Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 83
83. fundur
Bæjarstjórn Hornafjarðar 83. fundur
FUNDARGERÐ Fundur haldinn í Ekru, fimmtudaginn 10. mars 2005 kl. 16:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, forseti, Björk Pálsdóttir, Halldóra K. Guðmundsdóttir, Björn Emil Traustason, Reynir Arnarson, Ólafur Sigurðsson og Eyjólfur Guðmundsson. Einnig: Albert Eymundsson, Hjalti Þór Vignisson Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson. Gengið var til dagskrár.
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar 282. fundur 17. febrúar 2005.
· Hafnarstjórn Hornafjaðrarhafnar 65. fundur 9. febrúar 2005. · Menningarmálanefnd Hornafjarðar 65. fundur 9. febrúar 2005. · Launanefnd sveitarfélaga 203. fundur 26. janúar 2005 til kynningar. · Fundargerð 8. ársfundar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 2. nóvember 2004 til kynningar. · Fundargerð 26. og 27. stjórnarfundar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, 17. nóvember 2004 og 18. janúar 2005 til kynningar. Björn spurðist fyrir um hvernig undirbúningsvinnu við bryggju að netaverkstæði Ísnets miðaði. Þá spurði hann um veg að Jöklaseli. Eyjólfur spurði um opin frárennslisskurð við Bræðsluna. Þá gerði Eyjólfur hugsanlegt starf ferða- og menningarfulltrúa að umtalsefni. Í tengslum við þetta fór Eyjólfur yfir mannaráðningar á vegum sveitarfélagsins að undanförnu og taldi að í sumum tilvikum hefði betur mátt standa að þeim. Bæjarstjóri upplýsti að starfsmenn Siglingastofnunar hefðu fundað með Hafnarstjórn í síðustu viku um bryggju við netaverkstæði. Hönnunarvinna væri komin í gang. Þá upplýsti hann að ítrekað hafi verið við Vegagerðina að vegi að Jöklaseli væri vel viðhaldið. Vegna athugasemda Eyjólfs um mannaráðningar gerði bæjarstjóri grein fyrir sinni hlið málsins. Björn gerði grein fyrir að frárennslisskurður við Bræðsluna væri enn á sínum stað en þar rynni engin sjór lengur. Eyjólfur ræddi mannaráðningar. Kom fram að hann hafi ekkert út á þá starfsmenn að setja sem gegna viðkomandi störfum heldur hvernig staðið hafi verið að ráðningunum. Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 283. fundur 22. febrúar 2005.
·Atvinnumálanefnd 16. fundur 15. febrúar 2005. · Félagsmálaráð Hornafjarðar 122. fundur 15. febrúar 2005. · Umhverfisnefnd Hornafjarðar 49. fundur 14. febrúar 2005. · Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 720. fundur 10. desember 2004 og 721. fundur 24. janúar 2005 til kynningar. Björn spurði um skýrslu um nýskipan lögreglumála. Björk spurði um málefni Ratsjárstofnunar og lýsti yfir áhyggjum varðandi þá þróun. Eyjólfur tók undir áhyggjur vegna málefni Ratsjárstofnunar. Gerði hann í því sambandi aðstöðu í Nýheimum að umtalsefni þar sem hægt væri að hýsa ýmsa starfsemi og verkefni. Hann spurði hvort reglur um fjárhagsaðstoð þyrfti ekki formlega staðfestingu af bæjarstjórn. Bæjarstjóri upplýsti, vegna fyrirspurnar um skýrslu um nýskipan lögreglumála, að sýslumaður og lögreglumaður hafi komið til fundar við bæjarráð auk þess sem haft var samband við aðila í dómsmálaráðuneytinu. Bæjarstjóri taldi eftir viðræður við þessa aðila ekki ástæðu til að hafa áhyggjur hvað Hornafjörð varðar en mikilvægt væri að fylgjast með framvindu málsins. Þá ræddi hann málefni Ratsjárstofnunar og vinnu sem bæjarfélagið hefur innt af hendi varðandi það. Bæjarstjóri gerði m.a. grein fyrir fundi með forsvarsmönnum Ratsjárstofnunar og embættismönnum í Utanríkisráðuneytinu. Kom fram að breytingar á vegum Ratsjárstofnunar séu tilkomnar vegna krafna Bandaríkjahers. Bæjarstjóri ræddi um að mikilvægt væri að sveitarfélagið leiti leiða til atvinuppbyggingar og gerði m.a. Jöklasýningu og uppbyggingu þjóðgarðs að umtalsefni í því sambandi Eyjólfur ræddi málefni Ratsjárstofnunar og taldi rétt að á fundinum yrði samþykkt bókun um þá þróun. Ræddi hann um að Utanríkisráðuneytið bæri hér samfélagslega ábyrgð. Björn spurði um hvort rétt reyndist að hluta af tæknimönnum Ratsjárstofnunar á Stokksnesi og Gunnólfsvíkurfjalli hafi fengið uppsagnarbréf en engin á Bolafjalli. Bæjarstjóri upplýsti að fulltrúar sveitarfélagsins hafi skilið eftir skýr skilaboð í Utanríkisráðuneytinu um áhyggjur Hornfirðinga vegna breytinga í Ratsjárstofnun og ítrekað muni verða að fá fund með utanríkisráðherra um málið. Þá taldi bæjarstjóri ekki nauðsynlegt að bóka sérstaklega um uppsagnir hjá Ratsjárstofnun á þessum fundi þar sem tvívegis hefur verið bókað um málið. Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 284. fundur 3. mars 2005. ·
Skólanefnd Hornafjarðar 68. fundur 23. febrúar 2005. · Æskulýðs og tómstundaráð 66. fundur 28. febrúar 2005. · Mötuneytisnefnd 1. fundur 14. febrúar 2005, til kynningar. · Þrjár fundargerðir stýrihóps um aukna hreyfingu og bætt matarræði barna sbr. liður 5 í fundargerði bæjarráðs. Reynir gerði Jöklasýningu að umtalsefni og óskaði eftir upplýsingum um fjármögnun og framkvæmdir við sýninguna. Þá spurði hann um hvort niðurstöður úr jarðhitaleit hefðu borist. Hann gerði þróun í atvinnumálum að umtalsefni og sagði að ýmis vinna væri í gangi til mótvægis við fækkun starfa. Eyjólfur gerði lýðræði í sveitarfélaginu að umtalsefni í tengslum við umræður um vistunartíma á leikskólum. Hann spurði um hvar ákvarðanavald í þessum málum lægi og taldi slíkt ekki nægjanlega ljóst. Þá fór hann yfir að víða annar staðar væri aðkoma notenda þjónustu að aukast. Einnig velti hann upp hvort samsetning mötuneytisnefndar væri eðlileg m.t.t. aðkomu minnihlutans að málinu. Bæjarstjóri upplýsti að fjármögnun vegna Jöklasýningar hefði gengið vel og aðeins stæði út af borðinu aðild ríkisstjórnarinnar. Þá upplýsti hann að skýrsla vegna jarðhitaleitar hefði nýlega borist. Bæjarstjóri gerði ákvarðanavald að umtalsefni og lýsti þeirri skoðun sinni að starfsmenn og forstöðumenn hefðu mikið um að segja hvernig stofnanir væru reknar en jafnframt að þeir þyrftu ramma til að starfa eftir. Einnig upplýsti bæjarstjóri að þegar skipað var í mötuneytisnefnd hafi hugsunin hafi verið sú að þeir sem bæru mikla ábyrgð á þessum málum sætu í starfshópnum. (Ólafur Sigurðsson vék af fundi kl. 17.05) Fundargerð samþykkt. Bæjarstjórn Hornafjarðar 82. fundur 17. febrúar 2005.
2. Þriggja ára áætlun ? seinni umræða
Bæjarstjóri fylgdi áætluninni úr hlaði. Þriggja ára áætlun og eftirfarandi bókun var samþykkt samhljóða: Þriggja ára fjárhagsáætlun A og B sjóðs sem hér er til afgreiðslu ber þess einkenni að eftir mikið framkvæmdatímabil á undanförnum árum er lítið svigrúm til frekari framkvæmda. Þrátt fyrir þröngan kost er gert ráð fyrir framkvæmdum fyrir um 220 m.kr. og jafnframt gerir áætlunin ráð fyrir að skuldir lækki um 145 m.kr. Mikilvægt er að bæjarstjórn ásamt embættismönnum og forstöðumönnum sveitarfélagsins nýti fjármuni í rekstri sem best og jafnframt er áríðandi að lækka fjármagnskostnað svo skapa megi meira svigrúm til nauðsynlegar framkvæmda. Bæjarstjórn felur starfsmönnum sveitarfélagsins að leita allra leiða til að hagræða í rekstri og skoða möguleika á sölu eigna. Jafnframt er ítrekað að forstöðumönnum er ekki heimilt að stofna til nýrra stöðugilda án heimildar bæjarráðs.
3. Kosning aðalmanns í Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar
Vegna vensla við nýráðinn framkvæmdastjóra HSSA hefur Halldóra Bergljót formaður heilbrigðis- og öldrunarráðs óskað eftir að vera leyst undan störfum í ráðinu. Í hennar stað var Vignir Júlíusson kjörinn aðalmaður og Halldóra K. Guðmundsdóttir varamaður í stað Vignis. Jafnframt var Elín Magnúsdóttir kjörinn aðalmaður í HÖR og formaður ráðsins og Elínborg Baldursdóttir sem var aðalmaður var kjörinn varamaður í hennar stað. Samþykkt með fimm atkvæðum. Einn sat hjá.
4. Fyrirspurnir Engar.
Fundi slitið kl. 17.50.


