Bæjarstjórn
Fundargerð bæjastjórnar 137
137. fundur
Overview
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 4. desember 2008, kl. 16:00 í Nýheimum.
Mætt voru: Reynir Arnarson, forseti bæjarstjórnar, Árni Rúnar Þorvaldsson, Gunnar Sigurjónsson, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðrún Ingimundardóttir, Halldóra B. Jónsdóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir framkvstj. fjármálasviðs, Stefán Ólafsson framkvstj. fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvstj. tækni- og umhverfissviðs.
Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar, 439. fundur, 10. nóvember 2008.
Fundargerð samþykkt samhljóða
Bæjarráð Hornafjarðar, 440. fundur, 17. nóvember 2008.
Árni ræddi hugmyndir um leiguíbúðir og hugsanlega aðkomu sveitarfélagsins að þeim. Fagnaði hann þeim hugmyndum og sagðist vilja skoða þennan kost ef þörfin væri fyrir hendi. Hann velti fyrir sér hvort þörf væri á uppbyggingu íbúða. Sagði hann raddir um að þegar kreppir að í þjóðfélaginu felist í því ákveðin tækifæri fyrir landsbyggðina og uppbyggingu þar.
Hjalti ræddi 82. fundargerð umhverfisnefndar og möguleika á vali um mismunandi stærð sorpíláta. Sagði hann margt hafa áunnist í sorpmálum, svo sem flokkun sorps.
Sigurlaug þakkaði Hjalta fyrir að fjalla um sorpmál og flokkun sorps. Hvað varðar leiguíbúðir benti Sigurlaug á að leiguíbúðir skorti í sveitum, t.d. í tengslum við ferðaþjónustu o.fl. Skoraði á að skoðuð yrði þörf á leiguíbúðum í dreifbýlinu.
Halldóra spurðist fyrir um verkefnið Hafnarvík – Heppa, hver staða þess væri. Einnig gerði hún að umtalsefni bréf Skipulagsstofnunar og þá hvort bæjarstjórn leggi til að ekki eigi að fara út í Skarðsfjörð með hluta af nýjum hringvegi.
Árni sagði að í vinnu nefndar um húsnæðismál hafi verið tekið til umfjöllunar hugmyndir um leiguhúsnæði í dreifbýli.
Hjalti benti á bókun bæjarstjórnar á 125. fundi bæjarstjórnar þar sem samþykkt var að fara með veginn upp á bakkann í stað þess að fara út í Skarðsfjörð. Þessi bókun hafi verið samþykkt samhljóða á þessum fundi. Hvað varðar Hafnarvík- Heppu sagði hann engar ákvarðanir hafa verið teknar um það mál og minnti um á leið á efnahagsástandið. Taldi hann að allar framkvæmdir við verkefnið verði að bíða um sinn.
Halldóra taldi að misskilningur væri á ferðinni á milli bæjarstjórnar og Skipulagsstofnunar um legu hringvegarins. Taldi rétt að bæjarstjóri hefði samband við Skipulagsstofnun vegna málsins og leiðrétti ákveðin atriði sem koma fram í bréfi stofnunarinnar.
Hjalti las upp úr fyrrgreindri bókun þar sem bæjarstjórn leggi til að vegurinn liggi ekki yfir Skarðsfjörð. Þá ræddi hann mikilvægi Skarðsfjarðar fyrir fuglalífið vegna þess lífríkis sem þar þrífst.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Hornafjarðar, 441. fundur, 24. nóvember 2008.
Hjalti gerði grein fyrir að leyfi til reksturs útibús Lyfju hafi verið framlengt um 6 mánuði. Greindi og frá fyrirhuguðum fundi með Lyfjastofnun vegna þessa máls. Leggja þurfi áherslu á að leyfið verði gefið til lengri tíma en 6 mánaða.
Sigurlaug spurðist fyrir um hvenær nefnd um húsnæðismál lyki störfum. Ræddi hún um félagsheimili til sveita og vonaðist til að þau yrðu svo áfram en einnig virkar lifandi stofnanir. Sagðist vilja sjá í þeim einhvers konar vinnubúðir í ætt við Nýheima. Þá skoraði hún á að haldið verði atvinnumálaþing sem einkum tengist dreifbýlinu.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Hornafjarðar, 442. fundur, 1. desember 2008.
Reynir óskaði Legóhópnum til hamingju með góðan árangur og Þórbergssetri fyrir viðurkenningu fyrir frumkvöðlastarf í ferðaþjónustu.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
Bæjarstjórn Hornafjarðar 136. fundur 6. nóvember 2008 fundargerð áður samþykkt.
2. Atvinnu- og rannsóknasjóður Hornafjarðar
Hjalti fór yfir málið, sagði þetta vera í annað skipti sem málið kemur fyrir bæjarstjórn. Sagði sjóðinn verða í eigu sveitarfélagsins undir yfirumsjón atvinnumálanefndar. Þá greindi hann frá tilurð sjóðsins sem varð til með sölu á húsnæði Nesjaskóla. Sagði Hjalti þetta vera áhugavert verkefni og lagði til reglur sjóðsins verði samþykktar.
Samþykktir og úthlutunarreglur fyrir Atvinnu- og rannsóknasjóð Sveitarfélagsins Hornafjarðar bornar undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
3. Starfsmannastefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
- Siðareglur starfsmanna sveitarfélagsins.
- Verklagsreglur um áminningu og brottvísun starfsmanna.
- Jafnréttisáætlun sveitarfélagsins.
- Reglur um sí- og endurmenntun starfsmanna sveitarfélagsins.
- Reglur um endurmenntun/framhaldsnám starfsmanna sveitarfélagsins.
Hjalti fór yfir málið og rakti forsögu málsins. Sagði hann meginstefið vera að hjá sveitarfélaginu séu góð starfsskilyrði þar sem lögð er áhersla á góða þjónustu við íbúa sveitarfélagsins. Þá fór hann yfir ýmsa þætti sem þegar hefur verið hafin vinna við er tengist aðbúnaði og aðstæðum starfsmanna á vinnustað. Hvatti Hjalti til að starfsmannastefnan ásamt meðfylgjandi reglum verði samþykkt.
Halldóra fagnaði að endurskoðun starfsmannastefnunnar skuli loksins komin þetta langt enda hafi hún kallað eftir henni í fimm ár. Taldi þetta mikilvægt plagg á ýmsan hátt. Halldóra var með nokkrar spurningar og ábendingar, svo sem um starfsmannaviðtöl og sveigjanlegan vinnutíma. Halldóra sagði hér ekki vera starfandi starfsmannastjóra. Spurði hver ætti að vera með samræmingarþáttinn á hendi. Þá gerði hún auglýsingu starfa að umtalsefni og lagði áherslu á mikilvægi þess að auglýsa störf. Halldóra lagði til eftirfarandi breytingar:
Í fyrstu málsgrein í kaflanum um símenntun og starfsþróun verði eftirfarandi tekið út: „Ákvarðanir um símenntun, aðrar en þær sem eru samningsbundnar við stéttarfélög, eru teknar sameiginlega af viðkomandi starfsmanni og forstöðumanni eða framkvæmdastjóra sviðs.“ og í stað þess komi: „Ákvarðanir um símenntun, aðrar en þær sem eru samningsbundnar við stéttarfélög, eru teknar af viðkomandi forstöðumanni eða framkvæmdastjóra sviðs í samráði við viðkomandi starfsmenn.“
Í aðgerðaáætlun falli niður annar punktur undir liðnum „mikil streita starfsmanna“.
Í aðgerðaráætlun verði liðurinn um ráðningar og starfslok eftirfarandi: „Ganga þarf úr skugga um að nýir starfsmenn fái viðunandi kynningu á nýju starfi og vinnustað en einungis 58,5% starfsmanna voru ánægðir með það hvernig þeir voru kynntir í núverandi starf.
· Útbúa starfslýsingar og útlista mikilvægi þeirra.
o Með því að semja markvissar starfslýsingar fyrir öll störf er stefnt að því að gera hlutverk hvers og eins skýrara á sínum vinnustað.
· Útbúa móttöku- og kveðjuáætlun fyrir starfsmenn.
o Þá er einnig stefnt að því að útbúa móttökuáætlun til þess að tryggja að nýir starfsmenn fái viðunandi kynningu og móttöku á nýjum vinnustað og ná því markmiði að 65% starfsmanna séu ánægðir með það hvernig þeir voru kynntir í núverandi starf.
· Semja verklagsreglur vegna uppsagna starfsmanna sveitarfélagsins.“
Í reglum um endurmenntun/framhaldsnám starfsmanna verði bætt við VIII. grein eftirfarandi: „Við gildistöku á reglum þessum falla úr gildi eldra samkomulag á milli starfsmanna og stofnunar vegna endurmenntunar og framhaldsnáms.“
Sigurlaug fagnaði að starfsmannastefna væri að verða að veruleika. Þakkaði hún öllum starfsmönnum þeirra vinnu. Sagðist ekki sjá annað en að vinnan væri vönduð.
Hjalti þakkaði Halldóru og Sigurlaugu fyrir þeirra innlegg. Þá fór hann yfir ábendingar Halldóru. Sagði hann bæjarstjóra halda utan um flesta þætti starfsmannamála, bæri þar meginábyrgð, í samvinnu við félagsmálstjóra um ýmsa þætti stefnunnar. Sagði hann félagsmálastjóra hafa reynst mjög vel við alla vinnu að starfsmannastefnunni. Hjalti tók undir ýmsar ábendingar um breytingar sem Halldóra lagði til.
Árni sagði að baki starfsmannastefnunni liggi mikil vinna. Fagnaði hann að sett skuli fram mælanleg markmið. Þá velti hann upp hvort kjörnir fulltrúar falli undir siðareglu sem eru hluti starfsmannastefnunnar eða hvort setja þurfi sérstakar siðareglur fyrir kjörna fulltrúa.
Starfsmannastefna sveitarfélagsins ásamt meðfylgjandi reglum og áorðnum breytingum á fundinum borin undir atkvæði í heild sinni og samþykkt samhljóða
4. Reglur um íþrótta- og tómstundakort
Árni fylgdi reglunum úr hlaði og fór yfir málið. Ræddi hann tillögur nefndar um fjölskyldumál þar sem gjaldskrár sem snúa að barnafjölskyldum voru þar til umfjöllunar. Hann sagði tillögur um tómstundakort einkum vera hugsaðar sem hvatning til þeirra sem leggja stund á margvíslegt tómstundastarf. Lagði hann áherslu á að reglurnar nái til sem flestra barna. Lagði hann að lokum til að reglurnar verði samþykktar og komi til framkvæmda 1. janúar 2009.
Halldóra fór yfir málið. Sagðist efins um að tómstundakortið nái til allra. Hættan er sú að þeir tekjulægri nýti síður þennan stuðning vegna kostnaðar við tómstundastarf. Með samþykkt þess fáist hins vegar mikilvægar upplýsingar um tómstundaiðkun og þá um leið hverjir ekki leggja stund á tómstundir sem greiða þarf fyrir. Sagðist hún munu styðja reglurnar og vonaðist til að ef fram kæmi að breyta þurfi reglunum verði það gert jafnvel fyrir næsta haust.
Árni sagði kortið ekki vera eingöngu ætlað þeim sem leggja stund á íþróttir. Þær nái til mun fleiri tómstunda.
Hjalti sagði að teknar hafi verið frá 4,2 millj. vegna verkefnisins sem nái til allra barna á aldrinum 6 til 18 ára. Þá gerði hann að umtalsefni það ástand sem nú er í þjóðfélaginu. Sagði hann okkur þurfa að vera vel á varðbergi vegna þess ástands og hvernig það getur komið niður á fjölskyldum.
Reglur um íþrótta- og tómstundakort bornar undir atkvæði og þær samþykktar samhljóða.
5. Fyrirspurnir
Engar fyrirspurnir hafa borist.
Fundi slitið kl. 18.15


