Bæjarstjórn

Fundargerð Bæjarstjórnar 77

77. fundur Bæjarstjórnar


Fundur haldinn
í Bæjarstjórn Hornafjarðar, miðvikudaginn 27. október 2004, kl. 17:30 í Hofgarði.

Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, forseti, Einar Karlsson, Björk Pálsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, Ólafur Sigurðsson og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig Albert Eymundsson, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.

Gengið var til dagskrár.

1. Fundargerðir

Bæjarráð Hornafjarðar 266. fundur 7. október 2004.

·        Fundur um náttúrustofu Suðausturlands, 1. október 2004.

Einar spurðist fyrir um framkvæmdir við Hafnarbraut, fráveitumál og hvort von væri á forhönnunarskýrslu vegna fráveitumála innan tíðar.  Albert gerði grein fyrir tilboðum sem bárust í framkvæmdir við Hafnarbraut.  Þá upplýsti hann að forhönnunarskýrslu yrði dreift á allra næstu dögum.  Hann gerði grein fyrir ákvörðun á síðasta fundi bæjarráðs um að bjóða út fyrsta áfanga við framkvæmdir á fráveitu.

Fundargerð samþykkt

Bæjarráð Hornafjarðar 267. fundur 14. október 2004.

·        Félagsmálaráð Hornafjarðar 115. fundur 5. október 2004.

·        Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 62. fundur 6. október 2004.

Björk taldi Norðurljósaverkefnið afar áhugavert.  Þá ræddi hún kennaraverkfallið og lagði fram þá spurningu hvort sveitarfélagið gæti komið til móts við grunnskólabörn í yfirstandandi verkfalli.

Reynir spurðist fyrir um dælingar á Grynnslunum.

Kristín ræddi Norðurljósaverkefnið og taldi margvísleg tækifæri felast í því fyrir ferðaþjónustuaðila innan sveitarfélagsins.  Þá lýsti hún því yfir að vegna stöðu sinnar sem bæði kennari og bæjarfulltrúi hygðist hún ekki ræða kennaraverkfallið á opinberum fundum.

Bæjarstjóri tók undir orð Kristínar og Bjarkar um Norðurljósaverkefnið.  Hann sagði að verktaki við dælingar á Grynnslunum hafi tafist vegna annarra verka en upplýsti að starfsmenn bæjarfélagsins væru í nánast daglegum samskiptum við Siglingastofnun til að ýta á að verkið hæfist sem fyrst.  Bæjarstjóri upplýsti að framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs hafi verið falið að leita leiða til að koma á móts við þarfir barna og unglinga í yfirstandi verkfalli grunnskólakennara.

Elín tók undir áhyggjur Bjarkar vegna þeirrar stöðu sem hefur skapast vegna verkfalls.  Hún upplýsti að bæjarráð hafi samþykkt að halda fjölskyldudag þann 6. nóvember.

Björk fjallaði um lögreglusamþykkt og taldi brýnt að hægja á umferð innan bæjarmarka.  Hún lagði til að í íbúagötum yrði hámarkshraði 30 km.

Halldóra vakti máls á því að lögreglusamþykkt hafi verið vísað til nefnda sveitarfélagsins og í framhaldi yrði hún rædd tvívegis í bæjarstjórn.  Hún ræddi grunnskólaverkfallið og tók undir orð Elínar og Bjarkar.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 268. fundur 21. október 2004.

·        Bygginga- og skipulagsnefnd 55. fundur 14. október 2004.

·        Félagsmálaráð Hornafjarðar 116. fundur 12. október 2004.

Kristín fagnaði hækkun hámarkslána Íbúðalánasjóðs og sagði hagræði af þessari breytingu fyrir sveitarfélagið.

Fundargerð samþykkt.

Fundargerð 76. fundar Bæjarstjórnar Hornafjarðar 7. október 2004, áður samþykkt.

2. Endurskoðun á fjárhagsáætlun 2004.

Bæjarstjóri fór yfir endurskoðaða fjárhagsáætlun fyrir árið 2004 sem bæjarráð vísaði til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Helstu breytingar á fjárhagsáætluninni eru þær að skatttekjur í heild hækka um 6,4 milljónir. Heildarupphæð skatttekna er þá 713,1 milljón.
Útgjöldin aukast hins vegar um 10 milljón. Heildarupphæð útgjalda eru 777,3 milljónir. Húseignin að Hæðargarði 7 var seld og nettó hagnaður vegna þess var 3,6 mkr. sem sett var á áætlun til framkvæmda í Nesjahverfi.  Breyting á hreinu veltufé er því óbreytt frá samþykktri áætlun.
Samkvæmt endurskoðaðri fjárhagsáætlun ársins 2004 verður því A- hluti sveitarsjóðs rekinn með 64,1 milljón kr. halla. Þegar tekið hefur verið tillit til afskrifta eigna, 46 milljónir, og reiknaðra lífeyrisskuldbindinga, 16 milljónir, er peningalegt tap 2,1 milljón.
Erfiðara  rekstrarumhverfi sveitarfélaganna vegna meiri krafna íbúanna og hærra þjónustustig  er staðreynd sem blasir við stjórnendum sveitarfélaga í landinu. Það er brýnt að sveitarfélögin með Samband íslenskra sveitarfélaga í fararbroddi þrýsti á um að sveitarfélögin fái hærri hlutdeild í heildarskatttekjum landsmanna þar sem þær tekjur sem þau hafa nú duga vart fyrir rekstri, hvað þá að standa undir afborgunum lána og nauðsynlegum framkvæmdum.
Fjárhagslegt umhverfi sveitarsjóðs kallar á að allir starfsmenn sveitarfélagsins, sérstaklega forstöðumenn, leggist á eitt um að gera reksturinn sem hagkvæmastan.
Undir þessum lið gerði bæjarstjóri grein fyrir málefnum HSSA vegna þeirrar vinnu sem fram hefur farið um rekstur stofnunarinnar undanfarin ár og endurskoðun á fjárhagsáætlun 2004.  Fram kom í máli hans að ýmsar leiðréttingar hefðu náðst fram sem staðfesta að stofnunin hefur ekki fengið eðlileg fjárframlög frá ríkinu.  Samkvæmt þeim leiðréttingum kemur í ljós að reksturinn árið 2003 er í jafnvægi og sömuleiðis áætlun fyrir 2005.  Ennþá stendur út af rúmlega 7 miljón króna rekstrarhalli árið 2004 og uppsafnaður halli vegna aukinnar heimaþjónustu á síðustu árum. 

Kristín ræddi um endurskoðun á fjárhagsáætlun.  Þá lagði hún áherslu á að tekjuskipting á milli ríkis og sveitarfélaga yrði endurskoðuð.  Kristín ræddi einnig málefni HSSA.

Halldóra ræddi um erfitt rekstrarumhverfi sveitarfélaga í tengslum við endurskoðun á fjárhagsáætlun.  Þá ræddi hún stöðu HSSA.

Breytingar á fjárhagsáætlun samþykkt samhljóða.

Forseti bæjarstjórnar bar upp eftirfarandi bókun:

,,Bæjarstjórn Hornafjarðar telur að ekki hafi enn fengist leiðréttingar vegna HSSA og leggur áherslu á að ef ekki náist samkomulag um uppgjör á næstu dögum verði núverandi þjónustusamningi sagt upp frá og með næstu áramótum.

Samþykkt samhljóða.

3. Reglur Félagsmálaráðs Hornafjarðar vegna barnaverndarmála

·  Verklagsreglur  barnaverndarnefndar Hornafjarðar um könnun og meðferð mála sem undir hana heyra og umboð starfsmanns.

·  Reglur um könnun og meðferð einstakra barnaverndarmála eða málaflokka hjá starfsmanni félagsmálaráðs Hornafjarðar.

·  Reglur um styrk til greiðslu lögmannskostnaðar sbr. 2.gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.

Bæjarstjóri upplýsti að reglurnar væru tilkomnar vegna breytinga á barnaverndarlögum.

Kristín lýsti ánægju sinni með framkomnar reglur og taldi brýnt að þær fengju góða kynningu meðal íbúa sveitarfélagsins.

Reglurnar samþykktar samhljóða.

4. Reglugerð um Skaftafellsþjóðgarð

Bæjarstjóri gerði grein fyrir þeirri vinnu sem fram hefur farið vegna mótun reglugerðar fyrir Skaftafellsþjóðgarð.

Bæjarstjóri las upp eftirfarandi bókun:

,,Bæjarstjórn Hornafjarðar fagnar stækkun Skaftafellsþjóðgarðs. Bæjarstjórn telur að hér sé um mikið hagsmunamál fyrir íbúa Austur-Skaftafellssýslu að ræða sem feli í sér margvísleg tækifæri til uppbyggingar atvinnu og þjónustu.

Bæjarstjórn Hornafjarðar lýsir yfir ánægju með samráð umhverfisráðuneytisins við heimamenn vegna endanlegrar mótunar reglugerðar fyrir þjóðgarðinn og væntir góðs samstarfs um málefni þjóðgarðsins í framtíðinni. 

Jafnframt hvetur Bæjarstjórn Hornafjarðar til þess að nú þegar verði hafin vinna að endurskoðun á lögum um náttúruvernd með það að markmiði að af afloknum sveitarstjórnarkosningum 2006 verði skipuð stjórn fyrir þjóðgarðinn í stað ráðgjafanefndar.

Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi drög að reglugerð fyrir Skaftafellsþjóðgarð.“

Reynir vakti máls á þeim tækifærum sem stækkun þjóðgarðsins hefur í för með sér.

Ólafur fagnaði stækkun þjóðgarðsins og tók undir orð Reynis.  Hann vísaði til jákvæðrar reynslu Öræfinga og annarra sýslubúa af nærveru við þjóðgarðinn í Skaftafelli.

Kristín lýsti yfir ánægju með þennan áfanga.  Hún lagði áherslu á að reglugerðin væri til bráðabirgða þar til lög um náttúruvernd verða endurskoðuð.  Hún ræddi um mikilvægi þátttöku heimamanna í stofnun og starfrækslu þjóðgarðsins.

Halldóra benti á að í núverandi drögum að reglugerð væri hlutverk ráðgjafanefndar mun betur skilgreint en áður.  Hún lýsti yfir ánægju sinni með jákvæðar undirtektar í umhverfisráðuneytinu varðandi athugasemdir sem bárust frá sveitarfélaginu.  Hún tók undir orð Kristínar um að reglugerðin væri til bráðabirgða.

Forseti bæjarstjórnar las upp tillögu bæjarstjóra að bókun.  Samþykkt samhljóða.

5. Kosningar

Þorsteinn Sigfússon hefur óskað eftir að vera leystur undan setu sem aðalmaður í heilbrigðis- og öldrunarráði.  Aðalmaður í hans stað var kosin Elínborg Baldursdóttir og Elín Magnúsdóttir varamaður.

6. Fyrirspurnir

Engar.

 

 

 

 Fundi slitið kl. 19.25




Fundargerðir

Dag.grein
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica