Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 147

147. fundur

Fundur haldinn    í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 8. október 2009 kl. 16:00 í Hofgarði.

Mætt voru:    Árni Rúnar Þorvaldsson, varaforseti bæjarstjórnar, Sigurlaug Gissurardóttir, Elín Magnúsdóttir, Guðrún Ingimundardóttir,  Björk Pálsdóttir og Björn Ingi Jónsson.  Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.

Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Bar hann undir fundinn að 3. liður í útsendri dagskrá, málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings, verði felldur út. Var það samþykkt samhljóða.         

1.        Fundargerðir

·         Bæjarráð Hornafjarðar, 474. fundur, 7. september 2009.

 Björk gerði að umtalsefni endurskoðun á samþykktum sveitarfélagsins og spurði hvort ástæða væri til að gera það svo skömmu fyrir kosningar. Einnig ræddi hún hugmyndir um gervigrasvöll og velti fyrir sér hvort það væri nauðsynleg framkvæmd núna. Minnti jafnframt á hugmyndir sjálfstæðismanna um að hafa gervigras á aðalleikvanginum. Betur hefði verið hlustað á það á sínum tíma. Þá sagði hún þessa framkvæmd ekki vera mannaflsfreka og því ekki góða fyrir hagkerfi okkar við núverandi aðstæður.

Hjalti taldi við hæfi að bæjarstjórn sem er að fara frá vinni að endurskoðun á samþykktum sveitarfélagsins. Það verði svo nýrrar bæjarstjórnar að ákveða hvort eftir þeim tillögum verði unnið. Minnti á að þetta mál þurfi tvær umræður í bæjarstjórn og síðari umræðan fari fram eftir að ný bæjarstjórn hafi tekið við. Þá ræddi hann forgangsröðun framkvæmda og einnig hvernig gras eigi að vera á aðalleikvangi og sagði að hann teldi gras vera betra en gervigras, þannig nýttist völlurinn betur. Hjalti sagði að með nýjum gervigrasvelli létti á íþróttahúsinu þar sem knattspyrnan færi nánast öll út. Þrátt fyrir að benda mætti á að framkvæmdin væri ekki mjög vinnuaflsfrek væri rétt að fara í þessa framkvæmd. Benti á að jarðvegsverktakar fengju þarna töluverða vinnu en iðnaðarmenn reyndar hlutfallslega minna við þetta verk..

Árni ræddi samþykktir sveitarfélagsins og fyrirhugaða endurskoðun á þeim. Þá tók hann undir orð Bjarkar um að bæði aðal- og varabæjarfulltrúar komi að þeirri vinnu. Árni fór yfir þá miklu gerjun sem á sér stað í íslenskum stjórnmálum og um leið endurmat. Gerði í því sambandi að umtalsefni hugmyndir um mikla fækkun sveitarfélaga í kjölfar sameininga. Sagði hann mikilvægt að við verðum vakandi í þeirri umræðu og fylgjumst vel með. Árni ræddi gervigrasvöll og ábendingu Bjarkar um að í þessa framkvæmd sé ekki rétt að fara á þessari stundu. Hann taldi nýjan gervigrasvöll hins vegar muni hleypa miklu lífi í alla íþróttaiðkun.

Hjalti sagði að gert væri ráð fyrir umtalsverðum framkvæmdum fyrir utan gervigrasvöll og benti á ýmsar framkvæmdir væru fyrirhugaðar. Einnig ræddi hann nýtingu aðalvallar og sagði að menn hefðu fyrst og fremst viljað nýta hann til keppni. Sagði hann marga hafa sagt þennan íþróttavöll vera með þeim betri sem fyrirfinnast á landinu.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar, 475. fundur,14. september 2009.

Fundargerð samþykkt.  

Bæjarráð Hornafjarðar, 476. fundur, 21. september 2009.

Hjalti sagðist vilja lýsa yfir ánægju með framkvæmdir við Álaugareyjarbryggju, vel hafi tekist til og verktakar eigi hrós skilið.

Fundargerð samþykkt.  

Bæjarráð Hornafjarðar, 477. fundur, 28. september 2009.

Björk ræddi endurskoðun fjárhagsáætlunar og ræddi þar á meðal launaáætlun. Óskaði hún skýringa á ýmsum liðum sem hækkað hafi eða farið fram úrupphaflegri áætlun.

Hjalti skýrði breytingar á launaáætlun og benti m.a. á að til starfa í leik- og grunnskólum hafi fjölgað starfsmönnum með full kennsluréttindi og þannig hækkað laun. Þá fór hann yfir framkvæmdir og hækkanir á þeim. Sagði m.a. að framkvæmdir við sundlaug hafi færst á milli ára. Þá sagði hann upphaflegar tölur frá verkfræðingum og hönnuðum við Grunnskóla Hornafjarðar hafi verið mun lægri en þær sem endanlega hafi komið  í ljós sem væri ekki óalgengt í endurbótum sem þessum. Það kæmi margt í ljós þegar hönnun væri lokið og einnig kæmi ýmislegt fram á framkvæmdatímanum sem ekki hafi verið fyrir séð.

Fundargerð samþykkt.  

Bæjarráð Hornafjarðar, 478. fundur,5. október 2009.

Fundargerð samþykkt.  

·         Bæjarstjórn Hornafjarðar 146. fundur 3. september 2009, fundargerð áður samþykkt.

2.        Endurskoðun fjárhagsáætlunar

Bæjarstjóri fór yfir endurskoðaða fjárhagsáætlun fyrir árið 2009 sem bæjarráð vísaði til afgreiðslu í bæjarstjórn.  Helstu breytingar á fjárhagsáætluninni eru:

·         Skatttekjur í A-B hluta hækka um 16,2 m.kr., fyrst og fremst vegna hækkunar á útsvari.  Heildarupphæð skatttekna er því um 1.059,5 m.kr. og tekjur samstæðunnar rúmlega 1.442 m.kr.

·         Útgjöldin til rekstrar aukast um 50 m.kr. og munar þar mest um hækkanir á launum um 25 m.kr., þ.m.t. hækkun tryggingargjalds og annar rekstrarkostnaður hækkar um 23,8 m.kr. 

·         Helstu liðir sem hækka eru skólaakstur um 4,5 m.kr., fyrirframgreiðsla á styrk til Golfklúbbs Hornafjarðar að upphæð 6,3 m.kr., jarðhitaleit í dreifbýli alls 7,3 m.kr. og niðurgreiddur matur í Grunnskóla Hornafjarðar hækkar um 2,2 m.kr.

·         Gert er ráð fyrir að uppfæra langtímalán um 6,5% á árinu en við fyrri endurskoðun var gert ráð fyrir 4,5% hækkun.  Stafar þetta af því að verðbólga hefur haldist hærri en áður var talið og gengi krónunnar veikst en ekki styrkst eins og spáð hafði verið.

·         Heildarupphæð gjalda samstæðunnar án fjármagnsliða er um 1.355 m.kr. en fjármagnsliðir eru um 87,8 m.kr.   

·         Rekstrarafgangur A-hluta verður samkvæmt endurskoðaðri áætlun jákvæður um 13,1 m.kr., hafnarsjóðs um 9,3 m.kr., Hornafjarðarveitna um 5 m.kr. en halli á rekstri kaupleiguíbúða er 27,7 m.kr. Rekstrarafgangur samanlagt fyrir A- og B hluta er því neikvæður um 293 þús.kr. sem er um 2,8 m.kr. verri  afkoma en fyrri áætlun gerði ráð fyrir.  

·         Fjárfestingar hækka um 40,3 m.kr. m.a. vegna þess að fjárveiting vegna byggingu sundlaugar færðist milli ára.    

·         Handbært fé í ársbyrjun er áætlað um 687,9 m.kr. sem er um 79,2  m.kr. hærra en fyrri áætlun gerði ráð fyrir og handbært fé í árslok er áætlað um 390,8 m.kr. sem er um 12,9 m.kr. hærra en fyrri áætlun gerði ráð fyrir.

Hjalti gerði grein fyrir að vinna við fjárhagsáætlun 2010 taki mið af gríðarlegum niðurskurði á vegum ríkisins og miklum tekjusamdrætti sem leiddi til rýrnunar jöfnunarsjóðs.  Taldi hann fjárhag sveitarfélagsins vel undirbúinn til að takast á við erfiða tíma og vísaði bæði til þess að rekstargjöld eru um 100 m.kr. lægri en rekstrartekjur, eiginfjárhlutfall afar sterkt og handbært fé frá rekstri gott.  Þá lagði hann til að endurskoðuð fjárhagsáætlun verði samþykkt.

Björn Ingi taldi að niðurskurður í okkar sveitarfélagi hafi verið lítill. Óttaðist hann að það gæti orðið brött brekka að fara ef við þurfum að fara í niðurskurð. Þetta liti vel út í dag en sagði að við þurfum að fara að horfa til þess að staðan geti versnað.

Árni sagði ánægjulegt hversu sterkt okkar sveitarfélag á þessum erfiðu tímum. Hann sagði ánægjulegt að útsvarstekjur væru meiri en áætlað var. Hann tók undir orð Björns Inga um að við þurfum að vera vel vakandi í rekstrinum og vera tilbúin að hagræða þar.

Árni lagði fram eftirfarandi bókun:

Bókun vegna fyrirhugaðs niðurskurðar í ríkisstofnunum

Stoðkerfi atvinnulífs, sýslumaður og önnur opinber starfsemi

·         Við breytingar sem fyrirhugaðar eru á opinberri starfsemi er mikilvægt að hafa í huga hversu langt er fyrir íbúa á Suðausturlandi að sækja þjónustu í önnur héruð.  Frá Höfn eru 300 km á Mið-Austurland og 400 km á Selfoss sem eru tveir næstu stóru þjónustukjarnar frá Höfn í Hornafirði.

·         Fyrir liggur að embættum sýslumanna og lögreglustjóra verði breytt, stoðkerfi atvinnulífs endurskipulagt og umræða um sameiningu sveitarfélaga er í deiglunni.

·         Í öllum þessum verkefnum má aldrei gleyma að tryggja verði að opinber þjónusta og starfsemi verði aðgengileg fyrir alla landsmenn.

·         Opinber þjónusta og starfsemi er grundvallaratriði í daglegu lífi fólks og niðurskurður sem blasir við má ekki bitna á íbúum einstakra byggðarlaga.  

Árni sagði mikilvægt að við höldum þessu til haga, við þurfum að halda vöku okkar og halda okkar sjónarmiðum á lofti.

Hjalti þakkaði Birni Inga fyrir hans ábendingar um óvissu þá sem við blasir. Hann minnti á að framlag Jöfnunarsjóðs hafi lækkað um 150 millj. Lagði áherslu á að lækkun á magni þjónustu geti blasað við til að ná fram lækkun á rekstrarútgjöldum. Þá minnti hann á að breytingar á Grunnskóla Hornafjarðar skili okkur verulegum fjárhæðum í lækkuðum rekstri. Þá sagði hann vera ákveðna vinnu í gangi hjá starfsmönnum við endurskoðun á rekstri. Hjalti sagði að árið 2011 munum við komast í góð mál með þau lán sem sveitarfélagið hefur tekið.

Bókun sem Árni bar fram borin undir atkvæði og var hún samþykkt samhljóða.

Endurskoðuð fjárhagsáætlun borin undir atkvæði og samþykkt með fjórum atkvæðum, tveir sátu hjá.  

 

3.        Fyrirspurnir  

Engar fyrirspurnir bárust.

 

 

Fundi slitið kl. 17:30


Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica