Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 120
120 Fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 6. september 2007, kl. 16:00 í Ekru.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson forseti bæjarstjórnar, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Erna Gísladóttir, Björk Pálsdóttir og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig Stefán Ólafsson og Ásta H. Guðmundsdóttir.
Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar, 387. fundur, dags. 9. ágúst 2007.
· Nefnd um íþróttamannvirki 40. fundur 30. júlí 2007.
Björk Pálsdóttir spurðist fyrir um knattspyrnuhúsið, hvenær það ætti að rísa og kostnað sveitarfélagsins varðandi það. Reynir Arnarsson sagði að verið væri að vinna að málinu en ekkert lægi fyrir varðandi byggingu og kostnað. Stefán Ólafsson ræddi um fund sem hann sat í Hveragerði varðandi byggingu á mjúkhúsum. Sagði hann að m.v. hálfan völl færi kostnaður ekki undir 130 m.kr. Árni R. Þorvaldsson ræddi einnig um mjúkhús, s.s. samanburð á mjúkhúsum og stálgrindarhúsum, einnig sagði hann að það þyrfti að vanda sig vel varðandi staðsetningu á slíku mannvirki. Halldóra B. Jónsdóttir sagði að þessar umræður væru tímabærar og talaði um rekstrarkostnað einnig spurði hún hvort búið væri að slá út af borðinu II og III áfanga sundlaugarinnar. Reynir Arnarsson taldi að stærð hússins skapi viss vandamál varðandi staðsetningu, sagði hann að II og III áfangi að byggingu sundlaugar væri enn í vinnslu. Árni tók undir orð Reynis varðandi byggingu sundlaugar.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar, 388. fundur, dags. 20. ágúst 2007.
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 32. fundur 2007.
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, 80. fundur 8. ágúst 2007.
· Félagsmálaráð, 167. fundur, 14. ágúst 2007.
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar, 95. fundur 2007.
· Skólanefnd, 95. fundur, 13. ágúst 2007.
Árni R. Þorvaldsson ræddi um erindisbréf starfshóps um úttekt og tillögur er varða félagslíf grunnskólanema og er hann ánægður með að nemendaráð grunnskólans skuli eiga fulltrúa í starfhópnum. Einnig ræddi hann um félagslíf eldri ungmenna. Sigurlaug Gissurardóttir ræddi um fundargerð atvinnumálanefndar og sagði að niðurskurður aflaheimilda væri grafalvarlegt mál. Ræddi hún um málþing sem atvinnumálanefnd er að undirbúa um framtíðarsýn í atvinnumálum. Halldóra B. Jónsdóttir sagði að huga þurfi að félagslífi grunnskólanema og ekki síður þeirra sem eldri eru, ræddi hún um bíó í því sambandi. Ræddi hún um starfsemi Nýheima. Reynir Arnarson ræddi líka um starfsemi í Nýheimum og framtíð frumkvöðlasetursins. Björk Pálsdóttir sagði að aðstaðan í Nýheimum væri góð einnig ræddi hún um styrk til fráveitu. Árni R. Þorvaldsson ræddi einnig um starfsemi Nýheima og sagði að vinna væri komin í gang til að marka Nýheimum nýja framtíðarsýn. Sigurlaug ræddi einnig um Nýheima. Stefán Ólafsson sagði að bygging Nýheima hafi verið djörf ákvörðun, en góð hugmynd. Ræddi hann einnig um flutning opinberra starfa til Hornafjarðar. Sagði hann að huga þurfi að fráveitumálum í næstu þriggja ára áætlun. Halldóra B. Jónsdóttir ræddi áfram um Nýheima og atvinnumál. Ræddi hún um opinber störf, s.s. starfsemi Fiskistofu og Siglingastofnunar. Einnig ræddi hún um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs og að höfuðstöðvar hans yrðu á Höfn. Reynir Arnarson upplýsti að búið sé að hafa samband við Siglingastofnun um samstarf.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar, 389. fundur, dags 27. ágúst 2007.
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 33. fundur 21. ágúst 2007.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 95. fundur 17. ágúst 2007.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 83. fundur 22. ágúst 2007.
· Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs 36. fundur 22. ágúst 2007.
Reynir Arnarson upplýsti að hafnarstjórn mælti með við Siglingastofnun að taka næst lægsta bjóðanda varðandi dýpkun úr höfninni. Árni R. Þorvaldsson ræddi um fundargerð hör og þá sérstaklega um stöðuna í gerð þjónustusamningsins. Einnig ræddi hann um læknamál í sveitarfélaginu.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð bæjarstjórnar Hornafjarðar, 119. fundar, 9. ágúst 2007, áður samþykkt.
2. Samþykkt um búfjarhald í Sveitarfélaginu Hornafirði ? fyrri umræða
Stefán fylgdi málinu úr hlaði og sagði að samþykktin þyrfti tvær umræður í bæjarstjórn, sbr. lög nr. 45 frá árinu 1998, þetta væri því sú fyrri. Þá kom fram í máli Stefáns að samþykktin byggði á lögum nr. 103 frá árinu 2002 og sé sett til að tryggja skipulag, stjórn og eftirlit með búfjárhaldi í sveitarfélaginu. Samkvæmt samþykktinni er búfjárhald óheimilt í sveitarfélaginu utan lögbýla nema með sérstöku leyfi sveitarstjórnarinnar. Einnig er lausaganga búfjár bönnuð á þjóðvegi 1 frá Almannaskarði að Hornafjarðarfljótum og nr. 99 á Hafnarvegi.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa framlagðri samþykkt um búfjárhald til annarrar umræðu í bæjarstjórn.
3. Kosningar
Þjónustuhópur aldraðra
Jóhanna Kristjánsdóttir lætur af störfum hjá HSSA vegna flutnings. Samþykkt samhljóða að Ásgerður Gylfadóttir taki hennar sæti í þjónustuhópi aldraðra.
4. Fyrirspurnir
Engar.
Fundi slitið kl. 17.43


