Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 55
55. fundur
Bæjarstjórn Hornafjarðar 55. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 19. september 2002, kl. 16:00 í fundarsal Nýheima.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Björn E. Traustason, Einar Karlsson, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, Ólafur Sigurðsson og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig Albert Eymundsson og framkvæmdastjórar sviða, Ásta H. Guðmundsdóttir Helgi Már Pálsson og Inga Jóna Halldórsdóttir sem ritaði fundargerð.
Forseti bæjarstjórnar setti fund og bauð bæjarstjórnarmenn og starfsmenn velkomna til fyrsta fundar eftir sumarfrí.
Gengið var til dagskrár.
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar 173. fundur fimmtudaginn 20. júní 2002.
· Atvinnu- og ferðamálanefnd Hornafjarðar 36. fundur 23. maí 2002.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 75. fundur 23. maí 2002.
· Þjónustuhópur aldraðra 10. fundur 29. maí og 11. fundur 12. júní 2002.
· Æskulýðs- og tómstundaráð 41. fundur 22. mai 2002.
· Fundargerðir kjörstjórna Lóns, Hafnar, Nesja, Mýra, Suðursveitar,og Öræfa vegna nýafstaðinna sveitarstjórnakosninga.
· Fundargerðir yfirkjörstjórnar vegna nýafstaðinna sveitarstjórnakosninga.
· Launanefnd sveitarfélaga 179. fundur 15. maí 2002 til kynningar.
· Samstarfsn. Launanefndar sveitarf. og Sjúkraliðafélags Íslands 16. fundur 30. maí 2002 til kynningar.
· Samstarfsnefnd LN og SSB 10. fundur 14. maí 2002 til kynningar.
· Fundur um merkingar og skiltagerð í sveitarfélaginu 28. maí 2002 til kynningar.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 174. fundur miðvikudaginn 26. júní 2002.
Kristín ræddi samning við Hátíðni vegna lénsins hornafjörður.is og ítrekaði þá skoðun sína að bjóða eigi uppsetningu og rekstur stjórnsýsluvefsins út.
Bæjarstjóri sagði hugmyndir um samfélagsvefinn hornafjörð.is ekki nýja af nálinni, hafi verið kynnt bæjarráði fyrir u.þ.b. 2 árum og að þeir sem að hugmyndinni standi hafi þá verið hvattir til að vinna áfram að málinu. Hann sagðist vonast til að afraksturinn komi til með að standa undir væntingum. Bæjarstjóri sagði upplýsingastreymi úr stjórnsýslunni til íbúa vera með ágætum, segir nauðsyn á ákveðinni endurnýjun vefsins án þess þó að of miklu sé til kostað.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 175. fundur fimmtudaginn 3. júlí 2002.
Kristín spurðist fyrir um þjónustusamning við ríkið á sviði heilbrigðis- og öldrunarmála og hvernig staðan væri varðandi stækkun hjúkrunarheimilis.
Bæjarstjóri sagði lausn eiga eftir að finnast varðandi lagalegann grunn á yfirfærslu starfsfólks á HSSA frá ríki til sveitarfélagsins. Hann sagði vinnu í gangi við hönnun næsta áfanga við hjúkrunarheimilið en að ekki liggji ljóst fyrir hvenær hægt verði að bjóða verkið út.
Björn spurðist fyrir um framúrkeyrslu vinnuskólans.
Bæjarstjóri sagði mikla ásókn hafa verið í vinnuskólann. Það væru stórir árgangar á þessu aldursbili og óhjákvæmilegt hafi verið annað en að koma til móts við óskir og ákveðin réttindi sem þessi hópur hefur. Bæjarstjóri sagði að þegar hafi verið rætt um endurskipulagningu vinnuskóla á næsta ári.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 176. fundur fimmtudaginn 11. júlí 2002.
· Byggingarefnd Nýheima 46. fundur 26. júní og 47. fundur 5. júlí2002.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 76. fundur 27. júní 2002.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 38. fundur 1. júlí 2002.
· Skólanefnd Hornafjarðar 41. fundur 26. júní 2002.
· Fundargerð 30. fundar HAUST 10. júní 2002 til kynningar
· Fundargerð 692. fundar stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga 14. júní 2002 til kynningar.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 177. fundur fimmtudaginn 25. júlí 2002.
Halldóra spurðist fyrir um námskeið fyrir sveitarstjórnarmenn. Reynir spurðist fyrir um samstarf við Nýsköpunarsjóð vegna Nýheimabúða.
Bæjarstjóri sagði að hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga hafi ekki gefist tími til að undirbúa námskeið m.a. vegna anna við undirbúning landsþings. Úr því verði þó vonandi bætt fljótlega. Bæjarstjóri sagði Nýsköpunarsjóð vera að kalla eftir svörum frá þeim aðilum sem leitað hefur verið til um samstarf reksturs frumkvöðlaseturs í Nýheimum.
Halldóra þakkaði höfðinglega gjöf Ástu Eiríksdóttur á verkum Svavars Guðnasonar.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 29. fundur 8. júlí 2002.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 178. fundur fimmtudaginn 8. ágúst 2002.
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 41. fundur 2. júlí 2002,og 42. fundur 1. ágúst 2002.
Björn spurðist fyrir um lengda viðveru í grunnskólanum. Bæjarstjóri greindi frá því að á bæjarráðsfundi í morgun hafi verið samþykkt að boðið verði upp á lengda viðveru í grunnskólanum á þessu skólaári.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 179. fundur fimmtudaginn 20. ágúst 2002.
· Byggingarnefnd Nýheima 48. fundur 14. ágúst 2002.
· Fundargerð 31.fundar HAUST 31. júlí 2002 til kynningar.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 180. fundur fimmtudaginn 29. ágúst 2002.
· Byggingar- og skipulagsnefnd 38. fundur 12. ágúst 2002.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 39. fundur 19. ágúst 2002.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 181. fundur fimmtudaginn 12. september 2002.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð 36. fundur 27. ágúst 2002.
· Æskulýðs- og tómstundaráð 42. fundur 26. ágúst 2002.
· Skólanefnd Hornafjarðar 42. fundur 4. september 2002.
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 43. fundur 5. september 2002.
Kristín tók undir nauðsyn þess að gerðar verði vinnureglur vegna umsókna um námsvist utan lögheimilissveitarfélags.
Bæjarstjóri sagði starfsmenn meðvitaða um þörf samræmdra vinnureglna um málið en í raun hefði ekki verið óeðlilegt að Samband íslenskra sveitarfélaga mótaði þessar reglur. Fundargerð samþykkt.
Bæjarstjórn Hornafjarðar 51. fundur 29. maí, 52. fundur 10. júní og 53. fundur 20. júní 2002 - fundargerðir áður samþykktar.
Fleira ekki gert,
Fundi slitið kl. 17:00


