Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 110
110. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 14. desember 2006, kl. 16.00 í Ekru.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson forseti bæjarstjórnar, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir, Lilja Hrund Harðardóttir, Guðrún Ingimundardóttir, Halldóra Bergljót Jónsdóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Þá bar undinn fundinn að 7. lið á dagskránni verði frestað. Samþykkt samhljóða.
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar 355. fundur 7. nóvember 2006.
Hjalti ræddi lénið hornafjordur.is. Sagði hann í því sambandi að fara þurfi yfir innkaup á vöru og þjónustu fyrir sveitarfélagið og sagði nauðsynlegt að setja reglur um innkaup. Sagði hann þá vinnu þegar vera hafna.
Reynir ræddi nauðsyn þessa að fækka einbreiðum brúm. Tjáði hann að á eftir brúnni yfir Staðará, sem nú er verið að tvöfalda að breidd, yrði farið í brúna yfir Smyrlabjargará.
Árni ræddi lénið hornafjordur.is sem hann sagði vera eign sveitarfélagsins en vefurinn sem er vistaður á léninu sé í eigu Hátíðni. Ræddi hann og kæru til samkeppnisyfirvalda vegna þessa léns sem hann taldi mikilvægt að fá niðurstöðu í.
Halldóra Bergljót sagðist taka undir það að innkaup eigi að vera gegnsæ sem þau hafi verið. Lagði hún áherslu á að gæði þjónustunnar skipti miklu máli þegar kæmi að útboði. Þá taldi hún samninginn um lénið hafa verið góðan fyrir sveitarfélagið. Einnig sagði hún endurskoðun á reikningum sveitarfélagsins ekki hafa verið boðna út. Það mætti einnig skoða. Þá ræddi Halldóra framtíðarlegu þjóðvegar 1 í Öræfunum sem hún sagði mikilvægt að koma inn á aðalskipulag.
Hjalti fór yfir innkaupin og tók undir að fleira þurfi að leggja til grundvallar en krónutölu, svo sem gæði þjónustunnar. Einnig ræddi hann aðalskipulag og legu þjóðvegarins víða í sveitarfélaginu.
Fundargerð samþykkt samhljóða
Bæjarráð Hornafjarðar 356. fundur 14. nóvember 2006
- Byggingar- og skipulagsnefnd 71. fundur 6. nóvember 2006.
- Fundargerð aðalfundar Menningarráðs Austurlands 26. október 2006
Halldóra Bergljót ræddi fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar, framtíðarlóð fyrir Pylsubarinn. Vildi hún fá fréttir af stöðu málsins. Einnig ræddi hún nauðsyn þess að fjölga íbúðarlóðum í sveitarfélaginu og auka þannig framboð og fjölbreytni. Óskaði hún eftir upplýsingum um það mál. Þá ræddi hún stöðuna í leit að heitu vatni, bæði á Hala í Suðursveit og í Hoffelli.
Hjalti sagði frá stöðu mála gagnvart Pylsubarnum. Sagði hann að unnið væri að gerð 5 ára lóðarleigusamning með sömu staðsetningu og fyrirtækið er á við Víkurbraut. Þá ræddi hann lóðarmálin og sagðist fullviss um að leysa megi þau mál og sagði málið í ágætis farvegi hjá byggingar- og skipulagsnefnd. Hann greindi frá stöðu mála varðandi jarðhitaleitina á Hala og í Hoffelli. Sagði hann m.a. vera unnið að samningum milli landeigenda í Hoffelli og RARIK.
Árni sagðist taka undir með Birni Inga þar sem hann ræðir hraðakstur í þéttbýli á fundi byggingar- og skipulagsnefndar. Þá ræddi hann skoðunarferð nefndarinnar á síðasta fundi hennar þar sem farið var yfir líkleg svæði fyrir íbúðarhúsalóðir. Sagði hann nefndina hafa verið sammála um að mest eftirspurn væri eftir einbýlishúsalóðir og við því yrði brugðist. Einnig ræddi Árni bókun sína þar sem hann sagði sig úr stýrihópi vegna skólastefnu og hugsanlegt vanhæfi til að taka þátt í vinnu hópsins.
Halldóra Bergljót ræddi lóðamálin og sagðist vilja benda á að ekki væri vænlegt að fara út í það að hola niður einu og einu húsi hér og þar. Vænlegra væri að breyta skipulagi á Leirusvæðinu, fjölga þar einbýlishúsa- og/eða parhúsalóðum. Það vantaði að sjá framtíðarskipulag í þessu máli. Einnig mætti íhuga að taka til skipulags nýtt byggingarsvæði. Þá varaði hún við að farið yrði út í byggingar íbúðarhúsa á Leiðarhöfða. Einnig ræddi hún um bryggju á Austurfjörum sem taldi eiga að vera styrkhæfa og sagðist taka heilshugar undir umsókn þess aðila sem byggði umrædda bryggju. Þá sagðist Halldóra ekki geta orða bundist yfir upplestri Árna á bókun sinni vegna stýrihópsins. Þá ræddi hún fyrri ábendingar sínar um að Árni viki úr stýrihópnum vegna vanhæfis. Þá ræddi hún að formaður stýrihópsins væri farinn að vinna í leikskóla og að hún væri því vanhæf til að sitja í stýrihópnum þar sem honum hafi verið ætlað koma með tillögur um stjórnun allra skólastiganna.
Reynir sagði að engin ákvörðun hefði verið tekin um byggingarsvæði. Þá ræddi hann afrit af bréfi til samgönguráðherra sem borist hafi til hafnarstjórnar vegna bryggju á Austurfjörum.
Reynir sagði að ekki þurfi að skipta út formanni stýrihópsins þar sem ekki ætti að taka þar ákvörðun um stjórnunarfyrirkomulag leikskólanna.
Hjalti sagði að allt þurfi að vera uppi á borðinu í lóðamálum og vinna þurfi þau í samstarfi við íbúana. Allt verði opið og skoðað frá grunni. Þá greindi hann frá því að stutt hafi verið við kröfu Ómars Antonssonar vegna bryggju á Austurfjörum. Hjalti sagðist sjá eftir Árna úr stýrihópnum vegna þekkingar hans á skólamálum. Einnig ræddi hann almennt um hæfisumræðuna og sagðist aldrei hafa orðið vitni að því að kjörnir fulltrúar hafi verið með annarleg sjónarmið frá því að hann kom til vinnu hjá sveitarfélaginu.
Árni ræddi lóðamálin, sagði byggingar- og skipulagsnefndina vilja hafa valkosti til að skoða en ekki væri komið að ákvörðun. Ekki yrði farið gegn íbúum og vilja þeirra. Þá ræddi hann hæfi sitt til setu í stýrihóp um skólastefnu. Sagðist hann hafa tekið ákvörðun um að víkja úr stýrihópnum vegna óumflýjanlegra tengsla við einn skólastjóranna.
Halldóra sagðist, í ljósi orða bæjarstjóra, ekki hafa farið í hringi varðandi byggingarlóðir. Lagði áherslu á að bregðast þurfi við eftirspurn. Þá sagðist hún ekki vera sammála því að formaður stýrihópsins væri ekki vanhæfur.
Hjalti sagðist biðjast afsökunar á þeim orðum að Halldóra hafi farið í hringi í lóðamálum og útskýrði hvað hann hafi átti við með orðum sínum.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Hornafjarðar 357. fundur 21. nóvember 2006
- Félagsmálaráð Hornafjarðar 154. fundur 14. nóvember 2006.
- Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 75. fundur 14. nóvember 2006.
- Gjafa og minningarsjóður Skjólgarðs 32. fundur 14. nóvember 2006
- Skólanefnd Hornafjarðar 86. fundur 8. nóvember 2006.
- Stýrihópur við gerð skólastefnu, 3. fundur 2. október og 4. fundur 19. október 2006.
Guðrún ræddi beiðni um styrk, sbr. fundargerð gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs. Þá lagði hún til að nafni sjóðsins verði ekki breytt og einnig að hjúkrunarheimilið fái nafnið Skjólgarður.
Hjalti tók undir orð Guðrúnar um nýtt nafn á hjúkrunardeildina. Hann ræddi stöðu samninga við ríkið vegna þjónustusamningsins og einkum þær leiðréttingar sem þurfi að nást í þeim samningum, svo sem vegna launa á heilsugæslu, fjárveitingar vegna sérfræðiþjónustu og því að fjölgun verði á sjúkrarýmum. Einnig þurfi að þrýsta á um stækkun hjúkrunarheimilisins. Sagði hann samninganefnd sveitarfélagsins telja stöðu okkar nokkuð sterka.
Árni ræddi fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs þar sem farið var yfir markmið sveitarfélagsins í samningagerðinni. Um þetta hafi verið full samstaða í nefndinni. Þá sagði hann reiknilíkan ráðuneytisins ekki vera okkur hliðhollt, margt í því taki ekki mið af sérstöðu okkar sveitarfélags. Þá greindi hann frá ýmsu í stefnu sveitarfélagsins, sem áherslu á heimahjúkrun. Einnig ræddi hann fundargerð gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs og styrkveitingu úr sjóðnum sem fremur ættu að falla undir stofnbúnað.
Halldóra ræddi fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs. Sagðist ekki kannast við annað en að hjúkrunardeildin gangi undir nafninu Skjólgarður. Hvað varðar stofnunina sjálfa þá gæfi það henni allt annan status að bera nafnið Heilbrigðisstofnun Suðausturlands, það væri mikilvægt. Þá tók undir það að ekki ætti að nota fé gjafa- og minningarsjóðsins til stofnbúnaðarkaupa. Þá ræddi hún þau gögn sem samninganefndin væri með og taldi hún þau góð. Taldi að framkvæmdastjóri heilbrigðisstofnunarinnar eigi drjúgan hluta af þeim samanburði sem þar er gerður. Tók hún undir að laga þurfi tekjugrunninn og stækkun hjúkrunarálmuna. Þá ræddi hún hvað áunnist hafi á síðustu fjórum árum. Sagði hún okkur hafa færst aftar þrátt fyrir orð framsóknarmanna í upphafi síðasta kjörtímabils um að nást muni fram stækkun á hjúkrunarheimilinu. Halldóra ræddi málefni aldurshópsins 16 ? 25 ára. Um 300 manns væru á þessum aldri og 150 ? 200 væru hér að staðaldri. Óskaði hún upplýsinga um þau mál. Þá ræddi hún fundargerðir stýrihópsins. Sagði menn vera sammála um skólastefnuna sjálfa en eftir væri að ljúka stjórnun grunnskóla og leikskóla. Þá ræddi Halldóra mönnun í leikskólum miðað við fjölda barna. Taldi hún vera um 20% yfirmönnun á öðrum leikskólanum en um eða yfir 40% á hinum. Með einum leikskólastjóra væri hægt að hafa betri stjórn á fjármálum leikskólanna. Þá ræddi hún stjórnun grunnskólanna og taldi affarasælast til framtíðar væri að vera með einn skólastjóra. Þá lagði hún áherslu á samstöðu í samningum við ríkið um heilbrigðisstofnun.
Hjalti greindi frá umræðum um málefni ungmenna 16+. Hjalti sagði forstöðumenn almennt séð stuðla að góðum rekstri og ættu þeir hrós skilið. Þá greindi Hjalti frá mönnun leikskólanna og vitnaði annars vegar til samantektar leikskólastjóranna um mönnun og barngildi í desember 2006 og hins vegar til skýrslu framkvæmdastjóra sviðsins, úttekt á leikskólastarfi 2003. Skýrði hann frá því hvernig afleysing væri nýtt, ræddi sérkennslu leikskólabarna og mikilvægi hennar. Sagði hann mikilvægt að halda góðu þjónustustigi á þessu skólastigi sem öðrum. Þá ræddi hann stjórnfyrirkomulag leikskólanna sem búið væri að taka ákvörðun um og sagði að á næstu dögum þurfi að taka ákvörðun um grunnskólana.
Guðrún lagði áherslu á að nafnið Skjólgarður yrði fært á hjúkrunarheimilið en ekki á alla heilbrigðisstofnunina.
Halldóra sagðist sammála Guðrúnu um þetta mál. Þetta væri fallegt nafn sem lýsti vel starfseminni. Þá ræddi hún leikskólamálin og lagði áherslu á góða nýtingu fjármagns og ekki ætti að vera með yfirmönnun þar. Sagðist hún stuðningsmaður þessa að vera með öfluga sérkennslu þess í leik- og grunnskóla. Fyrirkomulag leikskólanna ynni gegn því að markmiðum um góða nýtingu fjármagns yrði náð.
Hjalti sagðist sammála því að ráðdeildar ætti að gæta. Lagði hann til að skólanefnd færi yfir þetta mál og kæmi með tillögur þar að lútandi. Sagði hann mikilvægt að fara yfir þetta mál á yfirvegaðan hátt. Lagði og áherslu á að sinna þurfi vel þeim aldurshópi sem sækir leikskólana.
Reynir ræddi stjórnskipulag grunnskólanna. Sagði hann m.a. að rætt væri að vera með eina skólastjórn með fleiri en einum stjórnanda. Einnig ræddi hann leikskólana og sagði það vera hlutverk starfsmanna að fara vel yfir allan rekstur. Allur rekstur eigi að vera í stöðugri skoðun og undir eftirliti.
Elín sagði það takmarkað sem hún mætti tjá sig um skólamál. Sagði hún það farsælast að stýrihópurinn klári sína vinnu áður en farið verði að ræða þessi mál í bæjarstjórn.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Hornafjarðar 358. fundur 28. nóvember 2006
- Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 28. fundur 21. nóvember 2006.
- Nefnd um íþróttamannvirki, 24. fundur 1. október 2006.
Reynir ræddi heimsókn rektors Háskóla Íslands. Óskaði hann eftir upplýsingum um þessa heimsókn og hvað þá hafi komið fram.
Hjalti greindi frá viðræðum við rektor og aðra starfsmenn HÍ. Sagði hann rektor hafa áhuga á að byggja hér upp öflug starf, m.a. í samstarfi við aðra aðila. Hjalti sagði það áfanga að vera komin með háskólasetrið inn á föst fjárlög þó að upphæðin 6 milljónir á fjárlögum væri of lág. Þá ræddi hann stjórn setursins og tillögur þar að lútandi. Einnig ræddi hann gæðastýringu í landbúnaði og samstarf við Landgræðsluna um það mál. Sagði hann stjórnfyrirkomulagi væri þar ábótavant og það þyrfti að lagfæra, ekki gengi að Landgræðslan væri þar báðum megin við borðið. Gerð hafi verið athugasemd við framkvæmd Landgræðslunnar og eftirlit. Sveitarfélagið þurfi að beita sér í þessu máli enda orðinn trúnaðarbrestur á milli aðila.
Björn Ingi ræddi fundargerð nefndar um íþróttamannvirki. Lýsti hann furðu og undrun á því að ekkert væri komið fram um kostnaðaráætlun. Einnig ræddi hann staðsetningu startpalla og því að þessi laug væri ekki lögleg keppnislaug samkvæmt upplýsingum á borgarafundi.
Hjalti greindi frá því að startpallar væru færanlegir og settir upp við keppni. Hann sagði laugina vera löglega til allrar keppni með 4 tveggja metra brautum nema ákveðnum alþjóðlegum keppnum. Tók hann undir með Birni Inga að óþolandi væri þessi dráttur sem hafi orðið á að hönnuðir skiluðu kostnaðaráætlun o.fl.
Halldóra sagði að vandlega þyrfti að fara yfir þau mál sem snúa að því hvort laugin væri lögleg til allrar keppni. Einnig ræddi hún þann drátt sem orðið hefur á þessari framkvæmd, sig púðans og hugsanlega að fara megi aðra leið við grundun mannvirkisins en upphaflega var áætlað. Einnig ræddi hún startpalla, staðsetningu þeirra og fyrirkomulag yfirbreiðslu. Þá ræddi hún heimsókn háskólarektors og sagði þá heimsókn ánægjulega. Þá væri ánægjulegt og ákv. viðurkenning að stofnunin væri komin á föst fjárlög. Þá sagðist hún sakna þess að ekki hafi fleiri fengið að hitta háskólarektor. Þá þakkaði hún yfirferð um fjallskil og tengd mál. Hafa þurfi af þessu áhyggjur og ná þurfi sátt um það. Halldóra vitnaði til tveggja frétta í Morgunblaðinu sem ættu að fá okkur til að hugsa. Annað var frétt frá Djúpavogi þar sem ekkert íbúðarhúsnæði væri laust til leigu. Hitt var frétt um að heimamenn á Austurlandi vildu að þjónusta við Fjarðaál fari fram í fjórðungnum. Sagði hún þetta dæmi um að menn vildu hafa áhrif á hvar þjónusta væri keypt.
Reynir ræddi sundlaugarmál. Sagðist hafa leitað sér upplýsinga um það mál. Sagði hann að huga þurfi að dýpt eigi síður en breidd þegar ná þyrfti lögmæti til keppni á heimsmælikvarða.
Björn Ingi sagðist ekki sammála um að startpallar séu smáatriði. Þá sagði hann það vekja sig til umhugsunar að enginn í íþróttanefndinni hafi geta svarað til um lögmæti laugarinnar sem keppnislaugar á borgarafundi.
Þá ræddi hann væntanlega könnun á vegum Capacent. Hvetja þurfi til þátttöku í henni.
Lilja Hrund greindi frá fundi með formanni UMFÍ um skólabúðir og möguleika á að útfæra þá hugmynd hér. Þar væri m.a. hugsað út fyrir landsteinana eftir þátttakendum. Einnig ræddi hún atvinnulífssýningu í tengslum við ungmennalandsmót, ferðaþjónustusýningu í Smáralind, málþing í apríl o.fl. atriði sem snúa að atvinnumálum. Sagðist hún vera bjartsýn með það góða starf sem fram færi í nefndinni.
Hjalti ræddi könnun Capacent og hvað hún innihéldi. Lagði hann áherslu á að hún gæfi samanburð við önnur sveitarfélög. Fyrsta könnun færi fram í febrúar á næsta ári.
Halldóra ræddi vanþekkingu íþróttanefndarinnar á þeim atriðum sem snúa að keppnislaugum. Einnig ræddi hún atvinnumálin og óskaði upplýsinga um fjármuni til atvinnulífssýningar á næsta ári. Þá ræddi hún möguleika á þátttöku í sjávarútvegssýningu í Kópavogi sem haldinn er þriðja hvert ár sem hún sagði geta verið gríðarlega kynningu fyrir sveitarfélagið.
Hjalti tók undir orð Halldóru um sjávarútvegssýninguna. Einnig ræddi hann löndun aðkomubáta á staðnum sem hann sagði jákvæða þróun og taldi þar góða möguleika. Þá fjallaði hann um mögulega þátttöku í öðrum sýningum.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Hornafjarðar 359. fundur 5. desember2006.
- Skólanefnd Hornafjarðar 87. fundur 29. nóvember 2006.
- Æskulýðs og tómstundaráð Hornafjarðar 84. fundur 27. nóvember 2006.
- Stýrihópur við gerð skólastefnu 5. fundur 13. nóvember 2006.
- Heilbrigðisnefnd Austurlands 65. fundur 22. nóvember 2006.
Halldóra ræddi fundargerð stýrihóps um skólastefnu. Sagðist hún fagna þeim umskiptum að ræða megi málefni leikskólans. Sagði það hafa verið leitt að þau mál hafi ekki mátt ræða á fundi með foreldrum sem haldinn var í Nýheimum.
Björn Ingi ræddi bókun um jarðgöng undir Lónsheiði sem samþykkt var í bæjarráði á 359. fundi. Taldi hann brýnt að ræða þetta mál hér á fundinum. Einnig ræddi hann verslunarmál og taldi þar mikið alvörumál á ferðinni í þeirri óvissu sem um þau ríkir.
Hjalti sagði að stjórnfyrirkomulag leikskólanna væri útrætt mál í bili. Annað um málefni leikskólanna væri að sjálfsögðu til umræðu. Þá greindi hann frá viðræðum við aðila sem ábyrgð bera á smávöruverslun í sveitarfélaginu. Einnig ræddi hann hið háa verð á matvöru sem hér er. Hjalti ræddi göng undir Lónsheiði og veginn um skriðurnar. Þetta væru mikilvæg mál sem leggja þyrfti áherslu á.
Reynir sagði umræðu um göng undir Lónsheiði vera mjög mikilvæga og að sem flestir þurfi að koma að henni. Þá sagði hann það ekki bannað að ræða leikskólamál fremur en önnur málefni skólanna. Reynir las hann eftirfarandi bókun frá meirihluta bæjarstjórnar:
Á 101. fundi bæjarstjórnar Hornafjarðar þann 30. maí 2006 var tekin ákvörðun um stjórnskipulag leikskóla Hornafjarðar. Þar var samþykkt með fimm atkvæðum gegn tveimur að leikskólarnir Krakkakot og Lönguhólar verði reknir sem tvær sjálfstæðar skólastofnanir fyrir eins til sex ára börn. Meirihluti núverandi bæjarstjórnar hefur ekki séð ástæðu til að taka það mál aftur á dagskrá. Bæjarráð leggur mikla áherslu á að stýrihópurinn einbeiti sér að tillögugerð varðandi stjórnskipulag grunnskólanna og skili tillögum sem fyrst.
Árni Rúnar Þorvaldsson
Guðrún Ingimundardóttir
Reynir Arnarson
Elín Magnúsdóttir
Lilja Hrund Harðardóttir
Árni lagði til að þessi bókun verði rædd hér sérstaklega og um hana megi taka tvisvar til máls. Var ekki gerð við það athugasemd.
Halldóra ræddi aðdraganda að þessari samþykkt í bæjarstjórn þann 30. maí sl. Sagði hún það hafa verið mjög undarlegan gjörning og siðlaust hvernig að var staðið en kannski löglegt. Menn hafi nýtt sér þá stöðu sem uppi var eftir kosningar og prófkjör. Þá sagði hún það siðlaust að vinna svona þvert ofan í vinnu stýrihópsins sem hafði þetta mál til meðferðar. Sagði hún hennar flokk ekki hafa viljað gera þetta mál að kosningamáli. Þá ræddi hún umræðu á kosningafundi um þetta mál þar sem fram hafi komið að þetta þyrfti að ræða.
Reynir sagði að þegar þessi atkvæðagreiðsla fór fram hafi enginn verið þvingaður til að greiða atkvæði með þessari tillögu. Þessi atkvæðagreiðsla hafi bæði verið lögleg og ekki siðlaus. Sagði hann alls staðar hafa verið meirihluta með þessari breytingu, m.a. í fyrri stýrihópi þar sem 4 af 5 fulltrúum hafi verið henni sammála.
Björn Ingi taldi hans framboð hafa verið það eina sem fór í heimsókn í leikskólana fyrir kosningar í vor. Þar hafi honum skilist það hafi verið aðskilin mál, stjórnunarþáttinn annars vegar og aldursdreifingu á leikskólum hins vegar. Þá taldi hann ekki hafa verið meirihluta meðal foreldra með þessum breytingu.
Árni fagnaði góðri og mikilli umræðu um stjórn leikskólanna. Vitnaði hann til orða sinna á framboðsfundi og sagði að þá hafi hann ekki verið búinn að gera upp hug sinn um stjórnfyrirkomulag leikskólanna en tók fram að hann hafi ekki útilokað þá leið sem varð ofan á frekar en aðrar. Nú væri ákvörðun komin og ekki ástæða til að taka hana upp enda komin festa í starf leikskólanna. Gefa þurfi skólunum tækifæri til að vinna eftir þessari leið.
Lilja sagðist vilja taka fram að hér störfuðu frábærir leikskólastjórar og það þekkti hún af eigin reynslu. Lagði hún áherslu á val og að börn geti verið á sama leikskóla frá 1 ? 6 ára en þurfa ekki að skipta um skóla. Einnig ræddi hún þann mun sem er á leikskólunum sem hún taldi gott mál.
Halldóra ræddi samráð við foreldra sem hún sagði ekki hafa verið í sambandi við leikskólana. Taldi hún hafa verið upplausn í kjölfar hennar og litlar upplýsingar til foreldra. Ekki hafi legið fyrir hver munur yrði á leikskólunum. Sagði hún þetta ekki í síðasta skipti sem þessi mál verða rædd. Þá sagði hún þetta ekki snúast um persónur heldur stjórnfyrirkomulag. Ítrekaði hún að þetta hafi verið siðlaus afgreiðsla sl. vor.
Björn Ingi ræddi festu í leikskólastarfi. Hann lagði áherslu á að gera eigi skynsamlegar breytingar en leikskólastjórar eigi að sjá um faglegt starf ekki hann.
Árni benti á að fundargerð stýrihópsins hafi verið samþykkt af honum athugasemdalaust í bæjarráði en þá hafi Björn Ingi haft meiri áhuga á reglum um leikskóla og rætt þær. Þá taldi hann eðlilegt að fulltrúar sjálfstæðismanna ættu að leita til síns fulltrúa í skólanefnd.
Elín ræddi vinnu stýrihópsins um stjórn grunnskólans og lagði áherslu á að hann fái að klára þá umræðu áður en hún kemur hér til umræðu. Elín taldi mikilvægt að það sem fulltrúar kennara ræddu um á fundi stýrihóps kæmi ekki fram á fundi bæjarstjórnar og efaðist um að þeir myndu kæra sig um það.
Björn Ingi sagðist áskilja sér rétt til að tala um það sem honum sýnist hverju sinni. Hér væri komin upp bókun sem væri gegn hans sannfæringu og það þurfi hann að ræða.
Reynir sagði Halldóru hafa hitt naglann á höfuðið þegar hún ræddi upplausn en nú væri komin festa. Festan er grunnurinn fyrir því að menn vilja ekki taka þetta mál upp aftur. þó eflaust verði það gert í einhverri framtíð. Lagði hann áherslu á að þessari umræðu þurfi að ljúka og að leikskólinn fái starfsfrið.
Halldóra ítrekaði þessa upplausn sem var fyrst eftir ákvörðun í vor en síðan hafi leikskólarnir reynt að skilgreina mismun skólanna.
Lilja sagði að hennar framboð hafi heimsótt leikskólana, sjálf hafi hún rætt við ótal foreldra. Þá benti hún á þann mismun sem væri á starfi leikskólana.
Bókun meirihlutans borin undir atkvæði.
Halldóra gerði athugasemd við að bókunin sé borin undir atkvæði og var í því framhaldi ekki greitt atkvæði um bókunina.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Hornafjarðar 360. fundur 12. desember 2006.
- Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 86. fundur 5. desember 2006
- Stjórn Sambands ísl. Sveitarfélaga 738. fundur 20. október 2006.
Björn Ingi Jónsson spyr um bryggjurnar í Óslandi og á Melatanga. Reynir Arnarsson sagði að bryggjurnar væru í lélegu ástandi. Halldóra B. Jónsdóttir bendir á hægt sé að gera ýmislegt til að bæta bryggjurnar með litlum tilkostnaði og bendir á notað efni frá Vegagerðin. Óskaði hún eftir upplýsingum um flugmál. Einnig ræddi hún um verslunarmál og ítrekar við bæjarstjóra að fá svör sem fyrst varðandi þau mál. Árni Rúnar Þorvaldsson ræddi um verslunarmál og las upp bókun bæjarráðs frá 11. desember sl. einnig las hann upp bókun bæjarstjórnar frá 7. nóvember sl. um vegstæði við Hornafjarðafljót Björn Ingi er orðlaus og mælir með að hætt verði persónulegum skotum og að bæjarstórn verði málefnaleg í tali.
Hjalti talaði um hæfi og vanhæfi, flugsamgöngur og verslunarrekstur
Árni Rúnar Þorvaldsson tekur undir að bæjarstjórn verði að vera málefnaleg. Halldóra B. Jónsdóttir ræddi um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar. Árni Rúnar Þorvaldsson þakkaði fyrir ábendinguna.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
Bæjarstjórn Hornafjarðar, 109. fundur 7. nóvember 2006, fundargerð áður samþykkt.
2. Fjárhagsáætlun 2007 ? síðari umræða
Bæjarstjóri fylgdi áætluninni úr hlaði og rakti helstu niðurstöðutölur:
A-hluti:
Skatttekjur bæjarsjóðs eru áætlaðar 902,1 m.kr. og aðrar tekjur um 166.7 Rekstur A-sjóðs er áætlaður 992 m.kr. Fjármagnsliðir eru áætlaðir 162,3 m.kr. Mismunur tekna og gjalda A-sjóðs sveitarfélagsins er því afgangur um 14,5 m.kr. Handbært fé frá rekstri er um 115,2 m.kr. Fjárfestingar eru 270 m.kr. Afborganir langtímalána 97,7 m.kr. og tekin verða ný langtímalán 200 m.kr. og handbært fé í árslok verða 47,5,5 m.kr. Með þessari áætlun hækka langtímaskuldir sveitarsjóðs um rúmar 100 m.kr.
B-hluti:
Hornafjarðarhöfn: Gert er ráð fyrir að tekjur verði um 77,8 m.kr. en rekstrargjöld ásamt fjármagnskostnaði verði 78,4 m.kr. Gjöld umfram tekjur verði því um 600 þ.kr. Framkvæmdir eru áætlaðar 40 m.kr. Afborganir langtímalána eru áætlaðar 8,0 m.kr. og tekið verði langtímalán að upphæð 36 m.kr.
Veitur (vatnsveita, fráveita): Gert er ráð fyrir að tekjur verði 53,5 m.kr. en rekstrargjöld ásamt fjármagnskostnaði og afskriftum verði 43,4 m.kr. Tekjur umfram gjöld verði 21,4 m.kr. Gert er ráð fyrir um 8 m.kr. til framkvæmda
Leiguíbúðir: Gert er ráð fyrir að tekjur verði 26,9 m.kr. en rekstrargjöld ásamt fjármagnskostnaði verði 34,6 m.kr. Gjöld umfram tekjur verði því um 7,4 m.kr. Afborganir langtímalána 8,7 m.kr.
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands: Gert er ráð fyrir að tekjur verði 358,8 m.kr. og gjöld verði 373,3 m.kr. Rekstrarhalli er því um 14,5 m.kr.
Heildarumsvif sveitarfélagsins og tengdra fyrirtækja er um 1,6 milljarður kr.
Lagði bæjarstjóri til að eftirfarandi bókun fylgdi fjárhagsáætluninni:
Fjárveitingar til Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands eins og þær eru kynntar í fjárlögum ríkisins fyrir árið 2007 eru óaðgengilegar að hálfu Bæjastjórnar Hornafjarðar. Mikilvægt er að fjárveitingar til heilsugæslu og heimahjúkrunar aukist umtalsvert þannig að hægt sé að halda uppi eðlilegu þjónustustigi í heilbrigðisþjónustu á svæðinu. Minnt er á að langt er í sjúkrahús og næstu stóra þéttbýliskjarna og þess vegna afar brýnt að til staðar sé öflug heilsugæslu til að bregðast við slysum og bráðasjúkdómum.
Bæjarstjóri lagði til að bæjarstjórn samþykkti framlagða tillögu að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og tengdra fyrirtækja fyrir árið 2007
Halldóra B. Jónsdóttir tók til máls og sagði að niðurstöður um framkvæmdir kæmu seint fram. Ræddi hún um reksturinn og gerir ekki athugasemdir við hann, benti hún á kostnað vegna fræðslumála, ræddi hún ennfremur um þjónustutekjur s.s. sorpgjöld. Taldi hún að þjónustutekjur ættu að standa undir kostnaði. Ræddi hún um þróun langtímalána og framkvæmir á næsta ári.
Lagði hún fram eftirfarandi bókun:
Við bæjarfulltrúar Sjálfstæðismanna lýsum yfir vonbrigðum okkar með að í tillögum meirihlutans um framkvæmdir á árinu 2007 er ekki gert ráð fyrir að ný sundlaug verði tekin í notkun eins og áætlað hafði verið við gerð síðustu fjárhagsáætlunar. Ljóst er að ekki hefur verið nægur vilji í meirihlutanum til að hraða framkvæmdum svo nýta mætti mannvirkið á sumri komanda þegar halda á hér Landsmót UMFÍ. Því gerum við ekki tillögu til að auka fjármuni til framkvæmda við sundlaugarbyggingu nú. Þrátt fyrir að sundlaug á ekki að byggjast eingöngu fyrir eitt mót er ljóst að gestir verða færri en ella þegar aðstaða verður ekki eins góð og vænst var.
Mikilvægt er að Bæjarstjórn Hornafjarðar ýti undir framkvæmdir og byggingar. Einn liður í því er að hafa byggingarsvæði sem bjóðast íbúum sveitafélagsins sem fjölbreyttust. Sú vinna sem er fólgin í undirbúningi að byggingarsvæðum og framkvæmdum skapar jákvætt hugarfar sveitafélaginu okkar.
Við hörmum að vinnu við skólastefnu er ekki lokið. Munum við síðar gera tillögu um sparnað í rekstri skólanna, ef ekki næst sátt í stýrihóp.
Við undirrituð gerum eftirfarandi breytingartillögur við fjárhagsáætlun 2007:
Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir að leggja allt að 60 milljónir til uppbyggingar á frjálsíþróttavelli í stað 30 milljóna króna eins og nú er í áætlun. Að því tilskyldu að ef meiri styrkur fæst til framkvæmdanna þá lækki hlutur sveitarfélagsins. Þessir fjármunir verði notaðir til að leggja gervigras á knattspyrnuvöllinn, því ljóst er að þeir munu skila sér til baka í lægri rekstrarkostnaði svæðisins og nýting mun margfaldast.
Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir að veita 25 milljónum króna í stað 10 milljóna til framkvæmda við byggingarlóðir í ljósi þess að vaxandi þörf er á meiri fjölbreytni í framboði á byggingarlóðum, einkum fyrir stærri einbýlishús. Þeir fjármunir sem fara til undirbúnings á nýjum byggingarsvæðum munu skila sér til baka.
Halldóra B. Jónsdóttir
Björn I. Jónsson
Árni Rúnar Þorvaldsson tók til máls og þakkaði starfsfólki fyrir vinnu við fjárhagsáætlun og sagði að framlög tillaga að fjárhagsáætlun væri metnaðarfull,ræddi hann einnig um áframhaldandi vinnu íþróttamannvirki s.s. yfirbyggðan hálfan gervigrasvöll. Hjalti Þór Vignisson upplýsti að í tengslum við þessa fjárhagsáætlun hafi einnig verið gerð drög að þriggja ára áætlun.
Reynir Arnarson tók undir orð Árna varðandi fjárhagsáætlunina varðandi að þessi áætlun væri metnaðarfull og aldrei hafi verið vafi á að þessi bæjarstjóri ætlar að byggja nýja sundlaug einnig sagði hann að óskastaða í íþróttamálum væri að vera með hálfan gervigrasvöll og best væri að byggja yfir hann og leggur hann til að fjárhagsáætlun 2007 verði samþykkt.
Björn I. Jónsson sagði að þessar hugmyndir væru metnaðarfullar en efaðist um að þær væru raunhæfar. Þá ræddi hann um gervigras.
Hjalti sagði að hugmynd um litla knattspyrnuhús væri á frumstigi og leggur til að farið verði í þá vinnu að skoða það.
Halldóra B. Jónsdóttir veit ekki hvert menn eru komnir núna, ekki hægt að láta meira í lóðir en byggja knattspyrnuhöll. Ræddi hún um annan og þriðja áfanga sundlaugar á að setja þá afturfyrir. Einnig spurði hún fyrir um hvort stofnbúnaður væri inn í fjárhagsáætlun HSSA.
Forseti bar upp fyrri tillögu sjálfstæðismanna til atkvæða tillagna var felld með fjórum atkvæðum gegn tveim einn sat hjá.
Forseti bar upp seinni tillögu sjálfstæðismanna til atkvæða tillagna var felld með fimm atkvæðum gegn tveimur.
Forseti bar upp eftirfarandi bókun:
Fjárveitingar til Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands eins og þær eru kynntar í fjárlögum ríkisins fyrir árið 2007 eru óaðgengilegar að hálfu Bæjastjórnar Hornafjarðar. Mikilvægt er að fjárveitingar til heilsugæslu og heimahjúkrunar aukist umtalsvert þannig að hægt sé að halda uppi eðlilegu þjónustustigi í heilbrigðisþjónustu á svæðinu. Minnt er á að langt er í sjúkrahús og næstu stóra þéttbýliskjarna og þess vegna afar brýnt að til staðar sé öflug heilsugæslu til að bregðast við slysum og bráðasjúkdómum
Bókunin var samþykkt samhljóða.
Forseti bar upp tillögu að fjárhagsáætlun 2007 ásamt fjárhagsáætlun HSSA og var hún samþykkt með fimm atkvæðum einn sat hjá.
3. Breytingar á tækni- og umhverfissviði
Hjalti ræddi um mannabreytingar sem orðið hafa á tækni og umhverfissviði og greindi frá því að bæjarráð hafi verið sammála um að ráða Hauk Inga Einarsson í starf framkvæmdastjóra sviðsins. Jafnframt greindi Hjalti frá því að bæjarráð hafi ákveðið að ganga til samninga við Verkfræðiþjónustuna ehf. um verkfræðiráðgjöf.
Tillögur að breytingum á tækni- og umhverfissvið samþykkt með 4 greiddum atkvæðum og tveir sitja hjá
4. Skipun nefndar vegna heildarendurskoðunar fjallskila
Björn Ingi óskaði upplýsinga um hvort nefndin tæki á öllum fjallskilum í öllu sveitarfélaginu.
Hjalti greindi frá að svo væri.
Gengið var til atkvæðagreiðslu um erindisbréf nefndarinnar og var það samþykkt samhljóða.
Forseti bar upp tillögu um skipun í nefndina og var hún samþykkt.
Frá Framsóknarflokki: Ásgrímur Ingólfsson sem verður formaður, til vara Lilja Hrund Harðardóttir
Frá Samfylkingu: Eiríkur Sigurðsson sem verður varaformaður, til vara Helga Lucía Bergsdóttir
Frá Sjálfstæðisflokki: Einar Karlsson og Björn Ingi Jónsson til vara
Borið undir atkvæði og samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
5. Skipun nefndar vegna 110 ára afmælis Hafnar og atvinnulífssýningar
Hjalti greindi frá hugmynd um atvinnulífsýningu í tengslum við Ungmennalandsmót UMFÍ og einnig að Höfn verði 110 ára árið 2007. Ákveðið hafi verið að skipa nefnd til að halda utan um þessa viðburði. Nefndinni er til dæmis falið að koma upp dagskrá menningarviðburða, standa fyrir ráðstefnum og sýningum um samfélag og atvinnulíf í sveitarfélaginu á næsta ári.
Erindisbréf nefndarinnar borið undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Forseti bar upp tillögu um skipun í nefndina.
Frá Samfylkingu: Guðrún Ingimundardóttir sem verður formaður, til vara Matthildur Ásmundardóttir
Frá Framsóknarflokki: Lilja Hrund Harðardóttir sem verður varaformaður, til vara Ásgrímur Ingólfsson
Frá Sjálfstæðisflokki: Björk Pálsdóttir og til vara Gauti Árnason
Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
6. Samningur við Ferðamálafélag Austur-Skaftafellssýslu um markaðssetningu og vöruþróun.
Hjalti gerði grein fyrir aðdraganda samningsins og megin inntaki hans. Byggt yrði á klasaaðferðinni í þessari vinnu. Sagði að samningurinn yrði kynntur sérstaklega þegar skrifað hafi verið undir hann. Taldi hann að með þessu samningi væri verið að taka mikilvægt skref í uppbyggingu ferðaþjónustu í sveitarfélaginu.
Reynir sagðist ekki taka þátt í atkvæðagreiðslu og umræðu um málið vegna tengsla við Ferðamálafélag A-Skaft. og vék af fundi.
Björn Ingi fagnaði þessu framtaki og lýsti yfir ánægju sinni með það.
Guðrún tók undir með Birni Inga og fagnaði þessum samningi. Hennar skoðun væri sú að ferðaþjónustan snerti alla aðra starfsemi og allt skipti máli við að styrkja hagkerfi sveitarfélagsins.
Hjalti greindi frá greiðslufyrirkomulagi vegna þessa samnings sem tengist framlögum félags ferðaþjónustunnar.
Halldóra ræddi vaxtarsamning fyrir Austurland sem enn hafi ekki verið samþykktur í bæjarstjórn. Eðlilegra hefði verið að taka hann fyrst til umræðu þar sem þessi samningur tengist honum. Óskaði hún eftir nánari útskýringum á öðrum þáttum sem tengjast vaxtarsamningnum. Þá óskaði hún upplýsinga um aðkomu Frumunnar að þessu verkefni.
Hjalti sagði að með þessum samningi væri lögð áhersla á ferðamennsku á jaðartímum utan hefðbundins ferðatíma. Þá ræddi hann aðkomu Frumunnar sem væri samkomulagsatriði milli hennar og ferðaþjónustuaðila.
Samningurinn borinn undir atkvæði og hann samþykktur með 6 samhljóða atkvæðum, einn greiddi ekki atkvæði.
7. Deiliskipulagstillaga að frístundabyggð í Haukafelli
Frestað til næsta fundar.
8. Kosningar
Tillaga um að í stað Elínar Magnúsdóttur formanns skólanefndar taki sæti Guðrún Jónsdóttir verði aðalmaður og jafnframt verði formaður nefndarinnar.
Samþykkt með 5 atkvæðum og 2 sitja hjá.
9. Fyrirspurnir
Guðrún Ingimundar lagði fram eftirfarandi spurningu:
Hver er staða mála varðandi endurgreiðslu til foreldra í Öræfum vegna aksturs grunnskólabarna að Kirkjubæjarklaustri?
Hjalti svaraði því til að sótt hafi verið um framlag til Jöfnunarsjóðs vegna akstur nemenda frá heimili þeirra í Öræfum að Kirkjubæjarskóla. Samkvæmt upplýsingum úr Jöfnunarsjóði verður slíkt framlag veitt. Ekki liggur fyrir hver þessi upphæð er og einnig á eftir að gera tillögu um skiptingu þessa framlags á milli Skaftárhrepps sem séð hefur að hluta til um akstur þessara nemenda og foreldra sem ekið hafa með sín börn ýmist í eða úr skóla eða í veg fyrir skólabíl.
Fundi slitið kl. 22: 00


