Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarrstjórnar 136
136. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 6. nóvember 2008, kl. 16:00 í Nýheimum.
Mætt voru: Reynir Arnarson, forseti bæjarstjórnar, Árni Rúnar Þorvaldsson, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðrún Ingimundardóttir, Halldóra B. Jónsdóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir framkvstj. fjármálasviðs, Stefán Ólafsson framkvstj. fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvstj. tækni- og umhverfissviðs.
Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar, 435. fundur, 9. október 2008.
Árni ræddi fundargerð starfshóps um skólamál og það sem fram kom þar. Einnig vitnaði hann til samþykktar bæjarráðs og skólanefndar um flutning á kennslu nemenda í 1. – 3. á Höfn. Lagði hann áherslu á samráð og samstarf við starfsfólk skólanna, foreldra og nemendur vegna þessa máls. Þá ítrekaði hann að fyrirhugaður flutningur verði ekki til þess að starfsfólk missi atvinnu.
Elín bar upp tillögu að eftirfarandi bókun um skólamál:
Það skólahúsnæði sem grunnskólinn nýtir í dag er mun stærra en það húsnæði sem þarf til að kenna um 320 börnum. Að mati sveitarstjórnar er óhjákvæmilegt að bregðast við þessari stöðu með því að færa alla kennslu í Grunnskóla Hornafjarðar á Höfn. Ekki aðeins næst veruleg hagræðing í rekstri skólans bæði skólahúsnæði og skólaakstri heldur er verið að bregðast við kalli skólasamfélagsins sem almennt telur þennan flutning skref í rétta átt fyrir innra starf skólans.
Með þessari breytingu verður lögð áhersla á að búa skólana sem best til að sinna sínu hlutverki. Því eru áform um verulegar endurbætur og breytingar á því húsnæði Grunnskóla Hornafjarðar sem hýsir miðstig skólans, Tónskóla Hornafjarðar og áskólalóð grunnskólans. Það er skoðun þeirra sem vinna að skólamálum að þessi breyting á skólahaldi muni skila sér í öflugra skólastarfi sem verði bæði nemendum og samfélaginu öllu til hagsbóta.
Bæjarstjórn bendir einnig á að nú þegar hefur bæjarráð, skólanefnd og starfshópur um skólamál fjallað um málið og komist að þeirri niðurstöðu að stefna eigi að því að allt skólahald Grunnskóla Hornafjarðar verði flutt í húsnæði grunnskólans á Höfn næsta vetur.
Í ljósi alls framangreindra atriða er bæjarstjórn Hornafjarðar sammála um að allt skólahald Grunnskóla Hornafjarðar flytjist til Hafnar fyrir skólaárið 2009 - 2010.
Bæjarstjórn Hornafjarðar leggur áherslu á að flutningur skólahalds úr Nesjum leiði ekki til þess að starfsmenn Grunnskóla Hornafjarðar missi störf sín á vegum sveitarfélagsins. Ekki er þó hægt að tryggja að allir starfsmenn geti gengið að sambærilegum störfum eftir flutninginn en bæjarstjórn leggur áherslu á að samið verði við þá. Sveitarfélagið er þó hér eftir sem hingað til bundið af reglum um ráðningar kennara og gildandi kjarasamningum.
Halldóra sagði að engar fundargerðir fastanefnda hafi verið til umræðu á þessum fundi bæjarráðs, einungis fundargerðir starfsnefnda. Sagði hún að fundargerðir nefnda gefi íbúum upplýsingar um hvað fram fer. Lagði hún til að þessar fundargerðir fari einnig á heimasíðu sveitarfélagsins. Óskaði hún eftir umræðu um þetta mál og að greidd verði um það atkvæði. Halldóra sagði að nú væru tveir starfshópar að fjalla um skólamál. Þá rakti hún ýmsar ákvarðanir sem teknar hafi verið í skólamálum og húsnæði því tengt allt frá samþykkt skólastefnu í janúar 2007. Fannst henni að það skorti heildstæða sýn í þessum málaflokki. Einnig ræddi hún stjórnskipulag skólanna og benti á fyrri tillögur sjálfstæðismanna um þau mál. Sagði hún meirihlutann gjarnan fara í þann farveg sem sjálfstæðismenn hafi lagt til. Sagði hún að sjálfstæðismenn geti tekið undir framangreinda bókun með ákveðnum breytingum á síðasta hluta bókunarinnar sem hún tiltók. Þá sagði hún að þessi flutningur hafi legið í loftinu eftir sölu á húsnæði Nesjaskóla. Þá ræddi hún fyrirhugaða skiptingu milli skólahúsa og lagði áherslu á að 7. bekkur verði til húsa í Hafnarskóla en verði ekki fluttur. Krakkanna vegna væri það besti kosturinn. Þetta væri viðkvæmur aldur. Ræddi hún leiðir sem auðveldað gætu þetta fyrirkomulag svo sem að nýta húsnæði leikskóla í þessu sambandi og um leið samstarf þessara skólastiga.
Árni fagnaði umræðu um þennan mikilvæga málaflokk. Hann sagðist ekki geta fallist alveg á að tveir hópar séu að fjalla um skólamál. Nefnd um húsnæðismál hafi nú þegar lokið sinni vinnu um húsnæði grunnskólanna. Hann sagði það rétt vera að margir starfshópar væru að störfum en það sýndi hve fjölbreytt vinna sé í gangi á vegum sveitarfélagsins sem margir kæmu að. Hann sagðist taka undir með Halldóru að fundargerðir starfshópa verði aðgengilegar á vef sveitarfélagsins. Þá sagðist hann geta fallist á hluta af breytingartillögu Halldóru vegna bókunar um skólamál. Hann benti á hvers vegna hann vildi ekki breyta seinni hluta bókunarinnar og vitnaði í því sambandi til lögverndunarlaga um starf kennara. Niðurlag tillögu að bókun byggðist á þeim lögum.
Björn Ingi benti á fyrri aðkomu sína að þessu máli í bæjarráð og varðar framangreinda tillögu að bókun.
Sigurlaug sagði að við værum heppin að vera komin af stað með þennan þátt skólamála í ljósi atburða síðustu vikna í þjóðfélaginu. Þá ræddi hún starfshópa sem opnuðu aðkomu fleiri aðila að mörgum málum. Þá sagði hún að tillögur Halldóru um breytingu á bókuninni gætu gengið upp og færði fyrir því rök.
Hjalti sagði að það giltu ákveðin lög um ráðningu kennara og það þurfi að hafa í huga við þessa bókun. Hann ræddi söluna á Nesjaskóla og í því sambandi þann samning sem var við Hótel Eddu. Hann ræddi fækkun nemenda sem útlit væri að héldi áfram og við því þyrfti að bregðast. Einnig ræddi hann mikilvægi þeirrar atvinnustarfsemi sem fram fer í Nesjaskóla. Salan á Nesjaskóla hafi verið góð ákvörðun. Sveitarfélagið hafi fengið fé fyrir söluna og til framtíðar minni rekstrarkostnað og viðhaldskostnað. Þá ræddi hann um stöðu 7. bekkjar og að leysa þurfi það mál í samstarfi við foreldra og starfsfólk skólanna. Einnig ræddi hann samstarf leik- og grunnskóla. Beindi hann því til starfshóps um skólamál að seinka ekki færslu leikskólabarna sem eru að ljúka því skólastigi í grunnskóla til að skapa rými til þess að 7. bekkur geti verið í Hafnarskóla. Þá ræddi hann starfshópana og hlutverk þeirra. Hjalti sagðist ekki hafa séð fyrir að þær breytingar sem nú eru í farvatninu í skólamálum myndu gerast jafn hratt og raun ber vitni. Hann fjallaði um stjórnfyrirkomulag skólanna sem hlytu að taka breytingum með flutningnum úr Nesjum. Hjalti sagðist taka undir tillögu um að birta fundargerðir starfshópa á heimasíðu sveitarfélagsins.
Árni taldi mikilvægt að halda inni því sem fram kemur í niðurlagi bókunarinnar með ákveðnum breytingum þó.
Sigurlaug benti á orðalag í tillögu að bókun og óskaði eftir að reglum breytist í lögum.
Halldóra lagði til að gert verði örstutt hlé. Vitnaði síðan til orða bæjarstjóra og sagði okkur vera bundin að lögum og reglum almennt. Með því að tiltaka eina ákveðna stétt væri verið að mismuna starfsfólki. Hún fagnaði því að bæjarfulltrúar tækju undir það að fundargerðir starfshópa færu á heimasíðu. Íbúar ættu rétt á upplýsingum sem þar koma fram. Halldóra ræddi skipan starfshópa til að sinna ákveðnum verkum. Hún sagði að virkni nefnda réðist mikið af formennsku í nefndum. Sagði í því sambandi að eðlilegra hefði verið að byggingar- og skipulagsnefnd fjallaði um breytingar á aðalskipulagi fremur en starfshópur. Þá ræddi hún þjónustusamning um heilbrigðis- og öldrunarmál og lagði í því sambandi áherslu á að menn stilltu saman strengi til að ljúka því máli.
Hjalti sagði að allir ættu að fá að fylgjast með því sem fram fer á vegum sveitarfélagsins. Hann sagði þann hóp sem endurskoða á aðalskipulagið vera vel skipaðan. Þá sagðist hann ekki vera bjartsýnn að ná niðurstöðu í samning um heilbrigðis- og öldrunarmál á næstunni og vitnaði m.a til þess ástands sem er í þjóðfélaginu.
Árni ræddi tillögu að bókun og hvatti til að tekið verði fundarhlé til að klára hana.
Elín las upp tillögu að breytingu á þeirri bókun sem er til umfjöllunar:
Ekki er þó hægt að tryggja að allir starfsmenn geti gengið að sambærilegum störfum eftir flutninginn. Sveitarfélagið er þó hér eftir sem hingað til bundið af lögum, reglum og gildandi kjarasamningum allra starfsmanna grunnskóla.
Tillaga að bókun um skólamál borin undir atkvæði með framangreindum breytingum á síðustu efnisgrein: Tillagan samþykkt samhljóða með öllum greiddum atkvæðum
Fundargerð samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Hornafjarðar, 436. fundur, 20. október 2008.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Hornafjarðar 437. fundur, 28. október 2008.
Guðrún ræddi áform Lyfjastofnunar um breytingar á útibúi Lyfju á Hornafirði og bar upp tillögu að eftirfarandi bókun: Undanfarna mánuði hefur framtíð lyfjaútibús Lyfju á Hornafirði verið í uppnámi. Lyfjastofnun mælti með því í bréfi, dags. 27. maí 2008, að starfsemi útibúsins verði breytt.
Bæjarstjórn Hornafjarðar leggur hins vegar áherslu á að starfsemin verði óbreytt og veitt verði undanþága til rekstur lyfjaútibús 2 til þriggja ára eins og það er skilgreint í reglugerð um lyfsöluleyfi og lyfjabúðir nr. 426/1997. Bæjarstjórn Hornafjarðar telur að útibúið uppfylli öll þau skilyrði sem fram koma í 68. grein reglugerðarinnar.
Bæjarstjórn Hornafjarðar bendir á að starfsemi útibúsins hefur verið hnökralaus og engar málefnalegar ástæður eru fyrir því að endurskoða fyrirkomulag lyfsölu á staðnum. Sýnt hefur verið fram á örugga afgreiðslu lyfja úr útibúinu.
Árni ræddi hringveg um Hornafjarðarfljót. Fjallaði hann um nauðsynlega vinnu við aðalskipulag sem snertir þetta mál með áherslu á leið 3.
Björn Ingi ræddi hringveg 1 og sagði að allir þurfi að ýta á þetta mál. Vinna við þann veg kallaði ekki á mikið útstreymi gjaldeyris eins og t.d. vinna við jarðgöng geri.
Reynir sagðist leyfa sér að taka undir þessi orð Björns Inga.
Halldóra ræddi einnig hringveg 1 og sagðist sammála því að þrýsta þurfi á um þessa framkvæmd. Þá vitnaði hún til bókunar í bæjarráði um vinnu starfsmanna og byggingar- og skipulagsnefndar um þetta mál á sama tíma og starfshópur hafi verið skipaður til að fjalla um aðalskipulag. Hún sagði sjálfstæðismenn allan tímann hafa verið því sammála að selja skólahúsnæði í Nesjum. Hún sagði áform um breytingar á útibúi Lyfju vera verulegt áhyggjuefni. Hún sagðist reyna að gera allt sem hún gæti til að koma í veg fyrir lokun útibúsins og til þess verðum við að leita allra ráða. Taldi hún þetta mál meðal annars snerta kjarabaráttu lyfjafræðinga. Sagði hún að breyta þurfi lögum og reglugerðum sem heimili rekstur útibúa sem þessa. Fram að því þurfi að fá ákv. undanþágu til rekstrarins.
Sigurlaug ræddi hringveg 1 og sagði ekki skipta máli hvaða starfshópur eða nefnd skuli fjalla um málið. Mestu máli skipti að unnið verði hratt að þessu mikilvæga máli sem snerti bæði samgöngur og atvinnu á svæðinu næstu mánuði og misseri. Því þurfi að klára þetta mál skjótt. Þá ræddi hún óljósa framtíð efnahags- og þjóðmála og að við þurfum öll að hugsa málin upp á nýtt vegna ástandsins. Hún ræddi og útibú Lyfju og mikilvægi þess.
Árni tók undir orð Björns Inga um hringveg 1 um Hornafjarðarfljót. Þá ræddi hann það sem hann kallaði „þema fundarins” um skipan starfshópa. Sagði að honum fyndist málflutningur sjálfstæðismanna oft vera misvísandi þegar kæmi að málsmeðferð og hvort skipa eigi starfshópa eða ekki.
Halldóra sagðist ekki hafa lagt til hér á fundinum að umræðan um hringveg 1 færi fyrir starfshóp um aðalskipulag. Þá ræddi hún starfsemi Lyfju og lagði áherslu á að ekkert kallaði á að breyta þurfi núverandi fyrirkomulagi og starfsmannahaldi. Þá ræddi hún samninga um heilbrigðismál og það sem hún fyndi í bókunum nefnda og ráða sveitarfélagsins um það mál og þá hverjir hafi setið hina ýmsu fundi. Halldóra lagði áherslu á að heimamenn næðu saman um málið og leiddu þá vinnu.
Reynir ræddi hringveg 1, tillögu að meðferð málsins í bæjarráði og þann farveg sem það er í hjá sveitarfélaginu, þ.e. í byggingar- og skipulagsnefnd.
Hjalti sagði góða samstöðu hafa verið um sölu Nesjaskóla hjá öllum framboðum í bæjarstjórn. Þá ræddi hann starfsemi útibús Lyfju og hnökralausa afgreiðslu þess. Benti á undanþáguákvæði í reglum sem snúa að rekstri lyfjaverslana í því sambandi. Hann sagði fjölmarga hafa komið að þjónustusamningi um heilbrigðismál eins og upptalning Halldóru sýndi. Hann sagði að fyrir rest tækist að loka þessum samningi.
Tillaga að bókun vegna lyfjaútibús Lyfju á Hornafirði borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Hornafjarðar, 438. fundur 3. nóvember 2008, fundargerð send út í tölvupósti að fundi loknum.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
Bæjarstjórn Hornafjarðar 135. fundur 2. október 2008 september 2008, fundargerð áður samþykkt.
2. Atvinnurannsóknarsjóður Hornafjarðar – samþykktir og úthlutunarreglur
- fyrri umræða
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Sagði hann sjóðinn vera jákvæð skilaboð út í samfélagið á þessum tíma. Lagði hann til að þessar úthlutunarreglur verði sendar til umsagnar stofnana sem aðsetur hafa í Nýheimum.
Reynir lagði áherslu á aðkomu ríkisvaldsins að sjóðnum með framlagi af sínum hluta af söluhagnaði af Nesjaskóla.
Sigurlaug sagði sjóðinn geta verið mikilvægan til að koma verkefnum að stað. Einnig til að koma að stað samstarfi á milli fyrirtækja og þekkingarsamfélagsins. Þá vakti hún athygli á ráðstefnu um atvinnumál sem tengist málefnum þjóðgarðsins og haldinn verði í Nýheimum á morgun (7. nóv.).
Björn Ingi fagnaði að menn ætli að halda sínu striki með sjóðinn og lagði áherslu á aðkomu ríkisvaldsins að honum.
Björn Ingi kom aftur upp ræddi 5. gr. samningsins og benti á atriði sem honum fannst ástæða til að bæta við reglurnar.
Samþykkt samhljóða að vísa reglunum til annarrar umræðu í bæjarstjórn.
3. Staðan í þjóðabúskapnum og áhrif hennar á Hornafirði
Hjalti fylgdi umræðum úr hlaði og ræddi efnahagsástandið og horfur á Hornafirði. Sagði hann að undanfarinn áratug hafi verið klifað á að eitt mesta góðæri íslenskrar sögu hafi staðið yfir. Það hafi reynst rangt og í ljós komið að íslenska þjóðin hafi tekið það út með skuldsetningu. Sagði hann að neysluæði síðustu ára hafi ekki verið eins öfgafullt hér á Hornafirði og timburmennirnir yrðu hér því minni. Hann sagði skiljanlegt að mikil reiði brjótist út meðal alls almennings á ástandinu. Hjalti sagði eitt það allra mikilvægasta við þessar aðstæður að finna reiði almennings farveg en gæta þess að láta reiðina ekki stjórna ferðinni því við munum aldrei ná að byggja upp þjóðfélagið með reiðina í aftursætinu.
Hjalti sagði deginum ljósara að þessi djúpa efnahags- og gjaldeyriskreppa berði hér að dyrum sem annar staðar. Ekki væri enn ljóst hvar skorið verði niður í ríkisfjármálum á næstu árum. Hann sagði starfsemi ríkisins hér nokkuð víðtæka og að þær upplýsingar sem hann hafi úr stjórnarráðinu segðu að allt væri undir og ekkert öruggt þessa dagana. Hjalti sagði að áhrifanna gætti hér líka á fyrirtæki. Útflytjendur finni fyrir erfiðleikum í gjaldeyrisviðskiptum. Vegna gengisþróunar hafa mörg lán hækkað mikið sem kæmi bæði stórum og smáum fyrirtækjum illa. Því væri ekki útilokað að grípa þurfi til uppsagna eða annarrar hagræðingar til að vega upp á móti hærri rekstrarkostnaði. Taldi hann hér verði ekki stórkostlegar uppsagnir og sagði að 4. nóvember sl. hafi sex manns verið á atvinnuleysisskrá. Og þó að málið væri honum skylt væri það deginum ljósara að styrkur Skinneyjar Þinganess væri styrkur samfélagsins hér á Hornafirði. Fjölbreytni í útgerða og öflug vinnsla haldi hér uppi hundruðum starfa auk afleiddra starfa. Samkvæmt hans upplýsingum ætti fyrirtækið eftir að standa af sér þennan óróa. Hjalti sagði að landbúnaðurinn hafi ekki áður fengið jafn sterk vopn í hina pólitísku baráttu sína við að tryggja viðgang og vöxt greinarinnar en á síðustu dögum. Það hafi komið vel í ljós í á síðustu vikum hversu mikilvæg greinin er til að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar. Það væri hins vegar bagalegt hversu rekstrarafkoma bænda væri slæm. Hann sagði að ferðaþjónustuaðilar beri sig vel í samtölum við hann en þar ríki óvissa um hversu mikið ímynd Íslands hefur skaðast og hvort efnahagshrunið í hinum vestræna heimi hafi afgerandi áhrif á ferðalög til Íslands. Eins ræddi hann um stöðu iðnaðarmanna og sagði verkefnastöðu þeirra allgóða. Hjalti sagði að það styrkti samfélagið mjög í komandi árferði hversu sveitarsjóður stæði sterkt um þessar mundir. Hann ítrekaði að allar innistæður sveitarsjóðs, alls um 700 m.kr., væru á bankareikningum hjá hinum nýja Landsbanka Íslands. Sagðist hann vilja þakka sérstaklega framkvæmdastjórum sveitarfélagsins fyrir árvekni þeirra og útsjónarsemi við að varðveita þessar gríðarlegu eignir sveitarfélagsins. Hjalti að ákveðið hefði verið hægt á vinnu við fjárhagsáætlunargerð sveitarfélagsins fyrir árið 2009 og bíða eftir nýrri þjóðhagsspá. Sagði hann alveg ljóst að ríkisútgjöld dragist saman og framlög Jöfnunarsjóðs til sveitafélagsins minnka. Mjög mikið þyrfti að ganga á áður en sveitasjóður færi að skila tapi þannig að grípa þurfi til meiriháttar hagræðingar og uppsagna sem væri það versta sem gerðist við þessar aðstæður.
Í fyrsta lagi verði það gert með því að endurskoða framkvæmdaáætlun. Í stað þess að ráðast í efnismiklar framkvæmdir verði stefnan frekar tekin á mannaflsfrekar framkvæmdir þannig að verktakar og iðnaðarmenn á Hornafirði þurfi ekki að líða verkefnaskort. Þá verði atvinnuástand á Hornafirði vaktað mjög vel og í samvinnu við Vinnumálastofnun o.fl. fylgst vel með atvinnuleysistölum og brugðist við ef ástandið versnar mjög mikið. Í þriðja lagi væri alveg ljóst að ekki yrði gripið til uppsagna hjá sveitarfélaginu fyrr en allt annað þryti. Í fjórða lagi er unnið að ýmsum verkefnum í atvinnumálum á vettvangi sveitarfélagsins og í samvinnu sveitarfélagsins við hina ýmsu aðila, svo sem viðræður við íslenska aðila um átöppunarverksmiðju fyrir vatn og gagnaver og stefnt að undirritun samstarfssamninga við þessa aðila.
Hjalti sagði það sitt mat að hér á Hornafirði hefðum við alla burði til að standa af okkur þessa efnahagslægð þrátt fyrir vanda í þjóðarbúskapnum.
Árni Rúnar Þorvaldsson tók til máls og ræddi um ástandið í efnahagsmálum. Ræddi hann um að kreppan kæmi fyrst niður á hinu litla Íslandi og hinn litli gjaldmiðill okkar flyti um eins og korktappi í ólgusjó alþjóðlegrar efnahagskreppu. Ræddi hann um einkavæðingu bankanna, lausatök á eftirlit með fjármálastofnunum og að draga þyrfti fólk til ábyrgðar. Árni vék að stöðunni á Hornafirði og lagði áherslu á að bregðast yrði við breyttu ástandi. Nefndi hann hvernig framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins gæti stutt við bakið á smáum verktökum og atvinnulífinu í heild sinni. Sagði hann að sveitarfélög á landinu væru misvel í stakk búin að takast á við ástandið en allir myndu finna fyrir högginu. Árni gerði sterka stöðu sveitarsjóðs að umtalsefni og skuldir væru ekki miklar. Hann lýsti því yfir að hann trúði á að af þeim sökum sigldi samfélagið á Hornafirði lygnari sjó en önnur samfélög á landsbyggðinni þrátt fyrir að hér yrði að sjálfsögðu vart við efnahagskreppuna. Næst ræddi Árni mikilvægi þess að standa vel við velferðarkerfið og að veita þeim sem lentu í greiðsluerfiðleikum sem bestan stuðning. Hann vildi að aðdragandi hrunsins verði rannsakaður og ef lög hafi verið brotið verði viðkomandi að sæta ábyrgð. Að endingu ræddi hann um að stoðir íslenska samfélagsins væru sterkar. Velferðarkerfið, náttúruauðlindir og heilbrigt samfélag væru styrkleikar þess. Hann vildi byggja upp nýtt samfélag á jöfnun tækifærum sem væri grunnstef jafnaðarmanna.
Elín tók til máls og hvatti til þess að erindi sem flutt hafa verið berist víðar en á þennan fund.
Halldóra B. Jónsdóttir tók til máls og tók fram að hún væri ekki með skrifaða ræðu. Hún lýsti yfir áhyggjum af þróun samfélagsins en efaðist um ágæti þess að ræða þetta málefni eins og um eldhúsdagsumræður væri að ræða. Taldi hún að fyrri ræðumenn væru að búa sig undir Alþingiskosningar. Sagðist hún vona að ríkisstjórn myndi ekki springa. Hún vildi ekki dæma neinn til ábyrgðar en sagðist hafa fylgst vel með síðustu atburðum. Ræddi hún um þá aðila sem ræddu um stöðu krónunnar og taldi um ábyrgðarlaust tal væri að ræða meðan menn væru á fullu í slökkvistörfum. Halldóra lagði áherslu á að menn gættu orða sinna og væru ekki að níða niður krónuna. Sagði hún að gjarnan vildi hún hafa sterkari gjaldmiðil en vildi bíða með frekari umræðu um nýja gjaldmiðil og hugsanlega inngöngu í ESB. Sagði hún að nú bíði menn eftir afgreiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og að landið opnist að nýju. Ræddi hún um stýrivexti Seðlabankans og nýlega ákvörðun til að verjast því að fjármagnsflótti ætti sér stað úr landinu. Sagðist hún vera eins og aðrir dolfallin yfir því hvað kæmi upp úr skúffum gömlu bankana og vísaði til nýlegrar fréttar um afskriftir lána Kaupþings til starfsmanna vegna hlutabréfakaupa þeirra. Fannst henni undarlegt að menn gætu fengið lán í sama banka og þeir hygðust kaupa hlutabréf í. Sagði Halldóra að hún vonaði innilega að fyrirtæki hér á Hornafirði myndu standa af sér þennan óróa en minnti á að fyrir skömmu hafi allir talið að bankarnir myndu standa sterkir en síðan hrunið skömmu síðar. Hafði hún áhyggjur af smærri fyrirtækjum sem ættu erfitt með lánafyrirgreiðslu og sagði að það munaði um hvert einasta fyrirtæki, hversu smátt eða stórt það væri. Ræddi hún um að stórir aðilar yrðu að beina viðskiptum sínum til smærri fyrirtækja hér á Hornafirði. Brýndi hún fundarmenn að standa saman til að styðja við fólk og fyrirtæki við að koma samfélaginu hér í gegnum þetta fárviðri.
Sigurlaug tók til máls og lýsti því yfir að mikilvægt væri að vinna að almannaheill en ekki að bjarga skinni fárra útvalda. Taldi hún mikilvægt að menn yrðu dregnir til ábyrgðar en vildi ekki gerast dómari sjálf. Sagði hún að menn yrði að tileinka sér ný gildi sem gengi út á vinna saman.
Árni þakkaði Halldóru fyrir afbrags framboðsræðu. Hann sagði að það kæmi honum á óvart hvað þessi dagskrárliður kæmi mönnum á óvart. Hann sagðist taka undir með Halldóru hvað varðar minni fyrirtæki og áherslu á tilvist þeirra.
Hjalti þakkaði þessa umræðu. Sagðist bera ábyrgð á þessum dagskrárlið. Sagði mikilvægt að hans mati að taka efnahagsmálin til umræðu á þessum vettvangi.
Björn Ingi sagði að mestu máli skipti hvaða skilaboð fari út frá þessum fundi. Að við í þessu sveitarfélagi þurfum að berjast fyrir okkar fólk. Sveitarfélagið standi vel og ætli að gera það áfram. Menn þurfi að sýna að þetta sveitarfélag standi sterkt.
Hjalti sagði Björn Inga komast að kjarna málsins. Við þurfum að vakta okkar samfélag vel. Sagði hins vegar margt enn vera óljóst í efnahagsmálunum.
Reynir kvaðst ánægður með þessa umræðu og sagði hana hafa verið málefnalega.
4. Kosningar
a) Kosning fulltrúa á aðalfund Sambands sveitarfélaga á Suðurlandi
Tillaga um að eftirtaldir fulltrúar sitji aðalfundinn:
Elín Magnúsdóttir af B-lista, Björn Ingi Jónsson og Björk Pálsdóttir af D-lista og Árni Þorvaldsson og Guðrún Ingimundardóttir af S-lista. Auk þeirra sitja fundinn án atkvæðisréttar Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Reynir Arnarson fundinn sem áheyrnarfulltrúar. Til vara verði kjörin Steven Robert Johnson af S-lista, Sigurlaug Gissurardóttir af B-lista og Einar Karsson af D-lista.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
b) Kosning í hafnarstjórn
Páll Guðmundsson af D-lista biðst lausnar frá setu í hafnarstjórn. Tillaga um Valdimar Einarsson sem aðalmann í hans stað. Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
5. Fyrirspurnir
Engar fyrirspurnir hafa borist.
Fundi slitið kl. 19.45


