Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 104

104. fundur

Fundur haldinn      í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 10. ágúst  2006, kl. 16.00 í Ekru.

Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson forseti bæjarstjórnar, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir, Lilja Hrund Harðardóttir, Guðrún Ingimundardóttir, Halldóra B. Jónsdóttir og  Björn Ingi Jónsson.  Einnig Hjalti Þór Vignisson og Stefán Ólafsson.

 

Forseti setti fund  og gengið var til dagskrár:

1.      Fundargerðir

Bæjarráð Hornafjarðar 339.fundur föstudaginn 16. júní  2006.

·        Byggingar og skipulagsnefnd 67. fundur 7. júní 2006.

·        Félagsmálaráð Hornafjarðar 146. fundur 29. maí 2006.

·        Framkvæmdanefnd um íþróttamannvirki 17. fundur 31. maí 2006.

·        HAUST  62. fundur 8. júní 2006

Elín gerði að umtalsefni 3. lið fundargerðar byggingar- og skipulagsnefndar og spurðist fyrir um úthlutun lóðar til Íslandspóst og stöðu mála.

Halldóra ræddi minnisblað um Vatnajökulsþjóðgarð og sýn okkar Hornfirðinga á þjóðgarðinn. Sagði hún þetta vera gríðarlegt hagsmunamál fyrir byggðarlagið og gæta þurfi mjög vel hagsmuna okkar. Fannst henni meðal annars ekki vera nægilegt traust á milli ríkisvalds og sveitarfélaga þegar kemur að málefnum þjóðgarðsins. Einnig ræddi hún leyfi til að ráða framkvæmdastjóra fyrir þjóðgarðinn og lagði áherslu á að hann verði ráðinn og hafi búsetu hér á Höfn en ekki í Reykjavík. Þjóðgarðsverðir geti svo búið á öðrum stöðum í og við þjóðgarðinn. Sagði hún að flýta þurfi þessari vinnu.  Einnig ræddi hún samskipti við landeigendur sem land eiga í og við þjóðgarðinn, þau samskipti þurfi að treysta. Þá upplýsti Halldóra að Alcoa – Fjarðaál hyggist styrkja þjóðgarðinn með fjárframlögum. Þau framlög séu hugsuð fyrir allan þjóðgarðinn en ekki ákveðin svæði hans.

Reynir sagði að unnið væri eftir samþykktum sveitarfélagsins um þjóðgarðinn og taldi að bæjaryfirvöld hafi komið sjónarmiðum heimamanna vel á framfæri við ríkisvaldið og greindi meðal annars frá óformlegum fundi hans með umhverfisráðherra.

Halldóra þakkaði upplýsingar Reynis og lagði áherslu að við þurfum að nýta okkur Vatnajökulsþjóðgarð til frekari atvinnuuppbyggingar.

Hjalti greindi frá því að málefni Íslandspósts hafi verið nokkuð lengi til meðferðar hjá bæjaryfirvöldum. Sagði hann fyrirtækið væri nú að skoða þann möguleika að koma húsi fyrir á miðbæjarsvæðinu þar sem þeirra tillögur um nýtingu á síðustu lóð voru ekki samþykktar í byggingar- og skipulagsnefnd. Einnig ræddi Hjalti þjóðgarðsmál og lagði sömu áherslu og aðrir málshefjendur á mikilvægi þjóðgarðsins.

Forseti ræddi málefni Íslandspóst og sagði jákvætt að fyrirtækið væri að skoða aðra byggingarmöguleika á Höfn.

Fundargerð samþykkt.

 Bæjarráð Hornafjarðar 340.fundur  þriðjudaginn 27. júní  2006.

·        Félagsmálaráð Hornafjarðar 147. fundur 20. júní 2006.

Halldóra Bergljót ræddi heimavist fyrir nemendur í Öræfum og fagnaði því að náðst hafi niðurstaða í málinu og að byggt hafi verið á hugmyndum sjálfstæðismanna að úthýsa verkefninu. Þannig væru bæði tryggðir hagsmunir fyrirtækisins sem tekur að sér verkið og sveitarfélagsins sem fær hagstæð kjör. Einnig ræddi hún jarðhitaleit sem hún taldi hafa tekið alltof langan tíma. Óskaði hún eftir upplýsingum frá bæjarstjóra um stöðu málsins.

Reynir ræddi jarðhitaleitina. Taldi hann okkur komin að ákveðnum tímamótum, leitinni væri í reynd lokið og komið að borun eftir vatninu.

Elín tók undir orð Halldóru um heimavistarmál og sagði að gengið hafi verið til samninga við Halldór Sævar Birgisson til eins árs, þ.e. næsta skólaár.

Hjalti greindi frá því að vinnsluhola hafi verið staðsett, fundist hafi 60° C vatn á um 500 metra dýpi. Samningar við RARIK væru í farvatninu og að einnig þurfi að semja við landeigendur sem sé reyndar í verkahring RARIK að gera.

Halldóra spurði hvort þá væri lokið þessari tilraunaborun. Upplýsti bæjarstjóri að svo væri.

Fundargerð samþykkt.

 Bæjarráð Hornafjarðar 341. fundur þriðjudaginn 11. júlí  2006

·        Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 81. fundur 23. júní 2006.

·        Menningarmálanefnd Hornafjarðar 79. fundur 23. júní 2006.

·        Skólanefnd Hornafjarðar 83. fundur 26. júní 2006.

·        Æskulýðs- og tómstundaráð 80. fundur 28. júní 2006.

·        Nefnd um íþróttamannvirki, 18.fundur, 8. júní 2006  og 19. fundur, 26. júní 2006.

·        Húsnæðisnefnd 69. fundur, 4. júlí 2006.

·        Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 22. fundur, 5. júlí 2006.

·        Byggingar- og skipulagsnefnd, 68. fundur,5. júlí 2006.

Halldóra Bergljót ræddi erindi sem sent var félagsmálaráðuneytinu vegna skólaaksturs í Kirkjubæjarskóla. Sagði hún ánægjulegt að fé fáist frá ráðuneytinu til að greiða hluta af aksturskostnaði með nemendur úr Öræfum sem þar stunda nám. Einnig ræddi hún samstarfsnefnd þessara tveggja sveitarfélaga, Skaftárhrepps og Sveitarfélagsins Hornafjarðar, sem hún taldi mikilvægt að koma á eins og samþykkt hafi verið á sameiginlegum fundi sveitarstjórnanna. Þá ræddi hún fjallskilasjóð og óskaði eftir upplýsingum um greiðslur úr sjóðnum. Halldóra ræddi og skipið Akurey, þá fjármuni sem því fylgdu og nauðsynlegt viðhald. Þá ræddi hún atriði úr fundargerð hafnarstjórnar. Hvernig staðan væri í dýpkun hafnarinnar, hvort búið sé að ganga frá samningum í framhaldi af útboði. Þá ræddi hún dýpkun við Austurfjörur og hvers vegna 1000 rúmmetrar hafi verið skildir eftir í 25000 rúmmetra dælingu. Halldóra spurðist og fyrir um seinkun á framkvæmd við Bátstangabryggju. Þá gerði hún að umtalsefni skipan hafnarstjórnar og hæfi einstakra manna til setu í stjórninni, meðal annars þeirra sem tengjast stærsta útgerðarfyrirtæki í sveitarfélaginu að mágsemd og frændsemi. Vitnaði hún máli sínu til stuðnings í sveitarstjórnarlög. Þrátt fyrir að þessi tengsl valdi ekki vanhæfi til setu en geti gert málin ansi snúin á köflum. Óskaði Halldóra eftir því að meirihlutinn skoði þessi mál og spurði hvort skipan hafnarstjórnar væri ekki einum of einsleit.

Hjalti sagði fjallskilasjóð ekki hafa verið í nógu góðum skorðum og unnið væri að því að bæta úr. Lagði hann áherslu á samstarf við bændur um þessi mál. Varðandi samstarf við Skaftárhrepp sagði hann það þurfa að efla, þessi sveitarfélög eigi mörg sameiginleg mál. Hjalti sagði ekki hafa verið nóg að gert við Akurey og greindi frá atriðum sem í skoðun væru. Þá ræddi hann dýpkun hafnarinnar. Sagði hann að bæjaryfirvöldum hafa gramist mjög framgangur málsins og að mikil samskipti haf verið við Siglingastofnun um málið. Dýpkun við Austurfjörur væru um 10000 rúmmetrum meiri en samið hafi verið um við landeigendur vegna lágs kostnaðar pr. rúmmetra. Við Bátsendabryggju hafi dýpkun hafa gengið verr en búsit var við. Hjalti sagði hæfi manna til setu  í nefndum vera eina af grundvallarspurningum stjórnsýslu og lýðræðis. Hjalti sagði mikilvægt að fá lögfræðilegt álit um hæfi manna til nefndarsetu og ákvarðanatöku

Reynir sagði Menningarmiðstöð þurfa að sjá til þess að Akurey fái nægilegt viðhald. Mikilvægt sé að loka ákveðnum opum til að fyrirbyggja slys og óhöpp. Einnig ræddi hann dýpkun hafnarinnar og sagði þetta hafa verið eina tilboðið sem var innan þess ramma sem Siglingastofnun setur. Þá ræddi hann losun þess efnis sem upp er dælt, sagði höfnina ávallt hafa leitað ódýrustu lausna sem eru ekki endilega þær bestu. Þá upplýsti hann að þessir 1000 rúmmetrar hafi orðið eftir þar sem dæluskipið Soffía hafi bilað. Þetta efni væri nú farið. Reynir ræddi hæfi til setu og sagðist oft hafa velt fyrir sér hæfi á langri setu sinni í Hafnarstjórn. Spurði sig hvers vegna þessi spurning væri að koma upp núna.

Halldóra sagðist heyra að bæjarstjóri og aðrir hafa velt fyrir sér hæfi og ítrekaði fyrri orð sín hér á undan. Lagði hún áherslu á það sem er óæskilegt þegar kemur að setu manna og þátttöku í ákvörðunum en þurfi ekki endilega að vera ólöglegt. Sagðist hún hafa rætt þessi mál við lögfræðing Sambands ísl. sveitarfélaga og fengið frá henni munnlegt lögfræðiálit.

Hjalti ítrekaði að hann vildi fá álit lögfræðinga á hæfi en lagði sem fyrr mesta áherslu á traust milli manna.

Árni ræddi dælingu og spurði hvort úthýsing hafi tekist þar vel. Þá ræddi hann hæfi annars vegar og traust hins vegar og sagði mikilvægt að fá lögfræðiálit.

Halldóra lagði áherslu á að þetta væri óæskileg skipan mála en ekki vantraust á einstaka nefndarmenn.  

Fundargerð samþykkt.

 

 

Bæjarráð Hornafjarðar 342. fundur þriðjudaginn 1. ágúst  2006

·         Heilbrigðis- og öldrunarráð 71. fundur 6. júlí 2006.

·         Umhverfisnefnd 59. fundur 10. júlí 2006.

·         Nefnd um íþróttamannvirki 20. fundur 18. júlí 2006.

Teknar fyrir allar fundargerðir nefndar um íþróttamannvirki undir þessum lið.

Guðrún spurðist fyrir hvort röntgentækin sem safnað var fyrir væru tengd og komin í notkun.

Halldóra Bergljót sagðist harma að hafa ekki fengið fundarboð vegna fundar í nefnd um íþróttamannvirki fyrr en of seint. Þá benti hún á fleiri slík dæmi um fundarboð sem berast seint eða ekki. Sagði hún að þetta þurfi að laga. Halldóra sagðist því ekki hafa átt kost á að taka þátt í störfum nefndar um íþróttamannvirki í dag. Óskaði hún meðal annars skýringa á afgreiðslu nefndarinnar í dag, svo sem möguleika á frestun sundlaugarbyggingar um eitt ár, náttúrugras en ekki gervigras á aðalleikvang, og möguleika á hálfum gervigrasvelli. Þá ræddi hún þjónustusamning sem rennur út um næstu áramót. Gerði hún að umtalsefni þá kosti sem fylgja þessum samningi. Óskaði hún eftir hug meirihlutans í þessum málum. Einnig ræddi Halldóra sex mánaða uppgjör og vitnaði í því sambandi í ársskýrslu endurskoðanda vegna reikninga ársins 2005.

Reynir ræddi byggingu íþróttamannvirkja og fundargerð nefndarinnar í dag. Hann sagði að ræða þurfi þessi mál og að hann væri ekki tilbúinn að taka neinar ákvarðanir hér og nú. Benti og á að þessi mannvirki væru mun dýrari n áætlað var í upphafi. Reynir sagði það markmið meirihlutans að gera nýjan þjónustusamning fáist til þess nægt fé frá ríkinu.

Elín sagði ekkert hafa breyst varðandi þjónustusamningana við ríkið, vilji væri til að halda þeim áfram.

Hjalti sagði bæjarstjórn taka ákvörðun um byggingu íþróttamannvirkja, nefndin kæmi fyrst og fremst með tillögur. Þá óskaði hann Ármanni Smára Björnssyni til hamingju með sæti í knattspyrnulandsliðinu. Þá greindi Hjalti frá samskiptum við starfsmenn heilbrigðisráðuneytisins vegna þjónustusamnings og læknamála.

Árni sagði röntgentækin komin og að það tæki um þrjár vikur að koma þeim fyrir. Hann sagði að setja þurfi fullan kraft í vinnu vegna áframhaldandi þjónustusamninga við ríkið um heilbrigðismál og málefni fatlaðra. Þá sagði Árni að sér lítist nokkuð vel á niðurstöður fundar um íþróttamannvirki frá því dag.

Fundargerð samþykkt.

 Fundargerðir  Bæjarstjórnar Hornafjarðar,  101. fundar dags. 30. maí 2006, 102. fundar 15. júní 2006 og 103. fundar fimmtudaginn 5. júlí 2006 áður samþykktar.

2.      Kosningar – þjónustuhópur aldraðra

Borin upp eftirfarandi tillaga:

Jón Kristján Rögnvaldsson, formaður

Maren Sveinbjörnsdóttir

Jóhanna Kristjánsdóttir

Vilborg Einarsdóttir

Ragnhildur Magnúsdóttir

Samþykkt með 5 greiddum atkvæðum, tveir sitja hjá.        

 3.      Fyrirspurnir

Engar fyrirspurnir borist.

Fundi slitið kl. 18:10




Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica