Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 121
121. fundur
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson forseti bæjarstjórnar, Gunnar Sigurjónsson, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðrún Ingimundardóttir, Björn Ingi Jónsson og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.
Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
Forseti óskaði eftir því að einum lið verði bætt við dagskrá fundarins þar sem varmaður í bæjarstjórn hafi óskað eftir lausn frá störfum. Samþykkt samhljóða án athugasemd.
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar, 390 fundur, dags. 9. ágúst 2007
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 168. fundur 28. ágúst 2007.
· Heilbrigðisnefnd Austurlands 71. fundur 22. ágúst 2007.
Hjalti Þór gerði grein fyrir fyrirhugaðri sölu á hluta af Nesjaskóla, heimavist m.m. Einnig ræddi hann að nauðsynlegt væri að skoða ýmsar aðrar húseignir sveitarfélagsins og nýtingu á þeim. Hjalti ræddi um Náttúrustofu Suðausturlands og ýmis verk sem hún gæti unnið. Einnig ræddi hann í hvaða farvegi það mál sé statt hjá stjórnvöldum. Þá ræddi Hjalti landbrot af völdum stórfljóta. Sagði hann mikilvægt að halda vöku sinni í þeim málum og reyna að fá aukið fjármagn í þennan málaflokk.
Halldóra fjallaði um fyrirhugaða sölu á Nesjaskóla. Hún taldi menn almennt sammála um að fara þurfi yfir húsnæðismál skólanna sem og annað húsnæði í eigu sveitarfélagsins. Taldi hún æskilegt að sú nefnd sem ætlað er að fara yfir húsnæði grunnskólans hafi ekki á sinni könnu annað húsnæði í eigu sveitarfélagsins. Sú nefnd kæmi til starfa þegar búið væri að fara yfir húsnæði skólanna. Einnig ræddi Halldóra landbrot af völdum fljóta. Hún gerði að umtalsefni fjölskyldustefnu sveitarfélagsins. Þá ræddi hún starfsmannastefnu sveitarfélagsins og í hvaða farvegi hún sé en samþykkt hafi verið á 316. fundi bæjarráðs að hefja vinnu við endurskoðun á henni.
Sigurlaug fjallaði um landbrot og breytingu á rennsli Hornafjarðarfljóta. Með þeim breytingum hafi brostið náttúruleg sauðfjárveikivarnarlína. Við því þurfi að bregðast með viðeigandi girðingum.
Björn Ingi ræddi sölu á Nesjaskóla og benti á að komi tilboð í allt húsnæði skólans yrði það tekið til skoðunar. Þetta tengdist þó ekki á neinn hátt kennslu í skólanum.
Hjalti sagðist hafa viljað sjá að vinna við starfsmannastefnuna lengra komna. Sagði hann núverandi stefnu á margan hátt góða. Skerpa þurfi þó á ýmsum málum í stefnunni. Einnig ræddi hann ýmsa þætti sem snúa að starfsmönnum, svo sem líðan starfsmanna, símenntun o. fl. Þá ræddi hann sauðfjárveikivarnalínu og mikilvægi þess að halda núverandi varnarlínu.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Hornafjarðar, 391 fundur, dags. 10. september 2007.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar, 92. fundur 5. september 2007.
· Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar, 91. fundur 3. september 2007.
· Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 745. fundur 30. ágúst 2007.
Elín ræddi fundargerð menningarmálanefndar og spurðist fyrir um starfsaðstöðu fyrir ungmenni á aldrinum 18 – 26 ára sem tengdist margvíslegri sköpun.
Hjalti greindi frá umræðum um málið en sagði málið ekki langt komið. Hann ræddi um íþróttamannvirki, nýjar byggingar og endurbætur á þeim. Einnig ræddi hann félagslíf grunnskólanema og hugsanlegt fyrirkomulag þeirra í framtíðinni.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Hornafjarðar, 392 fundur, dags. 17. september 2007.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar, 169. fundur 11. september 2007.
· Nefnd um íþróttamannvirki, 41. fundur 10. september 2007.
Hjalti ræddi mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar og þær afleiðingar sem niðurskurður á aflaheimildum hefði í för með sér. Þá ræddi hann Nýheima og þær stofnanir sem þar eru til húsa. Sagði það mjög mikilvægt skref sem stigið var á sínum tíma með byggingu Nýheima.
Halldóra ræddi mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar og fyrirhugaða bókun um málið. Sagði að bæði meiri- og minnihluti hafi komið með áþekka bókun í sínu farteski inn á fundinn sem búið væri að setja í eina sameiginlega bókun. Þá ræddi Halldóra um staðsetningu björgunarþyrlu og lagði fram tillögu að eftirfarandi ályktun sem hún hvatti til að yrði samþykkt:
Bæjarstjórn Hornafjarðar vill ítreka fyrri ályktanir um björgunarþyrlu og beinir þeim eindregnu tilmælum til yfirvalda að björgunarþyrla verði staðsett á Hornafirði. Hornafjarðarflugvöllur er mikilvægur hlekkur í björgunar- og öryggisþjónustu í landinu. Lendingarskilyrði eru góð og flugvöllurinn hefur gegnt mikilvægu hlutverki í björgunaraðgerðum bæði til lands og sjávar á Suður- og Austurlandi. Vegna fjarlægðar milli Hafnar og Höfuðborgarsvæðisins eru veður oft ólík á þessum tveim stöðum. Þyrlur hafa takmarkað flugþol og fljúga ekki yfir fjalllendi í slæmum veðrum og því myndi þyrla staðsett á Hornafirði veita sjófarendum við Suðurströndina og á sunnanverðum Austfjörðum aukið öryggi. En á þessu svæði eru fjölförnustu siglingaleiðir til og frá landinu og gjöful fiskimið. En jafnframt er erfiðari hafnaraðstaða og þyngri sjór en annarsstaðar við landið. Þegar ný þyrla kom til landsins síðastliðinn vetur var fyrsti viðkomustaður hennar Hornafjarðaflugvöllur og þyrlan sem tók þátt í aðgerðum á Fáskrúðsfirði á dögunum nýtti Hornafjarðarflugvöll á ferð sinni.
Ferjuflugvélar hafa oft viðkomu á Hornafirði, enda gegnir flugvöllurinn mikilvægu hlutverki fyrir þær.
Frá Hornafirði er stutt á fjölfarna ferðamannastaði og ætla má að á næstu árum muni verða mikil aukning ferðamanna á svæðinu í tengslum við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs.
Í ljósi umræðu undanfarið um aukið eftirlit með ferðum skipa og flugvéla til landsins teljum við að gera þurfi endurbætur á öryggis- og eftirlitsþáttum á Hornafjarðarflugvelli svo hægt sé að taka á móti minni farþegavélum og ferjuflugvélum auk þess að björgunarþyrla sé staðsett á svæðinu svo björgunar- og eftirlitsmál séu viðunandi.
Þá fór Halldóra yfir ýmis atvik þar sem Hornafjörður var nýttur til björgunaraðgerða með þyrlu á sjó og við strönd landsins.
Hjalti sagðist taka heilshugar undir bókun Halldóru, sagði málið vera brýnt. Einnig ræddi hann málefni Hornafjarðarflugvallar og mikilvægi hans vegna flugs á milli landa.
Árni Þorvaldsson tók undir tillögu Halldóru að bókun um staðsetningu björgunarþyrlu. Þá gerði hann að umtalsefni mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar og lagði fram eftirfarandi bókun bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn Hornafjarðar fagnar fram komnum mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna skerðingar á þorskkvóta. Þessar tillögur hafa það að markmiði að renna fleiri stoðum undir atvinnulíf á landsbyggðinni og auka fjölbreytni. Það samræmist þeirri stefnu sem Sveitarfélagið Hornafjörður hefur fylgt undanfarin ár. Nýheimar hafa nú verið starfræktir í fimm ár og hafa þegar sett mark sitt á samfélagið. Sá stuðningur sem samfélagið fær nú, samkvæmt þessum aðgerðum skiptir afar miklu. Bæjarstjórn bindur einnig vonir við að góður hluti af því fjármagni sem skilgreint er í mótvægisaðgerðum til uppbyggingar ferðaþjónustu og endurbóta á fasteignum ríkisjóðs renni til Hornafjarðar. Þrátt fyrir það er ástæða til að hafa áhyggjur af stöðu einyrkja í útgerð og minni fiskverkendum, sem og af stöðu sjómanna og fiskverkafólks. En með styrkara samfélagi er auðveldara að takast á við niðursveiflu þrátt fyrir að ekkert komi í stað skerðingar á veiðiheimildum.
Bæjarstjórn felur bæjarráði að fylgjast vandlega með atvinnuástandi í samvinnu við atvinnumálanefnd á næstu vikum og mánuðum. Þannig verði metið hvort þörf er á að grípa til sértækra aðgerða af hálfu bæjarstjórnar til að bregðast við atvinnuleysi sem hlýst af skerðingu aflaheimilda.
Ályktun Halldóru um staðsetningu björgunarþyrlu borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með öllum greiddum atkvæðu.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Hornafjarðar, 393 fundur, dags. 24. september 2007.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð 84. fundur 19. september 2007.
· Nefnd um íþróttamannvirki, 42. fundur 18. september 2007.
Fundargerð samþykkt samhlóða.
Fundargerð bæjarstjórnar Hornafjarðar, 120. fundar, 6. september 2007, áður samþykkt.
2. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2007 – gögn áður send
Bæjarstjóri fór yfir endurskoðaða fjárhagsáætlun fyrir árið 2007 sem bæjarráð vísaði til afgreiðslu í bæjarstjórn. Helstu breytingar á fjárhagsáætluninni eru þær að skatttekjur í heild hækka um 100,5 m.kr., vegna hækkunar á útsvari og framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Heildarupphæð skatttekna er því um 1.003 m.kr. og tekjur samstæðunnar tæplega 1.317 m.kr.
Útgjöldin til rekstrar aukast hins vegar um 40,0 m.kr. og munar þar mest um launabreytingar og meiriháttar viðhald á Silfurbraut 2-4. Heildarupphæð gjalda samstæðunnar án fjármagnsliða er um 1.122 m.kr. en fjármagnsliðir eru um 69,4 m.kr. Rekstrarafgangur er jákvæður um 125,3 m.kr. sem er um 97,5 m.kr. betri afkoma en fyrri áætlun gerði ráð fyrir. Fjárfestingar lækka um 171,1 m.kr. m.a. vegna sundlaugarbyggingar og sölu á kaupleiguíbúðum. Afborganir langtímalána hækka um 55 m.kr. sem skýrist af uppgreiðslu lána vegna sölu kaupleiguíbúða. Gert er ráð fyrir að ný langtímalán verði 148,9 m.kr. í stað 236 m.kr. Handbært fé í ársbyrjun er áætlað um 261,7 m.kr. sem er um 184 m.kr. hærra en fyrri áætlun gerði ráð fyrir og handbært fé í árslok er áætlað um 346,7 m.kr. sem er um 299 m.kr. hærra en fyrri áætlun gerði ráð fyrir.
Endurskoðuð fjárhagsáætlun borin undir atkvæði og samþykkt með sex atkvæðum, einn bæjarfulltrúi sat hjá.
3. Lausn frá störfum
Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir að veita Lilja Hrund Harðardóttir, að hennar eigin ósk, lausn frá skyldum sem varamaður í bæjarstjórn Hornafjarðar út kjörtímabilið vegna búferlaflutninga úr sveitarfélaginu. Samþykkt samhljóða.
4. Kosningar
Forseti bar upp eftirfarandi tillögur:
Gunnar Ingi Valgeirsson verði aðalmaður í atvinnumálanefnd í stað Lilju Hrund Harðardóttur og jafnframt varformaður nefndarinnar. Ásgrímur Ingólfsson verði formaður atvinnumálanefndar.
Sigbjörn Guðmundsson verði varamaður í atvinnumálanefnd í stað Gunnars Inga Valgeirsson. Elín Magnúsdóttir verði varamaður í stað Lilju Hrundar Harðardóttur í heilbrigðis- og öldrunarráði.
Elísabet Einarsdóttir verði aðalmaður í félagsmálaráð í stað Guðmundar Inga Sigbjörnssonar.
Reynir Arnarson verði varamaður í félagsmálaráði í stað Elísabetar Einarsdóttur. Samþykkt samhljóða.
Samþykkt með 5 atkvæðum, 2 sitja hjá.
5. Fyrirspurnir
Engar fyrirspurnir hafa borist.
Fundi slitið kl.


