Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarrstjórnar 133
Fundur 133
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 4. september 2008, kl. 16:00 í Nýheimum.
Mætt voru: Reynir Arnarson forseti bæjarstjórnar, Árni Rúnar Þorvaldsson, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðrún Ingimundardóttir, Halldóra B. Jónsdóttir og Björk Pálsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar, 429. fundur, 18. ágúst 2008.
Björk spurðist fyrir um reglur á úthlutun byggingarlóða, um hvort sótt hafi verið um lóðir á Leirusvæði og einnig hvort áform séu um frístundabyggð.
Guðrún gerði að umræðuefni hámarkshraða í þéttbýlinu og hvar þau mál væru stödd.
Árni þakkaði Björk og Guðrúnu að vekja máls á þessum málum. Árni fór yfir hvað liði endurskoðun á hámarkshraða í þéttbýlinu og þeirri vinnu sem fram hefur farið í byggingar- og skipulagsnefnd og hjá sérfræðingum. Leitað hafi verið til VGK Hönnunar (nú Mannvit) sem skilað hefur skýrslu um hraða og hraðatakmarkandi aðgerðir í þéttbýlinu. Sagði hann sérfræðing um þessi mál vera væntanlegan í næstu viku hingað austur. Árni ræddi frístundabyggð og sagði það ekki hafa verið í forgangi á kjörtímabilinu. Taldi rétt að það ætti að vera hluti af vinnu við nýtt aðalskipulag. Einnig ræddi hann lóðamál á Leirusvæði.
Halldóra spurðist fyrir um skýrslu um umferðahraða og hvort henni hafa veri dreift í bæjarráði og sagði erfitt að taka þátt umræðu þegar gögn lægju ekki fyrir Þá ræddi hún um gagnaver, sbr. liðinn önnur mál í fundargerð bæjarráðs. Sagði hún athugun og vinnu við gagnaver hafa verið í gangi um nokkurt skeið. Hvatti hún bæjaryfirvöld til að vera í samstarfi við þá sem eru að skoða þessi mál og vinna með þeim sem eru að skoða möguleika á gagnaveri á okkar svæði. Sagði hún slík gagnaver mjög orkufrek sem gæti takmarkað stærð. Hins vegar væri nægt landrými og vatn til kælingar til staðar. Halldóra ræddi reglur um sí- og endurmenntun starfsmanna. Sagði hún að blandað væri inn í þessar reglur ákvæðum um framhaldsnám. Taldi hún að það þurfi að koma fram í þessum reglum munur á þessu tvennu og skýra nánar. Benti hún og á ýmis önnur atriði sem skýra þurfi betur í reglunum. Minnti m.a. á jafnræðisregluna í því sambandi.Reynir sagði það hafa verið sína meiningu með gagnaverum að hreyfa við þeirri umræðu.
Hjalti þakkaði Halldóru fyrir að vekja máls á þessum tveimur málum. Hann sagðist taka undir allt sem hún hafi sagt um gagnaver og lagði áherslu á frumkvæði einstaklinganna og að þeir leiði atvinnulífið. Því fagnaði hann því ef einstaklingar séu að vinna að þessum málum. Einnig greindi hann frá samskiptum sínum við iðnaðarráðuneytið o.fl. vegna þessa máls. Hjalti ræddi einnig um sí- og endurmenntun. Þakkaði ábendingar Halldóru. Hann sagði okkur hafa skort reglur um þessi mál, gagnsæjar og um leið reglur gættu jafnræðis meðal starfsmanna. Hjalti sagði þessi mál vera í ágætis farvegi og ver til skoðunar hjá nefndum, starfsmönnum og trúnaðarmönnum á vinnustöðum sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Hornafjarðar, 430. fundur, 25. ágúst 2008.
Guðrún ræddi yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um öldrunarmál og byggingar fyrir þá þjónustu og um leið þá þjónustu sem veitt er hér. Þessari yfirlýsingu hafi verið mótmælt af heilbrigðis- og öldrunarráði og bæjarráði. Þá ræddi hún um þjónustusamning um öldrunarmál og mikilvægi þess að ljúka honum.
Björk ræddi yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um uppbyggingu hjúkrunarrýma. Því hafi komið á óvart að Hornafjörður hafi ekki verið þar á blaði. Einnig ræddi Björk um greiðslur ríkisins til HSSA og spurðist fyrir um þjónustusamninginn, hvar hann væri staddur. Einnig spurðist hún fyrir um hvernig menn ætluðu að láta rekstur HSSA ná endum saman á árinu.
Árni lýsti yfir ánægju með umræðu um gagnaver og atvinnumál og sagði sveitarfélagið vilja vinna með þeim sem væru að vinna að þessum málum. Hann sagði bókun bæjarráðs á 430. fundi hafa verið setta fram sem hvatningu til stjórnvalda og til minna á kosti okkar svæðis þegar kæmi að byggingu gagnavers. Hann sagði það ekki verða eitt af hlutverkum sveitarfélagsins að reka gagnaver en mikilvægt að sveitarfélagið vekti athygli á þessum málum. Einnig ræddi Árni um vatnsútflutning og væntanlega skýrslu frá útibúi Iðntæknistofnunar um þau mál. Þá þakkaði Árni forseta bæjarstjórnar fyrir að hafa vakið máls á gagnaverum á 429. fundi bæjarráðs.
Hjalti ræddi heilbrigðismálin. Sagði það ekki vera neina óskastöðu að vera að reyna að ná samningum við ríkið í tvö ár. Hann sagði það hafa verið rétt að í upphafi sumars hafi litið út fyrir að samningar væru að nást. Hins vegar væri staðan sú að heilbrigðisráðuneytið og félagsmálaráðuneytið hafi ekki komið sér saman um hlutverk ráðuneytanna þeim málaflokkum sem þessi ráðuneyti bera ábyrgð á og snerta rekstur HSSA. Hjalti sagði það átak að ná endum saman. Minnti á gengisbreytingar og verðlagsbreytingar. Taldi hann HSSA ekki vera einu stofnunina á landinu sem þyrfti að ná fram leiðréttingum vegna þessa. Hjalti sagði að ekki hafi verið fundað af hálfu bæjarráðs um þjónustusamninginn enda væru engar forsendur til þess meðan ríkið fáist ekki að samningaborðinu.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Hornafjarðar, 431. fundur, 1. september 2008 – fundargerð send út í tölvupósti að fundi loknum.
Árni ræddi fundargerð skólanefndar sem og bókun nefndarinnar vegna skólamála. Hann minnti á ummæli sín á síðasta fundi bæjarstjórnar þar sem hann fjallaði um skólamál og hugsanlegar breytingar á þeim. Gerði hann að umtalsefni mikla fækkun nemenda. Einnig fjallaði hann um sameiningu skólanna þriggja í eina stofnun og síðan sölu á húsnæði Nesjaskóla. Hann sagði það ekki vera gott að reka lengi skólann í óbreyttri mynd. Lagði hann áherslu á ríkt samráð við þá sem málið snerti. Hann fjallaði um húsnæðisþáttinn og taldi hann ekki eiga að trufla flutning alls skólastarfs Grunnskóla Hornafjarðar á Höfn. Þá ræddi hann skipan 6 manna starfshóps um skólamál. Hann sagði að það biði mikil vinna fyrir þennan starfshóp. Árni sagði gríðarlega mikilvægt að samstarf við alla aðila verði gott og að sátt náist um þá lendingu sem stefnt yrði að. Einnig ræddi hann stjórn grunnskólans og þær breytingar sem samþykktar voru í upphafi árs 2007. Taldi hann eðlilegt að umræður um stjórnunarþáttinn mundu aftur fara af stað ef að breytingum verði. Einnig ræddi Árni þær breytingar sem gerðar voru í skólamálum upp úr miðjum síðasta áratug og leiddu á sínum tíma til skiptra skoðana og deilna. Einnig ræddi hann skipan stjórnar skólanna þriggja þar sem voru skólastjóri og aðstoðarskólastjóri í hverjum skóla. Miðað við þágildandi lög hafi ekki þurft að vera með aðstoðarskólastjóra í Nesjaskóla og Heppuskóla. Það hafi verið pólitísk ákvörðun að skipa málum með þeim hætti. Þá sagði Árni sameiningu skólanna í einn skóla hafa verið góða ákvörðun. Einnig gerði Árni að umtalsefni samþykkt stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga þar sem Sveitarfélaginu Hornafirði er boðin aðild að samtökunum. Fagnaði hann þeirri niðurstöðu.
Halldóra sagðist hafa ætlað að vera spör á umræðu um þessa fundargerð. Sagðist þó ekki geta annað, eftir orð Árna, að taka til máls. Fannst henni það broslegt að hlusta á rök Árna fyrir breytingum, rök sem hún hafi bent á fyrir tveimur árum. Hún ræddi skipan starfshóps sem hún hafði efasemdir um að væri nauðsynlegt að gera en gerði ekki athugasemdir við þá skipan mála. Einnig ræddi hún leikskólann þar sem mikil fækkun hafi einnig orðið. Þá fór Halldóra yfir breytingar á síðasta áratug og þeirri hagræðingu sem þá hafi náðst fram. Halldóra taldi það ekki vera sambærilegt hvað varðar stjórnunarþáttinn og það sem gert var á síðast áratug og það sem samþykkt var fyrir tveimur árum. Þá ræddi Halldóra skil milli skólastiga og taldi að nefndin ætti einnig að fjalla um þau. Hún sagðist taka undir það að flutt verði úr Nesjum með þrjá yngstu árgangana næsta haust. Því þurfi að vinna hratt og niðurstöður að liggja fyrir innan þriggja mánaða.
Sigurlaug tók undir orða Árna um aðild að SASS. Sigurlaug sagðist hafa tekið þátt i þeim breytingum sem gerðar voru á skipan skólamála á síðasta áratug. Þá hafi ekki allir verið ánægðir en meiri- og minnihluti bæjarstjórnar hafi sem betur fer verið sammála um breytingarnar á þeim tíma sem hafi skipt miklu fyrir framgang málsins. Þá ræddi Sigurlaug breytingar í skólamálum undanfarna áratugi. Benti m.a. á að heimavistir væru ekki til staðar og gætti eftirsjár í orðum hennar. Þá ræddi hún sameiningu sveitarfélaganna og breytingar í skólamálum í kjölfarið. Breytingar sem orðið hafa á skólakerfinu taldi hún vera eðlilega þróun. Sigurlaug ræddi um þá hagræðingu sem næðist í skólaakstri með flutningi yngstu árganganna. Þá ræddi hún akstur út í dreifbýlið og viðbótarakstur síðdegis vegna félags- og íþróttaiðkunar barna að loknum skóladegi. Taldi hún að nú skapaðist tækifæri að bæta þar úr með hagræðingu í öðrum skólaakstri.
Elín ræddi orð Halldóru um að undirtektir hafi verið misjafnar á síðasta fundi bæjarstjórnar við orð hennar og gaf skýringar á því. Elín ræddi húsnæði leikskólanna og sagði húsnæði Lönguhóla [þurfa lagfæringa við] og minnti í því sambandi á ný lög um leikskóla. Vitnaði hún til 12. greinar nýrra laga og þeirra ákvæða sem þar eru um húsnæði leikskóla og til 21. greinar laganna þar sem fjallað er um sérfræðiþjónustu leikskóla. Miðað við það sem þar kemur fram væri ýmislegt sem laga þyrfti að Lönguhólum, svo sem starfsmannaaðstöðu, sérfræðiþjónustu, sérkennslu, hljóðvist, húsbúnað fyrir börn og starfsmenn. Elín hvatti alla sem eru í salnum að koma upp í Lönguhóla og vera þar eins og einn dag til að kynna sér aðstæður. Þá óskaði hún sér þess að menn kynntu sér málin áður en menn ræddu mál sem þeir hefðu ekki kynnt sér.
Árni þakkaði málefnalegar og góðar umræður um skólamál. Árni sagðist ekki geta fallist á að ákvörðun hafi verið tekin um breytingar á skipan skólamála, það væri ekki rétt.
hjalti taldi starfshópinn sem fara á með skólamálin hafa ágætt vegarnesti til að vinna úr. Hann sagði að við þurfum að vera opin fyrir öllum hugmyndum. Ef vel tekst til í þessari vinnu ætti allt skólastarf að vera komið á Höfn næsta haust. Þá ræddi hann aðbúnað í skólum og ábyrgð þeirra sem skólunum stjórna að koma með tillögur um lagfæringu á aðstöðu í skólunum. Þá greindi hann frá samtölum við framkvæmdastjóra SASS og taldi fullvíst að við fengjum fulltrúa í stjórn samtakanna.
Halldóra minnti á að ákvörðun hafi verið tekin um sölu á kennsluhúsnæði í Nesjum og þá um leið hafi verið tekin ákvörðun um flutning skólastarfs á Höfn. Þá ræddi Halldóra leikskólastarfið og fjölda barna í árgöngum. Halldóra lagði áherslu á góðar einingar sem henti börnunum sem og þeirri aðstöðu sem þeim verði boðið upp á. Þá mótmælti Halldóra því að hún talaði af þekkingarleysi um leikskólamál og taldi sig sjá vel hvernig aðbúnaður sé. Hún taldi sig hafa fullan rétt til að koma með hugmyndir og leggja í þann pott. Halldóra sagði að meirihlutinn 1996 hafi gætt þess að eiga gott samstarf við minnihlutann. Annað væri uppi á teningunum nú. Við skipan skólamála væri affarasælast að ná góðri niðurstöðu sem næðist með góðu samstarfi.
Árni sagði að stefnan hafi verið mörkuð til lengri tíma með sölu á skólahúsnæði en ekki hafi enn verið tekin ákvörðun fyrir næsta haust.
Björk sagði að taka megi ákvörðun um skólamál án þess að skipa starfshóp. Þá spurði hún hvort sjálfstæðismenn fái fulltrúa á aðalfund SASS.
Reynir taldi trúlegt að allir geti sótt aðalfundinn.
Hjalti sagði starfshópinn vera til að fjalla um öll þau mál sem snúa að þeim þætti skólamála sem hér eru til umræðu, undirbúa breytinguna, sjá um allt samráð við þá sem málið snertir o.fl. Hópurinn væri því mjög mikilvægur. Einnig ræddi hann skipan fulltrúa á aðalfund SASS.
Fundargerð samþykkt
Bæjarstjórn Hornafjarðar 132. fundur 14. ágúst 2008 fundargerð áður samþykkt.
2. Tillaga að aðalskipulagsbreytingum á landnotkun – þjónustusvæði á Stekkanesi – síðari umræða
Tillaga þessi að aðalskipulagsbreytingu var áður á dagskrá á 126. fundi bæjarstjórnar, haldinn 13. mars 2008. Hjalti gerði grein fyrir aðalskipulagsbreytingunni og fór yfir helstu þætti hennar, stærð lands, kosti þessa svæðis fyrir gestastofu o.fl. atriði. lagði hann til að þessi aðalskipulagsbreyting verði samþykkt.
Árni sagðist áður hafa verið þeirrar skoðunar að þjónustumiðstöðin ætti að vera í þéttbýlinu. Því hafi umhverfisráðuneytið ekki verið sammála sem lagði áherslu á aðra staðsetningu. Þetta væri því ásættanleg lending að staðsetningu þjónustustöðvarinnar. Árni útilokaði þó ekki að forsendur fyrir staðsetningu kunni að breytast. Umræður um þjóðgarðsmál væru á töluverðri hreyfingu og að við þyrftum að vera á varðbergi um þau mál.
Tillaga um aðalskipulagsbreytingu borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með öllum greiddum atkvæðum. Tillögunni því næst vísað til Skipulagsstofnunar.
3. Fyrirspurnir
Engar fyrirspurnir bárust.
Fundi slitið kl. 18:35


