Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 85
85. fundur
Bæjarstjórn Hornafjarðar 85. fundur
Fundur haldinn í Ekru, miðvikudaginn 27. apríl 2005 kl. 16:00.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, forseti, Björk Pálsdóttir, Einar Karlsson, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, Ólafur Sigurðsson og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Erna Einarsdóttir. Gengið var til dagskrár.
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar 288. fundur 14. apríl 2005.
· Byggingar og skipulagsnefnd Hornafjarðar 58. fundur 7. apríl 2005.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 58. fundur 7. apríl 2005.
· Mötuneytisnefnd 2. fundur 30. mars 2005.
· Æskulýðs- og tómstundaráð, 67. fundur, 6. apríl 2005.
Elín gerði uppsetningu skilta við gatnamót við Lónsafleggjara að umtalsefni og spurði hvernig vinnu að þeim málum miðaði. Kristín óskaði eftir upplýsingum um mötuneytisnefnd. Þá ræddi hún um heimsókn nemenda frá Sisimiut á Grænlandi.
Halldóra gerði grein fyrir vinnu við mötuneytismál. Kom m.a. fram í máli hennar að gagnaöflun væri vel á veg komin og að kostnaðarmat lægi fyrir snemma í maí.
Bæjarstjóri upplýsti um vinnu við skiltamál við Lónsafleggjara. Kom fram að haft hafi verið samband við hlutaðeigandi aðila og stefnt væri að klára málið fyrir miðjan maí.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 289. fundur 22. apríl 2005.
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 18. fundur 18. apríl 2005.
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 59. fundur 14. apríl 2005.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 67. fundur 12. apríl 2005.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 125. fundur 12. apríl 2005.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 51. fundur 18. apríl 2005.
Halldóra gerði bókun um flugvöll að umtalsefni. Kom fram að hún taldi brýnt að gerðar yrðu úrbætur m.a. á þverbraut við flugvöllinn bæði vegna áætlunar- og sjúkraflugs. Þá lagði hún áherslu að flugleiðsögutæki yrðu endurnýjuð þannig að flugvöllurinn væri betur tækjum búin en nú er.
Kristín gerði samning milli FAS og Menningarmiðstöðvar að umtalsefni sem hún taldi fela ýmis tækifæri í sér fyrir nemendur FAS og samfélagið í heild. Þá spurði hún um hvað bókun í fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar um endurskoðun á aðalskipulagi fæli í sér.
Halldóra benti á að í fundargerð umhverfisnefndar er bókað að samræma þurfi gönguleiðir í þéttbýlinu og taldi rétt að gert væri ráð fyrir göngustígum meðfram golfvellinum.
Ólafur fór yfir tillögur vegagerðarinnar um vegastæði í sveitarfélaginu.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarstjórn Hornafjarðar 84. fundur 7. apríl 2005 áður samþykkt.
2. Ársreikningar 2004 – fyrri umræða
Bæjarstjóri fylgdi ársreikningunum úr hlaði og kom m.a. eftirfarandi fram í máli hans.
Helstu niðurstöður A-hluta sveitasjóðs :
Skatttekjur námu 737,6 m.kr. sem er um 24,5 m.kr. hærra en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Skýringin er hærra framlag úr Jöfnunarsjóði sveitafélaga. Rekstur fyrir fjármagnsliði námu um 886 m.kr. Fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir um 873 m.kr. Mismuninn er fyrst og fremst vegna uppfærslu langtímalána eignasjóðs.
Niðurstaða A-hluta sveitarsjóðs er jákvæð um 16 m.kr. en þar eru reiknaðar afskriftir, verðbætur og reiknaðar lífeyrisskuldbindingar upp á 77 m.kr. Veltufé frá rekstri er því um 87,5 m.kr. Handbært fé í árslok er 175,6 m.kr. Greiðslubyrði vegna langtímaskuldbindinga er rúmlega 90 m.kr. Langtímaskuldir A-hluta bæjarsjóðs eru 637 m.kr. í árslok og minnka á milli ára um 63,3 m.kr. Peningaleg staða er neikvæð um 489,3 m.kr. og hefur batnað milli ára um 53,9 m.kr. Fjárfrekustu málaflokkar eru:
· Fræðslumál um m.kr. sem er um 57,7% af skatttekjum. · Sameiginlegur kostnaður um 65 m.kr. sem er um 8,8% af skatttekjum.
-
Æskulýðs og íþróttamál um 58,4 m.kr. sem er um 7,9% af skatttekjum.
-
Félagsmál um 41,4 m.kr. sem er um 5,60% af skatttekjum.
-
Menningarmál um 39,5 m.kr. sem er um 5,35% af skatttekjum Eignfærslur eru:
-
Íþróttavöllur á Höfn 6,4 m.kr.
-
Götur á Höfn 9,9 m.kr.
-
Hlutafé í Norðurís 808 þús.
Helstu niðurstöður B-hluta sveitarsjóðs og HSSA:
Hornafjarðarhöfn. Tekjur eru tæpar 86,8 m.kr. Gjöldin eru um 70,2 m.kr. Fjármagnsgjöld eru um 4,7 m.kr., þannig að tekjur umfram gjöld eru um 11,9 m.kr. Fjárfestingar á árinu námu um 28,3 m.kr.
Félagslega íbúðakerfið. Leigutekjur eru um 20 m.kr. Rekstrargjöld námu 9,5 m.kr. þannig að tekjur umfram gjöld eru 10,5 m.kr. Fjármagnskostnaður er um 20 m.kr. þannig að halli kerfisins er rúmlega 9,4 m.kr. Uppfærsla langtímalána voru um 12,1 m.kr. og afborganir um 7,3 m.kr.
Vatnsveita Hornafjarðar. Heildartekjur námu um 25 m.kr., rekstrargjöld og afskriftir voru 14,5 m.kr., fjármunagjöld 9,2 m.kr., hagnaður var því um 1,4 m.kr. Upphæð reiknaðra afskrifta nam um 4,6 m.kr. Fjárfestingar vegna vatnsveitu námu um 4 m.kr. og vegna fráveitu um 14,2 m.kr.
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands. Heildartekjur námu 305 m.kr. og rekstrargjöld voru 301,1 m.kr. Fjármunakostnaður var um 3 m.kr. Tekjur umfram gjöld námu því um 1 m.kr. Ójafnað tap stofnunarinnar nemur um 19,3 m.kr.
Bæjarstjóri gerði að umtalsefni atriði sem fram koma í endurskoðunarskýrslu Sigurðar Tómassonar hjá Deloitte bæði ábendingum um það sem betur má fara, aðvörunarorðum um mikilvægi þess að standa stöðugt vaktina varðandi fjárhagslega stöðu sveitarfélagsins þó svo að verulega batamerki séu við uppgjör ársins 2004.
Bæjarstjóri notaði tækifærið, þar sem þetta eru síðustu reikningar sveitarfélagsins sem Sigurður endurskoðar og gerir upp, að þakka honum langt, farsælt og gott samstarf og óskaði honum alls góðs í framtíðinni.
3. Deiliskipulag.
Fyrir lá tillaga um breytingu á deiliskipulagi fyrir Skaftafell 2, Freysnesi í Öræfum, sem fengið hefur meðferð samkv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Deiliskipulag þetta er í samræmi við staðfesta breytingu á aðalskipulagi í Sveitarfélaginu Hornafirði sem samþykkt var af umhverfisráðherra 5. apríl 2005 og staðfest með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda 7. apríl 2005. Deiliskipulagið var samþykkt í byggingar- og skipulagsnefnd 7. apríl 2005.
Framlögð tillaga samþykkt með sex atkvæðum og einn sat hjá.
4. Fyrirspurnir
Í tengslum við fund bæjarstjórnar var óformlegur vinnufundur varamanna og aðalmanna með Sigurði Tómassyni og Lárusi Finnbogasyni endurskoðendum. Eftirfarandi varamenn mættu voru Halldóra K. Guðmundsdóttir, Vignir Júlíusson og Aðalheiður Fanney Björnsdóttir. Fundi slitið kl. 18.10


