Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 98

98. fundur

Fundur haldinn í Ekru fimmtudaginn 6. apríl 2006 kl. 16:00.

Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, forseti, Björk Pálsdóttir, Björn E. Traustason, Reynir Arnarson, Þóra V. Jónsdóttir, Friðrik Þór Ingvaldsson og Kristín G.Gestsdóttir.

Einnig Albert Eymundsson, bæjarstjóri og Helgi Már Pálsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.

1. Fundargerðir

Bæjarráð Hornafjarðar 326. fundur föstudaginn 24. febrúar 2006.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 327. fundur fimmtudaginn 2. mars 2006.

· Atvinnumálanefnd 22. fundur, 21. febrúar 2006.

· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 75. fundur 20. febrúar 2006.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 328. fundur fimmtudaginn 16. mars 2006.

· Félagsmálaráð Hornafjarðar, 141. fundur, 28. febrúar 2006.

· Nefnd um íþróttamannvirki, 10. fundur, 2. mars 2006; 11, fundur, 9. mars 2006.

· Umhverfisnefnd Hornafjarðar, 56.fundur, 6. mars 2006.

· Menningarmálanefnd, 76. fundur, 8. mars 2006.

Björk Pálsdóttir tók til máls og benti á slæma umgengni við lóðir fyrirtækja og spurðist fyrir um Vatnajökulsþjóðgarðinn s.s. höfuðstöðvar, þjónustumiðstöðvar. Einnig spurði hún um rekstrartölur vegna Nýheima.

Þóra V. Jónsdóttir ræddi um Þorbergssetur og spurði um fjárhagslegan stuðning við það og sat hjá við afgreiðslu fundargerðarinnar. Friðrik Ingvaldsson tók undir mál Bjarkar vegna umgengni á lóðum fyrirtækja og hvatti til hreinsunarátaks í þessum efnum. Sama gilti um einkalóðir. Hann spurði einnig um vegstæðið yfir Hornafjarðarfljót og nýjar aðferðir vegna álagningar á lóðum frá Fasteignamati ríkisins.

 Forseti svaraði Björk vegna Vatnajökulsþjóðgarðs hvað varðaði rekstrar- og viðhaldsframlag, sem er um 20 mkr. og hún telur allt of lágt miðað við stærð. Höfuðstöðvar voru samþykktar 2002 af sveitarstjórn þar sem gert var ráð fyrir að yfirstjórn þjóðgarðsins verði hér á Höfn og stefna ber að því áfram. Hún tók undir orð Bjarkar og Friðriks með umgengi á fyrirtækjalóðum. Hvað aðalskipulag varðar þá væri fyrirhugaður almennur borgarafundur með Vegagerðinni í kvöld þar sem farið yrði yfir þessi mál. Varðandi Þórbergssetur þá taldi hún að úthýsing á verkefnum, líkt og þar væri gert með þjónustusamningi við setrið, væri af hinu góða og stuðlaði að aukinni atvinnuuppbyggingu.

Bæjarstjóri svaraði spurningu Friðriks um lóðarálagningarreglur frá Fasteignamati ríkisins. Þar væri verið að færa starfshætti nær nútímanum með rafrænum hætti þannig að lóðir geta skráðst mánaðarlega. Hann tók undir með athugasemdum við atvinnulóðir, en á hverju ári er gert átak í hreinsun á fyrirtækja- og einkalóðum. Hvað Nýheima varðar þá er um að ræða tölur frá eignarsjóð þar sem verið er að aðlaga rekstrartölur að nýjum reglum og hlutfallstölur því ekki raunhæfar.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 329. fundur fimmtudaginn 23. mars 2006.

· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 76. fundur 16. mars. 2006.

· Heilbrigðis- og öldrunarráð, 69. fundur, 15. mars 2006.

· Stjórn Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs, 28. fundur 15. mars 2006.

· Fundargerðir stýrihóps vegna skólastefnu

· Heilbrigðisnefnd Austurlands, 60. fundur, 8. mars 2006,til kynningar.

Björn Traustasonar lagði fram bókun við lið 3. Friðsæld, í fundargerð 76. fundar hafnarstjórnar :

„Vegna tillögu hafnarstjórnar og staðfestingar bæjarráðs á 329. fundi 23. mars s.l. á samkomulagi við eiganda Dynjanda um umferðarrétt vegna malartekju úr Friðsæld fyrir Hornafjarðarhöfn vill ég að fram komi að ég er mótfallinn þessum samningi og greiddi atkvæði gegn honum í hafnarstjórn. Þess vegna tek ég ekki þátt í afgreiðslu þessa liðar í fundargerð bæjarráðs “

Björk gerði athugasemd við dreifingu á gögnum fyrir bæjarráð. Hún lýsti einnig yfir skoðun sinni hvað varðar sameiningu grunnskólanna í skólastefnu sveitarfélagsins, en þar er ekki gert ráð fyrir að sameina eigi leikskólana.

Björn Traustason gerði grein fyrir afgreiðslu sinni hvað varðar málsmeðferð um malarnám í Friðsæld. Hann taldi að leysa þurfti málið með stuttum fyrirvara í hafnarstjórn og hann hafi brugðist við því. Hann hafi ekki tekið þátt í afgreiðslu málsins í bæjarráði.

Þóra V. Jónsdóttir lýsti yfir ánægju sinni vegna flutnings á dvalarheimili á Skjólgarði og eldhúsi þess. Hvað varðar Friðsæld telur hún ekkert athugavert við afgreiðslu málsins.

Friðrik Ingvaldsson spurðist fyrir um rekstur og læknamál hjá HSSA. Hann spurði einnig um stöðu Háskólasetursins hér á Höfn og framtíð þess og fjáröflun á rekstri Jöklasýningarinnar.

Kristín G Gestsdóttir lýsti yfir skoðun sinni vegna skólastefnunnar. Samstöðu skortir vegna sameiningar á leikskólum, en hún telur ekki rétt að sameina leikskólana undir eina stjórn í dag.

Forseti ræddi um skólastefnu sveitarfélagsins og tók undir orð Bjarkar um sameinigu leikskólanna. Hún ræddi um malarnám í Friðsæld og lagði fram eftirfarandi bókun við lið 3. Friðsæld, í fundargerð 76. fundar hafnarstjórnar :

 “Í framhaldi af samkomulagi sem gert hefur verið vegna umferðarréttar í malarnám í Friðsæld vegna framkvæmda við Bátstangabryggju vill undirrituð taka fram eftirfarandi: Mér finnst algjörlega óásættanlegt að þurfa að staðfesta samkomulag sem ég hafði ekki hugmynd um að væri verið að gera og því engin tök á að hafa áhrif á málið. Þegar samkomulagið var lagt fyrir bæjarráð til samþykktar, hafði verið unnið eftir því í a.m.k. viku og það hlotið staðfestingu Siglingastofnunar. Gerður hafði verið samningur við verktaka vegna Bátstangabryggju og verkið hafið. Í ljósi þess, var ekki æskilegt að setja verkið í uppnám með því að hafna staðfestingu á samkomulaginu. En þar sem ég tel að forsendur samkomulagsins gætu haft fordæmisgildi óska ég eftir að leitað verði álits fleiri sérfræðinga á samkomulaginu. Tel ég mig ekki bundin af fordæmisgildi vegna þessa samkomulags. Skýra þarf betur, að mínu mati, hvaða reglur eiga gilda vegna umferðarréttar að landi. Þar sem samkomulag þetta tekur eingöngu til efnistöku 6000 rúmmetra af möl þarf að huga hið fyrsta að möguleikum á efnistöku í sveitarfélaginu bæði fyrir sveitarfélagið og ekki síður fyrir einkaaðila sem þurfa á möl að halda. “

Hvað varðaði málefni HSSA þá hefði framkvæmdarstjóri fyrr um daginn gert grein fyrir stöðu mála og ljóst væri að læknamál væru í ólestri.

Reynir Arnarson ræddi um Leikskólana og minnti á niðurstöðu skólamálaþings sem haldið hefði verið hér fyrir nokkru síðan, þar sem niðurstaðan var, að reka ætti tvo sjálfstæða leikskóla á Höfn, einnig kom fram að vinnuhópur um endurskoðun skólastefnu hefði komist að sömu niðurstöðu. Þá ræddi hann um framkvæmdir við Bátstangabryggju og efnistöku vegna hennar og hann taldi að rétt hefði verið staðið að málum vegna malarnáms í Friðsæld, en það hefði verið unnið eftir ráðgjöf frá lögfræðingi sveitarfélagsins.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir fjármálum Jöklasýningar og greindi frá því að búið væri að ráð mann til starfa hjá Háskólasetrinu. Hann fór yfir framgang mála vegna malarnáms í Friðsæld. Farið hafi verið eftir kröfum eiganda námunnar sem er Landbúnaðarráðuneytið og málið hafi verið unnið samkvæmt ráðleggingum lögfræðings sveitarfélagsins. Málsmeðferðin væri síðan annað mál sem hann taldi ekki rétt að svara hér á þessum fundi. Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 330. fundur fimmtudaginn 30. mars 2006.

· Skólanefnd Hornafjarðar 80. fundur 22. mars 2006.

· Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 76. fundur 27. mars 2006

· Nefnd um íþróttamannvirki 12. fundur 22. mars 2006 og 13. fundur 29. mars 2006.

· Stjórn Sambands ísl. Sveitarfélaga 732. fundur 24. febrúar 2006.

Björn Emil Traustason ræddi um möguleika á þyrlusveit hér á staðinn. Þeim myndi fylgja fjórir læknar.

Þóra V. Jónsdóttir fagnaði þeirri um hugmyndir um að heimavistin í Nesjum verði færð út á Höfn. Hún taldi einnig að skortur væri á plássi fyrir heimavist vegna Framhaldsskólans og það gæti staðið honum fyrir þrifum.

Reynir Arnarsson tók undir með Birni vegna þyrlusveitar, en málið væri e.t.v ekki raunhæfur kostur án þess að útiloka neitt. Hvað varðar heimavist var hann sammála Þóru. Hann benti á að eins og málum væri háttað þá væri sjálfhætt með heimavistina.

Björk Pálsdóttir spurðist fyrir um fjölda barna á heimavist

Kristín G Gestsdóttir ræddi um heimavistina og taldi það akkilesarhæl þessarar bæjarstjórnar að hafa ekki leyst það mál, brýnt væri að taka á málinu þannig að allir gætu vel við unað.

Þóra V. Jónsdóttir greindi frá því að börn byggju bæði hjá ættmennum og út í bæ með þeim kostum, göllum og kostnaði sem af því hlýst. Forseti upplýsti að um 4 – 6 börn væru á heimavist.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir bréfi Flugmálastjórnar en þar kom fram að lega veglínunnar yfir Hornafjarðarfljót hafi ekki áhrif á lengingu flugbrautar eða staðsetningu þverbrautar. Hann gerði grein fyrir erindu sínu vegna staðsetningu á þyrlusveit hér á Höfn. Ekki væri rétt að telja þetta raunhæfa möguleika.

 Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 331. fundur föstudaginn 31. mars 2006. Fundargerð samþykkt.

Bæjarstjórn Hornafjarðar 96. fundur mánudaginn 27. febrúar áður samþykkt og 97. fundur fimmtudaginn 24. mars 2006.

2. Íþróttamannvirki – sundlaug

Forseti bar upp til atkvæðargreiðslu fyrirliggjandi tillögu ASK arkitekta, dags. 29. mars. s.l og að heildarkostnaður við framkvæmdina verði allt að kr. 330 mill. Samþykkt samhljóða. 3. Reglur um námstyrki Forseti bar upp til atkvæðagreiðslu framlagðar reglur um námsstyrki. Samþykkt samhljóða.

4. Fyrirspurnir

Engar.

Fundi slitið kl. 18:00




Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica