Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 117
117. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudagur 14. júní 2007, kl. 16:00 í Nýheimum Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson forseti bæjarstjórnar, Ásgrímur Ingólfsson, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Stephen Robert Johnson, Björk Pálsdóttir og Halldóra B.Jónsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson. Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar 378. fundur þriðjudaginn 8. maí 2007
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 91. fundur 27. apríl 2007.
· Æskulýðs og tómstundaráð Hornafjarðar 88. fundur 30. apríl 2007. · Nefndum íþróttamannvirki 34. fundur 2007.
· Nefnd um endurskoðun fjallskila 7. fundur 2. maí 2007.
Björk ræddi fundargerð Hafnarstjórnar og spurði um tilboð í vélaskipti og hver unnið hafi útboðsgögnin. Þá spurði hún um ráðningu verkefnastjóra vegna íþróttamannvirkja og framkvæmdir á íþróttavöllum og hvort þeim verði lokið fyrir landsmót.
Sigurlaug hvatti atvinnumálanefnd til að skoða lausagöngu búfjár og girðingamál með þjóðvegi heildstætt fyrir alla sýsluna, ekki hluta hennar.
Hjalti greindi frá tilhögun vinnu við útboðsgögn og val á tilbjóðanda og aðdraganda þess að þessi leið var valin við endurbætur á vélum í Birni lóðs. Hann greindi frá því að gerðar hafi verið athugasemdir við þetta útboð og sagði það vera á hans ábyrgð.
Þá greindi hann frá tilhögun á verkefnastjóra vegna íþróttamannvirkja sem hafi verið látið í hendur tæknideildar. Hjalti greindi frá stöðu mála við íþróttavöllinn og taldi hann og annað varðandi landsmótið eiga að vera tilbúið tímanlega. Hann tók undir með Sigurlaugu varðandi lausagöngu búfjár.
Halldóra ræddi útboðið vegna Björns lóðs. Sagði það tímabært að menn vissu eftir hvaða leikreglum verið væri að vinna. Taldi farið á skjön við almennar vinnureglur þegar ekki væri kveðið á um verktíma í útboðinu. Taldi þetta mikilvægt. Þá ræddi hún framkvæmdir við íþróttavelli. Benti á atriði sem vinna hafi þurft upp aftur og ræddi í því sambandi ráðgjöf frá ráðgjöfum. Vildi hún fá skýringar á því hvers vegna verkið væri ekki komið lengra. Veðrið væri mikilvægur þáttur í lagningu tartansins. Þá benti hún á að ekki hafi verið haldinn fundur í nefnd um íþróttamannvirki í um einn mánuð. Þá tók hún undir orð Sigurlaugar um ágang búfjár.
Ásgrímur lýsti ánægju með að tekið hafi verið tilboðinu sem bauð stystan viðgerðartíma, það skipti máli í rekstri lóðsbátsins.
Hjalti greindi frá rökum og vali hafnarstjórnar á tilboði og sagði um það hafa verið einhug í stjórninni. Þá ræddi hann nefnd um íþróttamannvirki. Benti hann á að til skamms tíma hafi Halldóra verið varaformaður nefndar um íþróttamannvirki. Sagði hann að teknar hafi verið þær ákvarðanir sem þyrfti og nú væri því stýrt af starfsmönnum tæknideildar. Þá sagði hann ráðgjöfina hafa verið slælega. Menn þurfi að leysa þau vandamál sem upp koma og engin ástæða til að fara á taugum.
Halldóra ræddi áfram um útboðið vegna Björns lóðs. Þá spurði hún hvers vegna tímasetningar um lagningu tartans hafi ekki staðist.
Hjalti sagðist hafa grunað að þegar Halldóra hafi sagt sig frá nefndinni hafi hún gert það til að geta talað frjálslega um framkvæmdina. Hann sagði ekki hafa staðið á sveitarfélaginu að greiða fyrir efnið. Hins vegar væri efnið að koma fyrst núna.
Halldóra sagðist ekki geta orða bundist og sagðist ekki hafa verið að skapa sér aðstöðu til gagnrýni og sagði að hér væri komið með útúrsnúninga en ekki svör við fyrirspurn. Hjalti sagði viðkvæmni vera í gangi. Hann sagði Halldóru vera hér með gagnrýni á vinnubrögð starfsmanna. Þá setti hún sér önnur siðferðismörk en okkur hinum sagði Hjalti.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Hornafjarðar 379. fundur mánudaginn 14. maí 2007
· Byggingar og skipulagsnefnd 77. fundur 9. maí 2007.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 92. fundur 9. maí 2007.
· Félagsmálráð Hornfjarðar 164. fundur 8. maí 2007.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð 81. fundur 7. maí 2007.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 91. fundur 9. maí 2007.
· Nefnd um íþróttamannvirki 36. fundur 7. maí og 37. fundur 9. maí 2007.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 67. fundur 7. maí 2007.
Halldóra ræddi fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar. Ræddi hún deiliskipulag á Leirusvæðis og fagnaði þeim tillögum sem fram eru komnar. Vinnunni þurfi að hraða til að koma lóðum til úthlutunar. Þá ræddi hún afgreiðslu smærri mála sem fram koma í fundargerð. Sagði skipta máli að ákvarðanir væru tilgreindar í fundargerð nefndarinnar. Halldóra fagnaði hugmynd um þátttöku heimamanna í sjávarútvegssýningu. Þá ræddi hún ársreikninga HSSA 2006 sem teknir voru fyrir í heilbrigðis- og öldrunarráði. Þá spurði hún um veiðar á ref og mink það sem af er þessu ári. Þá ræddi hún kostnaðaráætlun vegna sundlaugar og tilboð í verkið. Benti hún á að þegar svo er komið að gert hafi verið gagntilboð sem hljóðar upp á kostnaðaráætlun. Náist ekki samningar gangi hins vegar ekki að ganga til samninga við aðra aðila en það tilboð sem barst. Sveitarfélagið sé bundið ákv. siðferðilegum skyldum að þessu leyti. Þá ræddi hún samninga sem snúa að verkum og lífi Svavars Guðnasonar og samkomulagi um safn Sverris Scheving. Þessu fagnaði hún. Þá ræddi hún um áhuga Búmanna á frekari byggingum.
Hjalti ræddi deiliskipulag á Leirusvæði og greindi frá stöðu mála. Sagði hann mikilvægt að fram fari tiltekt á nærliggjandi iðnaðarsvæði og að þar þurfi að huga vel að umhverfinu. Hann tók undir það að Halldóra hafi oft hvatt til þátttöku á sjávarútvegssýningu. Hjalti sagði að unnið væri að fjárhagsáætlun fyrir HSSA. Hann sagðist ekki hafa á þessu vori fengið upplýsingar um veiðar á ref og mink. Hann tók undir að slæmt hafi verið að ekki hafa borist nema eitt tilboð í sundlaugina. Þá fór hann yfir vinnuferli við byggingu nýrrar sundlaugar. Þar hafi tölur stöðugt hækkað á umræðu- og hönnunarferlinu. Þetta væri dýrt mannvirki og menn þurfi að gæta vel að sér enda í mörg horn að líta. Hann sagði það mjög ábyrgt af bæjarráði að halda sig við kostnaðaráætlun. Þá tók hann undir orð Halldóru um Svavar Guðnason og væntanlega ævisögu hans. Þá greindi Hjalti frá fundi með Búmönnum og stöðu þeirra mála. Halldóra ræddi um fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar og staðsetningu kirkjugarðs. Staðsetning hans væri svo stórt mál og ákvörðun um slíkt eigi að taka við endurskoðun aðalskipulags. Staðsetning kirkjugarðs þurfi að vera í takt við aðra landnotkun í landi Hafnar og því þurfi að líta á þetta í stærra samhengi.
Sigurlaug tók undir með Halldóru með staðsetningu kirkjugarðs. Hún sagði nauðsynlegt að mynda vinnuhópa sem reyndu að átta sig á hvernig skipulagi skuli háttað. Að skipulagsvinnu þurfi að kveða sem fjölbreyttasta hópa. Þá ræddi hún um að nauðsynlegt er að efna til fundar með hagsmunaaðilum sem koma að veiðum á ref og mink, landeigendur og veiðimenn. Þessi mál þurfi að taka fyrir á faglegan hátt.
Hjalti greindi frá erindi formanns sóknarnefndar vegna staðsetningar kirkjugarðs. Sagði Hjalti mikilvægt að farið verði vel yfir þetta mál. Þá greindi hann frá skoðunarferð sem farin var vegna þessa máls. Hjalti ræddi og landnýtingu og þá vinnu sem nauðsynleg er.
Fundargerð samþykkt samhljóða
Bæjarráð Hornafjarðar 380. fundur þriðjudaginn 14. maí 2007
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 82. fundur 10. maí 2007.
· Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga. 743. fundur 27. apríl 2007.
· Haust, fundargerð 69. fundar 15. maí 2007
Björk ræddi fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs og samþykkt meirihluta nefndarinnar um að skrifa skyldi undir samning við heilbrigðisráðuneyti. Fór hún lítillega yfir samninginn, rekstur HSSA o.fl. Nú væri 14. júní og enn ekki verið haldinn fundur frá 10. maí. Velti því upp hvers vegna hafi legið svo á að skrifa undir samning svo skömmu fyrir kosningar.
Hjalti greindi frá samskiptum við Ríkisendurskoðun og sagði að drög að skýrslu stofnunarinnar um þjónustusamninginn væru væntanleg. Þau þurfi að fara vandlega yfir. Mikilvægt væri að hafa það í huga að menn hafi óskað eftir þessari úttekt Ríkisendurskoðunar. Skoða þurfi hvað hafi verið vel gert og hvað þurfi að laga. Þá sagði hann væntanlega umhverfisskýrslu vegna lagningar vegar yfir Hornafjarðarfljót.
Halldóra ræddi þann hraða sem hafi verið á undirskrift þjónustusamningsins og hvað hafi legið á. Halldóra fór yfir fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs frá 10. maí. Halldóra óskaði eftir skýringum hvers vegna hafi legið svona á. Þá fór hún yfir ýmis atriði sem ekki er minnst er á í þjónustusamningnum og fjallaði um atriði sem tengjast vinnu við þjónustusamninginn og hvað valdið hafi því að svona lá á þann 10. maí. Það er hrein og klár skemmdarstarfsemi sem hefur verið unnin í þessum málum sagði Halldóra. Þá benti hún á það sem sagt hafi verið við vinnu á sameiningu skólanna, þá hafi verið sagt að verið væri að vinna með fólk. Sagði Halldóra að tekið hafi 12 ár að byggja upp þjónustu HSSA og nú væri verið að eyðileggja hana með einu pennastriki. Hún sagði þennan málaflokk ekki síður mikilvægan en skólamálin. Menn verði að vanda sig í þessum málaflokki. Nú ætti að bíða en búið væri að koma af stað umróti og það væri ekki gott. Hjalti sagði það stefnuna að byggja upp gæði þjónustu á vegum HSSA og ekki áætlað að breyta starfsmannahaldi á nokkurn hátt.
Hjalti fór yfir rekstur stofnunarinnar og benti á að hann hafi stundum gengið vel en einnig verr önnur ár. Þá ræddi hann þjónustusamning annars vegar og verkefnatilflutning hins vegar eins og gert var í rekstri grunnskóla í landinu. Þetta tvennt sé því ekki að öllu leyti samanburðarhæft. Hjalti sagði að verið væri að tryggja óbreytta þjónustu með þeim samningi sem fyrir liggur. Það hafi verið túlkun þeirra sem að þessu unnu að ekki yrði lengra komist. Nú væru komnir nýir aðilar í ráðuneytið og ekki ljóst hvað það gæti leitt af sér.
Ásgrímur sagði það alltaf hafa verið skýrt að halda a.m.k. óbreyttri þjónustu. það hafi alls ekki verið nein áætlun að rífa neina stofnun niður.
Halldóra sagði að sér væri fullkunnugt um muninn á heilbrigðismálunum og málefnum grunnskóla og stjórnskipulega stöðu þessara málaflokka. Sagði hún allt benda til að kominn væri uppgjöf í menn, þeir treysti sér ekki til að komast lengra. Þá fór hún yfir dæmi um það sem ekki hafi farið inn í samninginn og það sem ekki hafi verið klárað að hennar mati. Sagði textann ekki einu sinni fullunninn. Hvar ætla menn að fá peninga til að reka þetta? spurði Halldóra ef þeir ætla ekki að fá þá frá ríkinu. Það næst ekki nema með tvennum hætti. Annaðhvort með skerðingu þjónustu eða að fjármunir komi frá sveitarfélaginu. Þá ræddi hún stöðu starfsmanna HSSA sem hafi verið ríkisstarfsmenn þegar verkefnið var flutt með þjónustusamningnum.
Björk sagðist ekki hafa fengið svar við sinni fyrirspurn og sagði mjög mikilvægt að meir- og minnihluti vinni saman að þessu mikilvæga máli. Lagði hún áherslu á það og vönduð vinnubrögð.
Hjalti fagnaði orðum Bjarkar um samvinnu. Hann sagði ekki hægt að taka réttindi af fólki og staða starfsmanna því trygg. Hjalti sagði að menn hafi talið að reka mætti málaflokkinn fyrir þá upphæð sem komin var í samninginn.
Sigurlaug fagnaði orðum Bjarkar um samstarfið og sagði sveitarstjórnarmenn í Austur-Skaftafellssýslu hafa tamið sér það í gegnum tíðina að vinna saman. Sagði hún heilbrigðismáli snúa að okkur frá vöggu til grafar en ekki aðeins aldrað fólk. Væntanlega fáum við góðan þjónustusamning við nýjan heilbrigðisráðherra sagði Sigurlaug að lokum. Fundargerð samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Hornafjarðar 381. fundur þriðjudaginn 29. maí 2007
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 165. fundur 22. maí 2007.
· Skólanefnd Hornafjarðar, 93. fundur 23. maí 2007.
Halldóra sagði ekki hafa staðið á sjálfstæðismönnum að vinna vel saman. Hún ræddi ársfjórðungsuppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung og greiðslu- og rekstraráætlun eftir tímabilum sem ekki lægju fyrir. Benti á að ekki væri búið að færa á milli liða sem sýndi ekki rétta stöðu. Hún ræddi stöðu HSSA á 1. ársfjórðungi og miðað við hann verði halli á rekstri stofnunarinnar 14,7 milljónir árið 2007. Þá spurði Halldóra hvort gleyma eigi Grunnskólanum í Hofgarði við fartölvukaup. Hjalti ræddi uppgjör og sagði full lotuskil í gangi og benti á að endurskoðendur hafi ekki gert athugasemdir við þessa vinnu. Sagði hann góða vinnu við þessi mál á fjármálasviði. Þá sagði hann vinnu við innra eftirlit vera hafna á fjármálasviði. Hjalti sagðist líta svo á að verið væri að ljúka fartölvuvæðingu í grunnskólunum og sagði vinnu við tölvumál í Grunnskólann í Hofgarði vera í skoðun hjá starfsmönnum.
Fundargerð samþykkt
Bæjarráð Hornafjarðar 382. fundur fimmtudaginn 7. júní 2007
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 30. maí 2007.
Fundargerð samþykkt samhljóða
Bæjarstjórn Hornafjarðar, 116. fundur, fimmtudaginn 10. maí 2007, fundargerð áður samþykkt.
2. Kosningar
A. Kjör forseta bæjarstjórnar og 2ja varaforseta til eins árs
Árni bar fram tillögu um Árna Rúnar Þorvaldsson sem forseta bæjarstjórnar, Reyni Arnarson sem 1. varaforseta og
Guðrúnu Ingimundardóttur sem 2. varaforseta.
Tillagan borin undir atkvæði og hún samþykkt með 6 greiddum atkvæðum, einn sat hjá.
B. Til eins árs
Forseti bar upp eftirfarandi tillögu um kjör í bæjarráð til eins árs:
Frá B lista : Reynir Arnarson
Til vara : Elín Magnúsdóttir
Frá D lista : Björn Ingi Jónsson
Til vara : Halldóra Bergljót Jónsdóttir
Frá S lista: Árni Rúnar Þorvaldsson
Til vara: Guðrún Ingimundardóttir
Tillagan borin undir atkvæði og hún samþykkt samhljóða með 7 greiddum atkvæðum
Fulltrúar á aðalfund SSA
Aðalmenn Varamenn
B Reynir Arnarson B Ásgrímur Ingólfsson
B Elín Magnúsdóttir B Lilja Hrund Harðardóttir
B Sigurlaug Gissurardóttir B Gunnar Sigurjónsson
S Árni Rúnar Þorvaldsson S Erna Gísladóttir
S Guðrún Ingimundardóttir S Stephen Robert Johnson
D Halldóra B. Jónsdóttir D Björk Pálsdóttir
D Björn Ingi Jónsson D Einar Karlsson
Tillagan borin undir atkvæði og hún samþykkt samhljóða með 7 greiddum atkvæðum
C. Til loka kjörtímabilsins
Skoðunarmenn reikninga bæjarsjóðs
Aðalmenn Varamenn
Unnsteinn Guðmundsson D Eyjólfur Guðmundsson S
Guðbjartur Össurarson B Hermann Hansson B
Heilbrigðisnefnd Austurlands
Aðalmaður Varmaður
Björn Emil Traustason B Guðrún Ingimundardóttir S
Fulltrúar á Landsþing sambands íslenskra sveitarfélaga
Aðalmenn Varamenn
Reynir Arnarson B Halldóra B. Jónsdóttir D
Árni Þorvaldsson S Elín Magnúsdóttir B
Fulltrúi í fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands
Aðalmaður Varamaður
Ólafur Sigurðsson Hjalti Þór Vignisson
Tillagan borin undir atkvæði og hún samþykkt samhljóða með 7 greiddum atkvæðum
3. Hringvegur um Hvalnes- og Þvottárskriður – umsókn um framkvæmdaleyfi
Hjalti fylgdi málinu og hlaði. Hann gerði grein fyrir spurningum sem hann lagði fyrir Vegagerðina um málið. Í þeim samskiptum kom eftirfarandi fram: Veglínan helst nær óbreytt, helst að það séu örlitlar lagfæringar í skriðunum en þær eru smávægilegar, helst breikkun til að koma fyrir vegriðum og grjótpúðum. Engin breyting er þannig að það kalli á breytingu á skipulagi. Samkvæmt 1. viðauka laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum teljast framkvæmdirnar ekki matsskyldar.
2. viðauki sömu laga fjallar um framkvæmdir sem þarf að kanna matsskyldu á. Framkvæmdin uppyllir engin þessara skilyrða. Með hliðsjón af ofangreindu telur Vegagerðin að ekki sé þörf á að hafa samband við Skipulagsstofnun til að kanna hvort framkvæmdin sé matsskyld. Vegagerðin kannar ávallt hvort framkvæmd sé matsskyld falli hún undir 2. viðauka laganna og sé vafi á því er haft samráð við Skipulagsstofnun um hvort kanna þurfi matsskyldu. Eins og fram kemur í umsókn um framkvæmdarleyfi þá er ekki um framtíðarlausn að ræða heldur verið að fara í aðgerðir til þess að auka umferðaröryggi á þessum stað þar til varanleg leið verður komin.
Umsókn um framkvæmdaleyfið borin undir atkvæði og hún samþykkt samhljóða með 7 greiddum atkvæðum.
4. Fyrirspurnir
Engar fyrirspurnir hafa borist.
Fundi slitið: 18.40


