Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 106

106. fundur

FUNDARGERÐ

Fundur haldinn í Ekru, fimmtudaginn 7. september 2006 kl. 16:00.
Mætt voru: Árni Þorvaldsson forseti, Guðrún Ingimundardóttir, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Halldóra B. Jónsdóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.

Gengið var til dagskrár.

1. Fundargerðir

Bæjarráð Hornafjarðar 343. fundur þriðjudaginn 15. ágúst 2006.

  • Hafnarstjórn Hornfjarðarhafnar 82. fundur 1. ágúst 2006.
  • Félagsmálaráð Hornafjarðar 14. fundur 2006.
  • Nefnd um íþróttamannvirki 20. fundur 10. ágúst 2006.
    Björn Ingi gerði að umtalsefni frestun á framkvæmdum við sundlaug, sbr. umræðu í nefnd um íþróttamannvirki. Hann telur ekki rétt að nefndin fjalli um frestun, það sé ekki hennar hlutverk. Hann leggur áherslu á að bæjarstjórn taki slíkar ákvarðanir. Hann taldi og mikilvægt að fyrir liggi áætlanir um kostnað áður en ákvarðanir um byggingu sundlaugar verða teknar. Þá gerði hann að umtalsefni systkinaafslátt í lengdri viðveru sem hann fagnar.
    Reynir tók undir þau orð Björns Inga, að engu hafi verið frestað. Sagði hann málið vera í vinnslu og réttum farvegi.
    Halldóra ræddi um Sindravelli og bókun bæjarráðs um efnisval á knattspyrnuvelli. Einnig vitnaði hún í fundargerð vinnufundar bæjarstjórnar um sama mál. Sagði hún greinilegt að meirihlutinn ætti í vandræðum með málið. Sjálfstæðismenn leggi mesta áherslu á hagkvæman rekstur íþróttavalla og sem besta nýtingu að framkvæmdum loknum. Sagði hún að grasvöllur yrði ekki nýttur nema til keppni, ekki æfinga. Vitnaði hún til orða knattspyrnumanna sem töldu gervigras á knattspyrnuvelli besta kostinn. Með náttúrugrasi á vellinum væru aðstæður til knattspyrnuiðkunar ekki nægilega góðar. Lagði hún áherslu á að í framtíðinni verðum við með mannvirki sem nýtist sem flestum íþróttamönnum. Einnig fjallaði Halldóra um aukinn launakostnað við HSSA. Spurði hún hvort gert hafi verið ráð fyrir þessum aukna kostnaði í áætlunum fyrir stofnunina. Einnig gerði hún að umtalsefni bókhald sveitarfélagsins og lagði áherslu á að það sé gott stjórntæki.
    Hjalti ræddi um íþróttamannvirki og mikilvægi þeirra. Hann ræddi kostnað við þessi mannvirki og hvernig áætlanir um kostnað við sundlaug hafi hækkað úr um 240 mill. samkv. fyrstu áætlunum í yfir 400 milljónir eins og staðan er í dag. Sagðist hann hafa áhyggjur af þessum kostnaði og áhrif hans á þanþol fjárhag sveitarfélagsins. Hjalti ræddi stofnanasamning við HSSA sem tók gildi frá og með 1. maí. Sagði hann nýja launaáætlun ekki liggja fyrir og ræddi einnig um bókhald sveitarfélagsins og stofnana þess.
    Fundargerð samþykkt
  • Bæjarráð Hornafjarðar 344. fundur þriðjudaginn 22. ágúst 2006.
  • Skólanefnd Hornafjarðar 84. fundur 16. ágúst 2006.
    Björn Ingi gerði að umtalsefni aukaskammta í hádeginu og spurðist fyrir um stöðu þess máls. Einnig ræddi hann um samninga við Kaffihornið og hvort ekki sé hægt að vera með lengri samninga, t.d. fimm ár, eins og í skólaakstrinum.
    Halldóra lagði áherslu á að stýrihópur vegna skólastefnu ljúki sinni vinnu fyrir lok nóvember nk. Allar breytingar þurfi góðan undirbúning og tíma. Hvatti hún til þess að reynt verði að flýta þeirri vinnu þannig að hægt verða að vinna eftir nýrri skólastefnu frá og með haustinu 2007. Þá ræddi hún minnispunkta frá bæjarstjóra og gerði að umtalsefni skrifstofuaðstöðu fyrir Fiskistofu. Sagði hún það vera mjög óeðlilegt ef sveitarfélagið fer að bjóða betri leigukjör þar sem Fiskistofa hafi auglýst á almennum markaði. Þá ræddi Halldóra flugmál, flugvélakakost og samninga um flug til Hornafjarðar. Óskaði hún upplýsinga frá bæjarstjóra um stöðu mála. Einnig ræddi Halldóra um flugvöllinn og vitnaði í bókun sína frá því á bæjarráðsfundi í lok maí sl. þar sem fjallað er um hugsanlega nýtingu á flugvellinum fyrir minni þotur. Atriði sem gæti skipt miklu máli fyrir ferðaþjónustuna og íbúa sveitarfélagsins. Einnig ræddi hún um útboð á verkum fyrir flugvöllinn, svo sem slátt o. fl. Einnig óskaði hún eftir því að bæjarstjóri fái upplýsingar um nýtingu á landi sem fellur undir flugvöllinn. Þá ræddi hún þverbraut sem nú er horfin úr notkun. Það land verði nýtt til makaskipta fyrir land undir nýja þverbraut. Halldóra óskaði upplýsinga um Hrollaugsstaði og stöðu mála varðandi það húsnæði, nýtingu í framtíðinni o. fl.
    Árni sagði þau atriði sem snúa að mötuneyti skólanna á Höfn eigi erindi inn í umræðu um skólastefnu. Sagði hann vera mun á því að gera samning til eins árs og útboðs til lengri tíma. Þá tók hann undir umræðu um útboð til lengri tíma fyrir mötuneytið. Einnig tók hann undir þau orð að ný skólastefna liggi fyrir sem fyrst.
    Hjalti sagði starfsmenn Fiskistofu hafa skoðað húsnæði á fimm stöðum og eftir það óskað eftir viðræðum um leigu á neðstu hæð í ráðhúsi. Hjalti sagðist hafa sent erindið til Flugmálstjórnar en ekki fengið svar þar að lútandi. Einnig ræddi hann væntanlegan fund með samgönguyfirvöldum um flugrekstur til Hornafjarðar. Hjalti sagðist vísa nýtingu á landi flugvallarins til forseta bæjarstjórnar vegna vanhæfis síns til að taka þátt í umræðu um það mál.
    Sigurlaug sagði það mikilvægast að menn móti sér heildstæða sýn á þjóðgarðsmál og uppbyggingu innan hans en ekki hvar einstaka miðstöðvar verði staðsettar. Sagði hún embættismenn í viðkomandi ráðuneyti hafa það á tilfinningunni að hér vissi hægri höndin ekki hvað sú vinstri vildi í þjóðgarðsmálum.
    Halldóra ræddi áfram um flugvallarmál. Lagði hún áherslu á að gengið verði í það mál og óskaði eftir upplýsingum um það sem fyrst. Halldóra sagðist ekki kannast við þessi orð sem Sigurlaug vitnar til um samstöðuleysi í þjóðgarðsmálum. Einnig ræddi hún um land í einkaeigu sem falla kunni undir þjóðgarðinn. Þá sagði hún að móta þurfi stefnu hvar framkvæmt verði innan þjóðgarðsins fyrsta árið o.s.frv. Auglýsti hún eftir tillögum.
    Hjalti ræddi þjóðgarðsmálin og hugsanlega aðkomu landeigenda og lagði áherslu á að þetta séu þeirra eignarlönd sem eru til umræðu. Tók hann undir það að mikilvægt sé að niðurstaða liggi fyrir sem fyrst.
    Halldóra sagðist ekki geta litið á það sem einkamál landeigenda hver aðkoma þeirra verður ef til kemur.
    Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 345. fundur þriðjudaginn 29. ágúst 2006.

  • Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 25. fundur 21. ágúst 2006.
  • Félagsmálaráð Hornafjarðar 149. fundur 22. ágúst 2006.
  • Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 83. fundur 22. ágúst 2006.
    Halldóra sagði að sér hafi borist í hendur gögn um íbúaþróun og ákvarðanir ríkisstjórnarinnar um aukið fé til Jöfnunarsjóðs. Greindi hún frá verulegri fólksfækkun á Hornafirði, 6,4% á tíu árum, sem væri mjög mikið áhyggjuefni. Halldóra fór yfir stöðuna í atvinnumálum og sagði okkur alltaf þurfa að vera vakandi. Þá gerði hún að umtalsefni atvinnuleysisskrá og hversu lokuð hún sé, til dæmis fyrir atvinnurekendum. Þá sagði hún að á undanförnum árum hafi sveitarfélagið verið í fararbroddi með það að auka breidd í atvinnulífinu og nefndi ýmis dæmi máli sínu til stuðnings. Nefndi hún m.a. Nýheima, Frumkvöðlasetur, Háskólasetur, flutning verkefna frá ríki til sveitarfélagsins. Halldóra ræddi og hið öfluga útgerðarfyrirtæki sem hér er til staðar. Óskaði hún fyrirtækinu til hamingju með nýtt skip og 60 ára afmælið. Þá ræddi hún þann hátt sama fyrirtækis að láta sína starfsmenn vinna öll verk, svo sem trésmiði, málara, vélvirkja o.fl. í stað úthýsingar. Sú þjónusta og önnur sé því ekki keypt af aðilum sem hér eru á markaði heldur allt unnið af starfsmönnum fyrirtækisins. Var hún ekki sátt við þá tilhögun. Sagðist hún sannfærð um að ef sú þjónusta væri keypt af fyrirtækjum sem hér starfa væri hér öflugra atvinnulíf. Halldóra ræddi og fleiri mál, svo sem það að ekki hafi verið haldinn aðalfundur í KASK frá árinu 2003. Benti hún m.a. á að fasteignafélagið Skálatindar hafi verið selt austur á Hérað en ekki verið boðið til kaups hér heima. Þá ræddi hún verslunarmál og vöruverð, þætti sem skipta miklu máli þegar kemur að búsetumálum. Velti hún því upp hvers vegna eignarhald og rekstur sé kominn í svo ríkum mæli upp á Hérað. Allt hafi þetta áhrif á búsetumál. Halldóra ræddi skipan hafnarstjórnar og spurði hvort farið hafi verið um þau mál sem hún ræddi á síðasta fundi bæjarstjórnar um hæfi manna til setu í hafnarstjórninni. Þá ræddi hún dýpkun hafnarinnar og spurði hvort ekki væri farið of stutt með uppdælt efni. Einnig spurðist hún fyrir um samninga um dælingu í höfninni.
    Hjalti sagði það rétt vera að íbúaþróun hafi verið neikvæð en hafi fulla trú á að hún muni snúast á betri veg. Sagði hann hlutverk sveitarfélagsins vera að efla grunngerðina og þjónustu við íbúana. Hann sagði hér vera mikið fjárfestingarafl, bæði hjá fyrirtækjum og einstaklingum. Skoraði hann á viðkomandi að nýta þetta afl. Í þessu sambandi spurði hann hvort sveitarfélagið eigi að setja allt sitt fé til uppbyggingar íþróttamannvirkja eða hvort borð eigi að vera til annarra framkvæmda. Þá sagði hann erindi hafa verið sent lögfræðingi Sambands ísl. sveitarfélaga um hæfi bæjarstjóra og nefndarmanna í hafnarstjórn.
    Reynir greindi frá því að vel gengi að dæla, betur en menn bjuggust við.
    Halldóra tók undir þau orð Hjalta að efla þurfi grunngerðina en lagði áherslu á að leggja þurfi atvinnulífinu lið með ýmsum hætti. Þá sagði hún að hvorki fyrirtæki né aðrir væru stikkfrí þegar kemur að þátttöku í starfi félagasamtaka og atvinnumála.
    Reynir sagði ekki ljóst, og menn ekki sammála um það, hvað verði af uppdældu efni. Þá benti hann á að nú væri farið að nota þau rör sem til staðar eru. Hvað gert verður með þetta efni í framtíðinni væri þó óljóst.
    Sigurlaug vakti athygli á því að íbúaþróunin hafi átt sér stað meðan málshefjandi var í meirihluta. Lagði hún áherslu á að við þurfum öll að taka höndum saman til að efla samfélagið. Sagði hún það vera ósmekklegt hvernig talað var um ákveðin fyrirtæki á staðnum. Sagði hún að sitt fyrirtæki skipti við annað fyrirtæki vegna þess að það væri hennar hagur. Lagði hún áherslu að hvert fyrirtæki taki sínar eigin ákvarðanir á eigin forsendum. Þá óskaði hún Skinney - Þinganesi til hamingju með afmælið. Þá sagðist hún taka ofan fyrir þeim manni sem ekki seldi sig með sínu fyrirtæki.
    Halldóra sagði það rétt vera að þessi íbúaþróun hafi átt sér stað meðan hún sat í meirihluta og lagði um leið áherslu á mikilvægi sveitarfélagsins í atvinnuuppbyggingu.
    Fundargerð samþykkt
  • Bæjarstjórn Hornafjarðar 105. fundur 29. ágúst 2006, vinnufundur, fundargerð til kynningar.

2. Íþróttamannvirki - framkvæmdir á Sindravöllum

Reynir las upp eftirfarandi tillögu meirihluta bæjarstjórnar: Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir að hafnar verði framkvæmdir á Sindravöllum þar sem gert verður ráð fyrir frjálsíþróttaaðstöðu með tartanefni og knattspyrnuvelli. Völlurinn verði tekinn í notkun á ungmennalandsmóti 2007. Hvort um verður að ræða gervigras eða náttúrugras á knattspyrnuvelli byggist á því hvernig til tekst með fjármögnun verksins. Bæjarstjórn samþykkir enn fremur að framlag sveitarfélagsins til þessara framkvæmda verði 30 milljónir króna.
Reynir lagði áherslu á að með samþykkt þessarar tillögu væri hægt að hefja strax framkvæmdir við vellina.
Halldóra sagðist ekki vita annað en að búið væri að samþykkja þessar framkvæmdir. Sagðist ekki skilja þetta alveg og spurði hvers vegna nefnd um íþróttamannvirki hafi verið skipuð. Þá gerði hún að umtalsefni vandræðagang meirihlutans og sagði sjálfstæðismenn vilja leggja gervigras á knattspyrnuvöllinn. Þá ræddi hún fjármögnun verkefnisins og lagði áherslu á að menn verði að snúa sér að því að ná í fjármagn. Með því að setja 30 milljónir í þetta verkefni sé verið að varpa ábyrgðinni á íþróttafélögin.
Hjalti sagði vandræðaganginn, ef einhver, er vera þann að hafa samráð við íþróttahreyfinguna. Hjalti spurði hvort Halldóra ætli að vera stikkfrí eða hvort hún ætli að leggjast á árarnar með sveitarfélaginu og öðrum með þetta verkefni.
Árni sagði þessa tillögu vera afrakstur samráðs við íþróttahreyfinguna og enginn ágreiningur væri innan meirihlutans um þetta mál.
Reynir sagði enga formlega ákvörðun hafa verið tekna um þessa uppbyggingu í bæjarstjórn en yrði gert með samþykkt þessarar bókunar.
Björn Ingi sagði að væntanlega væri ekki verið að tala um hálfan gervigrasvöll með þessari tillögu. Þá gerði hann að umtalsefni nýtingu á gervigrasvelli og um leið nýtingu á fjármagni og endingartíma.
Halldóra sagði menn þekkja sig illa ef þeir teldu að hún ætlaði að frýja sig ábyrgð. Spurði hún aftur hvers vegna nefnd um íþróttamannvirki hafi verið skipuð. Sagði hún það vera hlutverk meirihlutans að standa í fremstu víglínu. Þá sagðist hún leggja fjáröflun lið vegna þessara framkvæmda geti hún það. Sagðist hún og vera sannfærð um að íþróttahreyfingin kæmi að þessu verki.
Björn Ingi benti á að ekki hafi verið samþykkt sérstaklega framkvæmdaáætlun þegar grafið var upp fyrir sundlauginni.
Reynir benti á að 330 milljónir hafi verið samþykktar til sundlaugarbyggingar og ekki framkvæmt fyrr en eftir þá samþykkt.
Sigurlaug vitnaði í tvær ákvarðanir sem teknar hafa verið í samfélaginu. Annars vegar um fjármagn sem lagt var til Golfklúbbs Hornafjarðar og hins vegar til Hestamannfélagsins. Þar hafi verið lagt fé til félaga sem áttu síðan sjálf að sjá um framkvæmdir. Umrædd tillaga sé ekki ósvipuð þessum ákvörðunum.
Halldóra sagði það rétt vera að gerðir hafi verið samningar við ofangreind félög. Á síðasta ári hafi verið tekin ákvörðun að fara aðra leið með þá framkvæmd sem nú er til umræðu. Sagðist hún munu sitja hjá við afgreiðslu þessarar tillögu.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 5 greiddum atkvæðum, 2 sátu hjá.


 

3. Fyrirspurnir

Engar fyrirspurnir hafa borist


Fundi slitið kl. 17.50.


Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica