Bæjarstjórn
Fundargerð Bæjarstjórnar 53
53. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, mánudaginn 20. júní 2002, kl. 13:15 í fundarsal ráðhúss.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Björn E. Traustason, Einar Karlsson, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, Ólafur Sigurðsson og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig framkvæmdastjórar sviða, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson
Forseti bæjarstjórnar setti fund og bauð fundarmenn velkomna til fundar.
Gengið var til dagskrár.
1. Fundargerðir.
Fundargerð 52. fundar Bæjarstjórnar Hornafjarðar 10. júní 2002 áður samþykkt.
2. Tillögur um breytingar á samþykktum sveitarfélagsins ? 2. umræða
Eftirfarandi breyting á samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Hornafjarðar, nr 75/1999 var lögð fram til annarar umræðu í bæjarstjórn.
a) Í 11. gr. bætist við nýr liður nr. 4 um heimild til fyrirspurna á bæjarstjórnarfundum :
4. Heimilt er bæjarfulltrúum að leggja fram fyrirspurnir á bæjarstjórnarfundum. Fyrirspurnirnar skulu vera skriflegar og berast bæjarstjóra a.m.k. sólarhring fyrir bæjarstjórnarfund. Málshefjanda gefst kostur á stuttu andsvari og bæjarstjóra einnig. Aðrir bæjarfulltrúar taka ekki þátt í þessum umræðum.
b) Í 57. gr. breytist eftirfarandi:
A liður :
2. liður Undirkjörstjórn. Fellur út.
3. liður breytist þannig að
.. aðalfundi Samtaka sveitarfélaga í Austurlands-kjördæmi..
verður :
?.. aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi ?..
B. liður : Nefndum verður fækkað úr 12 í 10 og ein nefnd (kjörstjórn) flyst milli liða. Nefndarskipan verður þá eftirfarandi :
1. Atvinnumálanefnd.
Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer einnig með hlutverk ferðamálanefndar, landbúnaðarnefndar og gróðurverndarnefndar skv. 19. gr. laga um landgræðslu nr. 17/1965 og tilnefnir búfjáreftirlitsmenn sem ráðnir eru af sveitarstjórn til fjögurra ára að afloknum sveitarstjórnarkosningum.
2. Byggingar- og skipulagsnefnd.
Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 6. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Nefndin fer einnig með hlutverk samgöngunefndar.
3. Félagsmálaráð.
Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Félagsmálaráði eru jafnframt falin verkefni barnaverndarnefndar skv. 10. gr.laga nr. 80/2002 og 10. gr. laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
4. Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar.
Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 4. gr. hafnalaga nr. 23/1994. Stjórnin er jafnframt rekstrarstjórn hafnarinnar.
5. Heilbrigðis- og öldrunarráð.
Fimm aðalmenn og jafnmarga til vara skv. 7. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999
6. Húsnæðisnefnd.
Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 6. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998.
7. Kjörstjórn.
Þrír aðalmenn og þrír til vara sbr. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 og 15. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000. Undirkjörstjórnir er heimilt að kjósa síðar fyrir hverja kjördeild, þrjá aðalmenn og þrjá til vara. (Sjá C. liður hér að neðan).
8. Menningarmálanefnd.
Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með stjórn Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og bókasafns skv. ákvæðum laga nr. 36/1997 um almenningsbókasöfn.
9. Skólanefnd.
Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 13. gr. laga um grunnskóla nr. 66/1995 og 2. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985. Skólanefnd fer með hlutverk leikskólanefndar skv. lögum nr. 78/1994.
10. Umhverfisnefnd.
Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin annast störf náttúruverndarnefndar skv. 11. gr. laga um náttúruvernd nr. 44/1999 og stjórn fólkvangs í Óslandi, sbr. auglýsingu nr. 427/1982.
11. Æskulýðs- og tómstundaráð.
Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara.
C. liður : Breyting:
1. liður. Almannavarnanefnd. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 8. gr. laga um almanna-varnir nr. 94/1962. Breyting í samræmi við lög
5. liður. Kjörstjórnir við sveitarstjórnarkosningar fellur hér út og flyst í B-lið skv. tillögu Guðjón Bragasonar í félagsmálaráðuneytinu og með orðalagsbreytingum hans í samræmi við kosningalög.
6.liður. Þjónustuhópur aldraðra í Austur-Skaftafellssýslu. Fimm skipa þjónustuhópinn skv. lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999. Breyting í samræmi við lög .
Sveitarstjórn samþykkir samþykktirnar með öllum greiddum atkvæðum. Jafnframt er samþykkt að breytingarnar taki þegar gildi og samþykktinni vísað til ráðherra til staðfestingar.
3. Kosning í nefndir
Tillaga að
samþykkt bæjarstjórnar hornafjarðar
um starfstilhögun og nefndafyrirkomulag.
Bæjarstjórn felur bæjarráði Hornafjarðar að fara með hlutverk Sýslunefndar ( Héraðsnefndar ) Austur-Skaftafellssýslu sem hefur starfað í samræmi við 6. gr. sveitarstjórnarlaga um héraðsnefndir.
Bæjarstjórn samþykkir að eftirfarandi nefndir og ráð starfi á kjörtímabilinu
Til fjögurra ára
Fastanefndir
Atvinnumálanefnd, 5 fulltrúar
Byggingar- og skipulagsnefnd, 5 fulltrúar
Félagsmálaráð, 5 fulltrúar
Hafnarstjórn, 5 fulltrúar
Heilbrigðis- og öldrunarráð, 5 fulltrúar
Húsnæðisnefnd, 3 fulltrúar
Kjörstjórn, 3 fulltrúar
Menningarmálanefnd, 5 fulltrúar
Skólanefnd, 5 fulltrúar
Umhverfisnefnd, 5 fulltrúar
Æskulýðs- og tómstundaráð, 5 fulltrúar
Aðrar nefndir
Ritnefnd Skaftfellings, 3 fulltrúar
Heilbrigðisnefnd Austurlands, 1 fulltrúi
Kosið skal í neðangreindar nefndir í samræmi við lög þ.a.l.
Almannavarnarnefnd, 2 fulltrúar
Þjónustuhópur aldraðar, 5 fulltrúar
Til eins árs
Fulltrúar/embættismenn
Skoðunarmenn bæjarreikninga, 2 fulltrúar
Landsþing Sambands ísl svf., 2 fulltrúar
Aðalfundur SSA, 8 fulltrúar
Fulltrúaráð Eignarhaldsfélags
Brunabótafélags Íslands, 1 fulltrúi
Jarðanefnd (f.h. Sýslunefndar), 1 fulltrúi
Bæjarstjórn samþykkir að erindisbréf nefnda sveitarfélagsins gildi eftir því sem við á. Erindisbréfin verði tekin til endurskoðunar síðar.
Forseti lagði fram og las upp tillögu yfir þá sem eru í kjöri til nefnda og óskaði eftir athugasemdum fundarmanna. Hann lagði til þá málsmeðferð að kosið verði um tillöguna í heild sinni og var það samþykkt.
Til 4ra ára.
Aðalmenn
Varamenn
Atvinnumálanefnd
Reynir Arnarsson formaður (B)
Þóra V. Jónsdóttir (B)
Pálmi Guðmundsson varaformaður (B)
Aðalsteinn Ingólfsson (B)
Sveinbjörn Imsland (D)
Herdís W. Ingólfsdóttir (D)
Björn E. Traustason (D)
Erlingur I. Brynjólfsson (D)
Inga Jónsdóttir (H)
Gísli Sverrir Árnason (H)
Byggingar- og skipulagsnefnd
Ólafur Sigurðsson formaður (B)
Örn Arnarson (B)
Aðalsteinn Aðalsteinsson varaformaður (B)
Elín Magnúsdóttir (B)
Magnús Jónasson (D)
Þorgils Baldursson (D)
Haukur Sveinbjörnsson (D)
Sívar Árni Scheving (D)
Torfi Friðfinnsson (H)
Sigurður Hannesson (H)
Félagsmálaráð
Sigurbjörg Karlsdóttir formaður (D)
Egill J. Kristjánsson (D)
Þorbjörg Helgadóttir varaform. (D)
Einar Karlsson (D)
Guðrún Jónsdóttir (B)
Elísabet Einarsdóttir (B)
Guðmundur I. Sigbjörnsson (B)
Jónína Sigurjónsdóttir (B)
Björg Svavarsdóttir (H)
Margrét Jóhannesdóttir (H)
Hafnarstjórn
Ari Jónsson formaður (D)
Friðþór Harðarson (D)
Axel Jónsson varaformaður (D)
Sigurður Ólafsson (D)
Reynir Arnarson (B)
Sigurður Æ. Birgisson (B)
Ásgeir Gunnarsson (B)
Friðrik Ingvaldsson (B)
Halldór Tjörvi Einarsson (H)
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir (H)
Heilbrigðis- og öldrunarráð
Halldóra B. Jónsdóttir formaður (D)
Þorgils Baldursson (D)
Maren Ó. Sveinbjörnsdóttir varaform. (D)
Vignir Júlíusson (D)
Margrét Ingólfsdóttir (B)
Sigrún Sigurgeirsdóttir (B)
Þorsteinn Sigfússon (B)
Elínborg Baldursdóttir (B)
Kristín G. Gestsd (H)
Ólafía I. Gísladóttir (H)
Húsnæðisnefnd
Kristín Gísladóttir formaður (D)
Vignir Júlíusson (D)
Örn Arnarsson varaform. (B)
Reynir Gunnarsson (B)
Kristín G. Gestsdóttir (H)
Herdís Tryggvadóttir (H)
Kjörstjórn
Jón S. Friðriksson (D)
Guðjón Þorbjörnsson (D)
Sigfinnur Gunnarsson (B)
Sigþór Guðmundsson (B)
Svava Kr. Guðmundsdóttir (B)
Ástríður Sveinbjörnsdóttir (B)
Menningarmálanefnd
Hermann Hansson formaður (B)
Aðalheiður F. Björnsdóttir (B)
Guðlaug Hestnes varaformaður (B)
Elínborg Baldursdóttir (B)
Heimir Ö. Heiðarsson (D)
Bryndís B. Hólmarsdóttir (D)
Ágústína Halldórsdóttir (D)
Grétar M. Þorkelsson (D)
Þorbjörg Arnórsdóttir (H)
Ari Hannesson (D)
Skólanefnd
Sigríður Kristinsdóttir formaður (D)
Ármann Guðmundsson (D)
Bryndís B. Hólmarsdóttir varaformaður (D)
Snorri Aðalsteinsson (D)
Þóra V. Jónsdóttir (B)
Elín Magnúsdóttir (B)
Aðalheiður F. Björnsdóttir (B)
Sigrún Sigurgeirsdóttir (B)
Valdís Kjartansdóttir (H)
Guðný Svavarsdóttir (H)
Umhverfisnefnd
Egill Jónasson formaður (B)
Olga Friðjónsdóttir (B)
Sigurlaug Gissurardóttir varaformaður (B)
Örn Bergsson (B)
Björk Pálsdóttir (D)
Egill Jón Kristjánsson (D)
Ármann Karl Guðmundsson (D)
Magnús S. Jónasson (D)
Eyjólfur Guðmundsson (H)
Björn Arnarson (H)
Æskulýðs- og tómstundaráð
Friðrik Þ. Ingvaldsson formaður (B)
Gísli M. Vilhjálmsson (B)
Gunnar I. Valgeirsson varaform. (B)
Gunnar Ö. Reynisson (B)
Elsa Elísdóttir (D)
Björk Pálsdóttir (D)
Valdimar Einarsson (D)
Björn E. Traustason (D)
Þórgunnur Torfadóttir (H)
Emil Skúlason (H)
Ritnefnd Skaftfellings
Guðbjartur Össurarson (B)
Sigurður Björnsson (D)
Zophonías Torfason (H)
Almannavarnarnefnd
Ólafur Sigurðsson
Björn Ingi Jónsson
Jón Malmquist
Jónas Friðriksson
Auk þess eiga sæti í nefndinni skv. lögum:
Sýslumaður, Páll Björnsson
Bæjarstjóri, Albert Eymundsson
Bæjarverkfræðingur, Helgi Már Pálsson
Yfirlæknir, Baldur Thorstensen
Slökkviliðsstjóri, Steinþór Hafsteinsson
Til eins árs
Skoðunarmenn reikninga bæjarsjóðs
Guðjón H. Þorbjörnsson (D)
Unnsteinn Guðmunsson (D)
Guðbjartur Össurarson (B)
Hermann Hansson (B)
Fulltrúi í Jarðanefnd
Einar Karlsson
Guðjón Þorsteinsson
Heilbrigðisnefnd Austurlands
Egill Jónasson
Björn E. Traustason
Fulltrúar á Landsþing sambands íslenskra sveitarfélaga
Halldóra B. Jónsdóttir (D)
Einar Karlsson (B)
Elín Magnúsdóttir (B)
Reynir Arnarson (B)
Fulltrúar á aðalfund SSA
Elín Magnúsdóttir (B)
Friðrik Þ. Ingvaldsson (B)
Reynir Arnarson (B)
Þóra V. Jónsdóttir (B)
Ólafur Sigurðsson (B)
Aðalheiður F. Björnsdóttir (B)
Halldóra B. Jónsdóttir (D)
Ármann K. Guðmundsson (D)
Björn E. Traustason (D)
Björk Pálsdóttir (D)
Einar Karlsson (D)
Vignir Júlíusson (D)
Kristín G. Gestsdóttir (H)
Eyjólfur Guðmundsson (H)
Albert Eymundsson
Inga Jóna Halldórsdóttir
Forseti óskaði eftir fleiri uppástungum fundarmanna varðandi nefndarkjör, engar komu fram.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 greiddum atkvæðum.
Þjónustuhópur aldraðra verður skipaður síðar.
4. Fyrirspurnir
Engar
Fleira ekki gert, Fundi slitið kl. 14:30
Elín Magnúsdóttir
Reynir Arnarson Stefán Ólafsson
Ólafur Sigurðsson Ásta H. Guðmundóttir
Halldóra B. Jónsdóttir Helgi Már Pálsson
Björn E. Traustason
Einar Karlsson
Kristín G. Gestsdóttir


