Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 116

116. fundur

Fundur haldinn      í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudagur  10. maí 2007, kl. 16:00 í Ekru

 

Mætt voru:           Árni Rúnar Þorvaldsson forseti bæjarstjórnar, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðrún Ingimundardóttir, Björn Ingi Jónsson og Halldóra B.Jónsdóttir.  Einnig Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.

 

Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.

1.        Fundargerðir

Bæjarráð Hornafjarðar 376. fundur þriðjudaginn  17. apríl 2007

·         Byggingar- og skipulagsnefnd  Hornafjarðar 761. fundur 11. apríl 2007.

·         Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga, 742. fundur til kynningar.

Guðrún  gerði að umtalsefni atvinnulífssýningu og 110 ára afmæli. Greindi hún frá störfum nefnda og ýmsum þáttum sem snúa að þessum atburðum.  

Fundargerð samþykkt samhljóða

Bæjarráð Hornafjarðar 377. fundur fimmtudaginn  3. maí 2007

·         Félagsmálaráð Hornafjarðar 163. fundur 24. apríl 2007.

·         Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 80. fundur 18. apríl 2007.

·         Stjórn Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs 35. fundur 18. apríl 2007.

·         Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 75. fundur 26. apríl 2007.

·         Menningarmálanefnd Hornafjarðar 90. fundur 11. apríl 2007.

·         Skólanefnd Hornafjarðar 92. fundur 25. apríl 2007.

·         Nefnd um endurskoðun fjallskila 6. fundur 16. apríl 2007.

·         Verkfundur vegna v. íþróttasvæðis og sundlaugar. 23. apríl 2007.

·         Stjórn SSA 22. janúar og 5. mars 2007.

·         Samgöngunefnd SSA 22. febrúar 2007.

·         Orku- og stóriðjunefnd SSA 30. janúar 2007. Til kynningar

Sigurlaug ræddi fundargerð menningarmálanefndar, fundi um verkefnið Hafnarvík ? Heppa. Fagnaði hún að það væri komið í ákveðinn farveg svo og samstarfi um það við Gísla Sverri Árnason, fyrrum forstöðumann Menningarmiðstöðvar. Sagði hún þetta vera verkefnið fjölmargra hagsmunaaðila og fagnaði því að nokkrir væru þegar farnir að vinna eftir því. Sagði hún þetta allt bera vott um góðan drifkraft. Þá ræddi hún opnun gestastofu í Ásbyrgi og heimsókn í ferðamannabæinn Húsavík og greindi frá því sem þar er að gerast í ferðamálum. Þá sagði hún Vaxtarsamning Austurlands m.a. falla undir verkefnið Hafnarvík ? Heppa. Einnig ræddi hún um aðgengi og göngustíga, skipti miklu máli. Sigurlaug ræddi skógarreitina Einarslund, sem sveitarfélagið hafi fengið í arf frá Einari, og Hellisholt á Mýrum. Þeir og fleiri reitir hafi orðið til fyrir tilstuðlan Einars Hálfdánarson heitins.  Sigurlaug vildi þakka Hauki Inga fyrir hversu ötullega hann hafi unnið að sorpmálum. Þá óskaði hún íbúum til hamingju með samning við Sagaplast um móttöku á endurvinnanlegum úrgangi, öðrum en lífrænum. Þar á meðal er baggaplast sem sótt verður heim til bænda. Gert verði átak í að hirða brotajárn í sumar í samvinnu við Sagaplast. Sigurlaug ræddi jarðgerð við heimili svo og nauðsyn þess að koma upp jarðgerðarvél til að nýta lífrænan úrgang frá fyrirtækjum. Sigurlaug sagði kostnað við sorpurðun ekki bara felast í kostnaði við að moka yfir sorpið og því að vinna svæði til urðunar, það felist í umsýslu svo og eftirliti allt að 30 árum eftir að sorpsvæði hafi verið lokað.  Hreint og ómengað umhverfi sé markmiðið og allir græða sagði Sigurlaug.

Árni tók undir með Sigurlaugu. Undir þessum lið greindi Árni, frá því að meirihluti heilbrigðis- og öldrunarráðs hefði í dag samþykkt fyrir sitt leyti fyrirliggjandi samningsdrög um fyrirkomulag heilbrigðis- og öldrunarþjónustu í Austur-Skaftafellssýslu við heilbrigðisráðuneytið. Meirihluti ráðsins hafi vísað samningnum til afgreiðslu í bæjarstjórn. Sagði hann samninginn töluvert breyttan frá fyrri samningi. Þá rakti hann ferlið í samningaviðræðunum og sagði gríðarlega mikilvægt að halda þessari þjónustu áfram hjá sveitarfélaginu. Einnig ræddi hann væntanlega viðbyggingu við hjúkrunarheimili sem væri mjög brýnt verkefni. Hann taldi samninginn viðunandi þó vissulega hefðu menn viljað sjá meira. Mikilvægt sé hins vegar að ná lendingu í málinu.

Elín rædd fundargerð skólanefndar og SOS ? námskeið, uppeldisnámskeið fyrir uppeldisstarfsmenn og foreldra. Þá tók hún undir með skólanefndinni að nemendur í FAS sem búa í dreifbýli gætu nýtt sér skólaakstur.

Halldóra gerði að umtalsefni fundargerð samgöngunefndar SSA og umsögn sem starfsmenn áttu að vinna vegna samgönguáætlunar. Óskaði hún upplýsinga um það mál. Halldóra ræddi kennaraskort, sbr. fundargerð og gerði að umtalsefni auglýsingu frá Hafnarskóla og spurði af því tilefni hver væri verkskipting skólastjóranna við sameinaðan skóla og hvers vegna væri auglýst í nafni skóla sem verið væri að leggja niður. Halldóra tók til umræðu þjónustusamning um heilbrigðis- og öldrunarmál og sagðist hlessa á hvernig mál hafi þróast undanfarna daga. Las hún upp úr 80. fundargerð Hör þar sem bókað er hvað þurfi að gera í samningaviðræðum um heilbrigðismál. Halldóra vitnaði í sveitarstjórnarlög þar sem segir að ekki megi taka ákvarðanir utan lögmætra funda. Sagði hún vinnubrögð við þessa samningagerð fyrir neðan allar hellur og að menn væru að kyngja öllu. Menn væru ekki að vinna að hag bæjarbúa þegar svona væri unnið. Í samningnum væri ekkert umfram það sem er í fjárlögum 2007 og spurði hvað menn væru hræddir við. Halldóra sagði að tölur í fjárhagsáætlun væru ekki mátaðar við þau drög sem búið væri að samþykkja. Síðast þegar skrifað var undir slíkan samning hafi verið sett hagræðingarmarkmið, sem hafi náðst. Ekkert slíkt væri í þessum drögum. Einnig ræddi hún um að greinar um réttindi starfsmanna sem fylgdu samningnum hafi fallið út úr þessum samningsdrögum og enginn ávinningur væri af hagræðingu sem náðst hafi innan stofnunarinnar undanfarið. Þá sagði hún þennan samning vera um 42 milljónum lakari, að teknu tilliti til vísitöluhækkana, en sá sem skrifað var undir 2003. Sagði hún pukrast með þetta í stað þess að vinna þetta sameiginlega. Menn hafi ekki verið kosnir í bæjarstjórn til að sýna þessi vinnubrögð. Halldóra fór yfir atriði sem hún sagði vanta í nýjan samning miðað við þann eldri. Halldóra ræddi og bókun Bjarkar Pálsdóttur á fundi Hör í dag vegna umrædds máls og spurði hvort menn héldu ekki að við næðum betri árangri ef við legðumst á eitt í stað þess að vinna svona. Sagði hún þetta vera óábyrga gerð. Bar hún þetta saman við vinnu að skólamálum. Þá hafi menn lagt áherslu á að verið væri að vinna með fólk og spurði hvað væri hægt að segja um þetta gagnvart heilbrigðisstarfsmönnum.

Hjalti fór yfir samninginn og ferli í samningaviðræðum frá sl. hausti. Ráðuneytið hafi mætt með reiknilíkan þar sem m.a. hafi verið gert ráð fyrir að fækka um einn lækni. Þá gerði hann grein fyrir viðræðum við embættismenn og stjórnmálamenn, m.a. alla ráðherra nema einn, formenn stjórnmálaflokkanna og oddvita framboða í Suðurkjördæmi. Þar hafi þessir samningar verið efst á blaði. Náðst hafi fram 50 milljón króna viðbót frá reiknilíkaninu sem kynnt var af ráðuneytinu sl. haust. Sagði hann okkur hafa tryggða óbreytta þjónustu í heilbrigðis- og öldrunarmálum næstu fjögur árin. Sagði hann vera ákv. gæði felast í því að geta stjórnað þessum málum heima í héraði. Hjalti fór yfir ferli samningsgerðarinnar og hvernig hún hafi farið fram á fundum, bæði formlegum og óformlegum eins og almennt tíðkast. Gott samráð hafi verið haft við samningagerðin og ekki hægt að tala um pukur. Hann sagði eðlilegt að samningur eins og þessi, sem hljóðar upp á 350 milljónir, vekti tortryggni þegar um svo háar fjárhæðir er að ræða.  Sagði hann að ef skrifað verði undir samninginn á næstu dögum verði það gert með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar.

Björn Ingi sagði það vera ótrúlegt sem væri að gerast. Sagði hann m.a. að tapast muni eitt starf ef fæðingar leggjast af. Sagði hann þessi vinnubrögð vera niðurrif og ekkert annað og spurði hvað hafi breyst frá 18. apríl.

Reynir sagði kosningaskjálfta vera í okkur enn þá eins og á síðasta fundi. Hann sagði að með samningnum væru tryggðar 1400 milljónir til að reka heilbrigðisstofnunina, þær kæmu ekki úr sjóðum sveitarfélagsins. Reynir sagðist treysta fólki á heilbrigðisstofnuninni til að vinna vel eftir þessum samningi. M.a. væri ekkert sem bannaði fæðingar hér, það væri okkar að útfæra það mál. Stóra málið væri að tryggja læknamálin og að fá festu í þau. Reynir sagði vel mætti vera að gagnrýna megi þessa vinnu en sagði að ekki væri verið að brjóta lög. Þá þakkaði hann þeim sem að þessum samningum hafa komið fyrir góða vinnu.

Halldóra sagði sér fyndist lítið um skýringar hjá meirihlutanum. Hvers vegna liggi svona á. Þá las hún bókun starfsmanna heilbrigðisstofnunar frá fundi hör í dag. Þá spurði hún hvort menn vissu hvað Heilbrigðisstofnun Suðurlands hafi hækkað frá sameiningu. Hún óskaði skýringa á því hvað Reynir ætti við í læknamálum. Hún ítrekaði að hún vildi fá haldbærar skýringar. Halldóra sagði að skerða þurfi þjónustu ef menn ætli að koma út á pari. Þá sagði hún að ekki hafi verið litið á fjárhagsáætlun heilbrigðisstofnunar frá því í nóvember. Sagði hún að á öllum fundum með embættismönnum og stjórnmálamönnum hafi ekki verið lagðar fram ?konkret? tillögur. Þá óskaði hún skýringa á því hvar taka ætti fjármuni til að tryggja óbreytta þjónustu. Óskaði hún svara við nokkrum spurningum, svo sem um réttindi starfsmanna og sagðist eiga fullan rétt á skýringum.

Hjalti sagði að gott geti verið að skoða söguna þegar verið væri að vinna slíka samninga. Líta til baka og meta árangur. Áætlun geri ráð fyrir því að hægt verði að tryggja óbreytta þjónustu með fyrirliggjandi samningi.

Reynir sagði að hann hafi fremur átt að nota orðið stöðugleika en reglu í læknamálum. Þá sagði hann að komið hafi upp ákv. krísa í yfirstjórn en eftir að hún leystist hafi ástandið verið gott á stofnuninni.

Sigurlaug sagði sorpmál snúast um fólk, sagt í ljósi orða Halldóru fyrr á fundinum.

Fundargerð samþykkt

 Bæjarstjórn Hornafjarðar, 115. fundur, fimmtudaginn 17. apríl 2007, ósamþykkt.

 2.        Ársreikningur 2006 ? síðari umræða

Hjalti fór yfir endurskoðunarskýrslu með ársreikningi og gerði grein fyrir helstu athugasemdum endurskoðenda. Lagði hann áherslu á að ekkert alvarlegt hafi komið í ljós í sambandi við innra eftirlit. Sagði hann að sl. haust hefði vinna við innra eftirlit hafist og áfram væri unnið að þeim þáttum. Greindi hann m.a. frá fundum með forstöðumönnum þar að lútandi og annarri vinnu sem væri í gangi. Þá sagði hann allar kennitölur vera réttar og bera vott um góða stöðu.

Halldóra gerði endurskoðunarskýrsluna að umtalsefni og lagði fram eftirfarandi bókun sjálfstæðismanna:

Eins og fram kom við fyrri umræðu ársreikninga hefur staða bæjarsjóðs ekki verið sterkari. Má það meðal annars rekja til þess að minna varð um framkvæmdir á árinu en áætlað var, aðallega vegna byggingar sundlaugar og annarra íþróttamannvirkja. Tekjur úr Jöfnunarsjóði voru 120 milljónum krónum hærri en gert var ráð fyrir í upphafi ársins sem rekja má til þess góðæris sem verið hefur í landinu.

Við Sjálfstæðimenn  teljum okkur nú þegar sjá þess merki að óábyrgar ákvarðanatökur muni leiða til aukinna útgjalda og lakari nýtingu fjármuna. Má þar nefna ákvarðanir um stjórnskipulag grunnskóla og leikskóla auk þjónustusamnings um heilbrigðis- og öldrunarmál sem til stendur að undirrita á morgun, föstudag.

Mikill mannauður er fólginn í starfsfólki sveitarfélagsins og höfum við átt því láni að fagna hingað til að þeir hafa sýnt ábyrga fjármálavitund. Viljum við þakka þeim þeirra þátt í góðri afkomu sveitarfélagsins.

Halldóra Bergljót Jónsdóttir

Björn Ingi Jónsson

Reynir þakkaði þeim sem að vinnunni komu fyrir vel unnin störf. Hann sagði að fram hafi komið smávægilegar athugasemdir í endurskoðunarskýrslu og las upp ákv. ábendingar endurskoðenda.

Hjalti sagði að það sjáist fram á sparnað með breytingum í yfirstjórn grunnskólanna. Þá þakkaði hann starfsfólki sem komið hefur að rekstri stofnana sveitarfélagsins.

 Forseti bar ársreikning sveitarsjóðs fyrir árið 2006 undir atkvæði og var hann samþykktur samhljóða.

Forseti bar ársreikning Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands fyrir árið 2006 undir atkvæði og var hann samþykktur samhljóða.

 3.        Breytingar á aðalskipulagi á Brekku í Lóni

Hjalti gerði grein fyrir breytingum þeim sem fyrirhugaðar eru á svæðinu, sbr. fram lagðar tillögur.

Breytingar á aðalskipulagi við Brekku í Lóni bornar undir atkvæði og þær samþykktar samhljóða.  

 4.        Fyrirspurnir

Halldóra óskaði eftir því að fá að gera ákv. athugasemd, sagðist vilja benda á að ekki hafi borist svör við öllum fyrirspurnum sem hún hafi borið fram. Óskaði hún eftir því að það væri lagfært í framtíðinni.

Hjalti sagði liðinn fyrirspurnir of lítið notaðan. Gott væri að nota hann til að svara fyrir ýmis mál sem til meðferðar eru hjá sveitarfélaginu. Hjalti greindi frá að unnið væri að verkaskiptingu stjórnenda grunnskólans. Hann greindi og frá því að ekki hafi verið send umsögn til samgöngunefndar Alþingis en öllum ábendingum um samgöngumál hafi verið komið til allra ráðherra, formanna stjórnmálaflokka og oddvita í suðurkjördæmi á fundum með þeim syðra.

 

Fundi slitið kl. 18.55




Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica