Bæjarstjórn

Fundargerð Bæjarstjórnar 64

64. fundur

Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 5.júní 2003, kl. 16:00 í Ekru.

Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Björn E. Traustason, Einar Karlsson, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, Ólafur Sigurðsson og Kristín Gestsdóttir. Einnig Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Helgi Már Pálsson og Stefán Ólafsson.

Gengið var til dagskrár.

1.Fundargerðir

Bæjarráð Hornafjarðar 210.fundur fimmtudaginn. 8. maí 2003.

Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 7. fundur 5. maí 2003.

Æskulýðs og tómstundarráð Hornafjarðar 50. fundur 5. maí 2003.

Starfshópur um stofnun Jöklaseturs á Hornafirði 6. fundur 29. apríl 2003.

Heilbrigðisnefnd Austurlands 35. fundur 8. apríl 2003 ásamt fylgigögnum - til kynningar.

Kristín Gestsdóttir ræddi um slæma umgengni á mörgum lóðum í sveitarfélaginu og spurði hvernig miðaði í úrbótum þar á. Bæjarstjóri sagði marga hafa brugðist við tilmælum frá byggingafulltrúa um tiltekt en þó væri ástæða til að ýta frekar við mönnum.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 211.fundur mánudaginn 12. maí 2003.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 212.fundur fimmtudaginn. 15. maí 2003.

Einar spurðist fyrir um hvort allir hafi fengið starf í vinnuskólanum sem um sóttu og hvort kostnaður við skólann haldist innan fjárhagsáætlunar. Kristín ræddi mikilvægi vinnuskóla í breyttu samfélagi. Hún telur að endurskoða þurfi vinnuskóla á þann veg að öllum unglingum bjóðist þar vinna óski þeir þess. Halldóra Bergljót lagði áherslu á félagslegan þátt vinnskólans. Einnig fjallaði hún um landbrot í Austur-Skaftafellssýslu og áhyggjur af því. Sagði svipað gróið land í hættu í sýslunni og færi undir Hálslón. Albert sagði alla fá vinnu í skólanum sem rétt eiga á samkvæmt reglum um aldursmörk. Þá upplýsti hann að vegna vaxandi fjölda ungmenna í vinnuskóla ykjust útgjöld. Taka þyrfti tillit til þess við endurskoðun fjárhagsáætlunar. Nýjasta áætlun hljóðar upp á um 12,5 millj. í stað rúmlega 10 millj. Albert greindi frá viðræðum við ráðherra vegna landbrots og fyrirhuguðum aðgerðum, þar á meðal hugmyndum um aðgerðir við Hólmsá sem lokar nú leið út á Suðurfjörur fyrir aðra en staðkunnuga.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 213. fundur fimmtudaginn. 22. maí 2003.

Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 44. fundur 15. maí 2003.

Félagsmálaráð Hornafjarðar 92. fundur 13. maí 2003.

Menningarmálanefnd Hornafjarðar 48. fundur 14. maí 2003.

Launanefnd sveitarfélaga 187. fundur 14. maí 2003 – til kynningar

Björn spurðist fyrir um lóðir til byggingar smærri húsa 70 – 90 fm. Kristín fagnar því að fyrirhugað sé að gera Sindrabæ að miðstöð fyrir leiklistar- og tónlistarstarfsemi í sveitarfélaginu og að í það verði varið stofnfjárveitingu frá ríkinu. Hún lýsti einnig ánægju með umsóknir um verkefni með styrk frá svæðisvinnumiðlun. Ólafur spurðist fyrir um úthlut lóðarinnar Kirkjubraut 9. Halldóra ræddi fyrirhugaðar endurbætu á Sindrabæ og vísaði þar í málþing sem haldið var í Nýheimum þar sem fram kom eindreginn vilji fundarmanna til að endurbæta húsið. Bæjarstjóri sagði lausar lóðir fyrir smærri byggingar á Leirusvæði. Hann sagði unnið að tillögu að tilfærslu á byggingareit á lóðinni Kirkjubraut 9. Forseti bar upp til afgreiðslu lið 3 í fundargerðinni sem er tillaga að deiliskipulagi á Lönguhólum.

Bæjarstjórn samþykkti tillöguna samhljóða.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 214. fundur fimmtudaginn. 5. júní 2003

Félagsmálaráð Hornafjarðar 93. fundur 27. maí 2003.

Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 46. fundur 26. maí 2003.

Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 42. fundur 4. júní 2003.

Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 50. fundur 22. maí 2003.

Skólanefnd Hornafjarðar 50. fundur 21. maí 2003.

Starfshópur um stofnun Jöklaseturs á Hornafirði 7. fundur 27. maí 2003.

Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 51. fundur 26. maí 2003.

Reynir spurðist fyrir um fyrirhugaða dýpkun á Grynnslunum. Kristín ítrekaði þörf á úttekt á húsnæði í eigu sveitarfélagsins og að hugað verði að þvi hvort hægt sé að hagræða í þeim málum. Halldóra ræddi um húseignir sveitarfélagsins og möguleika á hagræðingu, jafnvel með sölu eigna. Bæjarstjóri sagði haft sem myndast í innsiglingaleið á Grynnslunum nokkru austan við Hvanney vera helsta farartálmann, einkum fyrir stærri skip á leið til Hafnar. Unnið er að útboði á gerð tilrauna-innsiglingarrennu.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarstjórn Hornafjarðar 63. fundur mánudaginn 12. maí 2003 áður samþykkt.

2. Ársreikningar 2002 - síðari umræða

Bæjarstjóri fór yfir þær breytingar sem gerðar hafa verið á ársreikningi sveitarsjóðs frá fyrri umræðu en þær eru að sorphreinsigjöld kr. 16.360.000 og framlag vegna dagvistunar fatlaðra kr. 4.865.000 færist úr skatttekjum og inn á viðkomandi málaflokk. Niðurstöðutölur reikninganna breytast þó ekki. Leiðréttingar þessar eru til komnar vegna mismunandi túlkunar á nýrri framsetningu ársreikninga sveitarfélaga.

Kristín ræddi ársreikninginn og þá erfiðu stöðu sem hann sýni að sveitarfélagið er í. Hún telur að áætlanir sveitarfélagsins þurfi að vera mun nákvæmari og að gera verði kröfu til þess að þær standist betur. Hún benti þó á að oft eru það utanaðkomandi aðstæður sem valda óhjákvæmilegri framúrkeyrslu s.s ný lög og reglugerðir sem auka útgjöld sveitarfélagsins. Halldóra ræddi samkomulag ríkis og sveitarfélaga um að kostnaðarauki við ný lög og reglugerðir verði metinn og honum mætt. Bæjarstjóri sagðist ekki geta tekið undir að fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins hafi ekki verið nægilega nákvæmar, þvert á móti hafi þær staðist í megindráttum.



Ársreikningar sveitarfélagsins Hornafjarðar og stofnana þess fyrir árið 2002 voru síðan bornir upp til afgreiðslu. Bæjarstjórn samþykkti samhljóða reikningana.



3. Kosningar

Forseti bar upp eftirfarandi tillögu um kjör í nefndir og ráð í bæjarstjórn til eins árs:

Bæjarstjórn :

Forseti bæjarstjórnar : Elín Magnúsdóttir

Varaforseti : Halldóra B. Jónsdóttir

2. varaforseti : Reynir Arnarson



Bæjarráð : Til vara

Halldóra B. Jónsdóttir Einar Karlsson

Elín Magnúsdóttir Ólafur Sigurðsson

Reynir Arnarson Friðrik Þór Ingvaldsson



Skrifarar bæjarstjórnar Til vara

Björn E. Traustason. Kristín G. Gestsdóttir

Ólafur Sigurðsson Reynir Arnarson



Fulltrúar á Aðalfundur SSA

Aðalmenn Til vara

Halldóra B. Jónsdóttir Björk Pálsdóttir

Björn E. Traustason Vignir Júlíusson

Ármann K. Guðmundsson Einar Karlsson

Þóra V. Jónsdóttir Elín Magnúsdóttir

Reynir Arnarson Ólafur Sigurðsson

Friðrik Þ. Ingvaldsson Margrét Ingólfsdóttir

Kristín G. Gestsdóttir Eyjólfur Guðmundsson

Albert Eymundsson Inga Jóna Halldórsdóttir



Tillagan samþykkt samhljóða.



4. Fyrirspurnir

Engar.


Fundi slitið kl.17:55


Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica