við ríkið um framtíð þess.  Hjalti Þór upplýsti um stöð setursins og þær viðræður sem hafa átt sér stað við hið opinbera um málið.   Einnig ræddi hann um aðkomu sveitarfélagsins af því.  Björn Ingi ræddi um aðhaldsaðgerðir Vegagerðarinnar og hvar verið sé að framkvæma á vegum hennar, sagði hann að engar framkvæmdir væru frá Hvolsvelli að Djúpavogi. 

Fundargerð samþykkt.

·        Bæjarráð Hornafjarðar 489. fundur, 19. janúar 2010.

Björk Pálsdóttir ræddi um tilboð í reiðskemmu og taldi mikilvægt að vinna rétt að kostnaðaráætlun.  Hjalti Þór ræddi um kostnaðaráætlanir og  gagnabanka sem notaðir eru til viðmiðunar..

Fundargerð samþykkt.

·        Bæjarráð Hornafjarðar 490. fundur , 23. janúar 2010.

Fundargerð samþykkt.

·        Bæjarráð Hornafjarðar 491. fundur, 1. febrúar 2010.

Björk Pálsdóttir spurðist fyrir um lóðarumsókn Skeljungs um lóð nr. 38 við Hafnarbraut.  Hjalti Þór  sagði að deiliskipulag um svæði væri í endurskoðun.   Björn Ingi  ræddi um sumarlokun leikskóla.  Hjalti ræddi um þá könnun sem gerð var í fyrra um lokun leikskóla.  Þar hafi komið fram að meirihluti foreldra sé almennt sátt um núverandi fyrirkomulag..

Fundargerð samþykkt.

·        Bæjarstjórn Hornafjarðar 150. fundur, 10. desember 2009 áður samþykkt.

2.      Þriggja ára áætlun 2011-2013 – seinni umræða

Bæjarstjóri fylgdi áætluninni úr hlaði og sagði m.a. að við gerð þriggja ára áætlunar var lagt upp með að byggja á raunhæfri tekjuáætlun og að skuldir myndu ekki aukast á tímabilinu.  Tekjur og gjöld 3ja ára áætlunar taka mið af áætlun ársins 2010.  Áætlun gerir ráð fyrir að allar kennitölur í rekstri beri með sér góðan rekstur, sterkan efnahag og gott sjóðstreymi.  Undantekning á sterkum efnahag er í kaupleigukerfinu þar sem skuldir eru háar miðað við eignir.  Samkvæmt 3ja ára áætlun verður framkvæmt fyrir 554 m.kr. í A-B hluta, afborgarnir af lánum verður 379,9 m.kr. og ný langtímalán tekin upp á 320 m.kr.  Langtímalán lækka því um 57,9 m.kr. 

Helstu niðurstöður í áætluninni eru eftirfarandi:

A - hluti                                               2011                 2012                 2013                 Alls

Rekstrarniðurstaða                   16,8                  16,1                  12,5

Eignfjárhlutfall                          62%                 60%                 58%

Handbært fé frá rekstri             96,6                  98,6                  96,8

Framkvæmdir                           156                  163,8                170,8                490,6

Afborganir lána                        109,3                108                  123,8                341,1

Nýjar lántökur                          150                  170                  320

Handbært fé í árslok                 59,7                  27,6                  9,4

 

B - hluti                                               2011                 2012                 2013                 Alls

Rekstrarniðurstaða                   40,3                  38,3                  37,5     

Eignfjárhlutfall                          21%                 24%                 27%

Handbært fé frá rekstri             85                    84,2                  83,6

Framkvæmdir                           14,5                  34,5                  14,5                  63,5

Afborganir lána                        18,1                  19,1                  19,7                  56,9

Nýjar lántökur                          0                      0                      0                      0

Handbært fé í árslok                 39,8                  79,3                  119,2   

 

A – B hluti                               2011                 2012                 2013                 Alls

Rekstrarniðurstaða                   57,1                  54,5                  50       

Eignfjárhlutfall                          56 %                56%                 55%

Handbært fé frá rekstri             181,6                182,9                180,4

Framkvæmdir                           170,5                198,3                185,3                554,1

Afborganir lána                        127,3                127,1                143,5                397,9

Nýjar lántökur                          150                  170                  320

Handbært fé í árslok                 99,5                  106,9                128,5

 

Björn Ingi telur eðlilegt að framkvæmdaáætlun næstu þriggja ára lægi fyrir.  Hjalti Þór taldi upp nokkur atriði sem hefur verið kastað fram í umræðunni en það bíði kosninga og eftirmála þeirra að móta stefnu um framkvæmdir næstu ára. 

Forseti bar áætlun upp til atkvæða.

Samþykkt með fimm atkvæðum, tveir sitja hjá.

3.      Aðalskipulag – Lambleiksstaðir

Bæjarstjóri fylgdi tillögunni úr hlaði:

Breytingin tekur til landnotkunar við Lambleiksstaði á Mýrum: Norð- vestur af Lambleiksstaðabænum er sýnt svæði fyrir verslun og þjónustu með hringtákni.  Uppbygging vegna ferðamannaþjónustu skal heimil á svæði norðan og vestan bæjarins að Lambleiksstöðum.  Þetta tekur til gistirýmis í stakstæðum smáhýsum, tjaldstæða, og gistiheimilis.  Á sveitarfélagsuppdrætti aðalskipulagsins er merkt svæði fyrir verslun og þjónustu með hringtákni.  Svæðið er utan í klettaholti – því sama og bærinn stendur sunnan undir. Fyrirhuguð mannvirki vegna ferðaþjónustu – smáhýsi, tjaldstæði og gistiheimili – verða að verulegu leyti í skjóli af klettaholtinu þegar horft er frá þjóðveginum, og lítil truflun verður á áhrifamiklu útsýni til fjalllendis og jökla. Að sama skapi munu gestir sem nýta sér þjónustu þar njóta útsýnisins að fullu.  Breytingin á aðalskipulaginu nær til allt að 5 ha svæðis. Gerð verður grein fyrir fyrirhugaðri uppbyggingu í deiliskipulagi.  Með staðsetningunni er leitast við að virða byggðamynstur á Mýrum. Þar eru bæjarhús jafnan reist á hólum eða utan í þeim, og staðsett í landslaginu með markvissum hætti.  Æskilegt er að byggðin meðfram þjóðveginum á Mýrum þróist í anda þessarar hefðar, og birtist áfram með formföstum hætti sem spillir ekki áhrifamikilli upplifun af landslaginu.  Stuðlað skal að þessu í útfærslu deiliskipulags á heimild aðalskipulagsins. Heimreið frá þjóðvegi að Lambleiksstöðum verður notuð sem aðkoma að mannvirkjum vegna ferðamannaþjónustunnar.  Svæðið mun tengjast vatnsveitu á Mýrum og eigin fráveitu.  Svæðið mun tengjast núverandi rafveitu – og fjarskiptastofnlögnum á Mýrum.  Sveitarfélagið Hornafjörður er fjölsótt af ferðamönnum og mikilvægt að halda áfram uppbyggingu í þágu atvinnustarfssemi sem tengist þeim.  Undanfarin ár hefur eftirspurn eftir gistirými verið langt umfram framboð yfir mesta ferðamannatímann. Uppbygging að Lambleiksstöðum er liður í að bregðast við því með auknu framboði á gistirými svæðisins.  Fjölgun gistinátta ferðamanna hefur einnig jákvæð áhrif aðra atvinnustarfsemi og þjónustu – m.a. í næsta nágrenni

Samþykkt samhljóða.

4.      Kosningar

Gunnar Sigurjónsson verður formaður skólanefndar

Gísli Már Vilhjálmsson kosinn aðalmaður í stað Elínar Magnúsdóttur

Gunnar Ingi Valgeirsson kosin varamaður í skólanefnd í stað Gísla Más Vilhjálmssonar

5.      Fyrirspurnir

Engar.  

 

Fundi slitið kl. 17.10


Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica