Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 115
115. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, þriðjudaginn 17. apríl 2007, kl. 16:00 í Pakkhúsi.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson forseti bæjarstjórnar, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðrún Ingimundardóttir, Björn Ingi Jónsson og Halldóra B.Jónsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson og Haukur Ingi Einarsson.
Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
Árni óskaði eftir því við fundinn að mál sem tekin verða fyrir undir sérliðum verði ekki rætt undir fundargerðum bæjarráðs.
Halldóra B. Jónsdóttir tók til máls og óskaði eftir því að fundarmenn fái því rétt til tala oftar en tvisvar undir sérliðum.
Árni Rúnar Þorvaldsson heimilaði að hver bæjarfulltrúi fái að tala þrisvar undir sérliðum.
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar 370.fundur þriðjudaginn 5. mars 2007.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar, dags. 27. febrúar 2007, 160. fundur.
· Nefnd um endurskoðun fjallskila, dags. 27. febrúar 207, 4. fundur.
· Nefnd um íþróttamannvirki, dags. 1. mars 2007, 32.fundur.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 371.fundur þriðjudaginn 13. mars 2007.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 89. fundur 26. febrúar 2007.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 66. fundur 26. febrúar 2007.
· Æskulýðs- og tómstundaráð 86. fundur 5. mars 2007.
· Nefnd um íþróttamannvirki 32. fundur 1. mars 2007.
· Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 741. fundur 23. febrúar 2007.
Hjalti Þór Vignisson tók til máls og greindi frá stöðu mála varðandi Náttúrustofu Suðausturlands.
Halldóra B. Jónsdóttir tók til máls og lýsti yfir ánægju með að samningar skuli vera að nást um starfsemi Náttúrustofu á Suðausturlandi, en gerði fyrirspurn um hvort það fjármagn sem fyrirhugað er í verkefnið dugi til að ráða tvo starfsmenn sem gert er ráð fyrir samkvæmt samkomulagi milli sveitarfélagsins og Skaftárhrepps. Einnig spurðist hún fyrir um samstarf Hornafjarðarhafnar og Siglingastofnunar um verkefni á vegum Siglingarstofnunar sem verið hafa væntingar um.
Sigurlaug Gissurardóttir fagnaði stöðu mála varðandi Náttúrustofu og gerði grein fyrir auknum rannsóknum á svæðinu með tilkomu Kvískerasjóðs.
Hjalti Þór Vignisson tók til máls og greindi frá hugmyndum um Náttúrustofu og frá því fjármagni sem varið er í verkefnið. Hjalti greindi frá áframhaldandi samstarfi milli Siglingastofnunar og Sveitafélagsins undir breyttum formerkjum.
Björn Ingi Jónsson tók til máls og spurðist fyrir um ráðningu refa- og minkaveiðimanna og hugsanleg verlaun vegna veiða á mink og vísaði í auglýsingu sem hann hafði séð um slíkt nýverið. Ennfremur spurði Björn Ingi hvort sveitafélagið hefði skoðað möguleika á að hita upp hús með brennslu á ónýtum rafhlöðum eins og Danir gera. Björn Ingi ræddi um skoðanakönnun vegna vegstæðis yfir Hornafjarðarfljót.
Hjalti Þór svaraði framkomnum fyrirspurnum.
Halldóra B. Jónsdóttir tók undir orð Björns Inga og lagði áherslu á að æskilegt væri að framkvæma viðhorfskönnun á vegstæði samhliða Alþingis kosningum 12. maí.
Reynir Arnarson tók til máls og greindi frá þeim umræðum í bæjarráði sem nú þegar hafi farið fram varðandi skoðanakönnun á vegstæði yfir Hornafjarðarfljót.
Hjalti Þór fór yfir aðferðafræði og tímasetningu skoðanakönnunarinnar.
Árni Rúnar Þorvaldsson tók til máls og lagði áherslu á að mikilvægt væri að halda vinnunni áfram en bíða eftir að framkvæma skoðanakönnunina þar til nánari gögn liggja fyrir.
Guðrún Ingimundar tók undir með Árna Rúnari, Hjalta Þór og Reyni.
Björn Ingi tók til máls og lagði áherslu á að skoðanakönnunin færi fram sem fyrst.
Reynir Arnarsson tók til máls og lagði áherslu á að enn væri skoðanakönnun um vegstæði í skoðun og hugmyndin hafi ekki verið slegin út af borðinu. Taldi hann jafnframt mikilvægt að finna rétta tímasetningu fyrir slíka könnun ef af yrði.
Guðrún Ingimundar ræddi um skoðanakönnum og greindi frá því að hún hafi setið hjá þegar tillaga um að kanna kosti þess að framkvæma skoðanakönnun var samþykkt í bæjarstjórn í febrúar.
Árni Rúnar ræddi um skoðanakönnun.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 372.fundur þriðjudaginn 20. mars 2007.
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 75. fundur 14. mars 2007.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 161. fundur 13. mars 2007.
· Nefnd um íþróttamannvirki 33. fundur 14. mars 2007.
Halldóra B. Jónsdóttir tók til máls og ræddi um skoðanakönnun vegstæðis yfir Hornafjarðarfljót. Hún lagði áherslu á að fjárhagslega hagkvæmt væri að nota tækifærið og framkvæma viðhorfskönnun um þær þrjár leiðir sem eru í umhverfismati um leið og kosið væri til alþingis. Ennfremur spurðist hún fyrir um hvernig ætti að fylgja verkefni lýðheilsustöðvar eftir og hver næstu skref verða. Mikilvægt væri að einhver væri ábyrgðarmaður fyrir verkefninu.
Reynir Arnarson svaraði fyrirspurn Halldóru B. Jónsdóttur.
Sigurlaug Gissurardóttir tók til máls og ræddi um skoðanakönnun vegstæðis yfir Hornafjarðarfljót. Sigurlaug lagði áherslu á að ígrundað verði vel bæði tímasetning og aðferðafræði könnunar.
Hjalti Þór tók til máls og ræddi skoðanakönnun vegstæðis yfir Hornafjarðarfljót. Ennfremur fagnaði Hjalti framtaki Fjöruferða ehf.
Guðrún Ingimundar tók til máls og ræddi ferðir menningarmiðstöðvar yfir sumartíma, t.d. steinaskoðun, lúruveiði og eyðibýlaskoðun sem væri hluti af hugmyndabanka starfshóps um bætta lýðheilsu. Hún greindi því að menningarmálanefnd hafi farið yfir hugmyndabankann og þar sé margt sem þegar hefur komið til framkvæmda og annað sem áhugavert væri að skoða. Guðrún þakkaði þeim fyrir sem skipulögðu vel heppnaðar og vel sóttar gönguferðir yfir nýliðna páska.
Árni Rúnar fagnaði framkomnum hugmynda starfshóps um bætta lýðheilsu. Ennfremur fagnaði Árni Rúnar nýstofnuðu fyrirtæki, Fjöruferðir ehf. sem sýndi að hér hafa íbúar trú á framtíð staðarins.
Hjalti Þór tók til máls og fagnaði hugmyndabanka lýðheilsustöðvar og greindi frá því að ákveðið hafi verið að vísa bankanum til forstöðumanna og nefnda til að byrja með. Síðan væri kominn upp hugmynd um að fá starfsmanna Lýðheilsustöðvar til skrafs og ráðagerðar um hvernig best sé að vinna að málinu í framhaldinu.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 373.fundur þriðjudaginn 27. mars 2007.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 90. fundur 19. mars 2007.
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 74. fundur 19. mars 2007.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 89. fundur 19. mars 2007.
Sigurlaug Gissurardóttir tók til máls og óskaði eftir því að kannað verði hvort sveitafélagið geti komið að uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Öræfum. Sigurlaug fjallaði um móttöku og meðhöndlum á spilliefnum og aukna flokkun á almennu sorpi.
Halldóra B. Jónsdóttir spurðist fyrir um tilboð sem barst í Nesjaskóla. Halldóra kallaði einnig eftir stefnu meirihluta í húsnæðismálum. Halldóra ræddi um bréf lögmanns Regula þar sem hann ræðir annars vegar um almennt hæfi til setu í nefndum á sveitarfélagsins og sérstakt hæfi til þátttöku í ákvörðunum um einstök mál. Hún rakti síðan þau álitmál sem koma fram í bréfinu og sagði það staðfesta það sem hún hafi áður sagt um þau mál. Einnig ræddi hún ráðningu á núverandi framkvæmdastjóra HSSA og fór yfir að vegna skyldleika hefði hún ekki komið nærri þeirri ráðningu og sagði að Hjalti Vignisson og Elín Magnúsdóttir gætu staðfest það. Það hefði verið tillaga Hjalta að ráða Guðrúnu Júlíu í starf framkvæmdastjóra HSSA.
Reynir Arnarson tók til máls og svaraði fyrirspurn Halldóru varðandi stefnu í húnsæðismálum sveitafélagsins. Þá ræddi Reynir um hæfi og vanhæfi og sérstaklega í tengslum við skipun í hafnarstjórn. Hann upplýsti að hann hafi lengi setið í Hafnarstjórn og á þeim tíma hafi afar fá mál komið upp sem tengjast Skinney – Þinganes með beinum hætti. Ef slíkt kæmi upp þá myndi hann að sjálfsögðu víkja af fundi. Hann fór einnig yfir það að hafnarstjórn yrði ekki óstarfhæf þó að þeir sem tengdust fyrirtækinu viku af fundi.
Hjalti Þór tók til máls og svaraði fyrirspurnum um Nesjaskóla. Þá fjallaði hann einnig um bréf lögmanns Regula um hæfis- og vanhæfismál. Taldi hann ljóst vera að þar sem fjallað væri um meginstefnu í málum, líkt og í stefnumótun og skipulagi í skólamálum og í gerð þjónustusamnings um heilbrigðis- og öldrunarmál, væri bæjarstjóri og bæjarstjórnarmenn ekki vanhæfir enda varðaði það ekki réttindi og skyldur neinna einstaklinga með beinum hætti. Þar væri eingöngu verið að fjalla með almennum hætti um málaflokka í heild sinni. Þá fór hann yfir umræðu um hæfismál í tengslum við ákvörðun um þrískiptingu grunnskólans fyrir allmörgum árum. Ennfremur gerði hann grein fyrir samtali sínum við formann hafnarstjórnar Seyðisfjarðar sem jafnframt er framkvæmdastjóri útgerðarfélags þar í bæ.
Guðrún Ingimundar ræddi um bréf lögmanns Regulu og sagði að hún hafi ekki talið sig vanhæfa til ákvarðanatöku og taldi sig engin lögbrot hafa framið.
Elín Magnúsdóttir fór yfir það sem beindist sérstaklega að henni í hæfisumræðunni.
Halldóra B. Jónsdóttir ræddi um hæfis- og vanhæfismál og ítrekaði að munur væri á ákvörðunum um stefnu í skólamálum annars vegar og ákvörðunum á stjórnfyrirkomulagi hins vegar þar sem mikilvægt væri að gæta að tengslum.
Reynir Arnarson ræddi um hæfis- og vanhæfismál.
Björn Ingi Jónsson gerði svarbréf Landhelgisgæslunnar við ósk bæjarráðs um að ein björgunarþyrla yrði staðsett á Hornafirði að umtalsefni. Sagði hann að við mættum í engu slaka á í þessari baráttu og hvatti fólk til dáða.
Árni Þorvaldsson ræddi hæfis- og vanhæfismál og sagðist aldrei orðið vitni að því að sveitarstjórnarmenn né starfsmenn væru að skara eld að sinni köku eða venslamanna sinna heldur hefðu allir hag samfélagsins að leiðarljósi.
Sigurlaug Gissurardóttir tók undir með Birni Ingi varðandi björgunarmál.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 374.fundur þriðjudaginn 3. apríl 2007.
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 31. fundur 26. mars 2007.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 162. fundur 27. mars 2007.
· Skólanefnd Hornafjarðar 28. mars 2007.
· Æskulýðs- og tómstundarráð Hornafjarðar 87. fundur 26. mars 2007.
· Nefnd um íþróttamannvirki 34. fundur 27. mars 2007.
Björn Ingi Jónsson spurði hvernig vinnu miðaði að því að finna nafn á ný sameinaðan grunnskóla Hornafjarðar.
Hjalti Þór svaraði Birni Ingi.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 375.fundur þriðjudaginn 10. apríl 2007.
· Nefnd um endurskoðun fjallskila, 5. fundur 2. apríl 2007.
· Haust, 68. fundur 28. mars 2007.
Hjalti Þór Vignisson tók til máls og gerði grein fyrir vinnu við endurskoðun fjallskila og um reiðhöll.
Reynir Arnarson tók til máls og ræddi um reiðhöll. Sagði hann að verkefnið væri metnaðarfullt og yrði lyftistöng fyrir hestamennsku í héraðinu. Þá greindi hann frá framlagi sveitarfélagsins til byggingu þessarar reiðhallar.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarstjórn Hornafjarðar, 113. fundur 8. mars 2007 , áður samþykkt.
2. Vatnajökulsþjóðgarður
Hjalti Þór Vignisson hóf umræðu um Vatnajökulsþjóðgarð. Rakti hann aðdraganda lagsetningar um þjóðgarðinn. Þá ræddi hann um uppbyggingu þjónustunets og verndarstig. Að lokum ræddi hann um tækifæri sem stofnunin hefði í för með sér, fyrir útivist og ferðaþjónustu.
Björn Ingi Jónsson þakkaði Halldóru B. Jónsdóttur vel unnin störf í ráðgjafarnefnd um Vatnajökulsþjóðgarð. Gerði hann sérstaklega að umtalsefni reglur um ferðir á snjó og taldi mikilvægt að passa að ekki yrði settar of miklar hömlur á ferðalögum á svæði þjóðgarðsins. Taldi hann enga ástæða vera fyrir þröngum reglum í þessu efni.
Sigurlaug Gissurardóttir ræddi um þá vinnu sem farið hefur fram í aðdraganda þess að frumvarpið var samþykkt á Alþingi. Taldi hún stofnun þjóðgarðsins hafa
Halldóra B. Jónsdóttir rakti þá vinnu sem farið hefur fram við mótun þeirra tillagna sem frumvarpið byggir á. Í því sambandi gerði hún grein fyrir störfum nefndar á vegum sveitarfélagsins fyrir allmörgum árum sem mótaði stefnu í þjóðgarðsmálum fyrir sveitarfélagið. Afrakstur þeirrar vinnu hefur verið leiðarljós sveitarstjórnar síðan þá. Þá ræddi hún sérstaklega um þátttöku heimamanna í stjórn þjóðgarðsins. Í því sambandi greindi hún frá þrýstingi frá útivistarsamtökum og náttúruverndarsamtökum um að samtök þeirra eigi fulltrúa í stjórn þjóðgarðsins. Taldi hún að mikilvægt væri fyrir sveitarstjórn og fulltrúa hennar í stjórn þjóðgarðsins að gæta vel að hagsmunum heimamanna.
Árni Rúnar Þorvaldsson lagði fram eftirfarandi bókun.
Bæjarstjórn Hornafjarðar fagnar áformum um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs sem verður stærsti sinnar tegundar í Evrópu. Þjóðgarðurinn mun hafa ótvírætt gildi á heimsvísu, skapa Íslandi sérstöðu og skerpa ímynd þess á alþjóðavettvangi, verði rétt á málum haldið. Bæjarstjórn leggur mikla áherslu á að staðið verði við áform um uppbyggingu þjónustunets og aðgengis og að ávallt verði tryggt nægjanlegt fjármagn í viðhald og rekstur, auk þess sem frá upphafi verði komið á skilvirk öryggisskipulagi. Bæjarstjórn Hornafjarðar leggur áherslu á áframhaldandi gott samstarf við heimamenn sem og aðila annarra rekstrarsvæða um setningu reglugerðar fyrir þjóðgarðinn.
Bæjarstjórn óskar Þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum til hamingju með gestastofu í Ásbyrgi sem verður hluti af hinum nýja Vatnajökulsþjóðgarði.
Bókunin samþykkt samhljóða.
3. Þjónustusamningur um heilbrigðis- og öldrunarþjónustu
Hjalti Þór Vignisson ræddi um tekju- og verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Taldi hann að sveitarfélög ættu að hafa alla velferðarþjónustu á sinni könnu og ræddi þá sérstaklega um mennta-, heilbrigðis- og félagsmál. Til þess að það geti orðið þurfa sveitarfélög almennt að stækka og efla sig. Þá ræddi Hjalti um fyrirkomulag heilbrigðis- og öldrunarmála í sveitarfélaginu og taldi að þjónustusamningurinn hafi verið góður bæði fyrir ríkið og sveitarfélagið, þjónusta hafi verið efld, fjármunir nýttir vel og þjónustan löguð að aðstæðum hér heimafyrir. Taldi hann fyrir sitt leyti ekki standa mikið út af til að hægt væri að skrifa undir nýjan samning.
Halldóra B. Jónsdóttir ræddi í upphafi um reynslusveitarfélagsverkefnið sem hófst árið 1996. Sagði hún mörg sveitarfélög viljað ná svipuðum samning og Hornafjörður eftir að þjónustusamningur tók gildi. Hún ræddi síðan einstaka þætt þjónustusamningsins. Hún taldi að nokkuð væri í land þar til hægt væri að skrifa undir.
Árni Rúnar Þorvaldsson fór yfir samningaviðræður við heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið. Sagði hann að margt hafi áunnist síðan viðræður hófust. Í því sambandi minntist hann á reiknilíkan fyrir heilsugæslu sem kynnt var í upphafi viðræðna af hálfu ráðuneytisins. Það hafi gert ráð fyrir 2 stöðugildum lækna en síðan þá hafi fulltrúar sveitarfélagsins komið því til leiðar að áfram verði hér heimild fyrir þremur stöðugildum lækna. Staðan í viðræðunum væri sú að boltinn væri hjá ráðuneytinu og nú væri rætt um fyrirkomulag fæðingarstofu. Árni gerði grein fyrir að málið hafi fengið mikla og ítarlega umfjöllun á vettvangi Hör auk þess sem samningurinn hafi verið ræddur í bæjarráði og á vinnufundi bæjarstjórnar.
4. Stefnumótun í menningarmálum
Hjalti Þór Vignisson tók til máls og fjallaði um stefnumótun í menningarmálum. Í máli hans kom fram að núgildandi stefnumótun í menningar- og safnamálum Hornafjarðar hafi verið samþykkt í bæjarstjórn Hornafjarðar í mars 2001. Sagði hann að margt hafi breyst síðan þá og m.a. að meginhluti starfseminnar var flutt í Nýheima. Auk þess hafa fjölmörg verkefni sem stefnt er að í stefnumótuninni náð fram að ganga eða eru komin á góðan rekspöl. Þó eru nokkur sem enn hafa ekki náð flugi þrátt fyrir að gildi þeirra hafi síst minnkað. Einnig hefur verið gerður samningur á milli Menntamálaráðuneytisins og sveitarfélaga á Austurlandi. Það hafi því verið tilefni til þess að fara yfir stefnuna og skerpa línur. Þá hrósaði Hjalti nýráðnum forstöðumanni Menningarmiðstöðvar fyrir hversu vel hún hefur farið af stað í starfi sínu og ný stefnumótun beri vitni um metnað hennar, starfsmanna menningarmiðstöðvar og menningarmálanefndar um menningarmál í sveitarfélaginu. Hjalti gerði grein fyrir kjörorðum stofnunarinnar og meginstefnu. Hjalti ræddi sérstaklega um að stefni beri að því að byggja gamla hafnarsvæðið upp með tilliti til safna- og ferðaþjónustu eins og kemur fram í stefnunni. Að endingu ræddi hann um áætlanir menningarmálanefndar um að innleiða árangursstjórnun í starf Menningarmiðstöðvar. Taldi Hjalti að þetta gæti verið tilraun sem síðar yrði útfærð yfir á allar stofnanir sveitarfélagsins.
Að lokum þakkaði hann forstöðukonu menningarmiðstöðvar, starfsfólki stofnunarinnar og menningarmálanefnd fyrir vel unnin störf og lagði til að stefnumótunin yrði samþykkt.
Forseti bar stefnuna upp til atkvæða og var hún samþykkt samhljóða.
5. Samþykkt um hundahald
Hjalti Þór Vignisson gerði grein fyrir samþykkt um hundahald og tilgangi með setningu þeirrar samþykktar. Lagði hann að lokum til að hún yrði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
6. Samþykkt um kattahald
Hjalti Þór Vignisson gerði grein fyrir samþykkt um kattahald og tilgangi með setningu þeirrar samþykktar. Lagði hann að lokum til að hún yrði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
7. Deiliskipulag í Haukafelli
Hjalti Þór Vignisson tók til máls og fjallaði um deiliskipulag í Haukafelli og lagði fram eftirfarandi tillögu að bókun.
Þrátt fyrir það, að bæjarstjórn vitni, í afgreiðslu sinni 6. febrúar, 2007, í athugasemdir UST 20. mars, 2006, þar sem fram koma áhyggjur stofnunarinnar af því, að bygging frístundahúsa, rýri eða skerði útivistargildi svæðisins, er hún ekki með því að taka undir það álit eða áhyggjur UST. Engu að síður leggur bæjarstjórn áherslu á mikilvægi þess, að svæðið haldi sem mestu gildi sínu sem útivistarsvæði fyrir almenning, enda tekur bæjarstjórn undir það með UST, að húsum verði vel fyrir komið í umhverfinu og að vandað verði til hönnunar og litavals þeirra.
Í afgreiðslu bæjarstjórnar felst það, m.ö.o. að vel geti farið saman bygging frístundahúsa og útivist almennings, og samþykkir því, í ljósi þess, deiliskipulagið óbreytt.
Bæjarstjórn hafnar því, að mótsögn felist í afgreiðslu hennar.
Bókunin var samþykkt samhljóða.
8. Mánavöllur
Hjalti Þór Vignisson vék máls á vanhæfi sínu til að taka þátt í afgreiðslu þessa máls vegna náinna tengsla sinna við formann U.M.F. Mána og óskaði eftir því að bæjarstjórn skeri úr um það hvort hann sé vanhæfur í þessari umræðu.
Forseti óskaði eftir því bæjarstjórn um að hún greiddi atkvæði um hæfi bæjarstjóra. Atkvæði féllu þannig að þrír greiddu atkvæði með því að bæjarstjóri væri vanhæfur, einn sat hjá og einn var á móti.
Sigurlaug Gissurardóttir óskaði eftir því að fá að gera grein fyrir atkvæði sínu. Taldi hún bæjarstjóra ekki vera vanhæfan þar sem þetta snerist um félagið Mána en ekki formann þess.
Björn Ingi Jónsson tók til máls og ræddi um mál tengd Mánavöllum og lagði fram eftirfarandi bókun:
Forsenda samningsins byggir á að sjálfboðavinna skapi eignarhald, þ.e. að sjálfboðastarf skapi Umf. Mána eignarétt á íþróttavöllunum við Mánagarð.
Við undirrituð teljum að undirritun slíks samkomulags, sem hér um ræðir, skapi fordæmi gagnvart öðrum og ákveðna sóknarmöguleika til að fara fram svipað samkomulag og muni í framtíðinni valda sveitafélaginu verulegum vandræðum ef gæta á jafnræðis meðal íbúa í þessum efnum. Einnig vantar í yfirlýsinguna skiptingu “eignarinnar” og í framhaldi af því hvernig aðilar ætla að skipta rekstrarkostnaði vallanna.
Í ljósi þessa sjáum við okkur ekki annað fært en að vera á móti þessum samningi.
Halldóra Bergljót Jónsdóttir
Björn Ingi Jónsson
Reynir Arnarson tók til máls og ræddi um mál tengd Mánavöllum.
Halldóra B. Jónsdóttir tók til máls og varaði við að ganga til samninga við Ungmennafélagið Mána með þessum hætti. Sagðist hún hafa rætt þessi mál við lögfræðing. Niðurstaðan væri sú að betra væri fyrir sveitarfélagið að gefa ungmennafélaginu svokölluð mannvirki á Mánavöllum heldur en að skrifa undir samkomulag um eignarhald eins og nú er til umræðu..
Reynir Arnarson tók til máls og ræddi um mál tengd Mánavöllum öðru sinni.
Sigurlaug Gissurardóttir tók til máls og ræddi um mál tengd Mánavöllum.
Guðrún Ingimundardóttir tók til máls og ræddi um mál tengd Mánavöllum.
Halldóra B. Jónsdóttir spurði um gögn sem kveða á um það að Umf. Mána hefur lagt fram fjármagn, efni og vinnu til uppbyggingar Mánavalla sem talað er um í bókun meirihluta.
Reynir Arnarson tók til máls og svaraði fyrirspurn Halldóru B. Jónsdóttur.
Sigurlaug Gissurardóttir tók öðru sinni til máls um mál tengd Mánavöllum.
Björn Ingi Jónsson tók til máls öðru sinni og ræddi um mál tengd Mánavöllum.
Forseti lagði fram bókun eftirfarandi bókun meirihlutans.
Ljóst er af fyrirliggjandi gögnum og upplýsingum að Umf. Máni hefur lagt fram fjármagn, efni og vinnu til uppbyggingar Mánavalla. Auk þess hefur ungmennafélagið komið að rekstri og viðhaldi vallanna.Yfirlýsing um eignarhald er staðfesting á því að með þessu og framlagi sveitarfélagsins hafi myndast sameign þessara tveggja aðila á Mánavelli. Með þessari samþykkt er því ekki verið að færa félaginu hlut sem það ekki á. Sveitarfélagið getur enda ekki slegið eign sinni á neitt sem það ekki á að fullu. Slíkt verður aldrei gert án yfirlýsinga meðeigenda eins og gert var þegar Sindrabær komst í eigu sveitarfélagsins.
9. Kosningar
Forseti bar upp eftirfarandi tillögu um skipan í kjörstjórnir:
Kjörstjórn í Lóni
Aðalmaður Varamaður
Magnús Jónasson Olga Friðjónsdóttir
Svafa Herdís Jónsdóttir Guðfinna Benediktsdóttir
Sigurður Ólafsson Áslaug Eiríksdóttir
Kjörstjórn á Höfn
Aðalmaður Varamaður
Ástríður Sveinbjörnsdóttir Zophonías Torfason
Þorbjörg Helgadóttir Reynir Gunnarsson
Hrefna Lúðvíksdóttir Þorvaldur Viktorsson
Kjörstjórn í Nesjum
Aðalmaður Varamaður
Ásmundur Gíslason Halldór Tjörvi Einarsson
Þorleifur Hjaltason Ásdís Marteinsdóttir
Kristín Einarsdóttir Halldór Einarsson
Kjörstjórn á Mýrum
Aðalmaður Varamaður
Ari Hannesson Sigurður Guðjónsson
Ingunn Ingvarsdóttir Helga Lucia Bergsdóttir
Elvar Sigurjónsson Kristín Egilsdóttir
Kjörstjórn í Suðursveit
Aðalmaður Varamaður
Steinþór Torfason Eiríkur Sigurðsson
Laufey Helgadóttir Gunnhildur Ingimarsdóttir
Valgerður Leifsdóttir Björn Sigfússon
Kjörstjórn í Öræfum
Aðalmaður Varamaður
Pálína Þorsteinsdóttir Halldóra Oddsdóttir
Guðjón Ingimundarson Hólmfríður Guðlaugsdóttir
Sigurgeir Jónsson Unnur Bjarnadóttir
Tillagan var samþykkt samhljóða
10. Ársreikningur 2006 – fyrri umræða
Hjalti Þór Vignisson fór yfir ársreikning 2006.
Samkvæmt rekstrarreikningi námu rekstrartekjur í samanteknum ársreikningi sveitarsjóðs 1.297,2 miljónum, en þar af voru rekstrar tekjur A-hluta stofnana 1.151,9 miljónir króna. Rekstrarniðurstaða í samanteknum reikningsskilum var jákvæð um 117,6 miljónir króna. Í A-hluta var rekstrarniðurstaðan jákvæð um 114,5 miljónir króna en jákvæð um 3,1 miljón króna hjá B-hluta stofnunum. Heildareignir samkvæmt samanteknum ársreikningi var 894,4 miljónir króna og hlutfall eiginfjár af heildareignum var 40,61%. Eigið fé sveitarsjóðs var 782,7 miljónir króna og eiginfjárhlutfall 46,03%. Sveitarfélagið rekur Heilbrigðisstofnun Suðausturlands samkvæmt þjónustusamningi við heilbrigðis- og tryggingarráðuneytið. Afkoma stofnunarinnar var neikvæð um 3,1 miljónir króna. Ríkisframlag til stofnunarinnar nam 330,2 m.kr. og aðrar tekjur voru 13,8 m.kr. Rekstrargjöld voru 347 m.kr. og fjármagnsgjöld 73 þúsund.
Halldóra B. Jónsdóttir tók til máls og sagði að fjárhagsleg staða sveitarfélagsins væri sterk. Á síðasta ári hefði jöfnunarsjóður úthlutað sveitarfélaginu 120 milljónum króna meira en gert hafi verið ráð fyrir í upphafi árs, skýring á því væri að góðæri væri í landinu.. Minna hefði verið um framkvæmdir hjá bæjarsjóð en gert hafi verið ráð fyrir og nefndi að hik hefði verið að núverandi meirihluta varðandi sundlaug og því væru framkvæmdir komnar styttra en ella.. Hún óskaði eftir útskýringum á ákveðnum liðum.
Reynir Arnarson tók til máls og ræddi ársreikning 2006.
Hjalti Þór Vignisson svaraði fyrirspurnum Halldóru B. Jónsdóttur og hvatti bæjarstjórnarmenn um að nýta sér rétt sinn um að fá upplýsingar úr bókhaldi sveitarfélagsins.
Árni Rúnar Þorvaldsson tók til máls og ræddi ársreikning 2006.
11. Fyrirspurnir
Engar
Fundi slitið kl. 22:30


