Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 56
56. fundur
Bæjarstjórn Hornafjarðar 56. fundur FUNDARGERÐ
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 10. október 2002, kl. 16:00 í fundarsal Nýheima.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Björn E. Traustason, Vignir Júlíusson, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, Ólafur Sigurðsson og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig Inga Jóna Halldórsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár.
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar 182. fundur fimmtudaginn 19. september 2002.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 77. fundur 10. september 2002.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 38. fundur 9. september 2002.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 31. fundur 9. september 2002.
Kristín Gestdóttir tók til máls og ræddi um tölvuvæðingu í skólum og sagði nauðsynlegt að gera þarfagreiningu varðandi það mál. Einnig spurðist hún fyrir hver staða lengdra viðveru væri í dag. Jafnframt sagði hún nauðsynlegt að endurmeta nýtingu húseigna sveitarfélagsins.
Halldóra Bergljót tók einnig til máls varðandi þessi málefni einnig upplýsti hún að fulltrúar frá Sisimiut kommune verði hér á ferð í næstu viku til viðræðna um vinarbæjarsamband.
Inga Jóna upplýsti að eingöngu séu tvær umsóknir um lengda viðveru.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 183. fundur fimmtudaginn 3. október 2002.
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 1. fundur 16. september 2002.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 79. fundur 24. september 2002.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 39. fundur 30. september 2002.
· Fundargerð aðalfundar HAUST 18. sept. 2002 ásamt skýrslu stjórnar, til kynningar
· Launanefnd sveitarfélaga 180. fundur 21. ágúst og 181. fundur 4. sept. 2002, til kynningar.
· Samstarfsnefnd LN og SSB 11. fundur 10. september 2002 til kynningar
· Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum 18. fundur 16. september 2002 til kynningar.
Meðfylgjandi er 8 mánaða uppgjör bæjarsjóðs eins og það var lagt fyrir bæjarráð. Inga Jóna fór yfir niðurstöðu 8 mánaða uppgjörs bæjarsjóðs þar sem m.a. kom fram að skatttekjur eru 73% af áæltun og rekstur málaflokka 71%. Einnig kom fram að verið væri að vinna að níu mánaða uppgjöri og endurskoðun á fjárhagsáætlun 2002.
Í kjölfar átta mánaða uppgjörs leggur bæjarstjórn fram eftirfarandi bókun: „Með tilliti til niðurstöðu átta mánaða uppgjörs bæjarsjóðs ítrekar bæjarstjórn mikilvægi þess að framkvæmdastjórar og forstöðumenn haldi rekstri deilda og stofnana innan fjárhagsáætlunar“.
Kristín G. Gestsdóttir ræddi um uppgjörið og taldi nauðsynlegt að halda sig innan ramma fjárhagsáætlunar eins og kostur er, hún ræddi um hlut sveitarfélagsins í tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga og er ósátt við þá skiptingu. Hún er sammála ofangreindri bókun. Hún ræddi um stefnimótun í atvinnumálum og starfshóp sem skipaður var 7. mars 2002 til þriggja ára. Hún hvatti til að atvinnumálanefnd og bæjarstjórn fylgi málinu eftir.
Halldóra Bergljót ræddi um átta mánaða uppgjör og taldi afar mikilvægt að fjárhagsrammar standist. Einnig ræddi hún framlag úr Jöfnunarsjóði vegna fasteignagjalda og skerðingu þess.
Forseti las upp bókunina og var hún samþykkt samhljóða.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarstjórn Hornafjarðar 55. fundur 9. september 2002, fundargerð áður samþykkt.
2. Lausaganga búfjár
Inga Jóna fylgdi málinu úr hlaði og lagði fram tillögu að bókun bæjarstjórnar: „Vegagerðin mun á næstu mánuðum vinna að því að samfelld fjárheld girðing verði beggja vegna þjóðvegar 1 milli Almannaskarðs og Hornafjarðarfljóta og setja upp ristarhlið þar sem þess er þörf. Í kjölfar þess mun bæjarstjórn Hornafjarðar banna lausagöngu búfjár á ofangreindu vegsvæði“.
Ólafur er sammála þessari bókun en taldi að taka þurfi skrefið til fulls og banna alla lausagöngu stórgripa í sveitarfélaginu öllu.
Halldóra tók undir að vinna þurfi að banni á lausagnöngu stórgripa.
Kristín G. tekur undir þessa bókun heilshugar og deildi með bæjarstjórn lífsreynslusögu. F
orseti bar upp bókunina og samþykkti bæjarstjórn hana samhljóða.
3. Staðardagskrá 21 - framkvæmdaáætlun til staðfestingar
Lögð var fram til staðfestingar í bæjarstjórn framkvæmdaáætlun Staðardagskrár 21 sem samþykkt var á 130. fundi bæjarráðs. Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.
4. Fyrirspurnir
Engar.
Fundi slitið kl. 17:20


