Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 96

96. fundur

Fundur haldinn í Hofgarði, mánudaginn 27. febrúar 2006 kl. 18:00. Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, forseti, Einar Karlsson, Björn E. Traustason, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, Ólafur Sigurðsson og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson, Stefán Ólafsson og Hjalti Þór Vignisson.

1. Fundargerðir

Bæjarráð Hornafjarðar 319. fundur 19. janúar 2006.

· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 74. fundur 11. janúar 2006.

Forseti spurði um hvernig vinnu miðaði við endurskoðun á reglum um fjárhagsaðstoð til einstaklinga á aldrinum 18-24 ára sem stunda nám í framhaldsskóla.

Bæjarstjóri upplýsti að félagsmálastjóri hafi safnað gögnum um málið og væri búið að dreifa þeim til fulltrúa í félagsmálaráði. Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 320. fundur 26. janúar 2006.

· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 73. fundur 19. janúar 2006.

· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 67. fundur ásamt fundargerð stjórnar Gjafa og minningarsjóðs Skjólgarðs 26. fundar 18. janúar 2006.

· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 54. fundur 16. janúar 2006.

· Nefnd um íþróttamannvirki, 5. fundur 18. janúar 2006.

Reynir Arnarson ræddi um skýrslu Páls Imsland um Álaugarey og kvikmyndaefni Rafns Eiríkssonar. Þá spurði hann um hvernig mál standa varðandi malarnám í Friðsæld. Bæjarstjóri upplýsti að ákveðnar deilur hafi átt sér stað varðandi Friðsæld en verið sé að vinna að lausn með það að markmiði að skriflegir samningar liggi fyrir um nýtingu á námunni. Forseti ræddi um flutningi á eldhúsi á hjúkrunarheimilið og breytingar á Mjallhvíti og lýsti yfir ánægju með framkvæmdirnar.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 321. fundur 2. febrúar 2006.

· Almannavarnanefnd Hornafjarðar 28. fundur 25. janúar 2006.

· Félagsmálaráð Hornafjarðar 137. fundur 13. desember 2005 og 138. fundur 10.

· Skólanefnd Hornafjarðar 78. fundur 25. janúar 2006.

· Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 75. fundur 23. janúar 2006.

· Haust 59. fundur 18. janúar 2006

Reynir Arnarson ræddi um fuglaflensu og spurði um viðbrögð ef flensan berst á svæðið. Forseti ræddi um fund með Flugmálastjórn og fyrirhugaðar framkvæmdir á flugvellinum. Bæjarstjóri upplýsti um samtal sitt við smitsjúkdómalækni. Jafnframt benti bæjarstjóri á heimasíðu landlæknis þar sem upplýsingar liggja fyrir um fuglaflensu.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 322. fundur 3. febrúar 2006.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 323. fundur 9. febrúar 2006.

· Félagsmálaráð Hornafjarðar 139. fundur 31. janúar 2006.

· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 65. fundur 31. janúar 2006.

Kristín gerði Norðurljósaverkefnið að umtalsefni og spurði um framhald verkefnisins. Þá spurði hún um hvort sveitarstjórn ætlaði að vinna áfram málefnum tónlistarnema sem stunda nám fjarri heimabyggð.

Reynir Arnarson spurði um hvernig hafi gengið að selja þau ærgildi sem sveitarfélagið átti.

Bæjarstjóri upplýsti um vaxandi áhuga á norðurljósaferðum, innan lands og utan. Þá gerði hann grein fyrir að félagsmálaráðuneytið hafi nýverið úrskurðað um að ákvörðun sveitarstjórnar varðandi tónlistarnám fjarri heimabyggð sé gild. Málinu þurfi hins vegar ekki að vera lokið þar sem enn sé möguleiki á að kæra ákvörðunina til umboðsmanns Alþingis.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 324. fundur 15. febrúar 2006.

· Byggingar- og skipulagsnefnd 64. fundur, 8. febrúar 2006.

· Hafnarstjórn 74. fundur, 9. janúar 2006. · Menningarmálanefnd Hornafjarðar 75. fundur, 8. febrúar 2006.

· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 55. fundur, 6. febrúar 2006.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 325. fundur 23. febrúar 2006.

· Félagsmálaráð, 140. fundur, 14. febrúar 2006 · Heilbrigðis- og öldrunarráð, 68. fundur 15. febrúar 2006.

· Gjafasjóður Skjólgarðs, 28. fundur 15. febrúar 2006 – lagt fram á fundinum.

· Nefnd um íþróttamannvirki, 4. fundur 5. janúar 2006, 6. fundur 2. febrúar 2006, 7. fundur 7. febrúar 2006, 8. fundur 9. febrúar og 9. fundur 16. febrúar 2006.

· Skólanefnd Hornafjarðar 79. fundur 22. febrúar 2006.

Kristín spurði um ástæður þess að ákvörðun um skipurit HSSA hafi verið frestað.

Bæjarstjóri greindi frá því að aðilar hafi viljað fá lengri tíma til að ganga frá skipuritinu.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarstjórn Hornafjarðar 95. fundur 19. janúar 2006 áður samþykkt.

2. Breytingar á aðalskipulagi

Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði. Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir að lóðum við Hvannabraut 3 – 5 verði breytt úr íbúðarsvæði í verslunar- og þjónustusvæði. Lóðin er um 1.840 fermetrar og á henni hefur hin síðustu ár verið starfrækt dvalarheimili fyrir aldraða á vegum sveitarfélagsins.

Breytingin er tilkomin þar sem sveitarfélagið hefur ákveðið að leggja niður núverandi starfsemi og í framhaldi af því verði möguleiki að á fyrrnefndum lóðunum verði möguleiki að starfrækja gistiheimili. Tilgangur með aðalskipulagsbreytingunni er að auka fjölbreytni og gistimöguleika í ferðaþjónustu á svæðinu og skapa um leið aukningu í verslun, þjónustu og atvinnu fyrir íbúa héraðsins. Ferðamennska skiptir sveitarfélagið Hornafjörð miklu máli. Ekki er talið að nein neikvæð umhverfisáhrif hljótist af breytingunni heldur skapi frekar jákvæð áhrif á mannlíf á svæðinu.

3. Sundlaugarmannvirki

Forseti ræddi um þær tillögur sem fram eru komnar vegna uppbyggingar nýrrar sundlaugar. Þá gerði forseti grein fyrir því að fyrstu áætlanir um fjárþörf hafi ekki verið raunhæfar og gera þurfi ráð fyrir auknum fjármunum í framkvæmdir. Að lokum ræddi forseti um að hægt væri að áfangaskipta framkvæmdum.

Kristín Gestsdóttir spurði um útfærslu á áfangaskiptum og lagði áherslu á mikilvægi þess að ný sundlaug henti vel fyrir skólasund.

Reynir Arnarson sagði að ekki ætti að hvika frá því að reisa nýja sundlaug. Hann lýsti yfir stuðningi sínum við að nefnd um íþróttamannvirki vinni áfram að málum í samræmi við þær tillögur sem fyrir liggja. Forseti greindi frá hugmyndum framkvæmdanefndarinnar, t.d. að lögð sé áhersla á að mannvirkin nýtist sem best fyrir alla. Reynir ræddi um áfangaskiptingu á framkvæmdum.

Kristín Gestsdóttir lýsti yfir stuðningi sínum við byggingu sundlaugar en lagði áherslu á að kostnaðaráætlanir væru raunhæfar áður en lagt væri af stað í framkvæmdir.

Björn Emil Traustason taldi ekki sjálfgefið að nauðsynlegt væri að áfangaskipta framkvæmdum.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela starfshópnum að vinna áfram að uppbygginu sundlaugarmannvirkja samkvæmt fyrirliggjandi frumteikningum og tillögum.

4. Hrollaugsstaðaskóli

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skólanefndar að skóli verði ekki starfræktur á Hrollaugstöðum á næsta skólaári. Þau börn sem nú eru í skólanum sæki nám í Nesjaskóla og Hafnarskóla.

Jafnframt er bæjarstjórn sammála skólanefnd um að ef breyting verður á búsetu í Suðursveit þannig að börnum á grunnskólaaldri, 1.-7. bekk, fjölgi umtalsvert fram yfir það sem nú er verði þessi ákvörðun endurskoðuð.

Einnig samþykkir bæjarstjórn tillögu skólanefndar varðandi framkvæmd á skólaakstri.

5. Fyrirspurnir

Fundi slitið kl. 19.20




Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica