Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 107
107. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 5. október 2006, kl. 16.00 í Ekru.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson forseti bæjarstjórnar, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Reynir Arnarson, Guðrún Ingimundardóttir, Halldóra B. Jónsdóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Forseti setti fund. Hann óskaði eftir að Reynir Arnarson, 1. varaforseti tæki við fundarstjórn. Gengið var til dagskrár:
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar 346.fundur fimmtudaginn 7. september 2006
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar, 70. fundur, dags. 28. ágúst 2006.
· Æskulýðs- og tómstundaráð, 81. fundur, dags. 28. ágúst 2006.
· HÖR, 72. fundur, dags. 16. ágúst 2006.
· Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 735. fundur, 23. júní 2006.
Björn Ingi ræddi 6 mánaða uppgjör HSSA og spurði um leiðréttingar frá ríkinu vegna launabreytinga og veikinda.
Árni ræddi stöðu Heilbrigðisstofnunar og stöðuna í læknamálum en útlitið í þeim væri nokkuð gott sem stendur en þó ekki komin varanleg lausn með þeirri festu sem nauðsynleg er. Einnig ræddi hann áframhaldandi þjónustusamning. Sagði hann það algjört skilyrði að ríkið bæti launabreytingar sem um var spurt og benti á þjónustusamninginn við ríkið í því sambandi.
Halldóra Bergljót fór yfir nokkur formsatriði í tengslum við þennan fund, númer á fundum sem væru ekki rétt og óskaði eftir að þessi mál verði lagfærð. Þá ræddi hún samræmingu á leigu á húsnæði sem er í útleigu á vegum sveitarfélagsins. Fannst þetta þurfa að vera í fastari skorðum og benti á að sveitarfélagið sé í samkeppni við almennan markað. Halldóra ræddi byggingu íþróttamannvirkja og bókun frá síðasta fundi bæjarstjórnar um það mál, bókun sem hún sagðist ekki skilja. Hún auglýsti eftir við hverja í íþróttahreyfingunni hafi verið haft samráð þegar ákvarðanir voru teknar, sbr. bókun síðasta fundar bæjarstjórnar. Þá vildi hún fá að vita hvernig framkvæmdum verði hagað og einnig um fjármögnun verkefnisins. Halldóra ræddi einnig samstarf við Skaftárhrepp og hvað væri að frétta af þeim málum. Þá ræddi hún ferðalag nokkurra starfsmanna skólanna og spurði hvernig skólahald hafi verið leyst meðan á því ferðalagi stóð. Halldóra ræddi og þjónustusamninginn við ríkið um heilbrigðismálin, lausn á læknamálum o.fl. um þau mál.
Sigurlaug ræddi samstarf við Skaftárhrepp og fagnaði viðræðum sem fram hafa farið á milli sveitarstjóra Skaftárhrepps og bæjarstjóra Hornafjarðar. Lagði hún áherslu á samstarf milli þessara sveitarfélaga og mikilvægi þess. Benti hún á fjölmörg atriði um samstarf milli þessara byggðarlaga á ýmsum sviðum atvinnumála. Samvinnu sem færi vaxandi. Þá ræddi hún skoðanakönnun í Sveitarfélaginu Hornafirði sem sýndi að meirihluti íbúanna vildi vera í Suðurkjördæmi.
Guðrún fjallaði um leigukjör íbúðarhúsnæðis. Sagði hún upphaflegar reglur nú vera aflagðar, það hafi verið gert með tilkomu húsaleigubóta. Sagði hún leigukjör vera orðin mjög í samræmi við almennan markað.
Elín greindi frá því hvernig skólastarf var leyst á meðan nokkrir starfsmenn þeirra fóru í ferðalag. Sagði hún málin hafa verið leyst í öllum skólum bæði leik- og grunnskólum.
Hjalti greindi frá því að hluti launa HSSA hafi verið leiðréttur af hálfu ríkisins og greindi frá fundi með starfsmönnum heilbrigðisráðuneytisins um þjónustusamninginn sem haldinn var 4. okt. sl. Einnig fjallaði hann um læknamálin og greindi frá viðræðum við læknafélögin um þau. Þá sagði Hjalti það rétt vera að númerabrengl hafi orðið á fundum bæjarstjórnar, það þurfi að laga. Einnig greindi hann frá samskiptum við Skaftárhrepp um skólamál, náttúrustofu o.fl. Hjalti ræddi um samráð við fulltrúa íþróttahreyfingarinnar um uppbyggingu íþróttamannvirkja, lagði áherslu á að hans skilningur væri sá að slíkt samráð hafi verið við haft. Vísaði hann á bug að ekkert samráð hafi farið fram. (Reynir tilkynnti að Elín viki af fundi og Ásgrímur Ingólfsson tæki hennar sæti).
Björn Ingi ræddi drög að skoðanakönnun sem kynnt hafi verið á fundi bæjarráðs. Þá ræddi hann kynningarátak sem hann fagnaði.
Árni sagðist hafna algjörlega að ekkert samráð hafi verið haft við fulltrúa íþróttahreyfingarinnar um uppbyggingu íþróttamannvirkja, það væri út í bláinn og sagði það ekki standast neina skoðun. Hann ræddi viðræður við ríkið um þjónustusamninginn og hvernig viðræðunefnd verði skipuð. Einnig ræddi hann læknamálin og stöðu þeirra. Tók hann undir með Halldóru um að þau væru ekki betri ef ríkið ræki HSSA. Þá fjallaði hann um fyrirspurn Björns Inga um ferðalag starfsmanna skólanna og sagðist hissa á því að hún hafi verið borin upp í bæjarráði en ekki skólanefnd.
Guðrún ræddi samskipti við Skaftárhrepp sem hún taldi af hinu góða og fagnaði. Ræddi um samstarf á sviði skólamála og um málefni þjóðgarðs.
Björn Ingi sagðist telja að bæjarfulltrúar hafi rétt til að spyrja um málefni bæjarfélagsins, það væri málfrelsi og réttur til að leita svara við spurningum.
Halldóra tók undir með Birni Inga og lagði áherslu á málfrelsið. Sagðist ekki skilja að það væri vantraust að spyrja um hlutina. Þau hefðu áhuga á að vita hvernig skólamálin eru leyst þegar fólk fer í frí á skólatíma. Halldóra sagði bókun á síðasta bæjarstjórnarfundi ekki vera í samræmi við fund um uppbyggingu íþróttamannvirkja sem haldinn var 29. ágúst. Sagði hún ekki vera ljóst enn þá hvernig verður framkvæmt í þessari uppbyggingu, sagðist leita eftir því hvernig þessum málum verður háttað næstu mánuði. Einnig ræddi hún kynningu á sveitarfélaginu, viðhorfs- og árangurskönnun.
Hjalti ræddi viðhorfskönnun og í hvaða farvegi hún er. Taka þurfi ákvörðun um tímasetningu könnunarinnar. Hann fjallaði um kynningarmálin og stöðu þeirra. Um uppbyggingu íþróttamannvirkja sagði hann málin vera í höndum starfsmanna sveitarfélagsins. Einnig ræddi hann fundinn sem haldinn var 29. ágúst og hvað út úr honum hafi komið.
Árni sagði að rétt væri að málfrelsi væri en furðaði sig á að fulltrúi minnihlutans hafi ekki spurt um þetta í skólanefnd.
Sigurlaug ræddi umræður í bæjarstjórn þegar hún sat í minnihluta. Taldi að þá hafi grundvallaratriði hafa verið rædd en sneitt hjá smáatriðum.
Ásgrímur ræddi fundinn sem haldinn var 29. ágúst og sagði það undarlegt hvernig framkvæmdastjóri og formaður Sindra hafi skilið þann fund. Fannst honum yfirstandandi fundur minna á sandkassastríð.
Halldóra sagði minnihlutann vera ofurviðkvæman fyrir fyrirspurn um skólamálin og sagðist mótmæla því að um væri að ræða vantraust á starfsfólk skólanna. Sagði hún að 30 m.kr. framlag sveitarfélagsin komi hvergi fram í drögum að fundargerð vinnufundar bæjarstjórnar frá 29. ágúst sl.
Hjalti sagði töluna 30 millj. margoft hafa komið fram á umræddum fundi 29. ágúst.
Fundargerð samþykkt
Bæjarráð Hornafjarðar 347.fundur þriðjudaginn 12. september 2006
· Heilbrigðisnefnd Austurlands 63. fundur 31. ágúst 2006.
Hjalti ræddi heimsókn í Sælgætisgerðina Freyju og samskipti við forsvarsmenn fyrirtækisins. Sagðist hann fagna hugmyndum þeirra um aukna starfsemi hér á staðnum.
Halldóra tók undir orða Hjalta og benti á að fyrirtæki sem koma sér fyrir hér sjái oft tækifæri til aukinna umsvifa vegna góðra aðstæðna hér. Halldóra spurði og um stöðuna í viðræðum við félagsmálaráðuneytið um málefni fatlaðra.
Hjalti greindi frá stöðu mála í þeim viðræðum, sem væru í góðum farvegi.
Árni ræddi um málefni fatlaðra og sagði sveitarfélögin í landinu hafa áhuga á að taka þann málaflokk yfir, þar væri hann í betri höndum en hjá ríkinu. Þá þakkaði Árni heimsókn í Sælgætisgerðina Freyju og fagnaði hugmyndum um aukin umsvif.
Halldóra þakkaði hlý orð Árna til sjálfstæðismanna sem hafi verið í forsvari í sveitarfélaginu þegar málefni fatlaðra og heilbrigðismálin voru tekin yfir með þjónustusamningum.
Fundargerð samþykkt
Bæjarráð Hornafjarðar 348.fundur þriðjudaginn 19. september 2006
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 69. fundur 13. september.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 149.fundur 12. september 2006.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 80. fundur 13. september 2006.
· Stýrihópur við gerð skólastefnu 1. fundur 8. september 2006.
Björn Ingi ræddi lóðamál. Sagði hann mikinn áhuga vera hjá ungu fólki að byggja og hvatti til þess að ný svæði verði skipulögð. Svæði sem verði í góðri tengingu við önnur byggð svæði.
Árni ræddi einnig lóðamálin og hugsanlegar byggingarlóðir. Sagðist hann vera sammála Birni Inga um að auka þurfi framboð á lóðum. Byggingar- og skipulagsnefnd þurfi að taka þau til meðferðar.
Hjalti fagnaði þessari umræðu um lóða- og byggingarmál. Þau tengdust einnig kynningu á sveitarfélaginu. Þá lagði hann áherslu á samstarf við íbúa sveitarfélagsins um þessi mál.
Halldóra Bergljót ræddi lóðamálin og sagði komið að því að taka þurfi nýtt byggingarsvæði í notkun. Þá ræddi hún fasteignamarkaðinn og stöðu hans. Einnig ræddi hún vaxtasamninginn sem hún sagði ekki hafa verið ræddan í bæjarstjórn sem væri miður. Taldi hún eðlilegt að fulltrúar meirihlutans fylgdu honum úr hlaði með umræðu í bæjarstjórn. Sagði hún vaxtasamninginn leggja áherslu á jaðarsvæði, þar sem matvælavinnsla, menntun og rannsóknir væru megináhersluþættir. Hún lagði áherslu á að við þyrftum að fá viðurkennda þá frumkvöðla- og rannsóknastarfsemi sem hér færi fram í þekkingarsetrinu Nýheimum. Við værum komin lengra í þeim efnum en almennt gerist hér á landi. Sagði hún meðal annars að fuglaathugunarstöð gæti orðið mjög mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn með miklum umsvifum. Einnig ræddi hún ýmis önnur atriði í samningnum sem hún óskaði eftir skoðun bæjarfulltrúa á. Halldóra sagðist samþykk flestu sem fram kemur í samningnum.
Hjalti ræddi vaxtasamninginn og sagði hann vera til umfjöllunar í 349. fundargerð bæjarráðs sem sér liður þar sem samþykkt var að bæjarstjóri undirritaði viljayfirlýsingu. Samningnum hafi að öðru leyti verið vísað til fjárhagsáætlunar. Þá verði samningurinn að sjálfsögðu ræddur.
Sigurlaug sagðist hafa orðið fyrir nokkrum vonbrigðum með framvindu vaxtasamningsins frá því að hann var kynntur fyrir um tveimur árum. Í upphafi hafi hann verið kynntur sem vaxtasamningur fyrir Suðausturland en ekki allt Austurland. Þá sagði hún okkur vera vel í stakk búin fyrir klasasamstarf. Lagði hún áherslu á að tryggja þurfi rekstur frumkvöðlaseturs og háskólaseturs, þar væri uppsprettan. Einnig ræddi hún að mikilvægt að fram fari almenn kynning á samningnum. Sigurlaug kynnti skýrsluna?Perlur? og afhenti bæjarstjóra eintak af henni.
Halldóra Bergljót sagðist taka undir það að best væri ef gerður hefði verið sérstakur vaxtasamningur fyrir Suðausturland. Fannst henni og að áherslan mætti vera meiri á jaðarsvæði. Þá sagði hún það að taka þátt í vinnu að samningi sem þessum væri mjög af hinu góða og nýttist vel. Allt væri þetta þó í áttina að efla okkar samfélag.
Fundargerð samþykkt
Bæjarráð Hornafjarðar 349.fundur mánudaginn 25.september 2006
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 26. fundur 18. september 2006.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 84. fundur 18. september 2006.
· Skólanefnd Hornafjarðar 85. fundur 19. september 2006.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 9. september 2006
Hjalti þakkaði fyrir skýrsluna um Perluverkefnið. Hann ræddi um atvinnumál í sveitarfélaginu og ræddi meðal annars um samskipti sín við framkvæmdastjóra Búnaðarsambands Suðurlands um að halda á næsta ári málþing um stöðu og framtíð hefðbundins landbúnaðar. Þá ræddi hann mikilvægi þess að efla markaðsstarf í ferðaþjónustu á svæðinu, einkum til að laða að ferðamenn utan háannatíma. Enn fremur ræddi Hjalti um fréttir af breytingum á rekstri Ratsjárstofnunar á Stokksnesi og gerði grein fyrir viðræðum sínum við embættismenn sem málið varða. Einnig að óskað verði formlega eftir viðræðum við forsætisráðherra og utanríkisráðherra um málefni Ratsjárstofnunar og mótvægisaðgerðir við minnkandi starfssemi stofnunarinnar.
Sigurlaug ræddi fundargerð umhverfisnefndar frá 9. september. Sagði hún frá skoðun umhverfisnefndar m.a. á urðunarsvæðið í Lóni og sagði að ekki vera mikla framtíð í urðun þar, plássið orðið lítið og sorpið vera vaxandi. Því þurfi að hefja vinnu við það að minnka sorp. Ræddi hún fyrirhugaða fernusöfnun sem lítið skref í þá átt. Einnig ræddi hún jarðgerðarvél sem breytir lífrænum úrgangi í jarðveg. Mikið félli til af lífrænum úrgangi og styttist mjög í að bannað verða að urða fljótandi lífrænan úrgang.
Forseti bar upp eftirfarandi bókun:
?Bæjarstjórn Hornafjarðar lýsir yfir þungum áhyggjum vegna fyrirhugaðra breytinga hjá Ratsjárstofnun og uppsagna starfsfólks. Það er ljóst að fyrirhugaðar breytingar hafa mikil áhrif í ekki stærra samfélagi. Flestir starfsmenn Ratsjárstofnunar hafa ekki möguleika á öðrum sambærilegum störfum á svæðinu. Það er óásættanlegt að störf sem hægt er að vinna áfram á landsbyggðinni verði flutt þaðan á suðvesturhornið og um leið aðför að þeim byggðarlögum sem fyrir slíku verða. Því er skorað á ríkisvaldið að grípa inn í og koma í veg fyrir að þessi ákvörðun nái fram að ganga, ella að koma með tilheyrandi mótvægisaðgerðir.?
Árni sagðist styðja þessa bókun. Uppsagnirnar væru þungt högg fyrir okkar byggðarlag. Forvitnilegt verði að sjá hvort verið sé að leggja þessi störf niður eða flytja þau annað. Árni ræddi og vaxtasamninginn og vitnaði til samþykktar bæjarráðs um það mál þar sem samþykkt var að fela bæjarstjóra að undirrita viljayfirlýsingu um hann. Það þýði að við séum tilbúin að skoða þetta mál áfram.
Halldóra Bergljót sagðist ánægð með þessa umræðu um vaxtasamninginn. Það væri ekki spurning í hennar huga að við ættum að vera með í honum. Hún ræddi stöðuna í dælingu í Hornafjarðarhöfn. Spurði um stöðu samningamála við þann aðila sem sér um dælingu. Hún sagði og að losun efnis í Mikleyjarál hafi ekki verið í upphaflegri útboðslýsingu. Einnig ræddi hún umræður í skólanefnd um breytingar á skólatíma og hvað væri til fyrirstöðu að breyta honum og bjóða upp á tíma sem gæti hafist um hádegi. Einnig ræddi Halldóra vöruverð og stöðu matvælaverslunar á staðnum. Sagðist hafa áhyggjur af þeim málum, þetta væri atvinnu- og byggðamál og sneri að kjörum fólks. Sagði hún fólk vera farið að versla í stórum stíl utan svæðisins. Þá fór Halldóra yfir úthýsingu á verkefnum sem unnin eru fyrir sveitarfélagið og fyrirtæki á staðnum. Vitnaði m.a. til úthýsingar á vegum fyrirtækja á Austurlandi, svo sem Alcoa, Síldarvinnslunnar og Eskju. Lagði hún áherslu á að við þurfum að stilla saman strengi okkar og ræða málin fordómalaust. Einnig ræddi hún bókun og óskaði eftir örstuttu hléi til að samræma bókun þá sem hefur verið kynnt og bókun sem sjálfstæðismenn hugðust leggja fram.
Árni ræddi um tillögu um breytingar á skólatíma í leikskólum sem fram kemur í fundargerð skólanefndar. Sagði hann leikskólastjóra telja að þessi skólatími hentaði ekki starfsemi skólanna. Sagði hann að þarna toguðust á sjónarmið um leikskólann sem fyrsta skólastigið og sjónarmið um leikskóla sem þjónustustofnun. Taldi hann þetta vera mál sem leysa megi. Þá sagðist hann deila áhyggjum með Halldóru um stöðu matvöruverslunar á staðnum. Árni sagðist ávallt vera tilbúinn að ræða úthýsingu verkefna en ekki tilbúinn til að ræða þau á grundvelli eins nafngreinds fyrirtækis sem gæti ekki komið að umræðu í bæjarstjórn. Til þess hefði hann engar forsendur. Þá sagði hann úthýsingu ekki vera upphaf og endir alls, taka þurfi afstöðu til hvers tilviks.
Hjalti greindi frá viðræðum við eiganda Gáma- og tækjaleigunnar og starfsmenn Siglingastofnunar um dælingu í höfninni. Sagði hann þessi mál verða rædd í hafnarstjórn í næstu viku. Einnig ræddi hann um Ratsjárstofnun.
Sigurlaug ræddi áfram um starf þess hóps sem kemur að Perluverkefninu og helstu verkefni. Þá sagði hún okkur þurfa að vera vakandi að grípa þau tækifæri sem skapast til að fá hingað störf á vegum ríkisins. Einnig ræddi hún hugmyndir um atvinnulífskynningu í tengslum við ungmennalandsmót á næsta ári. Einnig fjallaði hún um úthýsingu verkefna á vegum sveitarfélagsins. Hún sagði verslunarmál brenna á öllum. Skoraði hún á Halldóru að gangast fyrir stofnun hlutafélags sem hefði það að markmiði að kaupa verslunarhúsnæði á staðnum og semja við aðila um að koma hingað með verslun. Sagðist hún vera til í að taka þátt í slíku verkefni.
Ásgrímur sagðist styðja bókun um Ratsjárstofnun. Þá tók hann undir áhyggjur af verslunarmálum en sagðist ekki geta tekið undir það að þetta sé Kaupfélaginu að kenna og ómaklega að því vegið.
Halldóra ræddi dælingu og tengda samninga. Einnig ræddi hún verslunarmálin og spurði sig hvort húsnæðið væri til sölu. Hún andmælti því að ekki mætti ræða hér málefni Kaupfélagsins, ekki væri verið að ráðast á það þó málefni þess væru rædd. Félagið væri rekið á samvinnufélagsformi sem við öll eigum.
Hjalti greindi frá fundi með kaupfélagsstjóra á Héraði og umræðum sem þeir áttu um verslunarmál. Hjalti taldi að við ættum betri vettvang en púlt bæjarstjórnar, svo sem netmiðla og héraðsfréttablað, til að ræða málefni einstakra fyrirtækja.
Eftir breytingar á tillögu að bókun um Ratsjárstofnun var hún samþykkt með öllum 7 greiddum atkvæðum.
Fundargerð samþykkt
Bæjarstjórn Hornafjarðar, 106. fundur 7. september 2006, áður samþykkt.
2. Skipurit yfirstjórnar sveitarfélagsins
Hjalti fór yfir breytingar á skipuriti sveitarfélagsins og sagði áhuga á að halda að sér höndum og draga þannig úr kostnaði við yfirstjórn sveitarfélagsins. Það væri m.a. gert með því að leggja niður stöðu framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs. Sú breyting verður frá ríkjandi skipulagi að stjórnsýslusvið verði lagt niður og að Stefán Ólafsson verði staðgengill bæjarstjóra. Staðgengilstarfið felist í að vera talsmaður stjórnsýslu í fjarveru bæjarstjóra.
Halldóra sagði að það sem áður heyrði undir stjórnsýslusvið væri dreift út. Hún sagðist vera með efasemdir um að skilvirki batni og efaðist um að bæjarstjóri hefði nægan tíma til að sinna ýmsum nauðsynlegum verkefnum. Óttaðist hún að einhver verkefni kynnu að verða út undan með þessum breytingum. Þá fjallaði hún um hugmynd um að málefni fatlaðra færu undir HSSA og hvort hún væri enn uppi. Sagðist sjá þar ákveðin samlegðaráhrif.
Hjalti ræddi breytingar sem gerðar hafa verið og lagði áherslu á að hér væri starfsfólk sem axlað gæti auknar byrðar. Hann sagði málefni fatlaða ekki geta fallið undir HSSA en aukið samstarf auðveldlega geta þrifist.
Halldóra sagðist bera traust til starfsfólksins en sagðist vera með efasemdir um það að lengja stjórnunarspönnina.
Breyting á skipuriti samþykkt með 6 atkvæðum, einn sat hjá.
(Árni tók við fundarstjórn.)
3. Kosningar
· Kosning fulltrúa sveitarfélagsins á aðalfund SSA 2006
Forseti bar fram tillögu um eftirtalda sem fulltrúa á aðalfund SSA 2006:
Aðalmenn Varamenn
Reynir Arnarson B Ásgrímur Ingólfsson B
Sigurlaug Gissurardóttir B Gunnar Sigurjónsson B
Árni Rúnar Þorvaldsson S Erna Gísladóttir S
Guðrún Ingimundardóttir S Stephen Robert Johnson S
Halldóra B. Jónsdóttir D Björk Pálsdóttir D
Björn Ingi Jónsson D Einar Karlsson D
Hjalti Þór Vignisson Stefán Ólafsson
Tillaga samþykkt með 7 samhljóða atkvæðum.
· Tilnefning í stjórn SSA og nefndir á vegum SSA
Forseti ræddi tillögu um að aðalmenn í stjórn SSA verði Reynir Arnarson og Guðrún Ingimundardóttir og til vara Elín Magnúsdóttir og Erna Gísladóttir.
Halldóra Bergljót sagðist velta þessum lið fyrir sér. Sagði að hingað til hafi fulltrúar þeir sem þingið sitja kosið til stjórnar og nefnda. Sagði að sig reka í rogastans og kannaðist ekki við að þetta hafi verið gert fyrr. Að öðru leyti sagðist hún ekki skipta sér af þessum lið.
Árni sagði að meirihlutinn hafi talið rétt að hafa þennan hátt á.
Halldóra sagðist vilja minna á samkomulag sem gert var í vor um setu á landsþingi Sambands ísl. sveitarfélaga sem ekki hafi verið staðið við með boðun varamanns í forföllum aðalmanns. Einnig ræddi hún fyrirkomulag á síðasta kjörtímabili. Sagði hún þetta vera ný vinnubrögð í sveitarstjórninni og e.t.v. eitthvað sem búast megi við.
Reynir sagðist ekki geta tekið undir að þetta væru undarlegar kosningar. Hér kæmi fram vilji meirihlutans um skipan mála. Ekki vildi hann samþykkja að skipan mála við kosningar um nefndir væri sambærileg á milli kjörtímabila.
Halldóra benti á fundargerð bæjarstjórnar frá 15. júní sl. vegna kosninga á landsfund sveitarfélaga.
Forseti bar upp tillögu um að aðalmenn í stjórn SSA verði Reynir Arnarson og Guðrún Ingimundardóttir og til vara Elín Magnúsdóttir og Erna Gísladóttir.
Samþykkt með 5 greiddum atkvæðum, 1 sat hjá og 1 á móti
Forseti bar upp tillögu um að Reynir Arnarson verði fulltrúi í samgöngunefnd SSA og Torfi Friðfinnsson verði fulltrúi í orku- og stóriðjunefnd SSA.
Samþykkt með 5 greiddum atkvæðum, 1 sat hjá og 1 á móti
· Kosning aðalmanns í æskulýðs- og tómstundaráð
Forseti bar upp tillögu um að í stað Sindra Ragnarssonar sem aðalmanns í æskulýðs- og tómstundaráði verði kjörinn Gestur Halldórsson. Í stað Gests, sem var varamaður í ráðinu, verði Halldóra Guðmundsdóttir. Tillaga samþykkt með 7 samhljóða atkvæðum.
· Kosning varamanns í félagsmálaráð.
Forseti bar upp tillögu um að í stað Jónínu Sigurjónsdóttur sem varamanns í félagsmálaráði verði kjörin Elín Magnúsdóttir Tillaga samþykkt með 7 samhljóða atkvæðum.
4. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2006
Bæjarstjóri fór yfir endurskoðaða fjárhagsáætlun fyrir árið 2006 sem bæjarráð vísaði til afgreiðslu í bæjarstjórn. Helstu breytingar á fjárhagsáætluninni eru þær að skatttekjur í heild hækka um 73,2 m.kr., fyrst og fremst vegna framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Heildarupphæð skatttekna er því um 884,5 m.kr. og tekjur samstæðunnar tæplega 1.200 m.kr.
Útgjöldin til rekstrar aukast hins vegar um 39,2 m.kr. m.a. vegna launabreytinga, reiknaðra lífeyrisskuldbindinga og styrkja í ýmis verkefni. Heildarupphæð gjalda samstæðunnar án fjármagnsliða er um 1.067 m.kr. en fjármagnsliðir eru um 34,4 m.kr. Rekstrarafgangur er jákvæður um 90 m.kr. sem er um 29,0 m.kr. betri afkoma en fyrri áætlun gerði ráð fyrir. Handbært fé um áramót er áætlað um 74 m.kr. sem er um 48,3 m.kr. hærra en fyrri áætlun gerði ráð fyrir.
Halldóra Bergljót lýsti yfir ánægju með að fjárhagsáætlun standist svo vel. Þá sagði hún staðgreiðsluna standast vel sem benti til góðrar stöðu atvinnumála. Benti og á að sveitarfélagið væri stærsti atvinnurekandinn, þar hafi orðið verulegar launahækkanir sem skýrði að einhverju leyti hærri staðgreiðslu. Hér væri borð fyrir báru og ástæða til bjartsýni með að fara í þau verkefni sem rætt hefur verið um
Reynir lýsti ánægju sinni með útkomuna á endurskoðaðri fjárhagsáætlun og taldi hana lýsa vel stöðunni.
Endurskoðuð fjárhagsáætlun borin undir atkvæði og samþykkt með 7 samhljóða atkvæðum
5. Deiliskipulag í Fjárhúsavík
Hjalti gerði grein fyrir deiliskipulagsferlinu. Kom fram að tillagana var auglýst um miðjan júlí sl. og engar athugasemdir bárust þá. Óskað var eftir umsögnum frá Umhverfisstofnun, Heilbrigðiseftirliti Austurlands og Fornleifavernd ríkisins. Ábendingar frá þeim lúta að mengunar- og fráveitumálum sem og aðgengi gangandi umferðar meðfram bökkum Fjárhúsavíkur. Tekið hefur verið tillit til þessara athugasemda. Hjalti lagði til að tillagan yrði samþykkt.
Tillaga um deiliskipulag af Fjárhúsavík, greinargerð og uppdráttur samþykkt með 7 atkvæðum.
6. Fyrirspurnir
Engar.
Fundi slitið: 20:40


