Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 131

131. fundur

Fundur haldinn      í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 5. júní 2008, kl. 14:00 í Pakkhúsinu.

 Mætt voru:           Árni Rúnar Þorvaldsson forseti bæjarstjórnar, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðrún Ingimundardóttir, Björn Ingi Jónsson og Björk Pálsdóttir.  Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.         

 

Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.   

1.        Fundargerðir

Bæjarráð Hornafjarðar, 418. fundur, 5. maí  2008.

Björk Pálsdóttir ræddi um fundargerð skólanefndar varðandi skólagjöld á leikskólum og taldi þau of.  Sagði hún að fyrir seinustu kosningar hefðu öll framboðin verið með á stefnuskrá sinni að lækka leikskólagjöld. 

Elín Magnúsdóttir sagði að stýrihópur væri að vinna í þessu.  Sagði hún að stýrihópurinn ætlaði að skila tillögum um lækkun á leikskólagjöldum og gjöldum fyrir lengda viðveru.

Sigurlaug Gissurardóttir ræddi um verkefnið Hafnarvík-Heppa sagði að hún hlakkaði til að sjá uppbyggingu á svæðinu. 

Hjalti Þór Vignisson fagnar umræðunni um leikskólagjöld og taldi mikilvægt að standa við gefin loforð.  Benti hann á að þau hafi ekki hækkað að krónutölu og því væri um raunlækkun að ræða vegna launaskriðs og verðbólgu.

Fundargerð samþykkt.

 

Bæjarráð Hornafjarðar, 419. fundur, 16. maí 2008.

Fundargerð samþykkt.

 

Bæjarráð Hornafjarðar, 420. fundur, 19. maí 2008.

Fundargerð samþykkt.

 

Bæjarráð Hornafjarðar, 421. fundur, 26. maí 2008.

Björk Pálsdóttir ræddi um fundargerð atvinnumálanefndar og hefur hún áhyggjur af atvinnumálum í sveitarfélaginu og atvinnuhúsnæði sem stendur hér autt. Taldi hún að   sveitarfélagið þurfi að leita leiða til að styðja enn frekar til uppbyggingar atvinnulífsins.

Hjalti Þór Vignisson er fagnar umræðu Bjarkar um atvinnumál.  Upplýsti hann um framlög sem Vaxtasamningur Austurlands veitti nú á fundi í morgun.  Sagði hann að aðilar hér hefðu fengi um þriðjung af úthlutun sjóðsins eða um 6,5 m.kr.  Ræddi hann um ýmis verkefni sem eru í skoðun s.s. vatnsútflutningur og atvinnuuppbyggingu í tengslum við þjóðgarð og í fiskvinnslu.  Hjalti ræddi um söluna á Nesjaskóla og gerði grein fyrir tillögum um ráðstöfun á andvirði sölunnar.  Sagði hann að hluti af fénu fari í viðhald fasteigna Sveitarfélagsins í dreifbýlinu og hluti af fénu í stofnun atvinnu- og rannsóknarsjóðs.

Lagði hann fram eftirfarandi bókun:

 Húseignir Nesjaskóla hafa verið seldar.  Söluandvirði skiptist á milli ríkis og sveitarfélags samkvæmt reglum.  Andvirði ríkisins er alls kr. 13.947.000.  Sveitarfélagið hefur ákveðið að 20 m.kr. af andvirði þess af sölunni á Nesjaskóla renni til stofnunar atvinnu- og rannsóknarsjóðs.  Hlutverk sjóðsins verður að efla byggð og atvinnulíf í sveitarfélaginu og er opinn þeim sem lögheimili hafa í sveitarfélaginu eða reka þar atvinnustarfsemi.  Sveitarfélagið stefnir að því að sjóðurinn verði stofnaður þann 1. janúar 2009.  Sveitarfélagið skorar á ríkisstjórn Íslands að leggja andvirði ríkisins af sölunni á Nesjaskóla í atvinnu - og rannsóknasjóð og tryggja þannig að þessir fjármunir verði áfram í sveitarfélaginu.

 Reynir Arnason lýsir ánægju sinni yfir því hvernig sveitarfélagið hefur tekið á umsóknum um vatnsfyrirtæki.

Sigurlaug Gissurardóttir taldi að margt væri að gerast í atvinnumálum en sagði að þrátt fyrir auð atvinnuhúsnæði en þá vanti íbúðahúsnæði á svæðið.  Fagnar hún  mjög framlögum um Vaxtasamningi Austurlands.  Einnig minnti hún kúabúið í Flatey á Mýrum.  

Fundargerð samþykkt.

 

Bæjarstjórn Hornafjarðar 128. fundur 5. maí 2008 fundargerð áður samþykkt.

 

2.        Samþykkt sveitarfélagsins ? síðari umræða

Hjalti gerði grein fyrir breytingum á samþykktum sveitarfélagsins er varðar sameiningu æskulýðs- og tómstundaráðs og menningarmálanefndar.  Ennfremur breytingar á hlutverki skólanefndar.  Nefndaskipan verði því eftirfarandi og 57. gr. í samþykktum um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar breytist samkvæmt því:

1.         Atvinnumálanefnd.  Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer einnig með hlutverk ferðamálanefndar,  landbúnaðarnefndar og gróðurverndarnefndar skv. 19. gr. laga um landgræðslu nr. 17/1965 og tilnefnir búfjáreftirlitsmenn sem ráðnir eru af sveitarstjórn til fjögurra ára að afloknum sveitarstjórnarkosningum.

2.         Byggingar- og skipulagsnefnd.  Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 6. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Nefndin fer einnig með hlutverk samgöngunefndar.      

3.         Félagsmálaráð.  Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Félagsmálaráði eru jafnframt falin verkefni barnaverndarnefndar skv. 10. gr.laga nr. 80/2002 og 10. gr. laga  nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.

4.         Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar.  Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 4. gr. hafnalaga nr. 23/1994. Stjórnin er jafnframt rekstrarstjórn hafnarinnar.

5.         Heilbrigðis- og öldrunarráð.  Fimm aðalmenn og jafnmarga til vara skv. 7. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999

6.         Húsnæðisnefnd.  Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 6. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998.

7.         Kjörstjórn. Þrír aðalmenn og þrír til vara sbr. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 og 15. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000.  Undirkjörstjórnir er heimilt  að kjósa síðar fyrir hverja kjördeild, þrjá aðalmenn og þrjá til vara. (Sjá C. liður hér að neðan).

8.         Menningar- og tómstundanefnd.  Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með stjórn  Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og bókasafns skv. ákvæðum laga nr. 36/1997 um almenningsbókasöfn.

9.         Skólanefnd.  Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 13. gr. laga um grunnskóla nr. 66/1995 og 2. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985. Skólanefnd fer með hlutverk leikskólanefndar skv. lögum nr. 78/1994.

10.     Umhverfisnefnd.  Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin annast störf náttúruverndarnefndar skv. 11. gr. laga um náttúruvernd nr. 44/1999 og stjórn fólkvangs í Óslandi, sbr. auglýsingu nr. 427/1982.

 

Björk Pálsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun sjálfstæðismanna

Bæjarfulltrúar D lista hafa ákveðið að sitja hjá undir þessum lið.  Þar sem við teljum það ekki tímabært að breyta þessu nú þegar verið er að vinna að fjölskyldustefnu sveitarfélagsins og hún hefur ekki litið dagsins ljós.

 

Breytingar á Samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkt með 5 atkvæðum tveir sitja hjá.

 

3.        Samstarf sveitarfélaga

Hjalti Þór Vignisson gerði grein fyrir þeirri vinnu sem farið hefur fram á milli umræðna.

Björk Pálsdóttir er sammála að sveitarfélagið eigi að vera í samstarfi við SASS en telur það ekki tímabært fyrir en niðurstað verður um stjórnarmann og ætlar hún að sitja hjá við afgreiðslu málsins.

Reynir Arnarsson ræddi um samstarf sveitarfélag og telur að tímabært sé að fara í SASS rakti hann síðan samstarfið við SSA í gegnum tíðina og taldi að tengslin færu minnkandi.  Sigurlaug Gissurardóttir fagnar þessari niðurstöðu sem komin er í málinu og styður hana. Telur hún tímamót í því samkomulagi sem hefur náðst við Þekkingarnet Austurlands. 

Elín Magnúsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun frá meirihluta bæjarstjórnar en sagðist vera hálf leið yfir því að m.k. einn fulltrúi minnihlutinn ætli að sitja hjá við afgreiðslu málsins:

Sveitarfélagið Hornafjörður hefur átt yfir 40 ára farsælt og gott samstarf við sveitarfélög á Austurlandi innan vébanda SSA.  Með breytingu á kjördæmaskipan árið 2003 varð Sveitarfélagið Hornafjörður hluti af Suðurkjördæmi en önnur sveitarfélög á Austurlandi hluti af Norðausturkjördæmi.  Þessi niðurstaða fékkst eftir afgerandi úrslit í skoðanakönnun sem þáverandi bæjarstjórn Hornafjarðar lét framkvæma. 

Meirihluti bæjarstjórnar Hornafjarðar telur eðlilegt að Sveitarfélagið Hornafjörður starfi í samtökum með öðrum sveitarfélögum innan síns kjördæmis.  Þannig myndast betri tengsl við sveitarstjórnir og sveitarstjórnarfólk innan kjördæmisins.  Á vettvangi samtaka sveitarfélaga er farið yfir helstu hagsmunamál sveitarfélaga, s.s. í samgöngu-, atvinnu-, menningar- og menntamálum.  Með aðild að samtökum sem starfa innan kjördæmis og eru í góðum tengslum við þingmenn er enn betur tryggt að rödd samfélagsins heyrist.  Þess má geta að samtök sveitarfélaga eru mynduð á grunni gömlu kjördæmaskipunarinnar sem varð til árið 1959 og með því að ganga til samstarfs við Samtök sveitarfélaga á Suðurlandi er því um að ræða aðlögun að þeirri reglu sem gilt hefur um árabil.Við fyrri umræðu þessa máls var mikið rætt um stöðu Sveitarfélagsins Hornafjarðar í þekkingaruppbyggingu á fjórðungsvísu. Þekkingarnet Austurlands hefur náð góðum árangri og starf þess er mikilvægt fyrir íbúa, fyrirtæki og stofnanir í Sveitarfélaginu Hornafirði.  Tryggt er að samstarf sveitarfélagsins og Þekkingarnetsins viðhaldist en á aðalfundi netsins sem haldinn var í Nýheimum á Höfn þann 3. júní sl. var umsókn Sveitarfélagsins Hornafjarðar, um að gerast beinni aðili að Þekkingarnetinu, samþykkt.  Auk þess eru tengsl sveitarfélagsins við Þekkingarnetið tryggð í gegnum aðild Háskólastetursins, Frumkvöðlasetursins, Framhaldsskólanum og Afli Starfsgreinafélagi að Þekkingarnetinu.

Um leið og bæjarstjórn Hornafjarðar þakkar sveitarfélögum á Austurlandi samfylgdina í fjóra áratugi og óskar þeim alls hins besta í framtíðinni stendur hugur sveitarstjórnarmanna á Hornafirði til þess að hefja farsælt og gott samstarf við sveitarfélög á Suðurlandi.  Það er því tillaga meirihluta bæjarstjórnar Hornafjarðar að Sveitarfélagið Hornafjörður gangi úr SSA í Samtök sveitarfélaga á Suðurlandi.

 

Björn I. Jónsson sagði að gott hefði verið ef bæjarstjórn væri sammála um málið en það væri hægt ef unnið hefði verið betur að málinu.  Taldi hann að stíga ætti skrefið 2010.  Finnst að vanda ætti vinnuna aðeins betur og er mótfallinn þessari ákvörðun. 

Björk Pálsdóttir ítrekar að hún er hlynnt því að ganga í SASS en bæjarstjórn veður að tryggja stjórnarmann áður.  

Reynir Arnarson taldi að ekki væri hægt að tryggja fyrirfram stjórnarmann en orð formanns SASS eru skýr.

Forseti bar upp tillögum um að Sveitarfélagið Hornafjörður segi sig úr samstarfi Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi á næsta aðalfundi félagsins og sæki um aðild að Samtökum sveitarfélaga á Suðurlandi á næsta aðalfundi félagsins. 

Hjalti Þór Vignisson mótmælti málflutningi Björns Inga varðandi málið. 

Árni R. Þorvaldsson hefur það á tilfinningunni að allir séu sammála um tillöguna en spurning sé um tímasetningu.  Sagði hann að þingmenn kjördæmisins styðji  okkur í þessu máli.

 

Forseti bar upp tillögu um að Sveitarfélagið Hornafjörður segði sig úr SSA og sendi inn umsókn til SASS.

Samþykkt með 5 atkvæðum,  2 sitja hjá.

Forseti bar upp tillög um að Sveitarfélagið Hornaförður segi sig úr Þróunarfélagi Austurlands á næsta aðalfundi félagsins.

Samþykkt með 5 atkvæðum og 2 sitja hjá.

 

Forseti bar upp tillögu um að Sveitarfélagið Hornafjörður segi sig frá Atvinnuþróunarsjóði Austurlands á næsta aðalfundi félagsins.

Samþykkt með 5 atkvæðum og 2 sitja hjá.

 

4.        Ársreikningar 2007

Ársteikningar Heilbrigðisstofnunar  Suðausturlands lagðir fram til samþykktar

Bæjarstjóri kynnti ársreikninginn og sagði að niðurstöður reksturinn skilar um 4.8 m.kr. í afgang en tekið skal fram að búið er að tekjufæra kröfu á heilbrigðisráðuneytið rúmlega 31. m.kr. vegna hjúkrunardeildar en enn er eftir að gera nýjan samning við heilbrigðisráðuneytið en von er til að samningar náist fljótlega. 

 

Björn Ingi Jónsson lagði fram eftirfarnandi bókun fulltrúa D lista:

Undanfarið hafa sveitarfélög í landinu verið að leggja fram ársreikninga sína og ljóst er að afkoma þeirra er almennt betri en verið hefur um langt skeið. Því ber að fagna. Ljóst er að fjárhagsleg staða Sveitarfélagsins Hornafjarðar hefur ekki verið sterkari um langt skeið. Ástæður þess eru tvennskonar. Hærri framlög úr jöfnunarsjóði og afar litlar framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins síðastliðin tvö ár.

 

Árið  2006 voru framlög jöfnunarsjóðs áætluð 265 milljónir króna við gerð fjárhagsáætlunar, en urðu samkvæmt ársreikningi 380 milljónir króna. Mismunur 115 milljónir. Árið 2007 voru framlög áætluð 316 milljónir en niðurstaða ársreiknings sýnir 520 milljónir króna. Mismunur 204 milljónir króna. Því urðu tekjur úr jöfnunarsjóði 319  milljónum króna hærri en gert var ráð fyrir árin 2006 og 2007.

 

Árið 2006 var gert ráð fyrir framkvæmdum að upphæð 190 milljónum króna en einungis framkvæmt fyrir 59 milljónir. Mismunur 131 milljón. Árið 2007 var gert ráð fyrir framkvæmdum fyrir 318 miljónir, en framkvæmt fyrir 107 milljónir króna. Mismunur 211 milljónir. Framkvæmdir sveitarfélagsins voru 342 milljónum minni en gert var ráð fyrir árin 2006 og 2007.

 

Af þessu má ljóst vera að meirihlutinn hefur ekki nýtt sterka fjárhagslega stöðu til framkvæmda og að efla samfélagið.  Einnig er útlit fyrir að meiru sé ráðstafað í rekstur án þess að þjónusta hafi batnað. Þetta er áhyggjuefni þar sem íbúum hefur fækkað milli ára. Fjárhagsáætlun er mikilvægt stýritæki í rekstri og þessi munur á fjárhagsáætlun og rauntölum í ársreikningi er ekki æskilegur. 

Við teljum að það sé hlutverk sveitarfélagsins að nýta fjármuni til hagsbóta fyrir samfélagið en ekki liggja með digran sjóð. Þess ber að geta að hluti af framlagi úr jöfnunarsjóði fyrir árið 2007 var tileinkað mótvægisaðgerðum.  Í árslok 2007 var handbært fé sveitarfélagsins 476 milljónir.

 

Reynir Arnarsson lagði fram eftirfarandi bókun meirihlutans:

Bókun fulltrúa B og S lista, meirihluta bæjarstjórnar.

Niðurstaða ársreikninga Sveitarfélagsins Hornafjarðar er afar góð. Stafar það af auknum tekjum úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga en einnig styrkri fjármálstjórn sem m.a. lýsir sér í litlum frávikum frá fjárhagsáætlun og minnkandi rekstrargjöldum milli ára á verðlagi ársins 2007.

Afgangur af rekstri sveitarsjóðs er alls 341,7 milljónir króna og afgangur af rekstri samstæðu sveitarfélagsins alls 360,2 milljónir króna.  Handbært fé sveitarfélagsins í lok árs 2007 er 476,3 milljónir króna.

Í farvatninu er mikil uppbygging á íþróttamannvirkjum.  Lokið verður við nýja sundlaug innan skamms og á næstu mánuðum hefst smíði knattspyrnuhúss.  Ennfremur verður ráðist í endurbætur á Grunnskóla Hornafjarðar.  Jafnframt þessu er nefnd að störfum sem skila mun tillögum um minni álögur á fjölskyldufólk í sveitarfélaginu sem koma til framkvæmda eigi síðar en í byrjun árs 2009.  Auk þess verður ráðist í viðhald á fasteignum í dreifbýli, stofnun atvinnu- og rannsóknarsjóðs og viðhald á götum og plönum í sveitarfélaginu.  Jafnframt er í undirbúningi verkefni sem miða að bættu umhverfi með grófhreinsun fráveitu og jarðgerð sem dregur stórlega úr urðun sorps.

Meirihluti bæjarstjórnar þakkar forstöðumönnum sveitarfélagsins og öllum starfsmönnum þess fyrir ábyrgan rekstur.

 

Björk Pálsdóttir bar fram bókun sjálfstæðismanna varðandi ársreikninga HSSA.

Varðandi ársreikning heilbrigðisstofnunarinnar viljum við benda á að í reikningunum er tekjufærsla vegna væntinga  um greiðslu frá ríkinu upp á rúmar 31 milljón. Tap á rekstri heilsugæslunnar er rúmar 11 milljónir þann halla þarf að skoða og leiðrétta.

 

Árni Rúnar Þorvaldsson ræddi um ársreikninga HSSA og undirstrikar að forsendur að hálfu sveitarfélagsins við gerð nýs þjónustusamninga að þessi krafa verði sveitarfélags um endurnýjun á þjónustusamning er að þessi halli verði gerður upp.

Reynir Arnarson bar upp ársreikning HSSA til samþykktar.  Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.

Einnig  bar hann upp  ársreikning  sveitarfélagsins og tengdra fyrirtækja.  Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.

 

5.        Samþykkt um fráveitur í Sveitarfélaginu Hornafirði  - síðari umræða

Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu.  Í orðum hans kom m.a. fram að haldnir voru tveir kynningarfundir í dreifbýlinu um fráveitusamþykkt og fyrirkomulag seyrulosunar, einn í Mánagarði og annar í Hrollaugsstöðum.  Á fundinum kom fram almenn ánægja var með samþykktina.
Einnig voru sent út bréf á öll lögbýli í dreifbýli um samþykktina og verðskráin var kynnt á heimasíðu sveitarfélagsins.  Þá var leitað eftir áliti HAUST og henni breytt mtt. Athugasemda þaðan.

Bæjarstjóri lagði til að samþykktin yrði samþykkt og vísað til umhverfiráðuneytisins til staðfestingar og útgáfu. 

Samþykkt samhljóða.

 

6.        Vatnajökulsþjóðgarður

Hjalti gerði grein fyrir málinu.  Sagði hann frá vinnu að setningu reglugerðar, samráði við hagsmunafélög og væntanlegum mörkum þjóðgarðsins.  Lagði hann fram eftirfarandi bókun.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkir friðlýsingu þess landssvæðis í sveitarfélaginu sem verður innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Þar er gert ráð fyrir að auk núverandi Skaftafellsþjóðgarðs verði Breiðamerkurjökull friðlýstur, svokallað Heinabergssvæði og hluti af jörðinni Skálafelli I.  Bæjarstjórn Hornafjarðar leggur áherslu á að náma í landi Skálafells I  í Hjallanesi  verði áfram opinn fyrir grjótnámi.   Gert er ráð fyrir að hefðbundin landnýting verði heimil á öllu landsvæði sveitarfélagsins í þjóðgarðinum utan jökla.
Bæjarstjórn samþykkir einnig lokadrög reglugerðar um Vatnajökulsþjóðgarð sem stjórn þjóðgarðsins hefur sent ráðuneytinu. Þar er gert ráð fyrir að þjóðgarðurinn verði stofnaður 7. júní. nk. Bæjarstjórn áskilur sér þó rétt til að gera athugasemdir við reglugerðina síðar.

 

Sigurlaug Gissurardóttir sagði að gleðilegt væri að fjalla um stofnun Vatnajökulsþjóðarð og að stofnhátíðin færi fram í Skaftafelli á laugardaginn n.k. Óskar hún eigendum Skálafells 1 til hamingju með samninginn.

Björn Ingi Jónsson sagði merkur áfangi á laugardaginn en reglugerðin er hraðsoðin. Vanda á betur vinnubrögð og skipulag.

Forseti las og bar upp ofangreinda tillögu.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða

 

7.        Kosningar

A. Kjör forseta bæjarstjórnar og 2ja varaforseta til eins árs

Árni bar fram tillögu um Reyni Arnarson sem forseta bæjarstjórnar, Árna Rúnar Þorvaldsson sem 1. varaforseta og Elínu Magnúsdóttur sem 2. varaforseta.

 Tillagan borin undir atkvæði og hún samþykkt samhljóða.

B. Til eins árs

Forseti bar upp eftirfarandi tillögu um kjör í bæjarráð til eins árs:

Frá B lista:  Reynir Arnarson, varaformaður

Til vara:  Elín Magnúsdóttir

Frá D lista:    Björn I. Jónsson  

Til vara:  Halldóra B. Jónsdóttir

Frá S lista:  Árni Rúnar Þorvaldsson, formaður

Til vara: Guðrún Ingimundardóttir

Tillagan borin undir atkvæði og hún samþykkt samhljóða.

 

Fulltrúar á aðalfund SSA

Aðalmenn                                                                     Varamenn

Árni Rúnar Þorvaldsson                                                Erna Gísladóttir

Guðrún Ingimundardóttir                                               Stephen R. Johnson

Reynir Arnarson                                                           Ásgrímur Ingólfsson

Elín Magnúsdóttir                                                         Gunnar Sigurjónsson

Sigurlaug Gissurardóttir                                                Gunnar Ingi Valgeirsson

Björn I. Jónsson                                                          Björk Pálsdóttir

Halldóra B. Jónsdóttir                                                   Einar Karlsson

 

Menningar ? og tómstundarráð

Guðrún Ingimundardóttir  S ? lista formaður                  Pálína Benediktsdóttir  S - lista

Matthildur Ásmundardóttir S ? lista                               Miralem Haseta S ? lista

Elín Magnúsdóttir B lista, varaformaður             Björn Sigfússon B lista

Helga V. Sigjónsdóttir B lista                                        Hafdís Roysdóttir  B lista

Gauti Árnason D lista                                                    Sædís Guðmundsdóttir D lista

 

Forseti bar upp tillögu þess efnis að Ásgeir Gunnarson, tilnefndur af B-lista verði formaður Heilbrigðs ? og öldrunarráðs í stað Árna Rúnars Þorvaldssonar og að Guðrún Ingimundardóttir af S-lista verði varaformaður Heilbrigðis ? og öldrunarráðs. Einnig bar forseti upp þá tillögu að Eiríkur Sigurðsson, tilnefndur af S ? lista verði aðalmaður í Heilbrigðis ? og öldrunarráði í stað Árna Rúnar Þorvaldssonar og að Ragnheiður Sigjónsdóttir verði varamaður, tilnefnd af S ? lista í stað Eiríks Sigurðssonar.

Samþykkt samhljóða.

 

Atvinnumálanefnd

Tillaga um að Stephen Róbert Johnson, tilnefndur af S ? lista verði aðalmaður í stað Eiríks Sigurðsson og Ingvar Þórðarson af S lista verði varamaður í atvinnumálanefnd í stað Stephen Róbert Johnson.


Umhverfisnefnd

Tillaga um að Magnús J. Magnússon, tilnefndur af S ? lista verði aðalmaður í umhverfisnefnd í stað Stephen Róbert Johnson tilnefndur af S.

 

8.        Fyrirspurnir

Engar.

 

Forseti bæjarstjórnar frestaði fundum bæjarstjórnar fram til miðs ágústs.

 

 

Fleira ekki gert.  Fundi slitið. 16.30

 

 

 

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica