Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarrstjórnar 134
134. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, þriðjudaginn 16. september 2008, kl. 18:00 í Ráðhúsi.
Mætt voru: Reynir Arnarson forseti bæjarstjórnar, Árni Rúnar Þorvaldsson, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðrún Ingimundardóttir, Halldóra B. Jónsdóttir og Björk Pálsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Deiliskipulag knattleikjahúss.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir athugasemdum Skipulagsstofnunar sem kalla á minni háttar breytingar á deiliskipulagi umrædds svæðis og lagði fram nýjan uppdrátt unninn af Glámu – Kím 05.09.2008 ásamt breytingarlista dags. 05.09.2008:
Halldóra B. Jónsdóttir spurðist fyrir um hversu stór lóð Víkurbraut nr. 5 var og hversu stór hún verði í kjölfar breytingarinnar og einnig spurðist hún fyrir um hvort byggingarreitur bjóði upp á stækkun á knatthúsinu í framtíðinni. Hjalti gerði grein fyrir því að lóð nr. 5 við Víkurbraut hafi verið 3100 m² en verði 2655 m². Einnig gerði hann grein fyrir því að ekki hafi verið gert ráð fyrir stækkun á húsinu þar sem það kallaði meðal annars á breyttar undirstöður.
Halldóra B. Jónsdóttir taldi að taka þyrfti fyrirhugaða veglínu milli Bugðuleiru og Bogaslóðar út af aðalskipulagi. Jafnframt spurðist hún fyrir um meint sig á frjálsíþróttavelli og skýringar á siginu. Í framhaldinu spurðist hún fyrir um grundun fyrirhugaðs knattleikjahúss og lýsti yfir áhyggjum af grundun hússins. Hjalti tók undir áhyggjur af grundun knatthússins og gerði grein fyrir fyrirhugaðri grundun þess þar sem áætlað er að grafa niður að svokölluðu núllagi fyrir sökklum en fergja með yfirhæð fyrir gervigras. Halldóra B. Jónsdóttir benti á að ráðgjöf grundunnar sundlaugar hafi ekki verið nægjanlega góð og taldi mikilvægt að gætt verði sérstaklega að grundun knattspyrnuhússins og benti á að grunda mætti húsið á staurum. Reynir tók undir orð Halldóru.
Lögð fram eftirfarandi bókun:
“Við gerð deiliskipulagstillögu varð sú yfirsjón að ekki var tekið tillit til ákvarðana í aðalskipulagi, um að vegstæði sé áætlað milli Víkurbrautar og Bogaslóðar, og að mót Álaugarvegar og Víkurbrautar verði teygð yfir hluta lóðarinnar Víkurbrautar 5.
Til að leiðrétta þessa yfirsjón leggur Bæjarstjórn Hornafjarðar til að minniháttar breytingar verði gerðar á deiliskipulagstillögunni er snúa að legu göngustígs, trjágróðri á lóð, minnkun lóðar við Víkurbraut 5 og afmörkun deiliskipulagsreits að litlu leyti. Bæjarstjórn leggur því til að:
? Lega gangstígs norðan knatthúss verði breytt lítillega.
? Trjágróðri við knatthús verði breytt og staðsetning hans verði ekki bindandi.
? Afmörkun deiliskipulags verði breytt þannig að það verði sniðið neðan tengibrautar milli Bugðuleiru og Bogaslóðar sem gert er ráð fyrir í aðalskipulagi en er ekki áformuð nú um stundir. Einnig var ramminn dreginn utan um alla lóð verkstæðishússins sem fellur niður.
? Lóð nr. 5 við Víkurbraut verði minnkuð til þess að verða megi af tilfærslu Víkurbrautar (stofnbraut) eins og gert er ráð fyrir í Aðalskipulagi.
Engar þær framkvæmdir sem heimilaðar eru / verða skv. umræddu deiliskipulagi hafa áhrif á áhrifasvæði fyrrgreindra vega, þó svo sú villa hafi verið gerð að deiliskipulagssvæði og lóðamörk hafi innlimað vegstæðin að hluta.
Lóðarhafar Víkurbrautar 5 fallast á að mörkum lóðar þeirrar verði breytt. Það er hægt að gera svo að fullu sé vikið fyrir hugsanlegum vegalögnum skv. aðalskipulagi, án þess að hnika nokkru sem lýtur að eiginlegum framkvæmdum þeim sem deiliskipulagið fjallar um. Af þeim sökum munu breytingarnar, sem hér eru lagðar til, hvorki breyta forsendum athugasemda íbúa í nágrenninu né svörum bæjarstjórnar við athugasemdunum.
Með þessu er ekki verið að taka ákvörðun um þær veglínur sem Skipulagsstofnun vísar til í athugasemdum dagsettum 3. september 2008 enda er ekki verið að fjalla um veglínurnar að öðru leyti en að bregðast við mistökum við gerð deiliskipulagsuppdráttar sem hefðu getað hindrað framgang þeirra í framtíðinni. Með þessum breytingum er því lega þeirra tryggð ef ákveðið verður að leggja þessa vegi í framtíðinni.
Bæjarstjórn Hornafjarðar muna fara þess á leit að umræddir vegir verði endurskoðaðar í nýju aðalskipulagi en vinna við það stendur yfir.”
Í ljósi ábendinga Skipulagsstofnunar um útlit hússins mælir Bæjarstjórn Hornafjarðar með því að tekið verði fram við gerð útboðsgagna um knattspyrnuhús að húsið skuli hafa bogaþak og vera í ljósum lit.”
Framlagður breytingarlisti og bókun ásamt uppdrætti unnum af Glámu – Kím dagsettum 05.09.2008 borin upp til samþykkis.
Samþykkt samhljóða og starfmönnum falið að senda deiliskipulagstillöguna til Skipulagsstofnunar til samþykkis.
Fundi slitið kl. 18:40


