Bæjarstjórn
Fundargerð Bæjarstjórnar 75
75. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 2. september 2004, kl. 17:00 í Hrollaugsstöðum, Suðursveit.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Einar Karlsson, Vignir Júlíusson, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, Þóra V. Jónsdóttir og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig Albert Eymundsson, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár.
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar 254. fundur 3. júní 2004
? Félagsmálaráð Hornafjarðar 111. fundur 25. maí 2004
? Æskulýðs- og tómstundaráð 60. fundur 24. maí 2004
Kristín spurðist fyrir um hvort svar hafi borist frá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu vegna svarbréfs sveitarfélagsins um þjónustusamning.
Kristín spurðist fyrir um skipan sameiginlegrar vallarstjórnar á öllum íþróttavöllum sveitarfélagsins. Hún spurðist einnig fyrir um hvort lokið væri gerð reglna um heimild töku launaðs námsleyfis fyrir starfsmenn sveitarfélagsins.
Vignir vakti athygli á góðu starfi vinnuskólans í sumar, og spurðist fyrir um hver kostnaður við skólann hafi orðið þetta árið.
Albert lýsti yfir ánægju sinni með að bæjarstjórn haldi þennan fund hér á Hrollaugsstöðum. Ekki hafi verið skipuð sameiginleg vallarstjórn vegna íþróttavalla, þar sem ekki hafi náðst samkomulag um ákveðin atriði, en það hafi ekki komið að sök í sumar. Hann upplýsti að ekki hafi borist svar frá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Búið er að gera drög að reglugerð vegna launaðs leyfis starfsmanna og verður hún tekið fyrir fljótlega í bæjarstjórn. Hann tók undir með Vigni um árangur vinnuskólans í sumar og sagði að verið væri að vinna í uppgjöri á vinnuskólanum.
Fundargerð samþykkt
Bæjarráð Hornafjarðar 255. fundur 16. júní 2004
? Atvinnumálanefnd 12. fundur 4. júní 2004
? Byggingar- og skipulagsnefnd 53. fundur 9. júní 2004
? Félagsmálaráð Hornafjarðar 112. fundur 8. júní 2004
? Hafnarstjórn Hornafjarðar 58. 2. júní 2004 og 59. fundur 9. júní 2004
Einar vakti athygli á fjölda atvinnulausra í sveitarfélaginu, en hann taldi að næga vinnu væri að fá í sveitarfélaginu og þessar tölur ekki gefa rétta mynd af ástandinu.
Reynir spurði um framvindu framkvæmda við Krosseyjarþil og dýpkun á Grynnslunum.
Bæjarstjóri upplýsti að vinnu við Krosseyjarþilið miðaði ágætlega áfram, en þó væri verkið á eftir áætlun. Þetta ætti þó ekki að koma að sök við löndun uppsjávarfisks.
Hvað Grynnslin varðaði þá væri búið að gera verksamning við verktaka sem hefði til verksins mjög heppilegt skip í verkefnið. Verksamningurinn er hagstæður fyrir báða aðila hvað varðar uppsögn, frátafir og magn. Vinna við dýpkunina mun fara fram nú í september ef aðstæður leyfa.
Vignir spurðist fyrir um stöðu mála vegna hreindýraveiða og taldi að skoða þyrfti betur tölur vegna atvinnuleysis þar sem nóg framboð væri á atvinnu.
Bæjarstjóri sagði að ákveðins trúnaðar þurfi að gæta vegna atvinnuleysiskráningar og ástæður gætu verið af ýmsum toga og mörg mál jafnvel viðkvæm fyrir einstaklinga.
Hann fór yfir stöðu mála vegna hreindýramála.
Bæjarráð Hornafjarðar 256. fundur 23. júní 2004.
Fundargerð samþykkt
Bæjarráð Hornafjarðar 257. fundur 24. júní 2004
? Almannavarnanefnd Hornafjarðar, 26. fundur 16. júní 2004
? Skólanefnd Hornafjarðar, 61. fundur 14. júní 2004
Kristín ræddi um tillögur skólanefndar um mötuneytismál og meðferð þeirra í bæjaráði og spurði hvers vegna töf hafi orðið á ákvörðun þessa máls og af hverju ekki væri byrjað að bjóða heitan mat í hádeginu. Hún spurði einnig um hvernig staða væri vegna uppgjörs byggingarkostnaðar Nýheima og hver framvindan væri vegna upptöku á samning við ríkið vegna kaupa sveitarfélagsins á eldra húsnæði FAS.
Elín fór yfir framvindu mála vegna mötuneytismála grunnskólanna á Höfn allt frá því í vor og fullyrti að þessari vinnu lyki bráðlega og í framhaldi af því færi fram kynning þessara mála. Væntanlega væri hægt að koma mötuneytisþjónustu á í þessum mánuði.
Bæjarstjóri fór yfir tillögur mötuneytisnefndarinnar og að ekki hafi verið talið rétt að fara í mikinn stofnkostnað fyrir eitt ár. Taldi hann að bæjarráð hafi valið skynsama leið í þessu máli og benti á að ekkert vandræðaástand væri í þessum málum. Unnið væri í uppgjörsmálum við ráðuneytið vegna byggingarkostnaðar Nýheima, niðurstaða væri komið í ákveðið rekstrarform byggingarinnar og eignaskiptasamningur væri samkvæmt ósk sveitarfélagsins en beðið væri eftir ákvörðun Háskólans til að hægt væri að ljúka honum.
Einar spurðist fyrir um áhrif lokunar leikskólans Óla Priks, hvort öll börn þar hefðu fengið óbreytta vistun á nýjum skólum.
Elín upplýsti að öll börn sem voru á Óla Prik hafi fengið vistun á leikskólunum á Höfn, hafi foreldrar óskað þess. Hún fór einnig yfir stöðu biðlista á báðum leikskólunum.
Bæjarstjóri áréttaði að engin börn eldri en 2 ára væru á biðlista hjá leikskólunum, en biðlisti væri á Lönguhólum fyrir yngstu börnin.
Halldóra ræddi um uppgjör við ráðuneytið vegna Nýheima og benti á að hefði ekki verið gengið til samninga við ríkið á þeim tíma og með þeirra skilmálum hefði þessi bygging ekki risið. Því væri betra að byggingunni væri lokið þó svo að heimamenn væru ekki fullkomlega sáttir að öllu leiti.
Fundargerð samþykkt
Bæjarráð Hornafjarðar 258. fundur 1. júlí 2004
? Menningarmálanefnd Hornafjarðar 58. fundur 23. júní 2004
Vignir spurðist fyrir um hvort rætt hefði verið við Vegagerðina um malbikunarframkvæmdir í sveitarfélaginu á næsta ári og um lausagöngu búfjár.
Kristín spurðist fyrir um niðurstöður Ásgeirs Ásgeirssonar, ráðgjafa, vegna reksturs heilbrigðisstofnunar og vakti athygli á starfi ungs fólks og væntanlegri ráðstefnu þeirra nú á næstu dögum.
Bæjarstjóri upplýsti að tæknideildin vinni að tillögum vegna malbikunarframkvæmda. Hann upplýsti að Ásgeir muni fljótlega skila skýrslu, sem nýtast mun í samningum við ráðuneytið vegna frekari samninga í framtíðinni.
Hann taldi að Vegagerðin ætti að annast alla ábyrgð vegna mála er varða lausagöngu búfjár, en ekki landeigandinn. Þarna væri um lítinn viðbótarkostnað Vegagerðarinnar að ræða. Búið er að halda marga fundi með Vegagerðinni vegna þessara mála en niðurstöður hafa ekki náðst. Hann lagði fram eftirfarandi bókun ;
?Bæjarstjórn Hornafjarðar ítrekar einu sinni enn að lausaganga búfjár við þjóðveg 1 er óviðunandi. Þetta er sérstaklega áberandi í sveitarfélaginu Hornafirði enda yfir 200 km eða um 1/7 af þjóðvegi 1 innan marka þess. Í Austur-Skaftafellssýslu eru ekki hefðbundinn afréttur eins og víða á landinu. Sumarbeit búfjár hefur verið og er að miklu leyti á eignarlöndum sem þjóðvegur 1 liggur um og þess vegna skapast mikil slysahætta vegna ákeyrslna á búfénað. Bæjarstjórnin leggur áherslu á að Vegagerðin eigi að tryggja öryggi vegfaranda og búfénaðar um þjóðveg 1 með fjárheldum girðingum. Bæjarstjórnin skorar á samgönguyfirvöld að taka þessi mál föstum tökum og lýsir sig reiðubúin til viðræðna um lausn vandans í Austur-Skaftafellssýslu. Bæjarstjórnin telur mikilvægt að sett verði markmið um úrbætur og hafist verði handa við framkvæmdir á hættulegustu köflunum strax á næsta ári?
Samþykkt samhljóða með öllum greiddum atkvæðum
Þóra tók undir orð bæjarstjóra en vanda þurfi til þessara verka ef árangur eigi að nást. Hún spurði um stöðu mála vegna lausagöngu stórgripa í sveitarfélaginu.
Vignir tók einnig undir orð bæjarstjóra og vakti athygli á ágangi búfjár í þéttbýlinu á Höfn, þar sem nýframkvæmdir við stækkun golfvallar lægju jafnvel undir skemmdum.
Halldóra vakti athygli á að í gildi væri reglugerð um lausagöngu búfjár á Höfn sem fara bæri eftir.
Bæjarstjóri sagði að eftir sameiningu sveitarfélagsins alls, hafi ekki verið tekin sú ákvörðun að gerð verði sameiginleg samþykkt um þessi mál, en nú væri e.t.v. kominn tími til þess í ljósi umræðunnar. Hvað varðaði ágang búfjár í þéttbýli þá reyndi sveitarfélagið að framfylgja sínum skyldum, en það væri ekki alltaf auðvelt miðað við núverandi aðstæður.
Fundargerð samþykkt
Bæjarráð Hornafjarðar 259. fundur 15. júlí 2004
? Umhverfisnefnd 43. fundur, 12. júlí 2004
? Heilbrigðis og öldrunarráð 52. fundur5. júlí 2004
? Stjórn Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs 21. fundur 5. júlí 2004
Fundargerð samþykkt
Bæjarráð Hornafjarðar 260. fundur 29. júlí 2004
? Byggingar- og skipulagsnefnd 54. fundur 22. júlí 2004
? Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 715. fundur 25. júní 2004
Kristín ræddi um lausnir í fráveitumálum og vakti athygli á að umhverfisnefnd hafi í umsögn sinni valið leið 3, en bæjarráð hafi þar á móti valið leið 4, sem að vísu er talin ódýrari, auk þess sem ráðgjafi í þessum málum hafi einnig mælt með henni. Hún spyr því hvort umhverfisnefndin hafi ekki verið með þessar upplýsingar þegar þeir tóku sína ákvörðun og af hverju ekki sé tekið tillit til álits nefnda sem skipaðar eru af bæjarstjórn. Hún taldi þetta einnig eiga við í málum um mötuneyti fyrir grunnskólana á Höfn og hvatti bæjarfulltrúana til að gera grein fyrir sínum ákvörðunum.
Reynir taldi eðlilegt að bæjarráð væri ekki ætíð sammála undirnefndum og að ekki væri endilega um endanlega lausn að ræða í frárennslismálum, heldur væri hægt að taka aðrar ákvarðanir síðar meir ef leið 4 einhverra hluta vegna gengi ekki upp.
Halldóra benti á að endanlega væri það bæjarstjórn sem tæki ákvarðanir og hún gæti tekið fram fyrir hendurnar á bæjarráði, sem getur tekið fram fyrir hendurnar á ákvörðunum einstakra nefnda og það væri eðlilegur hlutur. Hér væri auk þess ekki um mörg mál að ræða.
Bæjarstjóri telur ekkert óeðlilegt við það að bæjarráð taki fram fyrir hendurnar á einstaka nefndum og að bæjarstjórn er endanlega ábyrg fyrir öllum ákvörðunum. Hann benti á að endanlega kostnaðartölur vegna fráveitulagna hafi ekki verið komnar þegar umhverfisnefnd tók sína ákvörðun og að ekki sé verið að rýra gildi fólkvangsins í Óslandi með því að velja leið 4. Ákvörðun hafi þurft að taka, en jafnframt er hægt að breyta henni ef nauðsyn þykir til, síðar.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 261. fundur 12. ágúst 2004
? HAUST 48. fundur Heilbrigðisnefndar Austurlands 30. júní 2004 til kynningar
Fundargerð samþykkt
Bæjarráð Hornafjarðar 262. fundur 26. ágúst 2004
? Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 60. fundur 10. ágúst 2004
? Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 59. fundur 12. ágúst 2004
? Skólanefnd Hornafjarðar 62. fundur 12.ágúst 2004
Þóra spurðist fyrir um hvort ekki hefði átt að vísa erindi um umsagnir gistileyfa til byggingar- og skipulagsnefndar áður en bæjarráð gaf umsögn og ef bæjarráð hyggist breyta núgildandi lögreglusamþykkt, hvort það þyrfti ekki fyrst að fara í ákveðnar nefndir.
Reynir spurðist fyrir um framvindu við hugsanlegan viðlegukant út í Óslandi vegna nýrrar staðsetningar á húsnæði veiðafæragerðarinnar Ísnet.
Vignir spurðist fyrir um hvers vegna beiðni um greiðslu kostnaðar vegna óskar um skólavist í öðru sveitarfélögum væri hafnað.
Bæjarstjóri svaraði að breyttar starfsreglur og rýmri reglugerðir gerðu það mögulegt að byggingarfulltrúi getur afgreitt svo kölluð smærri mál með starfsmönnum tæknideildar og formanni nefndarinnar. Þetta gerði kerfið skilvirkara fyrir bragðið.
Hann upplýsti að Siglingastofnun vinni að frumhönnun nýrrar viðlegu í Óslandi sem síðan færu til nánari skoðunar í Hafnarstjórn.
Margar ástæður geta legið fyrir um óskir vegna greiðslu kostnaðar vegna skólavistar utan lögheimilissveitarfélags og þær þurfa að vera ríkar til þess að þær verði samþykktar. Hér var um mikinn kostnað að ræða og því ekki mögulegt að fallast á umsóknina.
Bæjarstjóri vakti athygli á umræðu um málefni um þjóðgarð og benti á þátt heimamanna og áhrifa þeirra vegna stækkunar þjóðgarðsins í Skaftafelli
Halldóra vakti athygli á stöðu mála vegna fyrirhugaðrar stækkunar á þjóðgarðinum og lýsti yfir megnri óánægju sinni með að ríkið skuli ekki hafa heimamenn meira með í ráðum eins og ítrekað hefur verið lögð áhersla á í allri þessari vinnu frá upphafi. Hún rakti störf nefndarinnar frá upphafi, framgang mála og fyrirliggjandi drög að samþykkt um stækkun þjóðgarðarins.
Kristín tók undir með Halldóru og benti á að þannig væru vinnubrögð ríkisstjórnarinnar.
Vignir taldi vinnubrögðin slæm og að þarna væri um stórt landsvæði að ræða og því e.t.v. vafamál hvort sveitarfélagið mætti taka ákvarðanir um þessi mál.
Þóra tók undir með fundarmönnum og taldi rétt að fara í nánari umræður um þessi mál áður en sveitarfélagið veitti endanlegt samþykki
Bæjarstjóri vakti athygli á því að sveitarfélagið fari með skipulagsskyldu í sveitarfélaginu skv. lögum og að lög gildi væntanlega fram yfir settar reglugerðir.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarstjórn Hornafjarðar 74. fundur, 3. júní 2004, fundargerð áður samþykkt.
2. Fyrirspurnir
Engar.
Fundi slitið kl. 20:00.


