Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 132

Fundur 132

Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 14. ágúst 2008, kl. 16:00 í Nýheimum

Mætt voru: Reynir Arnarson forseti bæjarstjórnar, Árni Rúnar Þorvaldsson , Elín Magnúsdóttir, Gunnar Sigurjónsson, Guðrún Ingimundardóttir, Björn Ingi Jónsson og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.         

 

Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.  

Þá las forseti upp bréf frá  Ernu Gísladóttur, varabæjarfulltrúa þar sem hún óskar eftir lausn frá setu í bæjarstjórn Hornafjarðar.

Beiðni um lausn bæjarfulltrúa frá setu í bæjarstjórn borin undir atkvæði fundarins og samþykkt með fimm greiddum atkvæðum, tveir sitja hjá.

Við þessa afgreiðslu verður Stephen Robert Johnson þriðji maður á lista Samfylkingar og Matthildur Ásmundardóttir fjórði maður og verður því varamaður í bæjarstjórn.

1.  Fundargerðir

· Bæjarráð Hornafjarðar, 422. fundur, 2. júní 2008

Halldóra spurðist fyrir um hvernig úttekt á þjónustu við eldri borgara gengi en sú vinna hafi átt að fara fram í sumar. Þá spurðist hún fyrir um rekstraráætlun fyrir knattspyrnuhús og hvort ekki hafi verið haldinn fundur í svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs eftir 23. maí.

Hjalti greindi frá vinnu við úttekt á þjónustu við eldri borgara og aðra. Sagði að unnið væri að þessu af starfsmönnum. Hann sagði að ekki verði hægt að gera áætlun um rekstrarkostnað fyrir knattspyrnuhús fyrr en fyrir liggur hvernig hús verði byggt. Sagði hann ekki hafa verið fundað eftir 23. maí í svæðisráði Vatnajökulsþjóðgarðs. Stefnt sé að fundi í byrjun september. Þá gerði hann að umtalsefni reksturinn í Skaftafelli sem almenn ánægja væri með, bæði meðal gesta og starfsmanna.

Fundargerð samþykk samhljóða.

·  Bæjarráð Hornafjarðar, 423. fundur, 9. júní 2008.

Árni gerði að umtalsefni framtíðarskipan skólamála í sveitarfélaginu. Hann ræddi um þróunina í nemendafjölda á undanförnum árum og hvernig útlitið væri á næstu árum varðandi fjölda nemenda. Í máli hans kom fram að frá árinu 1999 hefur nemendum í Grunnskóla Hornafjarðar fækkað umtalsvert. Nemendur voru 435 árið 1999 en útlit væri fyrir að á næsta skólaári yrðu þeir rúmlega 320. Einnig benti hann á að samkvæmt öllum spádómum ætti nemendum á næstu árum frekar eftir að fækka heldur en fjölga þótt auðvitað vonuðust allir eftir hinu gagnstæða. Árni benti einnig á að bæjarstjórn hefði á fundi sínum 3. janúar 2007 samþykkt að sameina Nesja-, Hafnar- og Heppuskóla og búa þannig til eina heild sem síðan hlaut nafnið Grunnskóli Hornafjarðar. Með sölu Nesjaskóla hefði hann komið þeirri skoðun sinni á framfæri að verið væri að stíga ákveðið skref í þá átt að ekki yrði starfræktur skóli í því húsnæði innan ákveðins árafjölda og bæjarráð hefði tekið undir það.  Taldi hann þessa upptalningu sýna svo ekki væri um villst að allt stefndi í það að kennslu yrði hætt í Nesjaskóla ekki síst í ljósi bókunar bæjarráðs við söluna á Nesjaskóla. Hann taldi því ýmis rök mæla með því að hafin yrði skoðun á því hvort ekki væri ekki væri skynsamlegt, bæði út frá faglegum og fjárhagslegum forsendum að flýta þessu ferli eins og kostur er. Árni lagði mikla áherslu á gott samstarf við starfsmenn, nemendur og foreldrasamfélagið í allri þessari vinnu.

Halldóra ræddi skólamálin og minnti á að sjálfstæðismenn hafi viljað vera með einn skólastjóra við stofnun Grunnskóla Hornafjarðar. Hún sagði að verið væri að nýta mætti betur bæði starfsmenn og húsnæði. Þá greindi hún frá upplýsingum um húsnæði sem falla undir eignasjóð. Sagðist hún taka undir það að loka eigi skólahúsnæði í Nesjum. Hún sagðist vilja að það verði skoðað alvarlega að  1-4 ára börn verði á Lönguhólum og 5 - 6 ára börn verði í Krakkakoti. Jafnframt yrði frítt fyrir elsta árgang í leikskóla. Þannig verði nemendur á 1. ári í grunnskóla með elsta árgangi leikskólans.

Elín spurði Halldóru hvort hún hafi rætt sínar hugmyndir við starfsmenn skólanna. Þá sagði Elín að nefnd um fjölskyldustefnu eigi að skila sínum tillögum til bæjarstjórnar samkvæmt erindisbréfi.

Árni þakkaði góða umræðu um skólamál og sagðist fyrst og fremst vara að lýsa skoðunum sínum á þessari stundu án þess að setja um það tímaramma.  Ræða þurfi opinskátt hvernig málið verður klárað og lagði áherslu á að ákvarðanir verði ekki dregnar.

Hjalti taldi ekki skipta máli hvort tillögur nefndar um fjölskyldustefnu fari fyrst fyrir bæjarráð eða bæjarstjórn. Sagði hann löglega boðað til þessa fundar og tillögur um gjaldskrárlækkanir. Þá lagði hann áherslu á samráð við alla aðila sem máli skipta þegar unnið verður að breytingum á skólamálum. Hann sagði að sér líkaði ekki tal um illa nýtta fermetra og fjáraustur. Hvað varðar hugmyndir um að tengja saman leik- og grunnskóla var Hjalti með ákveðnar efasendir um. Þá þakkaði hann Árna fyrir að hefja þessa umræðu.

Halldóra sagðist ekki hafa rætt illa nýtta fermetra heldur að nýta mætti þá betur. Þá benti hún á að hér inni væru bæði starfsmenn leik- og grunnskóla sem gætu tjáð sig um hugmyndir sínar. Sagði jafnframt að hún heyrði í stöðugt fleiri foreldrum sem væru óánægðir með núverandi skipulag leikskólanna.  Þá lagði hún áherslu á að bæjarstjórn setji stefnuna en ekki starfsmenn þó vissulega eigi að vera samstarf. Hún sagði að frír leikskóli til foreldra 5 ára barna væri meiri kjarabót en 10% lækkun leikskólagjalda.

Hjalti ræddi leikskólana og skiptingu þeirra í tvo sjálfstæða leikskóla án aldursskiptingar og mismunandi áherslur í starfi leikskólanna og það góða starf sem þar fer fram. Hann lagði áherslu á að gjaldskrárbreytingar leikskóla taki gildi 1. september.

Elín sagðist aldrei hafa sagt að starfsfólk eigi að ráða. Sagðist einungis hafa spurt hvort Halldóra hafi rætt þessi mál við starfsmenn. Hún sagði samstarf í stýrihópi um fjölskyldustefnu vera mjög gott og að tillögur sem fyrir fundinum liggja væru sameiginleg ákvörðun alls stýrihópsins.

Fundargerð samþykkt.

· Bæjarráð Hornafjarðar, 424. fundur, 23. júní  2008.

Hjalti Þór gerði grein fyrir bókun vegna aksturs sérleyfishafa til Egilsstaða.

Fundargerð samþykkt samhljóða.

· Bæjarráð Hornafjarðar, 425. fundur, 7. júlí  2008.

Hjalti Þór talaði um sauðfjárveikivarnir og ræddi um þær breytingar sem urðu á varnarlínu við Hornafjarðarfljót . 

Árni Rúnar upplýsti að búið væri að fá viðurkenningu á því að fyrri þjónustusamningur  við heilbrigðisráðuneytið varðandi rekstur HSSA gilti á meðan ekki hefur verið gengið frá nýjum samningi. 

Halldóra Bergljót ræddi líka um heilbrigðismál, ræddi hún um halla heilsugæslustöðvarinnar. Einnig sagði hún að ekki væri gert ráð fyrir neinum nýframkvæmdum við hjúkrunarheimilið hér skv. nýjum upplýsingum frá heilbrigðisráðuneytinu.  Hún spyr um hver á að fá framkvæmdaleyfi og hver ekki. 

Hjalti Þór ræddi um heilbrigðismál taldi hann að reksturinn væri undir einum hatti, einnig ræddi hann um ríkisendurskoðun. Einnig ræddi hann um framkvæmdaleyfi og fjallskilasamþykkt. 

Árni Rúnar  ræddi um heilbrigðis- og öldrunarmál og ríkisendurskoðun, sagði hann að ríkisendurskoðun væri ekki ríkisstofnun. 

Halldóra Bergljót tók til máls og ræddi um heilbrigðisstofnun og hennar skoðun er að ríkisendurskoðun er vilhöll ríkinu, og sagði hún að ekkert hafi verið unnið í málefnum HSSA á meðan ekki væri búið að ná þessum greiðslum. 

Hjalti sagði að ekki væri rétt að ekkert hafi verið gert í heilbrigðismálum.

Fundargerð samþykkt samhljóða.

· Bæjarráð Hornafjarðar, 426. fundur, 9. júlí  2008.

Fundargerð samþykkt samhljóða.

· Bæjarráð Hornafjarðar, 427. fundur, 21. júlí 2008.

Fundargerð samþykk samhljóða.

· Bæjarráð Hornafjarðar, 428. fundur,7. ágúst  2008.

Fundargerð samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn Hornafjarðar 131. fundur 5. júní  2008 fundargerð áður samþykkt.

Fundargerð áður samþykkt.

 

2. Knattspyrnuhús

- Deiliskipulag

- Innsendar athugasemdir við deiliskipulag og svör byggingar- og skipulagsnefndar við þeim

Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði og fór yfir efnisatriði þess.

Að lokinni auglýsingu nýs deiliskipulags KNATTLEIKJAHÚS VIÐ VÍKURBRAUT Á HÖFN er lögð fram tillaga Glámu - Kím Arkitekta dags. 15.05.2008, breytt 17. 07. 2008. Í nýju deiliskipulagi felst skilgreining á lóð og byggingarreit undir knattleikjahús og tilheyrandi þjónustubyggingu á Höfn. Athugasemdafrestur stóð frá 22. maí til 17. júlí 2008.
Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Bréf dagsett 26. júní 2008 undirritað af 13 íbúum og eigendum við Garðsbrún 1, 3 og 6 og Bogaslóð 16, 20 og 22. Bréf dagsett 1. júlí 2008 frá íþróttakennara og knattspyrnuþjálfara á Höfn. Bréf dagsett 8. júlí 2008 frá Stjórn knattspyrnudeildar Sindra. Bréf dagsett 4. júlí 2008 frá Aðalstjórn ungmennafélagsins Sindra. Bréf dagsett 10. júní 2008 frá eigendum Víkurbrautar 5.
Byggingar- og skipulagsnefnd tók deiliskipulagið fyrir eftir að frestur til að gera athugasemdir rann út, á 93. fundi nefndarinnar þann 17. júlí 2008.  Á fundi byggingar- og skipulagsnefndar voru lagðar fram yfirlitsmyndir sem sýna skuggamyndun knattspyrnuhússins á nærliggjandi hús, gögn unnin af ASK arkitektum. Einnig voru lagðir fram minnispunktar bæjarstjóra eftir kynningar- og skoðunarferð bæjarráðs, bæjarstóra og framkvæmdarstjóra tækni- og umhverfissviðs 28. og 29. febrúar 2008 til tveggja arkitektastofa, Glámu - Kím og ASK arkitekta. Í ferðinni voru einnig skoðuð knattspyrnuhús í Grindavík, Hafnarfirði og Kópavogi.
Athugasemdum hefur verið svarað og fallist á að stærð og lega lóðar við Víkurbraut 5 minnki eins og fram kemur á nýjum uppdrætti frá Glámu - Kím unninn 17.07.2008. Lagði bæjarstjóri til að tillaga að deiliskipulagi verði samþykkt og hún síðan send til Skipulagsstofnunar.

Elín sagðist fagna því að komið væri að þeim tímapunkti að ákveða staðsetningu knattspyrnuhúss. Sagði hún að framsóknarmenn hafi talað fyrir þessari staðsetningu sem væri í tengslum við stofnanir og íþróttamannvirki á þessu svæði. Sagði hún að með þessari staðsetningu væri verið að taka tillit til fleiri en færri. Hún sagðist fagna því að fólk hafi skoðanir á sínu nánasta umhverfi þó að hún harmi ágreining um málið.
Forseti bar upp tillögu að deiliskipulagi vegna KNATTLEIKJAHÚSS VIÐ VÍKURBRAUT Á HÖFN eins og byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar afgreiddi hana frá sér verði samþykkt.

Tillagan var samþykkt samhljóða með öllum greiddum atkvæðum.

 

3.  Kosningar

Eftirfarandi var samþykkt á 428. fundi bæjarráðs: Bæjarráð leggur til að almannavarnanefnd verði skipuð fimm fulltrúum sem eru  sýslumaður, tveir fulltrúar sveitarfélagsins, einn fulltrúi Björgunarfélags Hornafjarðar og einn fulltrúi Björgunarsveitarinnar Kára í Öræfum. Þessi ákvörðun er tekin í kjölfar nýrra almannavarnalaga. Í samræmi við þetta eru kosnir í almannavarnanefnd þeir

Páll Björnsson, sýslumaður

Friðrik Jónas Friðriksson frá Björgunarfélagi Hornafjarðar,

Ólafur Sigurðsson frá Björgunarsveitinni Kára í Öræfum,

Reynir Arnarson, tilnefndur af meirihluta sveitarstjórnar,

Björn Ingi Jónsson, tilnefndur af minnihluta sveitarstjórnar.

Tillaga um fulltrúa í almannavarnanefnd borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með öllum greiddum atkvæðum.

 

Byggingar - og skipulagsnefnd:

Matthildur Ásmundardóttir verði varamaður í stað Ernu Gísladóttur. Samþykkt samhljóða.

Atvinnumálanefnd:

Nökkvi Jóhannesson verði varamaður í stað Ernu Gísladóttur. Samþykkt samhljóða.

Umhverfisnefnd:

Miralem Haseta verði aðalmaður í stað Ernu Gísladóttur

Magnhildur Björk Gísladóttir verði varamaður í stað Miralem Haseta. Samþykkt samhljóða.

Félagsmálaráð:

Margrét Jóhannesdóttir verði aðalmaður og jafnframt formaður í stað Ernu Gísladóttur

Árni Rúnar Þorvaldsson verði varamaður í stað Margrétar Jóhannesdóttur. Samþykkt samhljóða.

 

4. Leikskólagjöld, gjöld vegna lengdrar viðveru og gjöld fyrir tómstundaiðkun

Elín fylgdi eftirfarandi tillögunum stýrihóps um fjölskyldustefnu úr hlaði:

A)     Gerð er tillaga um að leikskólagjöld og gjöld fyrir lengda viðveru lækki um 10%, systkinaafsláttur fyrir annað barn verði 50% og 100% afsláttur fyrir þriðja barn.  Þá verður systkinaafsláttur tengdur á milli skólastiga þannig að foreldrar sem eiga börn í leikskóla fá aukinn afslátt fyrir barn sitt í lengdri viðveru. Gert er ráð fyrir að  þetta komi til framkvæmda frá og með 1. september næstkomandi. 

Elín sagði að tillögur þessar muni hafa umtalsverð áhrif á fjölskyldur á svæðinu:

· Fjölskylda með eitt barn á leikskóla mun greiða 1.933 krónur minna á mánuði eða 21.262 krónum minna á ári. 

· Fjölskylda með tvö börn á leikskóla mun greiða 7.732 krónum minna á mánuði eða 85.048 krónur minna á ári.

· Fjölskylda með þrjú börn á leikskóla mun greiða 17.396 krónum minna á mánuði eða 191.5357 krónum minna á ári.

· Þá fela tillögur fjölskyldunefndar einnig í sér 10% lækkun grunngjalds fyrir lengda viðveru.  Við það lækkar vistun í 41-50 klst. á mánuði um 971 krónur og alls 9.224 krónur fyrir árið. 

· Fjölskylda með eitt barn í leikskóla í átta tíma og í lengdri viðveru í 41-50 klst. á mánuði kemur til með að lækka útgjöld um 71.992 krónur á ári.

Kostnaðaraukning fyrir sveitarfélagið í krónum talið vegna þessarar breytingar er áætluð kr. 2.887.000 á ári miðað við forsendur vorið 2008.

Halldóra sagði gott samband vera við fulltrúa sjálfstæðismanna í stýrihópnum. Hún sagði að eðlilegra hefði verið að þetta hefði fyrst vera rætt í bæjarráði. Hún sagðist munu sitja hjá við afgreiðslu þessa máls þar sem hún hafi ekki haft nægan tíma til að kynna sér málið, þetta hafi komið fram með stuttum fyrirvara. Sagðist ekki vera á móti þessari lækkun gjalda en lagði áherslu á mikilvægi þess að taka upplýsta ákvörðun.

Hjalti sagði mikilvægt að þetta verði að veruleika og sagðist geta fallist á að tillögurnar hefðu getað komið fyrr til bæjarstjórnarmanna en löglega hafi verið til fundarins boðað.

 

B) Gerð er tillaga um að sveitarfélagið taki upp svokölluð frístunda/tómstundakort fyrir aldurshópinn 6-18 ára. Þessi kort eru á formi 10.000 kr. styrks til iðkunar á íþróttum- og/eða tómstundum í sveitarfélaginu. Gert er ráð fyrir að þetta komi til framkvæmda frá og með 1. janúar 2009

 

 

Forseti bara tillögu A) um leikskólagjöld og gjöld fyrir lengda viðveru undir atkvæði og var hún samþykkt með sex atkvæðum, einn sat hjá.

Forseti bara tillögu B) um frístunda/tómstundakort undir atkvæði og var hún samþykkt með sex atkvæðum, einn sat hjá.

 

5.  Fyrirspurnir

Engar fyrirspurnir hafa borist.

 

Fundi slitið kl. 18. 25

 

 

 


Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica