Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 100
100. fundur
Fundur haldinn í Ekru fimmtudaginn 11. maí 2006 kl. 16:00.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, forseti, Einar Karlsson, Björn E. Traustason, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir, Ólafur Sigurðsson og Kristín G. Gestsdóttir.
Einnig Albert Eymundsson, Ásta H. Guðmundsdóttir , Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar 332. fundur miðvikudaginn 6. apríl 2006.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 143. fundur 28. mars 2006.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 57. fundur 3. apríl 2006.
· Æskulýðs- og tómstundaráð 77. fundur 27. mars 2006.
Kristín G. Gestsdóttir tók undir bókun bæjarráðs varðandi slæma stöðu hér í læknamálum.
Reynir tekur undir orð Kristínar.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 333. fundur miðvikudaginn 19. apríl 2006.
· Almannavarnarnefnd Hornafjarðar 29. fundur, 5. apríl 2006.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 334. fundur fimmtudaginn 27. apríl 2006.
· Byggingar- og skipulagsnefnd 65. fundur, 18. apríl 2006.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 76. fundur 24. apríl 2006.
· Menningarmálanefnd 77. fundur 24. apríl 2006 ? óundirrituð.
· Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 733. fundur dags. 24. mars 2006
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 335 fundur fimmtudaginn 4. maí 2006.
· Skólanefnd Hornafjarðar 81. fundur 27. apríl 2006.
Fundargerð samþykkt.
2. Breytingar á aðalskipulagi vegna Hvannabrautar 3-5
Lögð fram tillaga dagsett 11. maí 2006.
Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir samhljóða framlagða tillögu.
3. Vegstæði yfir Hornafjarðarfljót
Lögð fram tillaga um vestæði yfir Hornafjaðarfljót dags. 11. maí 2006.
Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir leið nr. 3, tillögu Vegagerðarinnar með þeim breytingum sem bæjarsrjórn hefur gert á tillögunni, merkt með rauðri punktalínu, sbr. meðfylgjandi kort. Samþykkt með 6 atkvæðum, einn sat hjá.
4. Ársreikningar 2005 - fyrri umræða
Bæjarstjóri fylgdi ársreikningunum úr hlaði og kom m.a. eftirfarandi fram í máli hans.
Helstu niðurstöður A-hluta sveitasjóðs :
Skatttekjur námu 876,5 m.kr. sem er um 58,2 m.kr. hærra en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Skýringin er hærra framlag úr Jöfnunarsjóði sveitafélaga. Rekstur fyrir fjármagnsliði námu um 940 m.kr. Fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir um 915 m.kr. Mismuninn er fyrst og fremst vegna launa og uppfærslu lífeyrisskuldbindinga .
Niðurstaða A-hluta sveitarsjóðs er jákvæð um 105,5 m.kr. en þar eru reiknaðar afskriftir, verðbætur og reiknaðar lífeyrisskuldbindingar upp á 46,5 m.kr. Veltufé frá rekstri er því um 196 m.kr. Handbært fé í árslok er 118,5 m.kr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 117.8 m.kr. Greiðslubyrði vegna langtímaskuldbindinga er rúmlega 111,8 m.kr. Langtímaskuldir A-hluta bæjarsjóðs eru 565,8 m.kr. í árslok og minnka á milli ára um 71,2 m.kr.
Fjárfrekustu málaflokkar eru:
- Fræðslumál um m.kr. sem er 470 m.kr. sem er um 54,1% af skatttekjum
- Sameiginlegur kostnaður um 68,3 m.kr. sem er um 8,2% af skatttekjum
- Æskulýðs og íþróttamál um 61,4 m.kr. sem er um 7,2% af skatttekjum
- Félagsmál eru um 43,9 m.kr. sem er um 4,5% af skatttekjum
- Menningarmál eru um 34 m.k.r sem er um 3,9% af skatttekjum
Framkvæmdir og fjárfestingar eru:
- Jöklasýning 20,0 m.kr.
- Kaup á hlutafé 1,7 m.kr.
- Íþróttavellir 4,8 m.kr.
- Götur 47,8 m.kr.
- Gólf í íþróttahús 8,8 m.kr.
- Ný sundlaug 1,0 m.kr.
- Bifreið 0,3 m.kr.
Helstu niðurstöður B-hluta sveitarsjóðs og HSSA:
Hornafjarðarhöfn. Tekjur eru tæpar 97,6 m.kr. gjöldin eru um 75,72 m.kr. Fjármagnsgjöld eru um 4,9 m.kr., þannig að tekjur umfram gjöld eru um 17,1 m.kr. Fjárfestingar á árinu námu um 89,8 m.kr. en hluti hafnarinnar er rúmlega 31,0 m.kr.
Félagslega íbúðakerfið. Tekjur eru um 23,8 m.kr. Rekstrargjöld námu 5,3 m.kr. Fjármagnsgjöld eru um 18,6 m.kr. þannig að halli er um 0,1 m.kr. þess skal getið að rekstrarframlag fékkst úr Varasjóði húsnæðismála um 3,8 m.kr og sveitarsjóður veittir framlag 2,8 m.kr. Uppfærsla langtímalána voru um 13 m.kr. og afborganir um 19,3 m.kr. Ein fasteign var seld úr kerfinu og keyptur var búseturéttur í tveim íbúðum í Ekru.
Vatnsveita Hornafjarðar. Heildartekjur námu um 25 m.kr., rekstrargjöld og afskriftir voru 15,6 m.kr., fjármunagjöld 10,1 m.kr., halli var því um 0,8 m.kr. Upphæð reiknaðra afskrifta og verðbóta námu um 9,36 m.kr. Fjárfestingar vegna vatnsveitu námu um 3,2 m.kr. og vegna fráveitu um 26,7 m.kr.
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands. Heildartekjur námu 315,2 m.kr. og rekstrargjöld voru 311,5 m.kr. Fjármunakostnaður var rúmlega 0,2 m.kr. Tekjur umfram gjöld námu því rúmlega 4 m.kr. ójafnað tap stofnunarinnar nemur um 15,3 m.kr.
Bæjarstjóri gerði að umtalsefni atriði sem fram koma í endurskoðunarskýrslu Lárusar Finnbogasonar hjá Deloitte m.a. ábendingum um það sem betur má fara, aðvörunarorðum um mikilvægi þess að standa stöðugt vaktina varðandi innra eftirlit og fjármálastjórnun almennt þó svo að uppgjör ársins 2005 sýni mjög svo bætta fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. Í skýrslunni stendur m.a. ?Við teljum að allar kennitölur beri með sér trausta fjárhagsstöðu og rekstur.
Reynir Arnarson þakkar bæjarstjóra fyrir hans yfirferð og gleðst yfir því að afkoma bæjarsjóðs er góð og að nettóskuldir hafi lækkað á tímabilinu og þakkar starfmönnum velunninn störf. Björn E. Traustason tekur undir og sérstaklega þakkar hann bæjarstjóra fyrir vel unninn störf, einnig þakkar hann starfsmönnum.
Einar Karlsson lagði fram eftirfarandi bókun f.h. meirihlutans:
Ársreikningur sveitarsjóðs og tengdra fyrirtækja fyrir árið 2005 sýnir að afkoma ársins er betri en áætlanir gerðu ráð fyrir sem nemur um 100 m.kr. Á kjörtímabilin hefur meirihluti bæjarstjórnar náð þeim megin markmiðum sínum að lækka nettóskuldir verulega og auka rekstrarafgang sveitarfélagsins á kjörtímabilinu. Starfsfólki sveitarfélagsins svo og öðrum sem komið hafa að málum eru færðar þakkir fyrir vel unnin störf nú við lok kjörtímabilsins.
Kristín G. Gestsdóttir þakkar fyrir greinargóðar skýringar á ársreikningi og þakkar einnig starfsfólki sveitarfélagsins fyrir velunninn störf og sérstaklega forstöðumönnum fyrir góðan rekstur. Sagði hún að aukaframlag úr Jöfnunarsjóði hjálpi til við góða stöðu sveitarfélagsins.
Reynir Arnarson gerir ekki lítið úr framlögum Jöfnunarsjóðs en aðhald er grundvöllur að góðum rekstri.
Bókunin samþykkt með sex atkvæðum einn sat hjá.
5. Fyrirspurnir
Fyrirspurnir engar en undir þessum lið tóku eftirfarandi aðilar til máls.
Elín Magnúsdóttir lagði fram eftirfarandi tillögu:
Í tilefni þess að þessi bæjarstjórnarfundur er sá 100. í sveitarfélaginu Hornafirði samþykkir bæjarstjórn að veita kr. 500.000.- Til kaupa á rampi fyrir hjólabretti sem settur verður niður á miðbæjarsvæðinu.
Tillagan samþykkt samhljóða.
Einnig þakkar Elín Alberti Eymundssyni fyrir hönd framsóknarmanna í bæjarstjórn fyrir samstarfið á liðnum árum og óskar hounm og fjölskyldur hans velfarnaðar í framtíðinni
Halldóra B. Jónsdóttir tók til máls og sagði m.a.
Þar sem Albert Eymundsson hefur óskað eftir að láta af störfum bæjarstjóra þann 25. maí n.k. er ljóst að þetta er síðasti bæjarstjórnarfundurinn sem hann situr a.m.k. í bili. Albert hóf störf sem bæjarstjóri í mars árið 2000 og hefur því verið bæjarstjóri í rúmlega 6 ár. En eins og flestum er kunnugt á Albert langan feril að baki í félagsmálum og pólitík hér á Hornafirði. Ég vil því fyrir hönd bæjarstjórnar nota tækifærið og þakka honum fyrir hans fjölmörgu störf í þágu þessa samfélags og óska honum og fjölskyldu hans velfarnaðar í framtíðinni.
Albert Eymundsson bæjarstjóri þakkar fyrir hlý orð í hans garð og sagði m.a.
Fyrir sex árum eða árið 2000 tók ég að mér starf bæjarstjóra Hornafjarðar og var endurráðinn aftur árið 2002 þ.e. þetta kjörtímabil.
Ég sagði á fyrsta fundi mínum að það væru forréttindi fyrir einstakling eins og mig að fá svona tækifæri þar sem hugsjónir mínar hafa alla tíð snúist um að vinna samfélaginu í þessu héraði eitthvert gagn. Það hef ég reynt að gera eftir bestu samvisku og getu en það er annarra að dæma um árangurinn. Niðurstöður sem ég kynnti með ársreikningum og yfirlit yfir kjörtímabilið ásamt umsögn endurskoðanda sýnir að ég má vera sáttur við viðskilnað minn. Þegar ég tók við starfinu var ég meðvitaður um að því fylgdu góðar og gefandi stundir en jafnframt krefjandi á köflum og jafnframt að búast mætti við andstreymi því aldrei væri hægt gert svo að öllum líki. Samt tel ég mig hafa komist nokkuð vel af í samskiptum mínum við íbúa héraðsins og er þakklátur fyrir það umburðarlyndi sem mér hefur verið sýnt í starfinu.
Þetta verður síðasti bæjarstjórnarfundurinn sem ég sit sem bæjarstjóri og vil ég því fá að nota tækifærið og flytja öllum sem ég hef átt samstarf og samskipti við bestu þakkir. Sérstaklega vil ég þakka samstarfsfólki mínu í ráðhúsinu sem ég hef mest umgengist í daglegum störfum svo og fulltrúum í bæjarstjórn og nefndum sveitarfélagsins.
Ég er ekki síður bjartsýnn á framtíð héraðsins nú og ég hef alltaf verið. Hver sem þróun mála verður þá mun þrífast hér gott samfélag í fallegu umhverfi þar sem öllum á að geta liðið vel.
Fundi slitið kl: 17:40


