Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 141

141. fundur

      

Fundur haldinn      í Bæjarstjórn Hornafjarðar, miðvikudaginn 11. mars  2009 kl. 16:00 í Nýheimum.

 Mætt voru:           Reynir Arnarson, forseti bæjarstjórnar, Árni Rúnar Þorvaldsson, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðrún Ingimundardóttir,  Halldóra B. Jónsdóttir og Björk Pálsdóttir.  Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir framkvstj. fjármálasviðs og Stefán Ólafsson framkvstj. fræðslu- og félagssviðs.

 Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.  Spurði hann hvort fundurinn gerði athugasemd við að 454. fundargerð bæjarráðs verði tekin fyrir á fundinum. Var ekki við það gerð athugasemd.

 1.        Fundargerðir

·         Bæjarráð Hornafjarðar, 449 fundur, mánudaginn 2. febrúar  2009. 

Björk ræddi fundargerð atvinnumálanefndar og sagði að fram kæmi að 32 væru atvinnulausir. Spurðist hún fyrir um hvað sveitarfélagið ætlaði að gera varðandi þetta atvinnuleysi. Einnig ræddi Björk sumarlokun leikskóla. Benti á stóran þátt ferðaþjónustunnar í atvinnulífi hér á okkar svæði. Fólk sem starfaði þar ætti ekki auðvelt með að taka sér frí frá vinnu þegar leikskólar lokuðu.

Elín ræddi sumarlokun leikskólanna og sagðist hafa sent bæjarfulltrúum póst þar sem útskýrt var hvers vegna skólanefnd komst að þessari niðurstöðu. Vitnaði hún í niðurstöður könnunarinnar þar sem fram hafi komið að um 20 prósent hafi óskað eftir að sumarlokun  leikskólanna skaraðist eitthvað. Elín lagði til að skólanefnd, starfsmönnum leikskólanna og foreldrum í foreldraráði og foreldrafélagi verði falið að móta tillögur um sumarlokun leikskólanna til næstu ára. Þær tillögur eigi að liggja fyrir í síðasta lagi í desember 2009. Jafnframt lagði hún til að sumarlokun leikskólanna verði óbreytt árið 2009 í samræmi við meirihluta skólanefndar og bæjarráðs. Elín sagðist vilja sjá að samfélagið aðlaðist leikskólanum og kallaði eftir sveigjanlegum vinnutíma almennt. Þá sagðist hún vilja sjá leikskólana starfa frá 8 – 3 síðdegis, það væri barnvænna en skólavist allt til  kl. 5.

Björk ræddi könnunina, sem hún var ekki sátt við og sagði að spurningar ættu að vera stuttar og hnitmiðaðar. Gerði að umtalsefni einstaka spurningar. Einnig taldi hún að leggja ætti spurningar einnig fyrir atvinnurekendur og starfsfólk leikskóla. Þá taldi hún könnunina óvandaða að mörgu leyti en gæfi samt ákveðnar upplýsingar.

Halldóra spurðist fyrir um framkvæmdir á Leirusvæði, tafir á verkinu og óskaði skýringa á þeim. Einnig ræddi hún skipulagsskilmála og taldi að koma ætti þeim í aðgengilegra form en nú væri. Þá ræddi hún sumarlokun leikskóla og sagðist mótmæla því að umræða um leik- og grunnskóla væri á neikvæðum nótum. Hún vitnaði til tillögu frá sjálfstæðismönnum í apríl í fyrra þar sem lagt var til að reynt verði að koma til móts við foreldra og börn þeirra hvað varðar sumarlokun. Það hafi þá þótt skammur tími en ekkert verið gert þrátt fyrir að m.a. hafi verið sent bréf um málið sl. haust til skólanefndar og skólaskrifstofu sl. haust. Hún taldi spurningar könnunarinnar hafa það að markmiði að ekki eigi að breyta neinu. Hún lagði áherslu á að leikskólar væru fyrsta skólastigið en jafnframt þjónustustofnanir þar sem ætti að hafa hagsmuni barnanna að leiðarljósi.

Árni tók undir orð Bjarkar og sagði að við yrðum að halda vöku okkar þegar litið væri til atvinnulífsins. Sagði atvinnuleysistölur sem fram hafi komið of háar. Lagði áherslu á að leita þurfi allra leiða til að koma í veg fyrir mikið atvinnuleysi á svæðinu. Atvinnuleysi væri raunverulegur og grafalvarlegur vandi á Íslandi. Hann sagði það mikilvægan punkt hjá Björk að hér starfaði margt fólk í ferðaþjónustu og til þess þyrfti að taka tillit til þegar rætt væri um málefni barna í leik- og grunnskólum. Leikskólinn er fyrsta skólastigið sagði Árni og við verðum að vanda okkur í umræðu um hann. Hann sagði að bæði leik- og grunnskóli væru einnig þjónustustofnanir. Hann sagðist taka undir tillögu Elínar um þann farveg sem málið færi núna.

Elín sagði að sér dytti ekki í hug að þessi könnun væri fullkomin, hana mætti eflaust gagnrýna. Þá benti hún á að ef vilji foreldra ætti að ráða væri ekki verið að ræða neina sumarlokun. Ef ekki ætti að loka þyrfti sveitarfélagið að leggja mun meira fé til leikskólanna en nú er gert og benti um leið að hér hafi leikskólagjöld lækkað síðastliðið haust. Þá benti hún á að mörg sveitarfélög á landinu væru núna í niðurskurði og sagði mörg sveitarfélög vera að auka sumarlokun úr 2 vikum í fjórar til að draga úr útgjöldum.

Hjalti taldi könnunina gefa ákveðin svör og vitnaði í einstaka spurningu. Hann sagði það tiltölulegan fámennan hóp sem væri að óska eftir öðru fyrirkomulagi en nú er. Einnig ræddi hann aukinn kostnað samfara aukinni opnun. Hann taldi að fara þyrfti varlega í algjört frjálst val en fannst mikilvægt að skoða leiðir til að koma til móts við þá sem óska annarra lausna en meginþorrinn. Hjalti ræddi einnig atvinnuástandið og sagðist ekki sáttur við það atvinnuleysi sem hér er. Hann ræddi áhrif loðnubrests á atvinnulífið. Hann sagði vonir standa til að ástandið batnaði. Vitnaði til samstarfs við Vinnumálastofnun og sagði að ekki væru mörg dæmi um að menn hafi lengi verið atvinnulausir. Hjalti greindi frá ástæðum tafa á Leirusvæðinu og sagði að stefnt væri að verklokum þar í lok mars.

Halldóra sagði það furðulegt að meirihlutinn færi að bera saman leik- og grunnskóla í þessari umræðu. Þá spurði hún eftir hverju væri verið að bíða með ákvörðun um sumarlokun leikskóla. Hún taldi ekki að aukinn sveigjanleiki myndi auka útgjöld til leikskólanna.

Hjalti taldi að niðurstaða könnunarinnar hafi verið ástæða þess að ekki var ákveðið að breyta sumarlokun. Hann sagði jafnfram að skörun yki ekki útgjöld. Sagði hins vegar að ekki væri verið að draga úr þjónustu, hún væri sú sama og mörg undanfarin ár. Þá ræddi Hjalti áfanga í jarðhitaleit og samning landeigenda í Hoffelli og RARIK. Einnig ræddi hann nýjustu fréttir um heitt vatn í Skaftafelli sem lofuðu góðu. Hjalti ræddi myndverk Svavars Guðnasonar og þá viðbót sem berast muni við það sem nú er til eftir Svavar. Minnti hann einnig á skyldur okkar sem þessum gjöfum fylgdi.

Árni skýrði samanburð á leik- og grunnskólum í ræðu sinni hér að framan. Sagði að ekki væri verið að tala um sumarlokun í þessu sambandi. Einnig ræddi hann hlutverk leikskólans sem þjónustustofnunar og um leið sem fyrsta skólastigsins.

Fundargerð samþykkt.

·         Bæjarráð Hornafjarðar, 450. fundur, mánudaginn 9. febrúar  2009. 

Hjalti sagðist fagna tillögum um háhraðatengingar í dreifbýli, sbr. það sem fram kemur í fundargerð.

Halldóra tók undir það að það væri mikið hagsmunamál bæta tengingar í dreifbýli. Jafnframt sagðist hún hafa áhyggjur af þeim bæjum sem einkaaðilar hafi áformað að tengja með þessum hætti. Fram hafi komið að ríkið ætli sér ekki í samkeppni við einkaaðila og óskaði skýringa á stöðu þess. Þá ræddi hún hugsanlega nýtingu gömlu sundlaugarinnar og sagði spennandi að fylgjast með því hvaða út úr því komi. Halldóra spurði um nýju sundlaugina og hvort dagsetning opnunar, 9. apríl muni standast. Einnig spurðist hún fyrir um framkvæmdir við nýju laugina. Benti á atriði sem aflaga hafi farið á byggingarstigi. Þá saknaði hún þess að ekki hafi verið fundur í byggingarnefnd um íþróttamannvirki um langt skeið. Hún ræddi dælingu úr kjallara, sem sagt er vera 30 til 300 tonn á klukkutíma. Hún sagðist sjálf eiga sök í þessu máli eins og margir aðrir enda hafi hún setið í byggingarnefnd um íþróttamannvirki til maí 2007. Gerði Halldóra að umtalsefni ráðleggingar hönnuða og benti á þætti sem farið hafi úrskeiðis. Þá velti hún upp spurningunni hver beri ábyrgð á þeim þáttum sem aflaga hafi farið. Sagðist hún ekki sátt við framkvæmdina á margan hátt. Halldóra ræddi aðstöðu hljómsveita til æfinga og lagði áherslu á mikilvægi þessa. Einnig spurði hún um hvort eitthvað væri nýtt að frétta af sauðfjárveikivarnalínu.

Hjalti sagði að hafin hafi verið framkvæmd á Mýrunum á vegum einkaaðila. Sagði hann að fara þurfi yfir það mál með Fjarskiptasjóði. Hann sagði margt skemmtilegt hafa komið fram um nýtingu gömlu sundlaugarinnar. Hann sagði að teiknað hafi verið upp girðingastæði vegna sauðfjárveikivarna. Hins vegar heyrðist ekkert frá Matvælastofnun. Lagði hann áherslu á að ekki verði lengur búið við óbreytt ástand. Hjalti taldi að hægt verði að opna nýju sundlaugina á skírdag, 9. apríl og fannst mikilvægt að halda sig við þá dagsetningu. Þá ræddi hann vandræði við byggingu laugarinnar svo sem grundun, vatnsmagni o.fl. Hann sagði okkur sem stæðum að framkvæmdinni bera ábyrgð en einnig hönnuði. Hins vegar þurfi ávallt að hafa í huga alla ráðgjöf. Hann greindi frá fundi með starfsmönnum VST og arkitekt, meginhönnuðum sundlaugarinnar, sem haldinn var í dag. Ekki væri komin endanleg niðurstaða eftir þann fund. Þá ræddi hann málun á pottum sem væru í samræmi við niðurstöðu byggingarnefndar. Einnig ranga hæðarkvóta o.fl. þætti sem skyggðu á þá gleði að fá þetta nýja mannvirki. Hjalti sagði að hlúa þurfi að gróskumiklu starfi hljómsveita á staðnum og greindi frá hugmyndum um nýtingu á Sindrabæ og vöruhúsi í því sambandi.

Guðrún ræddi vatnssýnatöku í Grjótbrú sem lofaði góðu um framhaldið og kæmi atvinnulífinu hér til góða. Hún sagði okkar umhverfi hafa jákvæða ímynd og þar með vatnið sem hér sprettur upp.

Fundargerð samþykkt.

·         Bæjarráð Hornafjarðar, 451. fundur, mánudaginn 16. febrúar  2009. 

Fundargerð samþykkt.

·         Bæjarráð Hornafjarðar, 452. fundur, mánudaginn 23. febrúar  2009.

Björk óskaði eftir samstarfi um menningarmál, hvort menn ætli í austur eða suður. Sagðist vera því sammála að leita suður vegna annars samstarfs og óskaði eftir upplýsingum um málið. Þá spurðist hún fyrir um leiguíbúðir og hugsanlega sölu á þeim, sagði okkur þurfa að fara varlega.

Guðrún greindi frá fundi með forstöðumanni Menningarráðs á Austurlandi. Sagði hún niðurstöðuna vera þá að taka stefnuna suður.

Hjalti greindi frá viðræðum við tilbjóðendur í leiguhúsnæði. Hann taldi það kost að sveitarfélagið dragi sig að einhverju leyti út af þessum leigumarkaði. Það þyrfti þó að eiga einhvern fjölda íbúða. Frekari frétta af þessu máli væri vart að frétta fyrr en eftir páska. Hjalti taldi að færa ætti allt samstarf á kjördæmavísu, þar með menningarmálin. Hann benti á atriði um menningarmiðstöðvar í samningi um menningarmál á Austurlandi. Tryggja þurfi að framlag sem fylgir Menningarmiðstöð Hornafjarðar verði áfram ef breytingar verða á þessu samstarfi.

Halldóra sagði að komið væri fram að núverandi meirihluti ætlaði að flytja allt samstarf á Suðurland. Hún sagði að með þessu væru 9 milljón króna framlag til sveitarfélagsins í upplausn. Hún sagði að forsendur þessa fjármagns hafa verið samstarf það sem komið var á. Hún ræddi áhrif þessa menningarsamstarfs sem verið hafi austur. Sagði að meirihlutinn réði ferðinni í þessu máli en að hann ætlaði vísvitandi að skaða okkur. Halldóra ræddi sölu á leiguíbúðum í eigi sveitarfélagsins. Sagði réttmæta þá spurningu hversu margar íbúðir sveitarfélagið ætti að eiga og að það ætti að fara af almennum leigumarkaði. Hún sagði að gæta þurfi jafnræðis við söluna ef til kæmi. Sagði að það hafi ekki verið gert í aðdraganda þessa máls. Taka þurfi stefnumarkandi ákvörðun áður en til sölu kemur. Þá þurfi að gæta þess í þessu ferli að sala hafi ekki áhrif á markaðsverð fasteigna hér á staðnum. Þá megi einnig bjóða núverandi leigjendum íbúðirnar til kaups. Þá vitnaði Halldóra í bréf Þorbjargar Arnórsdóttur og nýtingu á sorpgámum í dreifbýli. Hún sagðist hafa haft af því óljósar fregnir að gámarnir hafi verið notaðir undir dýrahræ. Óskaði hún upplýsinga um stöðuna í grenndargámum í dreifbýli og hvernig menn ætluðu að leysa söfnun og förgun á lífrænum úrgangi.

 

Hlé gert á fundi vegna heimsóknar heilbrigðisráðherra, Ögmundar Jónassonar, Þuríðar Backman alþingismanns og starfsmanna í heilbrigðisráðuneytinu.

 

Reynir tók fyrstur til máls eftir hlé. Hann sagði að ekkert hafi verið ákveðið um samstarf í menningarmálum en umræður hafi verið í gangi um þau mál. Hann sagðist vilja sjá meira áður en ákveðið væri hvað gera skuli í þeim efnum. Þá sagði hann einfaldlega rangt að búið væri að setja af sér 9 milljónir eins og Halldóra haldi fram. Reynir sagði Halldóru fullyrða að menn væru stefnulausir. Ræddi skyldur við núverandi leigjendur í því sambandi o.fl. atriði sem snerta málið.

Sigurlaug fagnaði þeirri hreyfingu sem komin er á mál við Jökulsárlón og minnti á þá perlu sem flaggskips svæðisins. Hún sagði mikilvægt að ræða menningarmálin og eðlilegt að horfa til Suðurlands í þeim efnum. Hún sagði að einnig væri unnið á þessum nótum í markaðsmálum ferðaþjónustunnar. Sigurlaug ræddi grenndargáma í sveitum og sagði það hluta af þeirri umræðu að minnka úrgang og auka endurvinnslu. Taldi hún um þetta almenna sátt þó einhverjir væru það ekki en viðhorf þeirra muni breytast. Þá ræddi hún sérstakar úrlausnir sem snerta brotajárn, timbur og dauðyfli í dreifbýlinu. Allt miði þetta að því að gera þá sem sorpið búa til ábyrga fyrir sínu sorpi. Þá sagði hún endurskoðun á sorpgjöldum eiga að miða að aukinni flokkun og minni urðun. Lýsti hún yfir ánægju með að hafa tekið þátt í þessari vinnu.

Hjalti ræddi samstarf sveitarfélaga og þá niðurstöðu að sveitarfélagið varð hluti af Suðurkjördæmi. Sagði hann að sú umræða sem nú er uppi hafi átt að vera þegar sú ákvörðun var tekin. Lagði hann áherslu á sem mesta samvinnu á kjördæmavísu. Hann sagði samstarf í menningarmálum vera í vinnslu. Þá ræddi hann tilboð í leiguíbúðir og sagði að tilboðið bæri vott um trú þeirra sem að því stóðu á þetta svæði. Með hugsanlegri sölu yrði mikil breyting á skuldarstöðu sveitarfélagsins sem væri mikilvægt mál. Hann sagði að tilboðið sem barst hafa komið fyrr en von hafi verið á. Einnig útskýrði hann samtal við fréttamann Ríkisútvarpsins vegna þessa máls.

Halldóra sagði að sér fyndist sem umræðan um menningarsamninginn væri farin að breytast eftir að hún tók til máls um hann. Þá ítrekaði hún þá skoðun sína að bæjarstjórn eigi að vinna fyrir opnum tjöldum með ákv. stefnu og vitnaði til umræðna um sölu á leiguíbúðum.

Árni ræddi samstarf í menningarmálum og sagði að stærsta skrefið hafi verið stigið þegar Hornafjörður varð hluti af Suðurkjördæmi. Þá hafi verið stigið skref í samstarfi sveitarfélaga og samstarf í menningarmálum á kjördæmavísi. Sagðist hins vegar að hann ætti erfitt með að átta sig á skoðun Halldóru í þessu máli.

Fundargerð samþykkt.

 

·         Bæjarráð Hornafjarðar, 453. fundur,2. mars 2009.

Björk ræddi útboð á skólamáltíðum og óskaði eftir upplýsingum um hver hafi unnið útboðið og hvernig að því hafi verið staðið. Sagðist leggja áherslu á að skólamatur verði hollur og ekki foreldaður.

Hjalti sagði útboðsgögnin hafa verið unnin í ráðhúsi sveitarfélagsins. Gögnin hafi farið í opið útboð í sveitarfélaginu. Kröfur hafi verið gerðar um lýðheilsumarkmið. Sagði hann að í lægsta tilboðinu sem barst hafi fylgt matseðill sem legði áherslu á mat unninn heima í héraði, ekki foreldaðan.

Halldóra ræddi bréf frá Flugstoðum og lagði til að bæjarstjórn gerði bókun bæjarráðs að sinni. Bókun sem samþykkt var í bæjarráði 2. mars sl.

Bæjarstjórn lýsir yfir áhyggjum af fyrirætlunum Flugstoða að skerða þjónustu og hugsanlega að draga úr öryggi íbúanna með því að takmarka opnun Hornafjarðarflugvallar. Þá mótmælir bæjarstjórn því að ekkert samráð hafi verið haft við sveitarfélagið þegar ákvörðun sem þessi var tekin. Ríkisstofnunum og ríkisfyrirtækjum beri eðlileg skylda til að hafa samráð við sveitarfélög þegar breytingar verða á nauðsynlegri þjónustu. Mikilvægi Hornafjarðarflugvallar í öryggismálum og sjúkraflugi á þessu svæði landsins verður ekki dregin í efa.

Tillaga Halldóru um bókun borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

Fundargerð samþykkt.

 

·         Bæjarráð Hornafjarðar, 454. fundur,9. mars 2009.

Halldóra ræddi heimsókn framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs. Ræddi í því sambandi fund á heitu vatni í Skaftafelli. Vitnaði til þess að breytingar í Skaftafelli hafi verið til umræðu á fundi bæjarráðs og þá möguleika sem þessi fundur á heitu vatni gæfi. Hún ræddi skipulagsmál sem snúa að þjóðgarðinum og Öræfasveit vera mikilvæg. Sagði t.d. í raun engan þéttbýliskjarna í Öræfum í dag sem gæti skipt máli við skipulag til framtíðar. Þessu þurfi menn að velta fyrir sér því hún tengist uppbyggingu í sveitunum. Hvar vilja menn sjá byggt upp á þessu svæði spyr Halldóra.

Hjalti þakkaði Halldóru fyrir að vekja athygli á þessu mikilvæga máli. Taldi hann þessa umræðu eiga vel heima í þeim starfshópi sem vinnur nú að aðalskipulagi. Hann fór yfir byggðaþróun í Öræfum og benti á að á sínum tíma hafi Fagurhólsmýri verið á ýmsan hátt hjarta Öræfa sem samgöngumiðstöð og miðstöð þjónustu en það hafi breyst með stöðugt aukinni ferðaþjónustu. Einnig ræddi hann undir þessum lið umræðu um staðsetningu gestastofu nærri Höfn eða á Höfn.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarstjórn Hornafjarðar 140. fundur 28. janúar 2009, fundargerð áður samþykkt.

 2.        Þriggja ára áætlun

Bæjarstjóri gerði grein fyrir að fjárhagsáætlun til síðari umræðu væri í raun óbreytt frá fyrri umræðu.  Óvissa er mikil í efnahagsmálum þjóðarinnar og því væri ekki hægt að gera langtímaáætlanir.  Eina sem þyrfti að gera er að vera varkár í öllum rekstri og fylgjast vel með atvinnuástandi og stöðu fjölskyldna á Hornafirði.  Eins og útlit er fyrir núna að þá hefur sveitarsjóður ágæta möguleika á að halda uppi áframhaldandi öflugri þjónustu á vegum sveitarfélagsins, verkefnum fyrir iðnaðarmenn og verktaka og eins að verja hag fjölskyldna á svæðinu.  Það verði megin verkefnið næstu árin. 

Áætlunin gerir ráð fyrir afgangi af rekstri sveitarsjóðs en að framkvæmdir verði 200 m.kr. öll árin.

3ja ára áætlun borin undir atkvæði og samþykkt með 5 greiddum atkvæðum, 2 sátu hjá.

 3.        Fjárhagsáætlun HSSA

Hjalti greindi frá heimsókn ráðherra heilbrigðismála á miðjum þessum fundi þar sem m.a. var rætt um nýjan þjónustusamning um heilbrigðis- og öldrunarmál.

Í framlagðri fjárhagsáætlun HSSA er gert ráð fyrir að bæjarstjórn samþykki hana með átta milljón króna halla sem er óásættanlegt að mati bæjarstjóra.  Þar hafi verið rætt um að stefna að undirskrift í byrjun apríl nk.  Ítrekaði hann að markmiðið með nýjum þjónustusamningi sé að endar náist saman í rekstri HSSA.

Fjárhagsáætlun HSSA borin undir atkvæði. Samþykkt með 5 atkvæðum, 1 sat hjá og 1 fjarverandi.

 4.        Fyrirspurnir   

Engar fyrirspurnir bárust.

 Fundi slitið kl. 20:26


Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica