Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 126

126. fundur

Fundur haldinn      í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 13. mars 2008, kl. 16:10 í Nýheimum

 

Mætt voru:           Árni Rúnar Þorvaldsson forseti bæjarstjórnar, Reynir Arnarson, Gunnar Ingi Valgeirsson, Guðrún Ingimundardóttir,  Halldóra B. Jónsdóttir og Björk Pálsdóttir.  Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.        

 

Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.

1.        Fundargerðir

Bæjarráð Hornafjarðar, 407. fundur, dags. 4. febrúar 2008

·         Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 36. fundur, 30. janúar 2008.

·         Starfshópur um félagslíf grunnskólanema, 9. fundur.

·         Ungmennaráð Hornafjarðar, 2. fundur 25. janúar 2008.

Björk ræddi fundargerð atvinnumálanefndir, mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar. Spurði hvernig vinna við viðhald ríkisstofnana verði á höndum heimamanna. Þá lýst hún yfir ánægju með vinnu starfshóps um félagslíf grunnskólanema. Þá ræddi hún Hringveg 1 um Hornafjörð. Sagði bæjarstjórn ekki eiga að gefa framkvæmdaleyfi ef Skipulagsstofnun samþykkir tillögu Vegagerðarinnar um Leið 1.

Halldóra ræddi greinargerð um félagslíf grunnskólanema. Þakkaði hún fyrir greinargerðina og taldi hana gott innlegg við áframhaldandi vinnu  að málefnum þessa aldurshóps. Einnig ræddi hún frummatsskýrslu vegna Hringvegar 1. Halldóra taldi ríkja mikla eindrægni íbúa með það að fara Leið 3. Sagði mikilvægt að samstaða íbúanna sé góð þó vissulega væru ekki allir á einu máli. Lagði hún áherslu á að verið væri að velja framtíðarvegstæði.

Reynir tók undir það að mikil eindrægni ríkti um málið í sveitarfélaginu. Hann tók undir með Halldóru að verið væri að velja vegstæði til langrar framtíðar. Hann sagði umhugsunarvert það sem Björk benti á að vinna við viðhald ríkisstofnana í tengslum við mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar verði á höndum heimamanna. Þá ræddi hann mótvægisaðgerðirnar almennt.

Hjalti fagnaði umræðu um viðhald fasteigna, sagði þarft að leggja áherslu á þessi verk verði á höndum heimamanna. Þá ræddi hann mótvægisaðgerðirnar og sagði umræddar 8,8 millj. vera fyrstu úthlutun af þremur. Þá ræddi hann hvernig þeim hluta sem úthlutað hefur verið verði varið. Í því sambandi fagnaði hann samstarfi Matís og Bestfisks um vöruþróun. Einnig ræddi hann aðrar mótvægisaðgerðir og styrkumsóknir þeim tengdar. Þá gerði Hjalti grein fyrir samtölum bæjarráðs við þingmenn og ráðherra um mótvægisaðgerðirnar. Þá tók hann undir orð sem fallið hafa um ágæti greinargerðar um félagslíf ungmenna.

Árni ræddi frummatsskýrslu Vegagerðarinnar. Sagði hann bæjarráð hafa rætt þau mál við samgönguráðherra, þingmenn og starfsmenn Vegagerðarinnar. Sagði að þar hafi komið fram að beðið væri eftir niðurstöðu Skipulagsstofnunar og sagðist vona að stofnunin tæki undir sjónarmið þeirra sem vilja fara Leið 3. Þá lýsti Árni yfir ánægju með vinnu starfshóps um félagslíf grunnskólanema. Einnig ræddi hann ýmsar tillögur sem fram koma í greinargerðinni og sagðist fullviss um að þær muni nýtast vel.

Halldóra ræddi mótvægisaðgerðirnar, sagðist hafa heyrt töluna 300 milljónir sem komið hafa hingað í gegnum þær aðgerðir. Taldi þær upplýsingar áreiðanlegar. Sagði Nýheima eiga mikinn þátt í því hversu vel hafi tekist til í þessu sambandi, þar hafi grunnurinn verið lagður að verulegu leyti.

Fundargerð samþykk samhljóða.

Bæjarráð Hornafjarðar, 408. fundur, dags. 11. febrúar 2008.

·         Nefnd um húsnæðismál, 1. fundur 21. janúar 2008.

 

·         Svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs – suðursvæði, 4. fundur, 4. febrúar 2008.

Guðrún ræddi ósk starfsmanns um laun í námslotum. Fagnaði hún að bæjarráð hafi samþykkt að settar verði reglur um endurmenntun starfsmanna sveitarfélagsins.

Halldóra ræddi vefmál og meðferð tilboða í vef sveitarfélagsins. Fagnaði hún þeirri niðurstöðu að Eplicu-kerfið verði notað í stað PHP-kerfisins sem áður hafi verið samþykkt að taka. Þá ræddi Halldóra endurmenntunarmál og starfsmannastefnu sveitarfélagsins sem ekki hafi enn litið dagsins ljós. Spurði hvernig vinnu við hana miðaði.

Hjalti ræddi útboð í vefmálum og greindi frá vinnu við það. Til hverra hafi verið leitað til ráðgjafar sem hafi verið nokkrir aðilar. Hann ræddi mismunandi lausnir í vefmálum og hver niðurstaðan hafi orðið.  Hann ræddi reglur um námsleyfi starfsmanna. Sagði hann að fyrir 2 – 3 árum hafi verið lögð fram drög að reglum sem bæjarráð hafi hafnað á þeim tíma. Þá greindi hann frá vinnu við starfsmannastefnu, einkum starfsmannakönnun sem verið er að vinna úr.

Björk spurði um staðarval á knattspyrnuhúsi og áætlaðan kostnað.

Hjalti greindi frá þeirri vinnu sem fram hefur farið vegna þessa máls. Greindi m.a. frá heimsókn bæjarráðs á nokkra staði syðra þar sem slík hús hafa verið reist og samtöl við arkitekta. Þá greindi hann frá þremur hugsanlegum staðsetningum. Sagði þetta mál verða tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs og fyrirhugað að kynna málið meðal íbúa sveitarfélagsins.

Árni ræddi framtíð nýsköpunar- og frumkvöðlastarfs á Suðausturlandi, sbr. 7. lið á dagskrá bæjarráðs. Hann tók undir með Halldóru um mikilvægi Nýheima í sambandi við mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar. Þá ræddi hann að Fruman verði lögð niður tímabundið en starfinu haldið áfram undir merkjum Nýsköpunarmiðstöðvar. Þá minnti hann á þing sem haldið var um sl. helgi og ánægju með það. Einnig ræddi hann endurmenntun starfsmanna og mikilvægi þess að allir starfsmenn sveitarfélagsins sitji við sama borð.

Fundargerð samþykkt samhljóða.

Bæjarráð Hornafjarðar, 409. fundur, dags. 18. febrúar 2008.

·         Atvinnumálanefnd 37. fundur 13. febrúar 2008.

·         Félagsmálaráð 177. fundur 12. febrúar 2008.

·         Menningarmálanefnd, 97. fundur 13. febrúar 2008.

·         Nefnd um íþróttamannvirki, 44. fundur 7. febrúar 2008.

·         Svæðisráð suðursvæðis Vatnajökulþjóðgarðs, minnisblað eftir fund 13. febrúar 2008.

 Árni ræddi minnisblað um málefni þjóðgarðsins og gerði að umtalsefni staðsetningu framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs. Þá vitnaði hann til samþykktar núverandi ríkisstjórnar um að fjölga störfum á landsbyggðinni. Lagði hann fram eftirfarandi bókun vegna staðsetningar framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs: Bæjarstjórn Hornafjarðar harmar þá ákvörðun yfirstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs að starfsstöð framkvæmdastjóra yfirstjórnarinnar verði í Reykjavík. Innan yfirstjórnarinnar reyndist ekki vera pólitískur vilji fyrir því að starfsstöð framkvæmdastjórans yrði á Hornafirði eins og bæjarstjórn Hornafjarðar hefur barist fyrir síðan umræðan um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs hófst. Einnig lýsir bæjarstjórn yfir undrun sinni á því að fyrsta starfið sem auglýst er án staðsetningar ríkisstjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar skuli enda á höfuðborgarsvæðinu. Það vinnur gegn markmiðum ríkisstjórnarinnar um eflingu atvinnulífs á landsbyggðinni í gegnum störf án staðsetningar.

Björk ræddi framtíð frumkvöðlastarfs og spurði hvers vegna væri verið að breyta þar sem við höfum verið í fararbroddi á þessu sviði.

Hjalti greindi frá ákvörðunum um Frumuna og Nýsköpunarmiðstöð. Sagði þetta hafa verið snúið mál og í reynd byggja á ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Þá skýrði hann þá leið sem valin hafi verið og gerð var í samvinnu við stjórn og framkvæmdastjóra Frumunnar. Lagði hann áherslu  á að það starf sem unnið hefur verið sl. fimm á hverfi ekki. Þá lagði hann áherslu á að Fruman gæti aftur hafið störf ef þessi breyting tekst ekki vel. Sagði hann  hugmyndafræði Frumunnar lifa áfram þrátt fyrir skipulagsbreytingar.

Halldóra ræddi tillögu Árna að bókun, sagðist henni sammála. Taldi þó að fastar hefði mátt ganga fram af hálfu heimamanna í þessu máli. Sagði þessa ákvörðun um staðsetningu vera á ábyrgð ráðherra Samfylkingar. Þá ræddi hún framtíð frumkvöðlastarfs.  Sagðist furða sig á því að málið hafi ekki verið rætt á vettvangi nefnda bæjarins fyrr en minnisblaðið kom fram. Spurði hvers vegna bæjarstjórnarmönnum hafi ekki verið gefinn kostur á að ræða við starfsmenn Nýsköpunarmiðstöðvar. Sagðist ekki finna að niðurstöðunni en sagði að umræðan hafi engin verið. Þá óskaði hún eftir drögum að samningi um þetta mál ef þau væru til.

Hjalti sagði kómiskt að Halldóra léki hlutverk fórnarlambsins. Hann greindi frá þeim umræðum sem hann, framkvæmdastjóri Frumunnar o.fl. hafa tekið þátt í. Þá greindi hann frá umfjöllun bæjarráðs um málið og sagði drög að samningi hafa orðið til eftir umfjöllun bæjarráðs. Sagði málið hafa verið unnið fyrir opnum tjöldum og samningsdrög verða rædd í bæjarráði áður en málinu verður lokið.

Reynir sagði það samdóma álit stjórnarmanna í Frumunni að hún starfaði ekki áfram eftir að ákveðið hafi verið af ríkisstjórninni að Nýsköpunarmiðstöð Íslands setti hér upp starfsstöð. Þetta nýja verkefni hafi verið sett upp til tveggja ára í fyrstu. Sagði hann að framkvæmdastjóri Frumunnar hafi verið ráðinn til starfsstöðvar Nýsköpunarmiðstöðvar á Höfn.

Árni sagði það rétt sem Björk hafi sagt um frumkvöðlastarf hér á Höfn. Með þeirri breytingu sem ákveðin hafi verið komi tvö störf í Nýheima. Sagðist ekki fallast á að málið hafi ekki fengið lýðræðislega umfjöllun eins og Halldóra hafi rætt um.

Halldóra sagðist hafa fundið að því að umræðu hafi skort um málið, sagðist hins vegar ekki finna að niðurstöðu málsins. Halldóra sagðist finna að aðferðafræðinni.

Hjalti sagði það sanna sitt mál að Björn Ingi hafi haft mótandi áhrif á málið og framgang þess þannig að það hafi ekki verið unnið fyrir lokuðum tjöldum.

Bókun Árna um starfsstöð framkvæmdastjóra þjóðgarðsins borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.

Fundargerð samþykkt samhljóða.

Bæjarráð Hornafjarðar, 410. fundur, dags. miðvikudaginn 27. febrúar 2008.

·         Byggingar og skipulagsnefnd 88. fundur 19. febrúar 2008.

·         Gjafa og minningarsjóður Skjólgarðs 39. fundur 2008.

·         Heilbrigðis- og öldrunarráð 89. fundur 20. febrúar 2008.

·         Æskulýðs- og tómstundaráð 97. fundur 21. febrúar 2008.

·         Umhverfisnefnd Hornafjarðar 75. fundur 14. febrúar 2008.

·         Nefnd um íþróttamannvirki, 45. fundur 20. febrúar 2008.

Björk vildi upplýsa bæjarbúa um gang mála við þjónustusamninginn. Sagði þá félaga, Árna og Hjalta, alltaf eitthvað finna því til fyrirstöðu að hægt verði að ljúka samningum við ríkið. Lagði áherslu á að meirihlutinn kæmi hreint fram og segði hvað hann vildi gera. Þá ræddi hún um fundargerð umhverfisnefndar og þá staðreynd að niðurgreiðslur ríkisins vegna fráveitumála renni út um áramót. Einnig ræddi hún sorptunnur að hætti íbúa Stykkishólms sem hún taldi góða lausn. Þá sagðist hún vilja sjá fleiri og betri göngustíga. Þá spurði hún um kvikamyndahús og hvort búnaður þess hafi verið tekinn út.

Hjalti sagðist ekki ætla að svara Björk um vinnubrögð við þjónustusamninginn. Þá greindi hann frá viðræðum við ríkisvaldið. Sagðist hafa frá því í október verið í vikulegum samskiptum við ráðuneyti og upp á síðkastið daglegum samskiptum. Sagðist binda vonir við að brátt muni sjá fyrir endann á þessum samningamálum. Hjalti ræddi göngustíga og sagði að von væri á erindi frá áhugahópi um það mál. Hjalti sagðist hafa haft samband við Samband ísl. sveitarfélaga vegna niðurgreiðslu ríkisins tengdar fráveitumálum. Sagði hann stjórn sambandsins munu taka það fyrir bráðlega.

Reynir ræddi þjónustusamninginn. Hann sagði sérfræðing um kvikmyndasýningarvélar ekki hafa komið þegar von var á honum.

Halldóra ræddi þjónustusamninginn og taldi upplifun Bjarkar hafa verið rétta. Þá ræddi hún gögn sem bæjarstjóri lagði fram á fundinum um heilbrigðismál, gögn sem hún hafði óskað eftir fyrir 4 mánuðum. Um er að ræða yfirlit yfir fundi með ráðherrum og embættismönnum ráðneyta og hverjir sátu þá fundi fyrir hönd sveitarfélagsins, minnisblöð sem varða þjónustusamning milli ríkis og sveitarfélags um heilbrigðismál, athugasemdir við stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands og tillögu að lausn á þjónustusamningi við Hornafjörð sem kom fram eftir fund með fjármálaráðherra í lok febrúar. Taldi hún þessa fundi sem nefndir eru í gögnunum vart geta talist samningafundi. Þá taldi hún rétt að skoða hvort ríkið ætti ekki að semja við aðra aðila um þennan málaflokk úr því sem komið væri. Sagði hún meirihluta og minnihluta þurfa að stilla saman strengi og landa þessum samningi. Halldóra ræddi einnig fráveitumál og endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna þeirra. Taldi hún greinilegt að sveitarfélagið ætli ekki að ljúka fráveitumálunum fyrr en eftir 2011 ef tekið er mið af áætlunum. Þá tók hún undir orð Bjarkar um sorphirðu. Þá ræddi hún greiðslur Tryggingarstofnunar til heilsugæslu, 10 milljónir sem vantaði og óskaði skýringa á þeim. Einnig ræddi hún heilsueflingu, sumarlokun leikskóla og samrekstur stofnana sveitarfélagsins. Ræddi hún hjálagt plagg um hugsanlegan samrekstur og óskaði skýringa á ýmsum þáttum þess. Halldóra ræddi minnisblað um samstarf á vettvangi landshlutasamtaka sveitarfélaga og spurði hvort ákveðið hafi verið að ganga í samtök sveitarfélaga á Suðurlandi. Taldi hún umræðu um með hverjum við eigum að starfa vera eðlilega. Hún sagði okkur hafa náð ýmsu fram í samstarfi austur og sagði Nýheima ekki vera til með núverandi sniði án þess að Austfirðingar hefðu staðið með okkur. Benti í því sambandi á Háskólasetrið, Frumuna, Þekkingarnetið og menningarsamning. Sagði hún að SSA væri bakland Þekkingarnetsins.

Árni gerði að umtalsefni þjónustusamninginn og framangreint yfirlit bæjarstjóra yfir fundi o.fl. vegna þess máls. Hann ræddi tillögu að lausn á þjónustusamningi sem hafa orðið til fyrir samvinnu bæjarstjóra og starfsmanns í fjármálaráðuneytinu. Þá ræddi hann málflutning sjálfstæðismanna sem ýmist töluðu um pukur eða of mikla umræðu, færi eftir málefnum. Þá sagði Árni núverandi samning ekki byggja á nægilega traustum grunni. Hann greindi frá fundi bæjarráðs í fjármálaráðuneytinu sem hann sagði hafa verið góðan. Þá sagði hann það vera vilja meirihlutans að klára þennan samning. Sagði hann ábyrgð á því að klára samninginn ekki aðeins hvíla á þeim “félögum” eins og Björk kallaði hann og bæjarstjóra. Árni sagði sjálfstæðismenn gjarnan lenda í rökræðum við sjálfa sig og mótsögn í þeirra málflutningi þar sem ýmist væri bent á af þeirra hálfu að of lítið eða of mikið væri gert og sagt um einstök mál. Árni ræddi aðild okkar að landshlutasamtökum og veru okkar í Suðurkjördæmi. Sagði okkur eiga leið með landshlutasamtökum á Suðurlandi vegna kjördæmaskipunarinnar. Sagði tengsl okkar við ýmsar stofnanir, Þekkingarnetið o.fl. sem við eigum nú aðild að með Austfirðingum vera úrlausnaratriði.

Hjalti ræddi 3ja ára áætlun. Sagðist hafa rætt í framsögu með henni að undirbúa þyrfti lokalausn í fráveitumálum áður en samþykkt yrði fjármagn til þessa. Hann sagðist fagna umræðu um sorpmál. Þá ræddi Hjalti samrekstur stofnana og mannahald í því sambandi, hugsanlega úthýsingu verkefna, skipulag o.fl. þætti sem að þessum hugmyndum snúa.

Björk taldi Árna hafa verið að misskilja sig. Sagði okkur stöðugt þurfa að minna á okkur, ráðamenn í ríkisstjórn væru ekki alltaf með hugann við okkur. Þá ræddi hún aðild að SSA eða SASS. Sagðist vera sammála Árna en mikilvægt að ræða það vel.

Hjalti sagðist vilja ítreka það að hann hafi verið í miklum samskiptum við ráðuneytismenn vegna þjónustusamningsins. Hann tók undir það að ræða þurfi aðild okkar að landshlutasamtökum sveitarfélaga og hitta sameiginlega starfsmenn/stjórn SASS.

Fundargerð samþykkt samhljóða.

Bæjarráð Hornafjarðar, 411. fundur, dags. mánudaginn 10. mars 2008.

·         Félagsmálaráð Hornafjarðar 178. fundur 21. febrúar 2008.

·         Skólanefnd Hornafjarðar 101. fundur 27. febrúar 2008.

·         Nefnd um stefnu í húsnæðismálum sveitarfélagsins, 2. fundur 26. febrúar 2008.

·         Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga 751. fundur 22. febrúar 2008.

Björk ræddi kosningu fulltrúa sveitarfélagsins á aðalfund Menningarráðs Austurlands.

Halldóra ræddi greinargerð Flugstoða: „Ráðstafanir og kostnaður við að færa flugvellina á Ísafirði, Vestmannaeyjum og Höfn úr flokknum lendingarstaður í flokk I, þannig að þessir flugvellir geti þjónað millilandaflugi.” Sagði að skýra þurfi nánar ákveðna þætti skýrslunnar sem og atriði sem Flugstoðir hafi áður lagt til, samkvæmt hennar upplýsingum,  tillögur sem giltu um Hornafjarðarflugvöll, svo sem um lendingu smærri flugvéla í millilandaflugi. Taldi hún að kostnaður við að lagfæra flugvöllinn þannig að hann gæti almennt tekið á móti flugvélum í millilandaflugi væri ekki hár. Næsta skref væri að ná fram fjármunum til þess.

Reynir ræddi greinargerð Flugstoða og taldi að hún hjálpaði okkur til að taka þátt í millilandaflugi. Sagði að halda þurfi áfram þessari vinnu. Sagði hann að af þessum þremur flugvöllum væri eina vitið að leggja áherslu á Hornafjarðarflugvöll.

Hjalti sagði þessi mál hafa verið rædd við þingmenn Suðurkjördæmis og taldi stuðning fást þar við málið. Einnig hafi verið rætt við starfsmenn Flugstoða sem og samgönguráðherra. Hann hafi lagt áherslu á að samgönguráðherra færi yfir þetta mál.

Halldóra sagði að leggja þurfi áherslu á flugvöllinn vegna öryggisþátta, Hornafjörður væri mikilvægur vegna flugöryggis yfir hafið.

Reynir sagðist ekki ætla að stjórna hvað menn segðu um flugvöllinn, hvorki um öryggismál né annað.

Fundargerð samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn Hornafjarðar, 125. fundur, 6. febrúar 2008, áður samþykkt.

2.        Fjallskilasamþykkt fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð – síðari umræða

Hjalti benti og á mikla umræðu í þjóðfélaginu um þessi mál, þar á meðal á Búnaðarþingi nú nýverið. Þar hafi verið ákveðið að skipa starfshóp um þetta mál til að fara yfir það á milli þinga. Hann greindi frá breytingum á samþykktinni sem orðið hafa á milli umræðna og lagði til að fjallskilasamþykktin verði samþykkt.

Halldóra sagðist játa það að hún hafi ekki kynnt sér málaflokkinn í hörgul. Óskaði eftir upplýsingum um hvernig hafi verið staðið að kynningu við bændur um samþykktina sem og hvernig nota eigi ákv. sjóði til að standa straum að kostnaði við smölun.

Hjalti greindi frá samráði við bændur vegna málsins. Þar hafi m.a. komið fram efasemdir um að sveitarfélagið sæi um skipulag fjallskila. Útskýrði hann hvernig/hvar sveitarfélagið kæmi að því skipulagi sem og kostnaði við fjallskil.

Halldóra sagðist skilja það þannig að engin opinber kynning hafi farið fram og því treysti hún sér ekki til að samþykkja fjallskilasamþykktina. Þá óskaði hún eftir nánari útskýringum á hver bæri kostnað.

Hjalti sagði landeigendur og sveitarfélag bera kostnað af fjallskilum.

Samþykkt með 4 atkvæðum, tveir sátu hjá.

3.        Samþykkt um búfjárhald í Sveitarfélaginu Hornafirði  - síðari umræða

Hjalti greindi frá breytingum sem orðið hafa á milli umræðna. Lagði áherslu á að hún ætti ekki við um lögbýli heldur búskap utan þeirra. Þá greindi hann frá fundi með frístundabændum um samþykktina o.fl. mál sem snúa að þeim.

Samþykkt samhljóða.

4.        Samþykkt um fráveitur í Sveitarfélaginu Hornafirði  - fyrri umræða

Hjalti fór yfir samþykktina og greindi frá helstu áherslum í samþykktinni. Lagði hann til að samþykktin verði samþykkt og hún þá send til umsagnar í viðkomandi stofnunum.

Samþykkt samhljóða að vísa samþykktinni til umsagnar stofnana og til síðari umræðu.

5.        Deiliskipulag á Leirusvæði

Hjalti fór yfir tillögur að deiliskipulagi. Sagði engar athugasemdir hafa komið fram í auglýsingarferli um deiliskipulagið

Tillaga að deiliskipulagi samþykkt samhljóða.

6.        Tillaga að aðalskipulagsbreytingu á landnotkun á Stekkanesi

Hjalti gerði grein fyrir aðalskipulagsbreytingunni, stærð landsvæðisins, núverandi notkun þess og fyrirhugaða nýtingu þess undir gestastofu þjóðgarðsins.

Tillagan samþykkt samhljóða.

7.        Fyrirspurnir

Engar fyrirspurnir hafa borist.

 

Fundi slitið kl. 19:40

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica