Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 113

113. fundur

  

Fundur haldinn      í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 8. mars 2007, kl. 16:00 í Ekru.

Mætt voru:           Árni Rúnar Þorvaldsson forseti bæjarstjórnar, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Guðrún Ingimundardóttir, Björn Ingi Jónsson og Halldóra B.Jónsdóttir.  Einnig Stefán Ólafsson staðgengill bæjarstjóra, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.

 

Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.

 

1.    Fundargerðir

Bæjarráð Hornafjarðar 367. fundur 6. febrúar 2007

·       Menningarmálanefnd Hornafjarðar 87. fundur 24. janúar 2007.

·       Nefnd um endurskoðun fjallskila 3. fundur þriðjudaginn 30. janúar 2007.

Halldóra B. Jónsdóttir spyr um gang mála varðandi fjallskil og tekur undir bókun bæjarráðs  varðandi landnýtingaráætlun í Laxárdal einnig ræddi hún um bókun bæjarráðs varðandi að lýsa sveitarfélagið kjarnorkuvopnalaust svæði og taldi hún að bæjarráð væri að samþykkja hreina markleysu.  Reynir Arnarsson sagði að fjallskilamálin væru í vinnslu, sagði hann að í ljósi þess að 94 sveitarfélög á landinu hafa lýst sveitarfélögin kjarnorkuvopnalaus og skaði enginn með því að samþykkja þessa bókun.  Stefán Ólafsson sagði að álitamálum fjölgaði varðandi fjallskilamál og ræddi hann um landnýtingaáætlun í Laxárdal.  Árni R. Þorvaldsson ræddi um bréf hernaðarandstæðinga og fannst alveg sjálfssagt að taka undir beiðni þeirra varðandi það að lýsa Sveitarfélagið Hornafjörð kjarnorkuvopnalaust svæði.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 368. fundur 13. febrúar 2007

·       Umhverfisnefnd Hornafjarðar 65. fundur 5. febrúar 2007.

·       Nefnd um íþróttamannvirki, 30. fundur, 12. febrúar 2007

·       Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga 740. fundur til kynningar.

Sigurlaug Gissurardóttir ræddi um sorpflokkun  og átaki sem fara á í varðandi þau mál, einnig ræddi hún um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs og umsögn sveitarfélagsins varðandi frumvarpið.  Halldóra B. Jónsdóttir  ræddi um 100 ára ártíð Svavars Guðnasonar einnig ræddi hún um göng undir Lónsheiði, umhverfismál og frumvarp til laga um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Einnig ræddi hún um flutning opinberra starfa út á land. Reynir Arnarsson ræddi um göng undir Lónsheiði.  Stefán Ólafsson tekur undir orð Halldóru B. varðandi Svavar Guðnason, einnig ræddi hann um lögreglumál, vegslóða í þjóðgarði og Vatnajökulsþjóðgarð.  Sigurlaug Gissurardóttir ræddi um sorpflokkun þ.m.t. baggaplast.  Árni R. Þorvaldsson ræddi einnig um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs.  Halldóra B. Jónsdóttir ræddi um ferðamennsku, fuglaathugunarstöð, lögreglumál,Vatnajökulsþjóðgarð og umhverfismál. 

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 369. fundur 27. febrúar 2007

·       Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 30. fundur 19. febrúar 2007.

·       Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 74. fundur 14. febrúar 2007.

·       Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 88. fundur 9. febrúar 2007.

·       Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 79. fundur 21. febrúar 2007 ásamt fundargerð 34. fundar Gjafa og minningarsjóðs Skjólgarðs.

·       Félagsmálráð Hornafjarðar 159. fundur 13. febrúar 2007.

·       Menningarmálanefnd Hornafjarðar 88. fundur 24. janúar 2007.

·       Skólanefnd Hornafjarðar 90. fundur 22. febrúar 2007.

·       Nefnd um íþróttamannvirki 31. fundur 19. febrúar 2007.

·       Heilbrigðisnefnd Austurlands 67. fundur 9. febrúar 2007.

Björn Ingi Jónsson ræddi um lóðamál, íþróttamannvirki og staðsetningu björgunarþyrlu hér á Hornafirði.  Guðrún Ingimundardóttir óskar konum til hamingju með daginn 8. mars.  ræddi hún um fundargerð heilbrigðis og öldrunarráðs , varðandi nafnið Skjólgarð.   Halldóra B. Jónsdóttir ræddi um heilbrigðismál, þjónustusamning milli heilbrigðisráðuneytis og sveitarfélagsins um rekstur HSSA , benti hún á að bæjarráð og bæjarstjórn hafi ekki tekið þjónustusamning til formlegrar umræðu.  Árni R. Þorvaldsson ræddi um lóðamál og tillögur sem eru í vinnslu varðandi málið.  Einnig ræddi hann um þjónustusamninginn og stöðu mála varðandi hann og hafnar að málið hafi ekki fengið góða umfjöllun. Halldóra B. Jónsdóttir  sagði að þjónustusamningurinn hefur aldrei komið á dagskrá bæjarráðs. Árni R. Þorvaldsson sagði að þjónustusamningurinn hefur fengið mjög góða umræðu í sinni fagnefnd þ.e.a.s. í Heilbrigðis og öldrunarráði.  Sigurlaug Gissurardóttir ræddi um stjórnsýsluna.    Reynir Arnarson lítur svo á að HÖR hafi heimild  til að vinna þjónustusamninginn  og enn hefur hann ekki verið tilbúinn til afgreiðslu í bæjarráði og bæjarstjórn.  Stefán Ólafsson upplýsti að útboðsgögn um jarðvegskipti vegna sundlaugar væru tilbúin.  Halldóra B. Jónsdóttir bendir á að bæjarráð hefur ekki kosið samninganefnd um þjónustusamninginn.

Fundargerð samþykkt.

 Forseti lagði fram eftirfarandi bókun:

Bæjarstjórn Hornafjarðar vill benda á mikilvægi þess að björgunarþyrla sé staðsett á Hornafirði.  Hornafjörður  er landfræðilega einangraður og langt í aðra öryggisþjónustu.  Hornafjarðarflugvöllur er mikilvægur hlekkur í björgunarstarfi í landinu.  Þar eru lendingarskilyrði góð og veðurskilyrði ólík því sem er á suðvesturhorninu.  Flugvöllurinn gegnir mikilvægu hlutverki í björgunaraðgerðum ef skip lenda í vandræðum á leið sinni til og frá Evrópu enda fjölfarnar siglingaleiðir meðfram strönd Suðausturlands og gjöful fiskimið.  Völlurinn hefur einnig verið notaður í björgunaraðgerðum á Austurlandi.  Ferjuflugvélar hafa oft viðkomu á Hornafirði og geta má þess að nýlega var fyrsti viðkomustaður nýrrar björgunarþyrlu Íslendinga á Hornafjarðarflugvelli.  Frá Hornafirði er einnig stutt í fjölfarna ferðamannastaði, t.d. á Vatnajökli og ætla má að á næstu árum muni verða mikil aukning ferðamanna á suðausturhorni landsins í tengslum við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs.  Með tilliti til þess er mikilvægt að öryggis- og björgunarmál á svæðinu séu viðunandi. 

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.

 Bæjarstjórn Hornafjarðar, 112. fundur 6. febrúar 2007 , áður samþykkt.

  Forseti lagði fram eftirfarandi bókun:

Á þessu ári eru liðin eitt hundrað ár frá stofnun Umf. Mána.  Félagið hefur sett mikinn svip á íþrótta-, félags- og menningarlíf í héraðinu á þessu tímabili.  Um leið og  Bæjarstjórn Hornafjarðar þakkar Umf. Mána fyrir þetta framlag er samþykkt að afhenda félaginu kr. 100.000.- að gjöf á þeim tímamótum sem félagið stendur nú á.    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.

Forseti óskar Umf. Mána fyrir hönd bæjarstjórnar til hamingju með afmælið.

 2.    Þjónustusamningur um þjónustu við fatlaða

Stefán fór yfir helstu atriði samningsins. Sagði hann þetta vera góðan samning sem fæli í sér mikla framsýni í þjónustu við þá þegna samfélagsins sem hann nær til. Hinn faglegi þáttur samningsins byggi á stefnumótun félagsmálaráðuneytisins, „Mótum framtíð – þjónusta við fötluð börn og fullorðna 2007 – 2016.” Hvað varðar fjármálahlið samningsins taldi Stefán þann þátt fyllilega ásættanlegan. Í reynd hafi sveitarfélagið fengið það sem lagt var af stað með í upphafi samningaferilsins. Hins vegar sé ljóst að sveitarfélagið þurfi að vera vel á verði og gæta sinna hagsmuna í samræmi við samninginn og endurskoðunarákvæði hans með tilliti til óvæntra eða umfangsmikilla breytinga á þörf fyrir þjónustu. Einnig minntist hann á leiguíbúðir fyrir fatlaða að Silfurbraut 2 og 4. og fyrsti íbúinn fluttur inn í sína íbúð. Sagði hann þetta vera góðan áfanga sem tryggði betri þjónustu og aukin lífsgæði fyrir íbúana. Að lokum hvatti Stefán til þess að bæjarstjórn samþykkti fyrirliggjandi drög að samningi um þjónustu við fatlaða.   Elín Magnúsdóttir telur samningin vera góðan og greiðir honum atkvæði sitt, Halldóra B. Jónsdóttir tekur undir orð Stefáns og samþykkir þennan samning.

Bæjarstjórn samþykkir þjónustusamninginn samhljóða.

3.    Stjórnfyrirkomulag grunnskólans

Árni R. Þorvaldsson ætlar ekki að taka þátt í afgreiðslu þessa máls en gerir grein fyrir afstöðu sinni. Erna Gísladóttir mætti  undir þessum lið

 Stefán fór yfir málið og sagði nú komið að lokum þess ferils sem hófst með skólamálaþingi sem haldið var 19. febrúar 2005. Unnið hafi verið að nýrri skólastefnu og hún samþykkt í byrjun janúar síðastliðnum. Á sama fundi hafi einnig verið samþykkt að sameina grunnskólana undir eina sameiginlega skólastjórn með þeim breytingum frá ríkjandi venjum að skólastjórar yrðu þrír og mynduðu sameiginlega skólastjórn. Þeir fengju einnig það hlutverk að gera tillögur um millistjórnendur. Nú liggur fyrir að menntamálaráðuneytið hefur heimilað tilraun til þriggja ára en í bréfi ráðuneytisins segir m.a. orðrétt: „Menntamálaráðherra heimilar Sveitarfélaginu Hornafirði með vísan til 53. gr. laga um grunnskóla nr. 66/1995 að gera tilraun með nýtt stjórnunarform í sameinuðum grunnskóla á Hornafirði, til næstu þriggja ára frá skólaárinu 2007-2008 að telja. Sveitarstjórn Hornafjarðar fær því undanþágu frá ákvæðum laga og reglugerða um fyrirkomulag stjórnunar grunnskóla. Menntamálaráðuneytið setur það skilyrði fyrir tilraun með nýtt stjórnunarform að ávallt sé ljóst gagnvart öllum aðilum hver sé forsvarsmaður og fyrsti aðili skólans, þ.m.t. ráðuneytinu og stofnunum skólakerfisins.”

Jafnframt hafa þeir þrír skólastjórar sem mynda hina nýju skólastjórn lagt til að ráðnir verði tveir deildarstjórar og sinni annar þeirra þeim verkum sem féllu undir störf sérkennslufulltrúa við skólaskrifstofu. Með hliðsjón af heimild menntamálaráðherra og tillögu skólastjóranna var lögð fyrir eftirfarandi bókun í skólanefnd og hún samþykkt í nefndinni. Lagði Stefán það til að bæjarstjórn samþykki sambærilega bókun og samþykkt var í skólanefnd. Lagði hann fram eftirfarandi bókun til umræðu og afgreiðslu:

 Með hliðsjón af heimild  menntamálaráðherra og samþykkt skólanefndar á 90. fundi sínum þann 22. febrúar 2007 samþykkir bæjarstjórn að við sameinaðan grunnskóla starfi þrír skólastjórar og tveir deildarstjórar. Jafnframt er samþykkt að verkefni sérkennslufulltrúa við skólaskrifstofu færist yfir til skólans og falli undir starfssvið annars tveggja deildarstjóra. Í ljósi fyrri samþykkta er áréttað að verði breytingar á hópi stjórnenda á því tímabili sem heimild menntamálaráðherra nær til muni fyrirkomulag skólastjórnunar verða endurskoðað. Í lok þessa þriggja ára tímabils fari fram faglegt og fjárhagslegt mat á hvernig til hafi tekist og í ljósi þess tekin ákvörðun um fyrirkomulag stjórnunar til lengri tíma litið.  

Stefán lagði áherslu á að við lok þessa ferils, nýja skólastefnu og sameinaðan grunnskóla, væri ánægjulegt að líta til baka og gaumgæfa hvernig til hafi tekist. Mikill fjöldi hafi komið að þessari vinnu og almennt ríkt góð samstaða um flesta þætti þó vissulega hafi einnig borið á nokkrum ágreiningi. Mestu máli skipti að góð sátt sé um þessi mál í skólasamfélaginu, það eitt og sér sé mikils virði. Þá þakkaði hann skólastjórum Nesja-, Hafnar- og Heppuskóla fyrir mikla og góða vinnu í tengslum við sameiningu grunnskólanna.    Elín Magnúsdóttir gerir grein fyrir atkvæði sínu  og telur mikilvægt að sátt ríki um breytinguna og samþykkir framlagða tillögu. 

Björn I. Jónsson sagði að fulltrúar minnihlutans töldu að einum deildarstjóra væri ofaukið í skólastjórnina og  lagði fram eftirfarandi bókun:

Við undirrituð fulltrúar sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Hornafjarðar sitjum hjá við afgreiðslu á stjórnfyrirkomulagi grunnskólanna þar sem við teljum að verið sé að fara bæði dýrari og flóknari leið við breytingar á stjórnfyrirkomulaginu eins og áður hefur komið fram.

Halldóra B. Jónsdóttir tók til máls um málið og taldi æskilegt að einn skólastjóri og einn aðstoðarskólastjóri ætti að vera yfir Grunnskóla  Hornafjarðar.

Stefán Ólafsson fór yfir ferlið og sagði að það væri mikil sátt um þessa leið.

 Tillaga um stjórnfyrirkomulag sameinaðs grunnskóla borin undir atkvæði og samþykkt með fimm atkvæðum tveir sátu hjá

 4.    Þriggja ára áætlun síðari  umræða.

Stefán Ólafsson  fylgdi  áætluninni úr hlaði og sagði m.a. eins og fram kom við fyrri umræðu þarf bæjarstjórn samkvæmt lögum að gera þriggja ára áætlun fyrir sjóði sveitarfélagsins og að þessu sinni nær hún yfir árin 2008 til 2010. Markmiðið er að varpa ljósi á það svigrúm sem er til sérstakra framkvæmda og stærri fjárfestinga á tímabilinu. Sömuleiðis þarf að skila þriggja ára áætlun fyrir samstæðureikning, þ.e.a.s. bæði A-hluta og B-hluta sem eru vatnsveitan, fráveitan, höfnin og íbúðakerfið.  Áætlun til þriggja ára eða lengri tíma sem byggist á fjárhagsáætlun ársins í ár getur aldrei verið fullkomlega nákvæm þó svo að rekstur sveitarfélagsins sé í mjög föstum skorðum. Áætlunin er þó gott tæki til að átta sig á ákveðinni þróun og hvaða möguleikar eru á framkvæmdum til lengri tíma litið. Langtímaáætlun er líka stefnumótandi og segir til um hvaða markmið sveitarstjórn setur um stöðu sjóðanna og sveitarfélagsins í heild. Helstu breytinga milli umræðna eru m.a. að framkvæmdir árið 2008 eru 130 m.kr. hærri en við fyrri umræðu  og er þá búið að gera ráð fyrir byggingu knattspyrnuhúss.   Gert er ráð fyrir 100 m.kr. minni lántöku á árinu 2008 vegna betri afkomu ársins 2006.  Rekstraráætlun er  á föstu verðlagi og allar upphæðir miðast við fjárhagsáætlun 2007.  Gert er ráð fyrir varanlegum fjárfestingum að upphæð 439,0 m.kr., á árunum 2008 til 2010. 

Áætlunin gerir ráð fyrir að aðalsjóður framkvæmi fyrir 340 m.kr. og  taki langtímalán að upphæð 290,0 m.kr. á móti eru afborganir langtímalána 292,0 m.kr.  helstu framkvæmdir A-hluta eru áframhaldandi bygging sundlaugar og bygging knattspyrnuhúss og árið 2010 er gert ráð fyrir 50 m.kr. í fráveituframkvæmdir.  Langtímalán aðalsjóðs lækka því á tímabilinu um 2,0 m.kr.

Framkvæmdir á vegum hafnarsjóðs eru 40,0 m.kr., ný  langtímalán að upphæð 37,0 m.kr. á móti afborgun langtímalána að upphæð 37,8 m.kr. Langtímalán hafnarsjóðs hækka því á tímabilinu um 0,8 m.kr.

Halldóra B. Jónsdóttir ræddi um fjárfestingarnar og forgangsröðun og ætlar hún að sitja hjá við afgreiðslu þessa máls.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða áætlun með fimm atkvæðum tveir sátu hjá.

 

5.    Fyrirspurnir

 

 

Fundi slitið kl: 19:50

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica