Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 127

127. fundur

Fundur haldinn     í Bæjarstjórn Hornafjarðar, miðvikudaginn 2. apríl 2008, kl. 16:10 í Nýheimum

 

Mætt voru:           Árni Rúnar Þorvaldsson forseti bæjarstjórnar, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðrún Ingimundardóttir, Björn Ingi Jónsson og Björk Pálsdóttir.  Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.        

 

Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Bar hann upp tillögu um að 3. liður á dagskrá verði felldur út og var það samþykkt samhljóða.

1.        Fundargerðir

Bæjarráð Hornafjarðar, 412. fundur, dags. 17. mars  2008

· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 100. fundur, 22. febrúar 2008.

· Menningarmálanefnd Hornafjarðar, 98. fundur 11. mars 2008.

· Stýrihópur vegna fjölskyldustefnu Hornafjarðar, 1. fundur 19. febrúar, 2. fundur 27. febrúar,  3. fundur 5. mars og 4. fundur 12. mars. 2008.

Elín ræddi 3. lið á dagskrá bæjarráðs, tillögu um breytingar á  æskulýðs- og tómstundamálum. Vitnaði hún m.a. í greinargerð starfshóps sem vann tillögur um þennan málaflokk. Benti hún m.a. á aðskilnað skóla og félagsmiðstöðvar, sbr. tillögu. Sagði Elín að sér litist vel á tillögur hópsins og jafnframt að tómstundafulltrúi verði starfsmaður Menningarmiðstöðvar. Það gæti orðið spennandi að vinna með Menningarmiðstöð að æskulýðs- og tómstundamálum. Þá fjallaði Elín um bréf frá Risör kommune, einum af vinabæjum sveitarfélagsins. Þar kemur fram ósk um að þessu samstarfi verði slitið enda farið að fækka í hópi vinabæjanna. Sagði Elín eðlilegt að verða við þessu. Tímarnir hafi breyst og slíkt vinabæjarsamstarf ekki jafnmikilvægt og áður var.

Hjalti þakkaði umræðu um breytingar á æskulýðs- og tómstundamálum. Benti m.a. á að tillaga að breytingum hafi orðið til í framhaldi af vinnu stýrihóps um æskulýðs- og tómstundamál. Hjalti greindi frá umræðum í þremur nefndum um þessi mál og kom fram að ekki séu allar nefndir sammála um fram komna tillögu að breytingum. Lagði hann áherslu á að sveitarfélagið ætti að hugsa um alla aldurshópa þegar kemur að tómstundastarfi.

Árni fagnaði umræðunni og tók undir það sem sagt hefur verið af fyrri ræðumönnum. Sagði hann hugsanlegt að þessar breytingar kynnu að kalla á breytingar á nefndakerfi sveitarfélagsins. Hugsanlega sæju menn fyrir sér menningar- og tómstundanefnd þó ekki hafi neitt verið ákveðið um það.

Björn Ingi tók undir flest það sem komið hefur fram en gerði að umtalsefni þá hugmynd að tómstundafulltrúi færi undir Menningarmiðstöð. Velti því fyrir sér hvort slíkt kalli ekki á breytingar á nefndarkerfi. Taldi hann að við óbreytt nefndakerfi ætti tómstundafulltrúi að vera undir æskulýðs- og tómstundaráði hvað sem síðar yrði í kjölfar breytinga á nefndum.

Björk tók undir það sem fram hefur komið og sagðist sammála Birni Inga um hvar vista eigi tómstundafulltrúa. Þá gerði hún markaðsmál að umtalsefni og velti fyrir sér hvernig sveitarfélagið eigi að kynna sig.

Hjalti sagðist vona að ný heimasíða opnaði innan tíðar. Ákveðið hafi verið að markaðsmálin væru tekin til skoðunar í framhaldi af því. Hann sagði nýsköpun og frumkvöðlastarf vera eitt af sérkennum þessa samfélags. Þá ræddi hann þátt fjölskyldustefnu í þessu samhengi. Þá greindi hann frá heilsíðuauglýsingu nokkurra stofnana sem staðsettar eru í sveitarfélaginu. Taldi þá auglýsingu hafa vakið athygli á sveitarfélaginu. Sagðist hann fagna umræðu um markaðs- og kynningarmál.

Björn Ingi ræddi ályktanir frá aðalfundi Sindra 2008. Spurði hann hvort því bréfi hafi verið svarað og þá einkum fyrirspurn um 2. áfanga við sundlaug.

Reynir ræddi um annan áfanga við sundlaug. Hann taldi byggingu sem tengdi sundlaug við íþróttahús vera næsta áfanga. Sagði fulla ástæðu að fara yfir þetta mál en sagði þennan áfanga ekki vera á fjárhagsáætlun 2008. Þá ræddi hann framkvæmdir við höfnina og það rask og umferðatafir sem því muni fylgja.

Hjalti ræddi tengibyggingu sundlaugar og íþróttahúss. Taldi hana mjög mikilvæga og benti á að 100 millj. væru settar í tengibyggingu - 2. áfanga - á 3ja ára áætlun. Þá ræddi hann ályktanir Sindra og sagði ekki hafa tíðkast að svara ályktunum en sagði þessar ályktanir vera mikilvægt innlegg í umræðuna.

Fundargerð samþykk samhljóða.

Bæjarstjórn Hornafjarðar 126. fundur 13. mars 2008 áður samþykkt.

2.        Samrekstur stofnana sveitarfélagsins

Hjalti fór yfir útsend gögn og gerði grein fyrir markmiðum með breytingum sem kynntar voru. Samkvæmt þeim verði Áhaldahús, Hornafjarðarhöfn og Hornafjarðarveitur sameinaðar undir eina stjórn. Ráðinn verði einn verkstjóri yfir þessa starfsemi alla. Lagði hann áherslu á að klára þetta mál. Þrátt fyrir þessa fyrirhuguðu breytingar muni starfsemi þessara stofnana ekki breytast í grundvallaratriðum. Með þeim væri hins vegar verið að búa í haginn fyrir framtíðina. Lagði hann til að þessar breytingar verði samþykktar.

Björn Ingi sagði að honum litist vel á þessa tillögur. Sagðist hann gera ráð fyrir að þetta leiddi til hagræðingar, e.t.v. ekki strax en vonandi þegar til lengri tíma væri litið. Spurði hvort fjárhagsleg hagræðing hafi verið skoðuð. Þá spurði hann hvort umræddur verkstjóri verði starfsmaður á plani eða á skrifstofu. Sagði að sér litist ekki á að þetta verði „starfsmaður án staðsetningar”, sbr. athugasemd úr sal.

Hjalti sagði þennan verkstjóra vera staðsettan í Áhaldahúsi. Þá gerði hann hagræðingu að umtalsefni. Benti á að reglugerðir gætu stundum gert erfitt fyrir að ná fram hagræðingu eins og dæmin sanna. Þá sagði hann stefnumörkun hinnar nýju stofnunar vera eitt af því sem biði hins nýja verkstjóra.

Björn Ingi sagði að sér litist vel á þann lið í tillögunum sem kveður á um útboð. Benti á að hér væru fyrirtæki og einyrkjar sem gætu unnið þessi verk sem gæti verið hagur bæði sveitarfélagsins og þeirra sem verkin ynnu.

Tillaga um samrekstur stofnana borin undir atkvæði og hún samþykkt samhljóða.

 

3.        Samþykkt um fráveitur í Sveitarfélaginu Hornafirði  - síðari umræða

Liður felldur út.

 

 

4.        Fyrirspurnir

Engar fyrirspurnir hafa borist.

 

Fundi slitið kl. 17:10

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica