Bæjarstjórn
Fundargerð Bæjarstjórnar 65
65. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 28. ágúst 2003, kl. 16:00 í Ekru.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Björn E. Traustason, Vignir Júlíusson, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson og Kristín Gestsdóttir. Einnig Albert Eymundsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár.
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar 215.fundur fimmtudaginn. 19. júní 2003.
Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar. fundur 12. júní 2003.
Félagsmálaráð Hornafjarðar 94. fundur 10. júní 2003.
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 47. fundur 11. júní 2003.
Umhverfisnefnd Hornafjarðar 37. fundur 11. júní 2003.
Starfshópur um stofnun Jöklaseturs á Hornafirði 8. fundur 6. júní 2003.
Ritnefnd Skaftfellings 8. fundur 6. júní 2003 til kynningar.
Kristín spurðist fyrir um drög að náttúruverndaráætlun 2003 – 2008 sem vísað hefur verið til umsagnar fjölmargra aðila. Einnig spurðist hún fyrir um fyrirhleðslur við Jökulsá í Lóni.
Albert sagði enn tækifæri til að hafa áhrif á náttúruverndaráætlun, umræðum um hana ekki lokið. Gerð hefur verið áætlun fyrir nauðsynlegar fyrirhleðslur í Lóni sem gert er ráð fyrir að kosti 30 millj. krónur Einnig gerði hann grein fyrir kynningu á þessum vanda innan stjórnkerfis ríkisins. Taldi hann alla þá sem máli skipta vera mjög vel upplýsta um málið.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 216.fundur föstudaginn. 20. júní 2003.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 217.fundur fimmtudaginn. 3. júlí 2003.
Félagsmálaráð Hornafjarðar 95. fundur 24. júní 2003.
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 48. fundur 27. júní 2003.
Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 51. fundur 26. júní 2003.
Skólanefnd Hornafjarðar 51. fundur 16. júní 2003.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 218.fundur fimmtudaginn. 17. júlí 2003.
Byggingar- og skipulagsnefnd 46. fundur 10. júlí 2003.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 219.fundur fimmtudaginn 7. ágúst 2003.
Húsnæðisnefnd Hornafjarðar, 52. fundur 16. júlí 2003
Kristín spurðist fyrir um jarðhitaleit í Hoffelli í Nesjum. Sagðist hafa fregnað að eitthvað væri að gerast í því máli. Einnig gerði hún að umtalsefni birgðastöðvar og afgreiðslustöðvar fyrir olíu í Álaugarey. Hvatti menn til að farið verði að með gát til að koma í veg fyrir hugsanlega olíumengun.
Albert greindi frá styrk sem fengist hefði til áframhaldandi jarðhitaleitar í Hoffelli. Einnig að Rafmagnsveitum ríkisins hefði verið sent bréf þar sem farið er fram á áframhaldandi samstarf um málið. Einnig fjallaði hann um þann valkost að nýta jarðvarma til húshitunar í samkeppni við niðurgreitt rafmagn. Albert sagði að farið væri eftir öllum gildandi reglum er koma ættu í veg fyrir mengunarslys af völdum olíu.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 220.fundur fimmtudaginn. 19. ágúst 2003.
Heilbrigðisnefnd Austurland 37. fundur 13. ágúst 2003 til kynningar.
Launanefnd sveitarfélaga 188. fundur 13. ágúst 2003 til kynningar.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 5.júní 2003 áður samþykkt.
2. Jöklasetur á Hornafirði – skýrsla starfshóps
Bæjarsjóri kynnti niðurstöður starfshópsins sem eru í eftirfarandi fimm liðum, skv. bréfi dags. 15. ágúst 2003:
Fjáröflun
Vinna þarf að fjáröflun frá opinberum aðilum til uppbyggingar og reksturs Jöklaseturs. Í viðskiptaáætlun er gert ráð fyrir árlegum opinberum stuðningi að fjárhæð 10 milljónir króna (6 millj. til rekstrar og 4 millj. vegna uppbyggingar). Á fjárlögum þessa árs eru sem kunnugt er 7 milljónir til verkefnisins og mikilvægt að tryggja áframhaldandi og meiri fjárveitingu frá Alþingi.
Markaðsaðgerðir
Mikilvægt er að hrinda í framkvæmd markvissum markaðsaðgerðum vegna Jöklaseturs. Ljóst er að gott samstarf við ferðaþjónustuaðila í héraðinu er afar mikilvægt til að tryggja aðsókn að Jöklasetrinu. Í því sambandi hefur starfshópurinn skrifað Ferðamálafélagi Austur-Skaftafellssýslu og óskað eftir samstarfi. Margt fleira þarf að koma til, sem ekki verður gert nema með skipulegu og samfelldu starfi.
Húsnæðismál
Á grundvelli greinargerðar Glámu/Kím um húsnæðismálin er lagt til að leitað verði samninga við Kaupfélag Austur-Skaftfellinga um leigu á húsnæði í Vöruhúsinu að Hafnarbraut 30 til allt að 10 ára.
Sjálfseignarstofnun
Starfshópurinn leggur til að stofnuð verði sjálfseignarstofnun um Jöklasetur. Mikilvægt er að unnið verði að því verkefni sem allra fyrst og nauðsynlegt er að fá til liðs öfluga aðila sem stofnendur og styrktaraðila að rekstrinum til lengri tíma.
Framkvæmdastjóri
Í viðskiptaáætluninni er gert ráð fyrir ráðningu eins heils árs starfsmanns - framkvæmdastjóra. Starfshópurinn telur nauðsynlegt að svo verði gert til þess að hrinda ofangreindum áformum í framkvæmd og tryggja þann árangur sem að er stefnt.
Kristín sagði jöklasetur vera draum sem nú gæti orðið að veruleika. Sagðist hún því sammála að ráðinn verði framkvæmdastjóri til setursins og tók heilshugar undir tillögur starfshópsins. Einnig gerði hún að umtalsefni samstarf við Háskólasetrið á Hornafirði sem hún taldi mikilvægt.
Reynir tók undir orð Kristínar og fjallaði einnig um fjármögnun til verksins og meginhugmyndir um starfsemi setursins.
Halldóra Bergljót þakkaði hlý orð í garð starfshópsins og gerði nokkra grein fyrir vinnu hans og hugmyndum. Einnig fjallaði hún um væntanlegan Vatnajökulsþjóðgarð sem hillti undir að verði brátt að veruleika. Greindi hún frá því að á þingi SSA hefði þrjú þing í röð verið lýst yfir stuðningi við stofnun þjóðgarðsins. Þá fjallaði hún um verndun annars vegar og boð og bönn hins vegar. Sagði hún að hugmyndir um friðlýsingu í dag gengju út á það að nota land og njóta sem kæmi engan veginn í veg fyrir hefðbundnar nytjar. Þá fjallaði Halldóra um tengsl Jöklaseturs, Háskólaseturs á Hornafirði og Vatnajökulsþjóðgarðs sem sameiginlega gætu orðið mikil lyftistöng og skapað fjölmörg störf.
Í framhaldi af umræðunni lagði bæjarstjóri fram eftirfarandi bókanir:
1. Bæjarstjórn lýsir yfir ánægju með störf starfshópsins um Jöklasetur á Höfn og þakkar starfshópnum vel unnin störf. Bæjarstjórn samþykkir stefnumótun sem felst í tillögum starfshópsins og felur bæjarráði að vinna frekar að framgangi málsins í samræmi við áðurnefndar tillögur.
2. Bæjarstjórn Hornafjarðar telur mikilvægt að við mótun og stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs verði vandlega skoðað með hvaða hætti sé hægt að samræma starfsemi þjóðgarðsins væntanlegu Jöklasetri á Hornafirði sem vísir er kominn að með rekstri Jöklasýningarinnar á Höfn. Jafnframt telur bæjarstjórn mikilvægt að skoðuð verði tenging Háskólasetursins á Hornafirði við umrædda starfsemi.
Bæjarstjórn mun óska eftir viðræðum við umhverfisráðuneytið og ráðgjafanefnd um Vatnajökulsþjóðgarð vegna málsins.
3. Bæjarstjórn Hornafjarðar beinir þeim tilmælum til umhverfisráðherra og landbúnaðarráðherra að við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs verði eign ríkisins í jörðinni Flatey (og samliggjandi jörðum) á Mýrum í Hornafirði höfð innan marka þjóðgarðsins sem hluti af honum.
Bæjarstjórnin telur að vel fari saman hugmyndir um þjóðgarð með góðu aðgengi almennings og eðlilegum nytjum á jörðinni, svo sem búskap og veiðum, eins og hefð er fyrir. Reyndar telur bæjarstjórnin það grundvallarskilyrði fyrir þessum framgangi að áðurnefndar nytjar séu leyfðar.
Umrætt landsvæði yrði óneitanlega mikils virði fyrir væntanlegan þjóðgarð, auka fjölbreytni með tilliti til náttúru og jarðfræði og skapa meiri og betri möguleika á gönguferðum á jökul og nágrenni hans.
Halldóra Bergljót sagði frá samþykktum Ferðamálafélag A-Skaft. þar sem tekið er undir framangreind sjónarmið. Hún leggur til að þessar bókanir verði samþykktar.
Forseti bar ofangreindar bókanir upp til atkvæða og samþykkti bæjarstjórn þær samhljóða.
3. Fyrirspurnir
Reynir Arnarson spyr um dýpkun á Grynnslunum því opna átti tilboð í þau í dag.
Bæjarstjóri upplýsti að ekkert tilboð hefði borist. Væntanlega yrði farið í viðræður við verktaka.
Fundi slitið kl. 17:40


