Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 144

144. fundur

Fundur haldinn    í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 11. júní 2009 kl. 16:00 í Mánagarði.

Mætt voru:           Reynir Arnarson, forseti bæjarstjórnar, Árni Rúnar Þorvaldsson, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðrún Ingimundardóttir,  Halldóra B. Jónsdóttir og Björn Ingi Jónsson.  Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir framkvstj. fjármálasviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvstj. tækni- og umhverfissviðs.

1.        Fundargerðir

·         Bæjarráð Hornafjarðar, 462. fundur, 8. maí  2009.

Hjalti  ræddi um bókun bæjarráðs varðandi sjávarútvegsmál, sagði hann að það hafi verið haft samband við sjávarútvegsráðuneytið varðandi þau mál.  Halldóra B.  ræddi einnig um sjávarútvegsmál og fyrningu aflaheimilda. Lagði hún fram eftirfarandi drög að samþykkt um sjávarútvegsmál.

Bæjarstjórn Hornafjarðar lýsir yfir miklum áhyggjum vegna þeirra óvissu kominn er upp í rekstri fyrirtækja í sjávarútvegi á Hornfirði. Nú þegar hefur ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að fara svokallaða fyrningarleið á úthlutuðum kvóta valdið fyrirtækjum skaða og sett rekstur þeirra í uppnám. Auk sjávarútvegsfyrirtækja hefur þetta mikil áhrif á nýsköpun og þau fyrirtæki sem hafa atvinnu af þjónustu við sjávarútveginn.

 

Því vill bæjarstjórn Hornafjarðar skora á ríkisvaldið að falla nú þegar frá ákvörðunum um fyrningu aflaheimilda. Sjávarútvegurinn er sú undirstöðuatvinnugrein sem aflar þjóðinni stóran hluta gjaldeyristekna og við núverandi ástand í þjóðfélaginu er það afar varhugavert að setja þessa atvinnugrein í algjört uppnám eins og nú stefnir í. 

 

Árni tók til máls, ræddi hann um fyrningaleiðina, sagðist hann vera samþykkur bókun sjálfstæðismanna með eftirfarandi viðbót:

Jafnframt er mikilvægt að komið sé í veg fyrir upplausnarástand í sjávarútvegi við hverjar alþingiskosningar. Því hvetur Bæjarstjórn Hornafjarðar til þess að hafin verði endurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu með það að markmiði að skapa sátt um kerfið til framtíðar til þess að efla stöðu byggðanna.

 

Halldóra sagði að það væri ekki tími til að bíða með niðurstöðu fram á næsta ár, ríkisstjórnin setti allt í nefndir.  Reynir tók til máls og sagðist tilbúinn að samþykkja fyrirliggjandi samþykkt ásamt viðbót Árna.  Hjalti  tók til máls.  

Hlé var gert á fundi.  Að loknu hléi bar forseti eftirfarandi bókun upp til samþykktar:

Bæjarstjórn Hornafjarðar lýsir yfir miklum áhyggjum vegna þeirra óvissu kominn er upp í rekstri fyrirtækja í sjávarútvegi á Hornfirði. Nú þegar hefur ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að fara svokallaða fyrningarleið á úthlutuðum kvóta valdið fyrirtækjum skaða og sett rekstur þeirra í uppnám. Auk sjávarútvegsfyrirtækja hefur þetta mikil áhrif á nýsköpun og þau fyrirtæki sem hafa atvinnu af þjónustu við sjávarútveginn.

 

Því vill bæjarstjórn Hornafjarðar skora á ríkisvaldið að falla nú þegar frá ákvörðunum um fyrningu aflaheimilda. Sjávarútvegurinn er sú undirstöðuatvinnugrein sem aflar þjóðinni stóran hluta gjaldeyristekna og við núverandi ástand í þjóðfélaginu er það afar varhugavert að setja þessa atvinnugrein í algjört uppnám eins og nú stefnir í. 

 

Jafnframt er mikilvægt að komið sé í veg fyrir upplausnarástand í sjávarútvegi við hverjar alþingiskosningar. Því hvetur Bæjarstjórn Hornafjarðar til þess að hafin verði endurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu með það að markmiði að skapa sátt um kerfið til framtíðar til þess að efla stöðu byggðanna.

 

Bæjarstjórn samþykkir ofangreinda samþykkt samhljóða

Fundargerð samþykkt.

·         Bæjarráð Hornafjarðar, 463. fundur, 11 maí  2009.

Halldóra tók til máls og ræddi um fundargerð hafnarstjórnar varðandi dælingu, einnig ræddi hún um sauðfjárveikivarnalínu.  Hjalti svaraði fyrirspurn Halldóru.  Sigurlaug ræddi um sauðfjárveikivarnalínu og telur vinnubrögð Matvælastofnunar ámælisverð varðandi kynningu á málinu.

Fundargerð samþykkt

·         Bæjarráð Hornafjarðar, 464. fundur, 18. maí  2009.

Guðrún tók til máls og ræddi um gömlu ruslahaugana, rannsókn á vatni í Grjótbrú, fjarskipti í Öræfum og bílastæði við Hafnarbraut 2.  Björn Ingi ræddi um fjarskiptafélag í Öræfum, Halldóra ræddi einnig um fyrrgreind mál.  Reynir ræddi um fjarskiptafélag Öræfinga  Guðrún tók til máls og sagði að bílastæði við Hafnarbraut 2 væri bílastæði við hafnarsvæðið.  Hjalti ræddi um fyrrgreind mál.   Árni ræddi einnig um fjarskiptamál.

Fundargerð samþykkt.

·         Bæjarráð Hornafjarðar, 465. fundur, 25. maí 2009.

Halldóra ræddi um lið 2, sjávarútvegsmál, einnig ræddi hún um ársreikning HSSA, hvernig þeir voru afgreiddir frá bæjarráði.  Hjalti svaraði Halldóru varðandi ársreikninga HSSA.  Björn Ingi talaði um húsaleigustyrk til starfsmanna, taldi hann að húsaleigustyrk ætti að afnema og harmar ákvörðun bæjarráð varðandi málið.  Halldóra tekur undir orð Björns Inga og ræddi um afgreiðslu ársreikning HSSA í bæjarráði.  Hjalti sagði að þjónustusamningur HSSA og fjármál  væri á ábyrgð bæjarstjórnar.  Árni tekur undir að æskilegt væri að reikningunum sé formlega vísað til Heilbrigðis og öldrunarráðs, ræddi hann einnig um húsaleigustyrk.

Fundargerð samþykkt.

·         Bæjarráð Hornafjarðar, 466. fundur, 2. júní  2009.

Halldóra ræddi um skólaakstur í dreifbýli vegna tómstundastarfs. Hjalti upplýsti að um tilraun væri að ræða til áramóta.  Sigurlaug ræddi um drög að fjölskyldustefnu, hún tók undir orð Hjalta varðandi tómstundastarf barna í dreifbýli.  Hjalti talaði um samstarf milli íþróttafélaga varðandi tómstundir og íþróttir barna í dreifbýli t.d. með lægri æfingagjöldum.  Sigurlaug fangnar samþykkt bæjarráðs um kaup á útgáfurétti Eystrahorns.  Halldóra ræddi um fjölskyldustefnuna og Eystrahorn.  Elín ræddi um fjölskyldustefnuna og bendir á að þetta séu fyrstu drög, hún er enn í vinnslu. Einnig ræddi hún um aukaakstur barna í dreifbýli.  Björn Ingi ræddi um fjölskyldustefnuna, íbúar eiga að fá að segja sína skoðun á henni.  Ræddi hann einnig um fyrirhugaða byggingu á parhúsum við Álaleiru og þau tvö verk sem boðin voru út, en verktakar utan svæðis fengu. 

Fundargerð samþykkt.

 

·         Bæjarráð Hornafjarðar, 467. fundur, 8. júní  2009.

Hjalti upplýsti að lögfræðingur þjóðlenda hafi ekki komið

Fundargerð samþykkt.

·         Bæjarstjórn Hornafjarðar 143. fundur 13.maí 2009, fundargerð áður samþykkt.

2.        Ársreikningar 2008 – síðari umræða

Hjalti fylgdi ársreikningum úr hlaði og ítrekar að staðan er ágæt og sagði  að í áritun bæjarstjórar og bæjarstjóra kæmi m.a. fram að rekstrartekjur í samanteknum ársreikningi sveitarsjóðs eru 1.581,2 m.kr. en þar af  eru rekstrartekjur A-hluta stofnana 1,399,2 m.kr.  Rekstrarniðurstaða í samanteknum reikningsskilum er jákvæð um 187,2 m.kr.. Í A-Hluta jákvæð um 220.7 m.kr. en neikvæð um 33,5 m.kr. í B-hluta.  Heildareignir  eru 3,110,3 m.kr.  Eigið fé er 1.592,8 m.kr. og hlutfall eiginfjár af heildareinum er 51,21%.  Eigið fé sveitarsjóðs er 1.496,1 m.kr. og eiginfjárhlutfall 57,17%.

Halldóra tók til máls og minnti á bókun sjálfstæðismanna við fyrri umræðu, sagði hún að staðan væri sterk.

Ársreikningur borin upp til  samþykktar.  Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir ársreikninginn samhljóða

3.        Ársreikningar HSSA 2008

Hjalti kynnti ársreikning Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands fyrir árið 2008, hann þakkar starfsfólki HSSA fyrir góðan rekstur.  Sagði hann m.a. að reksturinn skilaði um 4,5 m.kr. upp í ójafnað tap undanfarinna ára.  Handbært fé frá rekstri er um 8,8 m.kr. sem hefur aukist um 8 m.kr. f. f. ári. 

Hann ítrekar þakkir til starfsmanna sveitarfélagsins, HSSA, bæjarfulltrúa og nefndarmanna varðandi gerð ársreikninga.

Björn Ingi tók til máls og sagði ánægjulegt að reksturinn skili afgangi , en bendir á að það sé ójafnaðtap á verkefninu. 

Lagði hann fram eftirfarandi bókun:

Það er mikið áhyggjuefni að enn hafi ekki tekist að ljúka gerð þjónustusamnings við ríki um rekstur heilbrigðisstofnunarinnar. Sérstaklega við núverandi aðstæður. Við sjálfstæðismenn höfum margbent á að reikningar stofnunarinnar koma seint fram og nýtast því ekki til upplýsinga um reksturinn. Við leggjum enn og aftur áherslu á að gengið sé frá reikningum HSSA samhliða reikningum sveitarfélagsins.

 

Ársreikningar HSSA bornir upp til samþykktar og þeir samþykktir samhljóða.

4.        Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2009

Hjalti lagði fram endurskoðaða fjárhagsáætlun 2009, þar kemur m.a. fram að rekstrarniðurstaða er 25,3 m.kr., fjárfestingar eru 404,6 m.kr. og handbært fé í árslok 361,6 m.kr.  Ræddi sérstaklega um leiðréttingar á rekstri Menningarmiðstöðvar.

Björn Ingi lagði fram eftirfarandi bókun:

Í núverandi efnahagsástandi er mikilvægt að fylgja eftir fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og gæta þess að einstakir þættir fari ekki fram úr áætlun. Aðhald og skynsamleg nýting fjármagns þarf að vera okkar helsta leiðarljós um þessar mundir.

Hjalti vildi að kæmi fram að mikið og fjölbreytt starf færi fram hjá Menningarmiðstöð en mikilvægt að áætlun hjá stofnuninni gefi sem gleggsta mynd af starfseminni.

Árni  ræddi um Jöfnunarsjóð  og mikilvægt að forstöðumenn og framkvæmdastjórar fylgist mjög vel að fjárhagsáætlun standist.

Halldóra sagðist hafa margbeðið um áætlun um endurbætur í Hafnarskóla þegar gengið var frá fjárhagsáætlun í upphafi árs.  Sagði hún að áætlun sem gerð var í upphafi árs hafi verið ónákvæm er varðar framkvæmdir á árinu 2009.  Fór hún einnig yfir verðlagsþátt áætlunarinnar.

Hjalti tók til máls og greindi frá frávikum frá fyrri áætlun.

Árni Rúnar tók til máls og ítrekaði að vegna óvissunnar í efnahagsmálum færi endurskoðun á fjárhagsáætlun oftar fram á þessu ári en hefðin segir til um.

5.        Kosningar

·         Kjör forseta bæjarstjórnar og 2ja varaforseta til eins árs.

Borin fram eftirfarandi tillaga:

Reynir Arnarson verði forseti.

Árni Rúnar Þorvaldsson verði 1. varaforseti.

Elín Magnúsdóttir verði 2. varaforseti.

Samþykkt með fimm atkvæðum og tveir sátu hjá.

·         Kjör í bæjarráð til eins árs

Borin fram eftirfarandi tillaga:

Frá S-lista: Árni Rúnar Þorvaldsson, sem verður formaður, varamaður Guðrún Ingimundardóttir,

Frá B- lista: Reynir Arnarson, sem verður varaformaður, varamaður Elín Magnúsdóttir.

Frá D-lista: Björn Ingi Jónsson, varamaður Halldóra Bergljót Jónsdóttir.

Samþykkt samhljóða.

·         Fulltrúar á aðalfund SASS.

Borin fram eftirfarandi tillaga:

Frá S-lista: Árni Rúnar Þorvaldsson og Guðrún Ingimundardóttir

Frá B-lista: Elín Magnúsdóttir.

Frá D-lista: Halldóra Bergljót Jónsdóttir og Björn Ingi Jónsson.

Reynir Arnarson situr fundinn sem fulltrúi í stjórn SASS.

Samþykkt samhljóða.

·         Kosning í félagsmálaráð

Borin fram eftirfarandi tillaga.

Matthildur Ásmundardóttir verður aðalamaður í stað Bjargar Svavarsdóttur.

Anna María Ríkharðsdóttir verður varamaður í stað Matthildar Ásmundardóttur.

Samþykkt samhljóða.

·         Kosning í menningar- og tómstundanefnd.

Borin fram eftirfarandi tillaga:

Björn Ingi Jónsson verður varamaður í stað Sædísar Guðmundsdóttir.

Samþykkt samhljóða.

6.        Fyrirspurnir  

Engar borist.

Fundi slitið kl. 20.00


Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica