Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 102
102. fundur
Fundur haldinní Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 15. júní 2006, kl. 16.00 í Ekru.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Björn Ingi Jónsson, Gunnar Sigurjónsson, , Reynir Arnarson, Sigurlaug Gissurardóttir, Árni Rúnar Þorvaldsson og Guðrún Ingimundardóttir.
Halldóra B. Jónsdóttir setti fund og bauð fundarmenn velkomna til fyrsta fundar á nýju kjörtímabili. Halldóra las upp fundargerð yfirkjörstjórnar frá 7. júní 2006.
1. Kjör forseta bæjarstjórnar og 2ja varaforseta
Halldóra greindi frá tillögu um Árna Rúnar Þorvaldsson sem forseta bæjarstjórnar. Tillagan samþykkt með 5 greiddum atkvæðum, 2 sitja hjá. Árni tók við fundarstjórn og þakkaði það traust sem honum hafi verið sýnt. Bar nýkjörinn forseti upp tillögu um Reyni Arnarson sem 1. varaforseta og Guðrúnu Ingimundardóttur sem 2. varaforseta. Tillagan var samþykkt með 5 greiddum atkvæðum, tveir sitja hjá. Forsetarnir eru kjörnir til eins árs.
2. Kosning í bæjarráð
Forseti bar upp eftirfarandi tillögu um kjör í bæjarráð til eins árs:
Frá B lista: Reynir Arnarson, til vara: Elín Magnúsdóttir
Frá D lista: Björn Ingi Jónsson, til vara: Halldóra Bergljót Jónsdóttir
Frá S lista: Árni Rúnar Þorvaldsson, til vara: Guðrún Ingmundardóttir
Tillagan samþykkt samhljóða með 7 greiddum atkvæðum
3. Kosning tveggja skrifara og tveggja skrifara til vara
Forseti bar upp eftirfarandi tillögu um skrifara :
Elín Magnúsdóttir til vara Sigurlaug Gissurardóttir,.
Guðrún Ingimundardóttir, til vara Halldóra B. Jónsdóttir
Tillagan samþykkt með 5 greiddum atkvæðum, 2 sitja hjá.
4. Ráðning bæjarstjóra
Forseti lagði fram tillögu meirihlutans í Bæjarstjórn Hornafjarðar þess efnis að Hjalti Þór Vignisson verði ráðinn bæjarstjóri til næstu fjögurra ára. Tillagan samþykkt samhljóða með 7 greiddum atkvæðum. Hjalti bað um orðið og þakkaði það mikla og góða traust sem honum hafi verið sýnt með þessari kosningu. Hann sagði það mikil forréttindi að fá að gegna þessu starfi í sinni heimabyggð.
5. Kosning í nefndir
Forseti lagði fram og las upp tillögu yfir þá sem eru í kjöri til nefnda til fjögurra ára og óskaði eftir athugasemdum fundarmanna. Hann lagði til þá málsmeðferð að kosið verði um tillöguna í heild sinni og var það samþykkt.
Til 4ra ára.
Aðalmenn Varamenn
Atvinnumálanefnd
Lilja Hrund Harðardóttir formaður (B) Gunnar Sigurjónsson (B)
Ásgrímur Ingólfsson varaformaður (B) Gunnar Ingi Valgeirsson (B)
Eiríkur Sigurðsson (S) Erna Gísladóttir (S)
Eyjólfur Guðmundsson (S) Stephen Róbert Johnson (S)
Gauti Árnason (D) Herdís Waage (D)
Byggingar- og skipulagsnefnd
Árni Rúnar Þorvaldsson formaður (S) Erna Gísladóttir (S)
Torfi Friðfinnsson varaformaður (S) Miralem Haseta (S)
Kristinn Óskarsson (B) Aðalsteinn Aðalsteinsson (B)
Gunnar Páll Halldórsson (B) Ólafur Sigurðsson (B)
Björn Ingi Jónsson (D) Páll Ólafsson (D)
Félagsmálaráð
Erna Gísladóttir formaður (S) Margrét Jóhannesdóttir (S)
Björg Svavarsdóttir varaform. (S) Matthildur Ásmundardóttir (S)
Guðrún Jónsdóttir (B) Elísabet Einarsdóttir (B)
Guðmundur I. Sigbjörnsson (B) Jónína Sigurjónsdóttir (B)
Þorbjörg Helgadóttir (D) Sigurbjörg Karlsdóttir (D)
Hafnarstjórn
Reynir Arnarson formaður (B) Sigurður Æ. Birgisson (B)
Ásgeir Gunnarsson varaformaður (B) Þorsteinn Guðmundsson (B)
Halldór Tjörvi Einarsson (S) Guðrún Ingimundardóttir (S)
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir (S) Árni Rúnar Þorvaldsson (S)
Páll Guðmundsson (D) Sigurður Ólafsson (D)
Heilbrigðis- og öldrunarráð
Árni Rúnar Þorvaldsson formaður (S) Eiríkur Sigurðsson (S)
Guðrún Ingimundardóttir (S) Þorbjörg Arnórsdóttir (S)
Ásgeir Gunnarsson varaformaður (B) Elínborg Baldursdóttir (B)
Aðalsteinn Ingólfsson (B) Lilja Hrund Harðardótir (B)
Björk Pálsdóttir (D) Vignir Júlíusson (D)
Húsnæðisnefnd
Guðrún Ingimundardóttir, formaður (S) Kristín G. Gestsdóttir (S)
Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir, varaform. (B) Reynir Gunnarsson (B)
Einar Karlsson (D) Halldóra B. Jónsdóttir (D)
Kjörstjórn
Jón S. Friðriksson, formaður (D) Friðrik Jónas Friðriksson (D)
Anna Halldórsdóttir (B) Hermann Stefánsson (B)
Svava Kr. Guðmundsdóttir (S) Ástríður Sveinbjörnsdóttir (S)
Menningarmálanefnd
Hermann Hansson formaður (B) Hafdís Roysdóttir (B)
Guðlaug Hestnes (B) Aðalheiður F. Björnsdóttir (B)
Guðrún Ingimundardótir varaformaður (S) Pálína Benediktsdóttir (S)
Ingvar Þórðarsson (S) Eyjólfur Guðmundsson (S)
Gauti Árnason (D) Sædís Guðmundsdóttir (D)
Skólanefnd
Elín Magnúsdóttir formaður (B) Gísli Már Vilhjálmsson (B)
Gunnar Sigurjónsson varaformaður (B) Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir (B)
Torfi Friðfinsson (S) Stephen Róbert Johnson (S)
Anna María Ríkharðsdóttir (S) Ingibjörg Ævarr Steinsdóttir (S)
Sigríður Kristinsdóttir (D) Bryndís Hólmarsdóttir (D)
Umhverfisnefnd
Sigurlaug Gissurardóttir formaður (B) Þórey Bjarnadóttir (B)
Þóra V. Jónsdóttir, varaformaður (B) Björn Arnarson (B)
Erna Gísladóttir (S) Sævar Kristinn Jónsson (S)
Stephen Róbert Johnson (S) Miralem Haseta (S)
Valdemar Einarsson (D) Einar Karlsson (D)
Æskulýðs- og tómstundaráð
Matthildur Ásmundardóttir formaður (S) Miralem Haseta (S)
Helga Lucia Bergsdóttir varaformaður (S) Sigþór Jónsson (S)
Helga Vilborg Sigjónsdóttir (B) Svala Bryndís Hjaltadóttir (B)
Björn Sigfinnsson (B) Maríanna Jónsdóttir (B)
Sindri Ragnarsson (D) Gestur Halldórsson (D)
Ritnefnd Skaftfellings
Guðbjartur Össurarson (B)
Snorri Aðalsteinsson (D)
Zophonías Torfason (S)
Almannavarnarnefnd
Ólafur Sigurðsson Björn Ingi Jónsson
Jón Malmquist Friðrik Jónas Friðriksson
Auk þess eiga sæti í nefndinni skv. lögum:
Sýslumaður.
Bæjarstjóri.
Bæjartæknifræðingur.
Yfirlæknir.
Slökkviliðsstjóri.
Tillagan samþykkt samhljóða með 7 greiddum atkvæðum. Forseti gerði þá grein fyrir að þjónustuhópur aldraðra verði myndaður síðar.
Forseti lagði fram og las upp tillögu yfir þá sem eru í kjöri til nefnda til eins árs og óskaði eftir athugasemdum fundarmanna. Hann lagði til þá málsmeðferð að kosið verði um tillöguna í heild sinni.
Til eins árs
Skoðunarmenn reikninga bæjarsjóðs
Unnsteinn Guðmundsson (D) Eyjólfur Guðmundsson (S)
Guðbjartur Össurarson (B) Hermann Hansson (B)
Heilbrigðisnefnd Austurlands
Björn Emil Traustason Guðrún Ingimundardóttir
Fulltrúar á Landsþing sambands íslenskra sveitarfélaga
Reynir Arnarson (B) Halldóra B. Jónsdóttir (D)
Árni Þorvaldsson (S) Elín Magnúsdóttir (B)
Fulltrúar á aðalfund SSA
Reynir Arnarson (B) Ásgrímur Ingólfsson (B)
Elín Magnúsdóttir (B) Lilja Hrund Harðardóttir (B)
Sigurlaug Gissurardóttir (B) Gunnar Sigurjónsson (B)
Árni Rúnar Þorvaldsson (S) Erna Gísladótir (S)
Guðrún Ingimunardóttir (S) Stephen Robert Johnson (S)
Halldóra B. Jónsdóttir (D) Björk Pálsdóttir (D)
Björn Ingi Jónsson (D) Einar Karlsson (D)
Hjalti Þór Vignisson Stefán Ólafsson
Fulltrúi í fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands
Ólafur Sigurðsson Hjalti Þór Vignisson
Samþykkt samhljóða með 7 greiddum atkvæðum.
Forseti óskaði eftir fleiri uppástungum fundarmanna varðandi nefndarkjör, engar komu fram.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykktsamhljóða með 7 greiddum atkvæðum.
Halldóra Bergljót kvaddi sér hljóðs og bauð nýjan bæjarstjóra velkominn til starfa. Hún sagði að nú hafi verið myndaður nýr meirihluti Framsóknarflokks og Samfylkingar og því vilji Sjálfstæðismenn leggja fram eftirfarandi bókun:
Við Sjálfstæðismenn ætlum að leggja öllum góðum málum lið á komandi kjörtímabili, en jafnframt munum við veita meirihlutanum gott aðhald. Við munum jafnframt leggja ríka áherslu á að gæta þess að haft séu í heiðri hæfi einstakra bæjarfulltrúa meirihlutans í einstökum málum þar sem tengsl þeirra við einstakar stofnanir og fyrirtæki í sveitarfélaginu virðast vera einstaklega mikil.
Við höfum nú fengið í hendur málefnasamning nýs meirihluta og þar kemur ekkert fram sem við erum ósammála. En nokkur mikilvæg málefni sem okkur finnst vanta skýra stefnu um. Má þar nefna þjónustusamninga vegna málefna fatlaðra og heilbrigðis- og öldrunarþjónustu.
Við Sjálfstæðismenn greiðum atkvæði með ráðningu Hjalta Þórs Vignissonar í starf bæjarstjóra. Við leggjum áherslu á að bæjarstjóri er ekki eingöngu að starfa fyrir meirihluta heldur alla bæjarbúa hvar sem í flokki þeir standa.
Við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í munum hafa það að leiðarljósi að vinna að heilindum fyrir okkar samfélag á nýbyrjuðu kjörtímabili þrátt fyrir að við séum nú í minnihluta í bæjarstjórn.
Fleira ekki gert,
Fundi slitið kl.16:30


